Morgunblaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 21
Íslenskir anorakkar Anna Gunnarsdóttir hannaði þessa anorakka sem eru úr ull og silki sem hefur verið þæft saman. Á jörkum þess svarta er roð en minka- skinn á hettu á þeim hvíta. Fást í Kraum Aðalstræti. Verð 57.000 kr. stk. Þægilegt Tærnar geta andað. Fást í 38 Þrep. 10.140 kr. Nostalgía Töskur sem Sigríður Ásta eða Kitschfríður hannaði úr Gefjunarteppum og fást í Kraum. 19.900 kr. Sæluvíma Þýsk hönnun frá Smeilinener í Nakta ap- anum. Kjóll 78.900 kr. toppur 40.900 kr. Gullskór kr. 11.760 og svartir sandalar 12.600 kr. úr 38 Þrep. Sumargleði Hlátrasköll Kjólar hannaðir af Birnu Einarsdóttur og fást í Birnu Skólavörðustíg. Tígurkjóll 17.625 kr., blómakjóll 14.800 kr. Fjólubláir skór 26.200 kr., svartir skór 16.400 kr. Stúdíó Hrönn Skólavörðustíg. Geggjaðir Dömu- legir fyrir hug- rakkar konur. Fingurskart Stórir hringar sem fást í 38 Þrep. 3.360 kr. Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Nú þegar Frónbúar eru í stanslausri sæluvímu vegnaþessa Guðs blessaða sumars þar sem einmunatíð hefurríkt samfleytt í langan tíma, er ekki úr vegi að hvetjafólk til þess að skoppa út í náttúruna og gleðjast með einum eða öðrum hætti. Það er svo ótalmargt sem hægt er að gera skemmtilegt og það er gaman að klæða sig upp á björtum sumardögum og hendast eitthvað út í móa. Draga fram litríka kjóla, fara í skvísugírinn og skarta fallegum skóm. Það er líka gaman að fara í notalega peysu eða anórakk, leggings og flatbotna skó. Ef ekki er tilefni til að halda upp á afmæli eða blása til annars konar veislu í skógarrjóðri, þá er til- valið að útbúa indælis nesti og blanda óáfengan sumardrykk eftir sínu eigin nefi, grípa með sér gamla, góða teppið og bjóða sjálfum sér og öðrum í lautarferð. Hafa litríka ávexti með í för og kasta þeim á milli sín og blindast af sólinni sætu í leiðinni. Lauma með sippubandi og fara í sippukeppni. Tennisspaðar eru ekki fyrirferðarmiklir í farangri en sérlega góð hreyfing og skemmtun felst í því að spila tennis úti í Guðs grænni náttúrunni. Og það er hægt að fara í strandferðir á Íslandi án þess endilega að fara í Nauthólsvíkina þó hún sé hrein dásemdar dýrð. Þeir sem vilja meira næði geta farið og leitað uppi einkaströnd einn góðan dag, nóg er af þeim ef vel er leitað. Láta svo hafið blá kitla tásurnar og tína skeljar. Þeir sem eru heppnir rekast kannski á krabba. Svo er líka hægt að skreppa út í Viðey eða aðra eyju, hvar sem er við Íslandsstrendur. Eða bara fara út í garð og slá upp heimatilbúinni sumargleði. Íslenskar verslanir eru stútfullar af gleðigefandi lit- ríkum fötum og skóm sem full ástæða er til að skarta á dásamlegum íslenskum sumardögum. Og íslensk hönnun verður sífellt fjölbreyttari. Þrjár framúrskar- andi íslenskar konur eiga meðal annarra heiður af hönnun þess sem hér birtist á síðunni, þær Birna Einarsdóttir, Anna Gunn- arsdóttir og Sigríður Ásta Árnadóttir sem kallar sig Kitschfríði. Á myndunum má líka vel ljóst vera að litagleði klæðanna, innri gleði og íslenska sumarið fara vel saman. Morgunblaðið/Ómar Úr geimnum? Silfurstígvél frá 38 Þrep. 16.200 kr. tíska MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 21

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.