Morgunblaðið - 21.07.2007, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 21.07.2007, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ ÁRBORGARSVÆÐIÐ Eftir Sigurð Jónsson Selfoss | „Það var danskur bakari sem kom inn þeirri hugmynd hjá mér að verða bakari. Hann leigði hjá okkur og var gríðarlega flinkur í höndunum og bjó til ýmislegt heima, bakaði, gerði marmelaði og fleira. Ég smitaðist af því að horfa á hann og langaði að fara í bakaraiðnina og fann mig í henni frá fyrsta degi,“ sagði Guðni Andreasen, bakara- meistari á Selfossi, sem rekið hefur Guðnabakarí í 35 ár ásamt eiginkonu sinni, Björgu Óskarsdóttur. Þau hófu að starfrækja Guðnabak- arí að Kirkjuvegi 8 á Selfossi, í 50 fermetra húsnæði. Nú starfrækja þau bakaríið í 600 fermetrum að Austurvegi 31b en þangað flutti hann 1980 en stækkaði það síðan enn frekar 1984. Í bakaríinu eru þrír bakarar auk Guðna og síðan fjögur stöðugildi til viðbótar. Fjölskyldan starfar í bakaríinu en tveir synir þeirra hjóna eru bakarar og annar þeirra starfar í Guðnabakaríi. Allt seldist Guðni lærði til bakara hjá Lúðvík Jónssyni bakarameistara hjá Kaup- félagi Árnesinga og byrjaði námið 1. september 1966. „Ég fór svo til Dan- merkur til að afla mér reynslu og víðtækari þekkingar. Þar var ég í tæpt ár en þegar ég kom til baka var ekki um það að ræða að fá vinnu aft- ur hjá kaupfélaginu þrátt fyrir að ég hefði loforð þar um. Þetta varð til þess að ég fór að vinna í Reykjavík sem var góður og lærdómsríkur tími en Selfoss togaði í mig og mig lang- aði að vinna hérna. Þegar ég svo gat komist yfir húsnæði á Selfossi þá stökk ég á það að byrja. Við byrj- uðum smátt, með einn 12 plötu ofn, eina hrærivél og eltikar en þetta gekk allt upp. Okkur var tekið ótrú- lega vel, það var alveg sama hvað ég framleiddi, það seldist allt og það eina sem hélt aftur af mér var fram- leiðslugetan. Við bökuðum í þá daga pylsubrauð í þúsundatali enda voru pylsurnar eini skyndibitinn í þá daga. En svo lögðum við líka áherslu á morgunbrauð eins og í Danmörku sem var mjög vinsælt,“ sagði Guðni. Hann og kona hans eru þekkt fyrir stuðning sinn við íþróttafélög og skátana og þegar uppákomur eru í bænum. „Við höfum reynt að styðja vel við bakið á félögum hér í heima- byggð og leggjum þeim lið þegar þau eru í einhverjum verkefnum þar sem brauð og kökur koma við sögu, í af- mælum eða keppnisferðum.“ Gaman að baka „Mér finnst alltaf jafn gaman að baka. Það er gefandi að búa til fal- legar kökur en því miður þarf maður oft að flýta sér svo mikið að maður getur ekki lagt þá vinnu í það sem mann langar. Það er sérlega gaman að búa til fallegar brúðartertur en sú terta er oftast punkturinn yfir i-ið í veislum og því mjög gaman að hún sé falleg,“ sagði Guðni Andreasen bak- arameistari sem segir frítímann knappan enda býr hann í íbúð fyrir ofan bakaríið og því nánast alltaf til- tækur þegar kallað er úr bakaríinu. „Við eigum sumarhús í Grímsnesi sem við notum mikið,“ sagði Guðni. Sérlega gaman að búa til fallegar brúðartertur Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Bakarinn Guðni Andreasen, bakarameistari á Selfossi í 35 ár, er vakinn og sofinn yfir fyrirtækinu enda býr hann í íbúð í bakaríinu. Selfoss | „Ég hef fengið mjög góðar und- irtektir og fjöldi fólks hefur hringt í mig og boðið fram að- stoð sína. Ég er þess vegna mjög bjartsýnn og það er gott hljóð í hópnum sem vinnur að skipulagn- ingu þessarar hátíðar,“ sagði Kjartan Björnsson, rakari á Sel- fossi, sem hefur haft frumkvæði að því að haldin verði bæjarhátíð á Selfossi til að minnast þess að 60 ár eru síðan Selfoss var gert að sjálf- stæðu sveitarfélagi. „Við erum með til skoðunar dag- ana 14. til 16. september sem yrði þá hátíðarhelgin. Ég vona að við náum til fólks og félaga á Selfossi um að leggja okkur lið og ég efast ekki um að þetta verður góð hátíð. Öll félög og einstaklingar á Sel- fossi eru velkomin til þátttöku og á ég von á því að menningin muni blómstra, tónlistin, myndlistin og allt sem nöfnum tjáir að nefna. Draumurinn er að Stúlknakór Gagnfræðaskólans á Selfossi komi saman og syngi á hátíðinni,“ sagði Kjartan, sem hefur kallað hóp fólks til að leggja verkefninu lið, og enn- fremur að hann hefði nefnt þetta við Jón Inga Sigurmundsson sem stjórnaði kórnum og hefði hann tekið þokkalega í hugmyndina. „Byggðin er mér kær og ég vil halda hátíð og minnast þeirra sem byggðu upp bæinn og ruddu braut- ina og svo er alltaf gaman að koma saman og gleðjast,“ sagði Kjartan Björnsson um ástæðu þess að hann beitir sér fyrir sérstakri afmæl- ishátíð en hann átti frumkvæði að því að koma á vinsælu Selfoss- þorrablóti sem haldið er árlega og hefur hvarvetna verið talsmaður mikils staðarmetnaðar fyrir hönd Selfossbúa. Kór Stúlknakór Gagnfræðaskólans á Selfossi var stofnaður 1959 og starf- aði fram til 1983. Hér er kórinn 1968, á tröppum Selfosskirkju, ásamt stjórnanda sínum, Jóni Inga Sigurmundssyni. Draumurinn að Stúlkna- kórinn frá 1968 syngi Kjartan Björnsson AKUREYRI NÚ FER að styttast í Handverkshátíðina á Hrafnagili sem mun hefjast 10. ágúst næst- komandi. Handverksfólk víðs vegar um landið vinnur því hörðum höndum að því að útbúa muni sem verða til sýnis á hátíðinni. Á meðal þess sem verður á boðstólum að þessu sinni er óvenjuleg smíði sem 6 tré- skurðarmenn, sem kalla sjálfa sig „Einstak- ir“, hafa unnið að. Smíðin óvenjulega er mótorhjól í fullri stærð. Hjólið er allt skorið úr tré, og verður til sýnis á Handverkshátíðinni á Hrafnagili. Smíðuðu 4 metra rafmagnsgítar Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hópurinn hefur unnið að óvenjulegu verkefni. Fyrir handverkshátíðina í fyrra tók hópurinn sig til og smíðaði rafmagnsgítar sem var um 4 metrar á hæð og vakti mikla athygli. Sá gít- ar var nákvæm eftirlíking af Fender Tele- caster rafmagnsgítar, með strengjum, skrúfum og öllu því sem prýði góða raf- magnsgítara. Færri komust að en vildu á Hand- verkshátíðina í ár, og fjölmargir aðrir við- burðir verða á boðstólum. Tréskurðarmenn götunnar Mótorhjólið verður á Handverkshátíð á Hrafnagili. Smíða mót- orhjól úr tré www.handverkshatid.is Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson hsb@mbl.is SUMARTÓNLEIKAR í Ak- ureyrarkirkju hafa fest sig í sessi síðastliðin 20 ár. Hvern sunnudag kl. 17 í júlímánuði eru haldnir tónleikar, og hafa seiðandi tónar hljómað í kirkjunni síðastliðinn mánuð sem endranær. Á morgun munu þær Sólbjörg Björnsdóttir sópransöngkona og Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari spila ásamt Birni Steinari Sólbergs- syni organista Akureyrarkirkju. Fjölbreytt efnisskrá Á efnisskránni eru meðal ann- ars íslensk kirkjulög: Maríuvers eftir Áskel Jónsson, Maríukvæði eftir Atla Heimi Sveinsson og Vertu Guð faðir, faðir minn eftir Jón Leifs. „Prógrammið helgast af sam- setningunni: sópran, fiðla og org- el,“ segir Björn Steinar og bætir við: „Efnisskráin er tvískipt: ann- ars vegar er íslensk tónlist, kirkjutónlist fyrir sópran og org- el og síðan mun Elfa spila ein- leiksverk eftir Hafliða Hall- grímsson Akureyring. Eftir það skiptum við um og færum okkur yfir á barrokk- tímann. Fyrra verkið er kantata eftir Friedrich Buxtehude. Hann hefur verið mjög áberandi á efn- isskrám tónleika út um allan heim þar sem nú er 300. ártíð hans. Svo ætlum við að enda á tveim verkum eftir Händel, annars veg- ar sónötu fyrir fiðlu og continuo í D-dúr. Síðan ætlum við að flytja eina af níu þýskum aríum sem hann samdi fyrir fiðlu, sópran og orgel. Þannig að markmiðið er að allir fái að njóta sín vel, og sér- staklega þær stúlkur tvær.“ Léku sér saman en leika nú saman í fyrsta skipti Elfa Rún er að góðu kunn en hún hlaut fyrstu verðlaun í J. S. Bach-tónlistarkeppninni í Leipzig 2006 auk þess sem hún var valin bjartasta vonin á Íslensku tónlist- arverðlaununum sama ár. Hún á rætur að rekja til Akureyrar og fæddist þar árið 1985. Hún býr nú og starfar í Berlín. Sólbjörg fæddist árið 1983 og hefur margoft sungið einsöng með kórum og hljómsveitum. Hún útskrifaðist með B.Mus. gráðu sl. vor. Leiðir Sólbjargar og Elfu Rún- ar hafa áður legið saman, en ekki á vettvangi tónlistarinnar: „Þess- ar tvær fjölskyldur eru búnar að þekkjast mjög lengi,“ segir Björn Steinar: „annars vegar ég og Hrefn,konan mín, og hins vegar Kristinn Örn og Lilja Hjaltadótt- ir, foreldrar Elfu. Þannig að þær Sólborg hafa þekkst frá því þær voru tveggja, þriggja ára. En þetta er í fyrsta skipti sem þær spila og syngja saman.“ Tónleikar í Akureyrarkirkju Íslensk kirkjulög og barrokktónlist í flutningi sóprans, fiðlu- og orgelleikara Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson Efnilegar Sólbjörg, lengst til vinstri og Elfa Rún voru við æfingar í gær ásamt Birni Steinari organista Ak- ureyrarkirkju. Þetta er í fyrsta sinn sem þær leika saman, en þær þekkjast úr barnæsku. Í HNOTSKURN »Sumartónleikar í Ak-ureyrarkirkju byrjuðu árið 1987 og þetta er því 21. starfsárið. Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við Lista- sumar á Akureyri. »Tónleikarnir eru haldnirhvern sunnudag í júlí og hefjast kl. 17. »Stór hópur fastagestahefur myndast, sem sam- astendur af Akureyringum og erlendu og innlendu ferðafólki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.