Morgunblaðið - 21.07.2007, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 21.07.2007, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING KET, réttu nafni Alain Mari- dueña, hefur verið ákærður af yfirvöldum í New York fyrir þá iðju sem á ís- lensku hefur verið kölluð veggjakrot. Krotið er af mörgum flokkað til lista. KET varð þekktur af verkum sínum á 9. áratugnum, þegar hann var á tán- ingsaldri og úðaði á lestarvagna ýmsar myndir og mynstur og merkti sér KET. Í október sl. lagði lögreglan í New York hald á 3.000 úðabrúsa, tölvur og myndavélar á heimili hans. KET hefur nú verið ákærður með þeim rökum að listamanns- merkingu hans sé að finna á lest- arvögnum og í heimilistölvu. KET segist hins vegar hættur að úða á lestir, hafi aðeins úðað vegg fata- hreinsunar með leyfi eigandans. Til höfuðs „graffiti“ Veggjakrot STARFSMENN bresku barna- hjálparlínunnar ChildLine voru í gær í viðbragðsstöðu vegna seinustu bókarinnar um Harry Potter, sem sala hófst á um miðnætti. Fleiri verða á vakt á línunni en venja er, vegna bókarinnar, þar sem menn búast við því að börn og ungmenni bregðist illa við ef einhverjar lyk- ilpersónur láta lífið. Höfundur Harry Potter-bókanna, JK Rowling, hefur gefið upp að ein- hverjar persónur muni láta lífið í bókinni, Harry Potter and the Deadly Hallows. Ungir aðdáendur gætu orðið harmi slegnir, sér- staklega þó ef Potter sjálfur deyr. Verði það illmennið Woldemort þarf vart að hafa áhyggjur. ChildLine býður börnum og ung- mennum að hringja hvenær sem er sólarhrings og njóta huggunar. Breska bókaverslanakeðjan Wa- terstone’s hefur einnig látið fé af hendi rakna til hjálparlínunnar. Kate Trench, yfirmaður hjá ChildL- ine, segir hættu á því að andlát ást- kærrar sögupersónu geti ýft upp gömul sár, t.a.m. andlát vinar, ætt- ingja eða dauða gæludýrs. Börnum veitt hjálp Dauðans alvara Harry Potter. FORSVARSMENN bóka- forlagsins Veraldar, hafa selt japanska forlaginu Shueisha út- gáfuréttinn þar í landi að bók Yrsu Sigurðardóttur, Þriðja táknið. Shueisha er einn stærsti bókaútgefandi Japans. Í tilkynningu frá Veröld segir að afar fátítt sé að íslenskar bækur komi út á japönsku og því séu þetta nokkur tíðindi. Samningar hafa nú verið gerðir um útgáfu bókarinnar á 30 tungumálum. Þá er í undirbúningi gerð kvikmyndar eftir sög- unni, hjá þýska framleiðandanum Ziegler film. Þriðja glæpasaga Yrsu kemur út í haust. Bókmenntir Þriðja táknið gefið út á japönsku Yrsa Sigurðardóttir LANDVERND efnir til ljós- myndasamkeppni undir yf- irskriftinni „Augnablik í eld- fjallagarði“, en sá garður liggur frá Reykjanesi að Þing- vallavatni. Viðfangsefnin eru hverir, jarðmyndanir og nátt- úruperlur ýmsar sem finna má á þessu svæði. Ljósmyndum skal skila inn fyrir 10. ágúst og verður sett upp sýning á völd- um myndum í húsnæði Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum. Sýningin verður opnuð 29. ágúst. Nánar má kynna sér keppnina og hugmyndir Landverndar um eldfjallagarð á landvernd.is. Ljósmyndun Augnablik í eldfjallagarði Hverasvæði á Reykjanesi SÖNGFLOKKURINN Voces Thules syngur nokkur lög í klausturmessu í Viðeyj- arkirkju á morgun kl. 14.30. Söngflokkurinn hefur allt frá stofnun árið 1992 sérhæft sig í flutningi samtíma- og miðalda- tónlistar. Sr. Jakob Ágúst Hjálm- arsson dómkirkjuprestur messar og fyrrverandi Dóm- kirkjuprestur og staðarhaldari í Viðey segir í athöfninni frá Viðeyjarklaustri. Viðeyjarklaustur var stofnað af Þorvaldi Giss- urarsyni árið 1225 og var fyrsta klaustrið í Sunn- lendingafjórðungi. Tónleikar Voces Thules í klausturmessu Viðeyjarkirkja Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is EINN MESTI vinur Klais- orgelsins í Hallgrímskirkju, Hann- fried Lucke, prófessor í orgelleik við Mozarteum listaháskólann í Salzburg, tekur þátt í tónleikaröð kirkjunnar, Alþjóðlegu orgelsumri, í fimmta sinn nú um helgina með tvennum tónleikum. Þeir fyrri verða kl. 12 í dag og þeir seinni kl. 20 annað kvöld. Á fyrri tónleikunum flytur Lucke „Sinfóníu“, kafla úr kant- ötunni „Was Gott tut, das ist wo- hlgetan“ og sálmforleikinn „Vater unser im Himmelreich“, allt verk J.S. Bach og þvínæst franska org- eltónlist. Fyrri hluti tónleikanna á sunnudagskvöld er tileinkaður norður-þýska orgelskólanum, m.a. „Tokkata“ eftir Johann Ludwig Krebs, sem þykir áhugavert fyrir 52 fótspilseinleik í upphafi, að hluta til tvíradda. Þá leikur Lucke „Sónötu nr. 4 í e-moll“ sem J.S. Bach skrifaði fyrir son sinn Wil- helm Friedemann, en þar leika hendurnar sín hvora röddina og fæturnir þá þriðju. Eftir hlé verða leikin verk eftir þýsku tónskáldin Brahms og Mendelsson og frönsku tónskáldin Maurice Duruflé og Louis Vierne. Lucke mun einnig leika af fingrum fram við stef sem honum verður afhent á staðnum. Hrifinn af Íslandi „Hann er þrælfær,“ segir Erla Elín Hansdóttir, hjá Listvinafélagi Hallgrímskirkju, um Lucke. „Hann er líka hrifinn af Íslandi og er að koma með konuna sína hing- að í fyrsta sinn.“ Erla segir þá organista erlenda sem komið hafa til að spila í kirkjunni og þekkja til Klais-orgela afar hrifna af org- eli kirkjunnar og telja það afar vel lukkað. Hvað 52 takta fótspilsein- leikinn varðar segir Erla að það sé heldur óvenjulegt í org- elverkum. Bassinn sé leikinn með fótunum og því mikið bassaspil í upphafi. Orgelleikur sé flókinn að mörgu leyti, leikið með höndum og fótum. „Það eru margir sem læra fyrst á píanó og fara svo á orgelið. Það sem er flókið í þessu sam- bandi er að samhæfa fætur og hendur. Ef þú ætlar að ná langt verðurðu að geta æft þig á stór orgel, raddvalið er mikilvægt og að finna góðan hljóm. Þú ert alltaf að koma að nýjum hljóðfærum, í orgelinu í Hallgrímskirkju eru t.d. 72 mismunandi raddir,“ segir Erla. Í tríósónötu, eins og þeirri eftir Bach sem Lucke leikur annað kvöld, eru þrjár raddir, ein í hægri hendi, ein í vinstri og ein í fótspili. Þá þarf orgelleikarinn að ákveða hvaða raddir orgelsins eigi að mynda fyrstu röddina, sem leikin er með hægri hendi, og síð- an koll af kolli. „Þess vegna þurfa þeir (orgelleikararnir) að koma fyrr, til að raða niður röddunum. Það er raddvalið sem skiptir máli og þess vegna þurfa þeir tíma, þeir eru löngu búnir að æfa verkin en þurfa að æfa þau á hverju hljóðfæri fyrir sig. Það er alltaf munur milli hljóðfæra,“ segir Erla. Virtur og verðlaunaður Orgelnám er langt og strangt og ekki óalgengt að eftir nám á Íslandi taki við 5-7 ára nám er- lendis. Lucke hlaut tónlistar- menntun sína við Ríkistónlist- arskólann í Freiburg, við Salzburg Mozarteum í Austurríki og Tón- listarháskólann í Genf, útskrifaðist í kirkjutónlist og með einleik- arapróf. Hann hlaut heiðursverðlaun austurríska menntamálaráðherr- ans 1993 og hafa hljóðritanir hans hlotið alþjóðlegar viðurkenningar. Fyrir tíu árum tók hann við stöðu prófessors í orgelleik við Tónlist- ar- og listaháskólann í Graz í Austurríki og árið 2000 var hann skipaður yfirmaður orgeldeildar Mozarteum. Hannfried Lucke organisti heldur tvenna tónleika í Hallgrímskirkju um helgina Leikur af fingrum fram KLAIS-ORGELIÐ er 72 radda pípuorgel, smíðað af Johannes Klais org- elsmiðjunni í Bonn í Þýskalandi og vígt á öðrum sunnudegi í aðventu árið 1992. Á því eru fjögur spilaborð, 72 raddir og 5.275 pípur. Sjálft orgelið er um 15 metra hátt og vegur um 25 tonn. Orgelið er það langstærsta á land- inu og rómað meðal organista víða um heim fyrir gæði, fjölbreytt raddval og þykir falla vel að rými kirkjunnar. 25 tonn og 5.275 pípur BORGNESINGUM verður boðið upp á eyrnakonfekt annað kvöld kl. 20, en þá þenja raddböndin Þóra Einarsdóttir, sópransöngkona og Björn Jónsson, tenór og Anna Ás- laug Ragnarsdóttir leikur á píanó á tónleikum í Borgarneskirkju. Þríeykið leggur í efnisskránni áherslu á létt verk og sumarleg; sönglög, dúetta og píanóverk eftir Grieg, Schumann og Richard Strauss. Má þar nefna Vatnaliljuna og Vorið eftir Grieg, sem lést fyrir 100 árum. „Við miðuðum öll verkin við að hafa þau svolítið sumarleg, þetta eru sumartónleikar,“ segir Anna og von- ast til þess að tónleikagestir upplifi sumar og rómantík. Anna segist hafa ákveðið efnis- skrána með þeim Þóru og Birni, þau séu öll búsett í Þýskalandi og þekk- ist þaðan. „Við höldum svo tónleika á Ísafirði, í Hömrum, 26. júlí kl. 20 og 29. júlí í Listasafni Sigurjóns á Lauganesinu, kl. 20.30,“ bætir Anna við. Anna, Þóra og Björn eru þaul- reynd á tónlistarsviðinu. Hlutverk Þóru á óperusviði eru orðin á fjórða tug, Björn hefur einnig sungið í fjölda óperuhúsa og leggur auk þess stund á rannsóknir á rekstri og stjórnun óperuhúsa. Anna er með einleikarapróf og hefur m.a. oft leikið með Sinfón- íuhljómsveit Íslands, haldið einleiks- tónleika víðs vegar um landið og á síðari árum verið meðleikari með ljóðasöng og kammertónlist. Sumarstemning í Borgarnesi Þrenning Björn, Þóra og Anna verða í sumarskapi á tónleikunum. ♦♦♦ Fingrafimur Hannfried Lucke við Klais-orgelið í Hallgrímskirkju. Morgunblaðið/Ásdís FÆRA á marga helstu dýrgripi grískrar lista- og menningarsögu úr Meyjarhofinu, Panþeon, á Akró- pólishæð í nýtt safn sem opnað verður almenningi á næsta ári. Safnið ber nafn hæðarinnar, Akró- pólis. Þó svo aðeins þurfi að færa styttur og lágmyndir um nokkur hundruð metra er það þó kostn- aðarsamt verk og áhættusamt, þar sem þessir dýrgripir voru ekki gerðir með flutning í huga. Alls verða 330 gripir færðir í safnið, úr Meyjarhofinu og víðar að af hæðinni. Þyngsti gripurinn sem fluttur verður vegur 2,5 tonn. Dýrgripir fluttir til ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.