Morgunblaðið - 21.07.2007, Page 17

Morgunblaðið - 21.07.2007, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 17 MENNING Gríptu augnablikið og lifðu núna Komdu við í næstu Vodafone verslun og nældu þér í gæðabolta. Almennt verð 1.990 kr. Þú færð bestu kjörin með því að vera með allt hjá okkur í Og1. Meistaradeildarboltar á aðeins 990 kr. fyrir Og1 viðskiptavini. Hittu í markBERGSTEINN Ásbjörnsson heitir listamaður fæddur á Fróni en búsett- ur í Svíþjóð síðastliðin 30 ár ævi sinn- ar. Bergsteinn opnaði á dögunum sýningu í Listasal Mosfellsbæjar undir yfirskriftinni „Bönd“. Senni- lega fellur framkvæmdin undir text- íllist þar sem 365 hampþræðir teygja sig eftir rýminu og upp eftir veggjum og hanga þar í röð strekktir með kljá- steinum eins og notaðir voru í veflist hér áður fyrr. Þessir steinar eru hins vegar úr 18 þúsund milljón ára berg- tegund sem listamaðurinn notar einn- ig í egglaga form sem liggur í rýminu miðju. Um eggið liggur hampurinn svo eins og hreiður og í hverju horni rýmisins er ímynd engils steypt í brons og snýr í átt að egginu með út- breidda vængi. Í þessu má sjá margskonar tákn- fræðilegar tilvísanir í Norræna goða- fræði og kristnina. Í heiðni táknaði eggið til að mynda endurfæðingu jarðar og var tákngert með ritúali á vorin. Með yfirtöku kristninnar breyttist táknfræðin í endurrisu mannsins. Hampurinn ku hafa ein- hverja hugmyndalega tengingu við rætur Yggdrasils sem báru uppi jörð- ina samkvæmt goðafræðinni og engl- arnir virka sem einhverjar vættir sem gæta jarðarinnar eða mannsins úr fjórum áttum. Með englunum og þráðunum skapar Bergsteinn ein- hverskonar verndarhjúp í rýminu umhverfis eggið. Helsti löstur inn- setningarinnar er hve hún er stíf og rýmið þá óþarflega herpt saman. En á móti tekst Bergsteini að nýta úrelt upphengi sem vart sómir lengur al- varlegum sýningarsal myndlistar, en það eru renningar sem liggja eftir veggjunum endilöngum sem ætlaðir eru til að hengja upp myndir í þráð- um. Bergsteinn gerir þræðina að listaverkinu sjálfu, leggur metnað í framkvæmdina og skilar frá sér alveg ágætri sýningu. Morgunblaðið/G.Rúnar Textílinnsetning Á sýningunni eru margskonar táknfræðilega tilvísanir. Verndarhjúpur MYNDLIST Listasalur Mosfellsbæjar Opið virka daga kl. 12-19 og laugardaga kl. 12-15. Sýningu lýkur 28. ágúst. Að- gangur ókeypis. Bergsteinn Ásbjörnsson Jón B. K. Ransu FYRSTIR skulu síðastir verða eins og skrifað stendur. Gilti það s.l. laug- ardag í Skálholti um Apokrypha [45’], 11-þætt verk Huga Guðmunds- sonar, er færðist frá kl. 15 til 17 af þegar tilgreindum ástæðum. Lék all- mikil eftirvænting yfir áheyrendum, enda farnar að berast jákvæðar fréttir að utan um nýleg verk Huga eins og Eq. IV: Windbells er ku mik- ið flutt erlendis um þessar mundir. Auk þess er langt á milli hérlendra frumflutninga á þetta löngum tón- smíðum eftir höfunda af yngstu kyn- slóð, hvað þá við latneska trúartexta. Kveikti það vitanlega forvitni eftir frekari upplýsingum um tilurð og efni, en þar komu hlustendur því miður bónleiðir til búðar. Tónleika- skráin þagði þunnu hljóði, og snjallt erindi Skálholtsrektors kl. 14, „Hvað er Apokrypha?“ fjallaði né heldur um tónverkið svo neinu næmi. Kjör- ið hefði auðvitað verið að fá tón- skáldið til að greina frá verki sínu, en sjálfsagt ber að virða það sjón- armið að verkið tali sínu máli eitt og óstutt. Samt get ég ekki neitað því að örstutt heimildagreining á lat- ínutextunum fjórum er birtust á frummáli og íslenzku, O bona crux (III), Anima Christi (VI), Angele Dei (IX) og Salva me (XI), hefðu komið hlustendum að talsverðu gagni; a.m.k. þeim sögumeðvitaðri. Fornir lítúrgískir textar eiga sér djúpan menningararf sem segir heil- mikið umfram sjálft merkingar- inntakið. En hvað sem því líður þá var lengst af fólgin sérkennileg upp- ljómun í tónboðskap verksins. Lag- ferlið brúaði sannfærandi ólíka tón- heima ævaforns kirkjusöngs (með ávæningi af austurlenzku kryddi úr sýnagóguhefð gyðinga) og vest- urlenzks nútímastíls (að meðtöldum örsnifsum úr Liljulagi í IV), og oft- ast kyrrlátt liggjandi hóflega klösótt hljómaferlið laðaði fram það seið- andi launhelga íhugun að vantaði að- eins reykelsisilminn. Undir seinni hlutann þótti mér hins vegar farið að verða nóg af svo búnu, því þó að stök dramatísk upp- brot ættu sér stað, dugðu þau ekki til fullnægjandi mótvægis við alls- herjar mókhyggjukyrrstæðuna – þó vitaskuld mæli ég ekki fyrir munn allra áheyrenda. Hitt var þó öllum ljóst, að frábært framlag Guðrúnar Jóhönnu setti afgerandi punkt yfir i- ið með íðilfögrum sléttsöng (ásamt þónokkrum funheitum bel canto andstæðum) í samræmi við forn- hljóðfæraslátt NoA. Raunar virtist sem sópranhlutverkið væri það sér- saumað fyrir söngkonuna að vand- séð var hver hefði getað túlkað það betur. Seiðandi sléttsöngur Ríkarður Ö. Pálsson TÓNLIST Skálholtskirkja Hugi Guðmundsson: Apokrypha (frumfl. á Ísl.). Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir sópran og barokksveitin Nordic Affect (Georgia Browne flauta, Sara DeCorso & Halla S. Stefánsdóttir fiðla, Guðrún H. Harð- ardóttir víóla, Hanna Loftsdóttir selló, Josh Cheatham bassagamba, Benoit van den Bemden víólóna, Karl Nyhlin þjorba/ barokkgítar og Cvetanka Szosovka semball), ásamt Frank Aarnink slagverk. Stjórnandi: Daníel Bjarnason. Laugardag- inn 7.7. kl. 17. Sumartónleikar  LISTASAFN Árnesinga í Hvera- gerði hefur verið opnað að nýju eftir að nýr safnstjóri hóf þar störf, Inga Jónsdóttir, sem jafnframt er sýning- arstjóri metnaðarfullrar sýningar sem stendur nú yfir undir yfirskrift- inni „Að flytja fjöll“. Þar má sjá tölu- vert úrval verka eftir Ásgrím Jóns- son, fengnum úr safneign Listasafns Árnesinga og Listasafns Íslands. Myndirnar, sem unnar eru í vatnslit og olíu og spanna fyrri helming 20. aldar, eru af hinum ýmsu fjöllum landsins og votta hversu víðförull Ásgrímur var. Þá eru þær settar í samhengi við verk ýmissa samtíma- myndlistarmanna sem einnig hafa fengist við að myndgera fjöll í verk- um sínum. Yfirskrift sýningarinnar skír- skotar til flutnings fjalla í marg- víslegum menningarlegum skilningi, svo sem í tungumálinu, í huglægu formi minninga eða formi mynd- verks landshorna á milli. Fjöll lands- ins flytja í afleiddri mynd inn í stofur reykvískra góðborgara eða húsa- kynni Listasafns Íslands, birtast sem ljósmyndir í sýningarskrám, dagblöðum eða á vefsíðum. Fjöllin taka líka breytingum og færast til á myndfletinum í túlkun og skráningu listamannanna. Allar þessar fjalla- myndir, eða táknmyndir, gegna ekki síst mikilvægu hlutverki í íslenskri þjóðarvitund. Ásgrímur leitaðist við að búa til eftirmyndir fjalla og ná fram lit- og ljósbrigðum í samræmi við árstíð og veðurfar. Sum fjöll, eða „mótíf“ mál- aði hann oftar en einu sinni og sá nýja myndræna áskorun hverju sinni. Núlifandi listamenn, sem eiga verk á sýningunni, hafa nálgast fjöll- in og landslagshefðina á forsendum samtímans, gjarnan í samræðu við hefðina sem dregin er fram á þessari sýningu. Til dæmis er vatnslitamynd Ásgríms frá Kerlingarfjöllum (1921) staðsett við hlið myndar Magnúsar Tómassonar, „Fjall/dalur“ (1977-78), sem er nokkurs konar „athuga- semd“ um landslagshefðina. Húm- orinn er ekki langt undan í verki Magnúsar Pálssonar, „Hattfjall“, (1960-70) sem samanstendur af tveimur máluðum kvenhöttum og felur í sér vissa afhelgun á hefðinni og hugmyndum um hið myndræna. Húbert Nói er líkt og Ásgrímur trúr staðfræðinni en þó ekki með því að nafngreina fjöllin heldur með að- stoð nútímatækni, GPS-staðsetning- arkerfis.Verk hans „Kassi fyrir GPS myndir“ (1996), sem tekur á sig mynd fjalls, hefur sterka skírskotun til yfirskriftar sýningarinnar. Stað- fræði Georgs Guðna er á reiki – óá- þreifanleg fjöll hans eru mishulin sjónum og án titils í þokukenndum dumbungi eða þau birtast okkur sem staðlað form eða kennileiti sem býr í vitundinni eða menningarminninu. Fjöll Þorbjargar Þorvaldsdóttur í verkinu „Fjall-landslag“ (1995) eru einnig formrænar og litrænar stað- almyndir jarðfræðilegra myndana. Nálægðin við vatnslitamyndir Ás- gríms minna á að þau eiga sam- svörun í fjölmörgum fjöllum lands- ins og að sum rata oftar en önnur á striga (eða annan miðil) vegna form- rænnar sérstöðu. Staðsetningin verður einnig óljós í málverkum Guðrúnar Kristjánsdóttur af þoku- kenndum fjallshlíðum en verkin leika á mörkum hins óhlutbundna. Hér sýnir hún hins vegar einnig kirfilega staðfærða fjallshlíð – snjó- mynstur í mynd Ásgríms af Ár- mannsfelli flyst til í rýminu í graf- ískri eftirmynd og setur jafnframt skemmtilegan svip á salinn. Mynd Ásgríms verður jafnframt hluti af verki Guðrúnar sem minnir á hvern- ig listamenn sækja innblástur í verk annarra listamanna og í listasöguna, ekki síður en t.d. í náttúruna. Skálduð, á stundum dálítið háska- leg, fjallaform Brynhildar Þorgeirs- dóttur úr gleri, steinsteypu og stundum sandi, skírskota til þess hvernig hlutar fjalla umbreytast í byggingarefni mannabústaða. Í verkinu „Álfasteinn“ (1987) má hugsa sér umbreytinguna yfir í efni- við álfakirkju. Ljósmyndir Ólafs Elíassonar af skriðjöklum í verkinu „Glacier ser- ies“ (1999) sýna fjöll í mótun og til- færslu jarðefna og kallast á við verk Ásgríms þar hjá af síbreytilegum Eiríksjökli, eftir sjónarhorni, árstíð, veðri eða skapi listamannsins. Á sýningunni hefur þess verið gætt að veita verkum Ásgríms and- rúm – val verkanna er athyglisvert og varpar ljósi á að Ásgrímur var í stöðugri þróun sem listamaður. Samræða milli verka hans og nýrri verka er stundum búin til með beinu stefnumóti verka hlið við hlið, ann- ars með óbeinum hætti. Hin form- ræna tenging er mest áberandi en nýrri verkin gefa jafnframt tilefni til þess að skoða Ásgrímsmyndirnar frá hugmyndalegum sjónarhóli. Sýn- ingin höfðar jafnt til aðdáenda Ás- gríms og hefðarinnar sem og unn- enda samtímalista – og opnar fyrir flæði þar á milli. Fjallað um fjöll Að flytja fjöll Verk eftir Ásgrím Jónsson, Guðrúnu Kristjánsdóttur og Brynhildi Þorgeirsdóttur. MYNDLIST Listasafn Árnesinga Til 29. júlí 2007. Opið daglega kl. 12-18. Aðgangur ókeypis. Að flytja fjöll – Ásgrímur Jónsson, Brynhild- ur Þorgeirsdóttir, Georg Guðni, Guðrún Kristjánsdóttir, Húbert Nói, Magnús Páls- son, Magnús Tómasson, Ólafur Elíasson, Þorbjörg Þorvaldsdóttir. Sýningarstjóri: Inga Jónsdóttir. Anna Jóa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.