Morgunblaðið - 21.07.2007, Side 22
lifun
22 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
V
ertu endilega velkomin í
heimsókn. Ég bý nefni-
lega í fallegasta húsinu
á höfuðborgarsvæðinu
við fallegasta fjörð á Ís-
landi. Ef horft er út um vest-
urgluggana bý ég í sveit og ef horft
er til austurs bý ég í borg,“ sagði
Ólöf Kristín Sigurðardóttir, hús-
freyja í Görðum við Ægisíðu, þegar
Daglegt líf var að falast eftir innliti
einn góðviðrisdaginn í vikunni.
Húsið hennar Ólafar og eigin-
manns hennar Sigurþórs Heim-
issonar var hlaðið úr grágrýti árið
1882 í anda Alþingishússins, sem
hlaðið var með sömu aðferð ári fyrr.
Það var sumarlegt um að litast við
Ægisíðuna þegar við mættum í
heimsókn því ýmist voru gestir og
gangandi að sleikja sól eða rækta
líkamann með göngu eða skokki á
göngustíg sem liggur fram hjá
þessu 125 ára gamla hvíta þriggja
hæða reisulega húsi með stein-
hleðslum eftir Sigurþór í garðinum
sem hefur verið að taka á sig
skemmtilega gróðurmynd með fjöl-
ærum plöntum á víð og dreif. Þau
viðurkenna þó að nokkur gróð-
urafföll hafi orðið í gegnum tíðina
þar sem þau búi við seltu og smá-
skammt af roki.
Útvegsbændur og kartöflurækt
Ólöf og Sigurþór festu kaup á
Görðum árið 1993, en Ólöf hafði þá
búið í húsinu allt frá árinu 1981 og
Sigurþór frá árinu 1986. „Húsið hef-
ur hins vegar lengst af tilheyrt fjöl-
skyldunni minni því móðurafi minn,
Sigurður Jónsson frá Skildinganesi,
keypti húsið árið 1893 ásamt fyrri
konu sinni Ólöfu Kristínu. Hann var
síðan alltaf kenndur við húsið og bjó
hér ásamt seinni konu sinni, ömmu
minni Guðrúnu Pétursdóttur frá
Hrólfsskála á Seltjarnarnesi, og
voru hér svokallaðir útvegsbændur.
Hann gerði út báta og var með salt-
fiskvinnslu í nálægu húsi við sjóinn
sem seinna varð að bílaverkstæði og
þar var líka verbúð, netageymsla og
bryggja sem heyrir nú fortíðinni til.
Hérna á sjálfum bænum var svo bú-
skapur því hér var bæði hlaða og
fjós og var mjólkinni ekið á hest-
vagni og hún seld til dæmis upp á
Landakot. Seinna var stór kart-
öflugarður við húsið þar sem nær
allt Garðaslegtið ræktaði sínar kart-
öflur, sem geymdar voru svo í kjall-
ara hússins sem við höfum nú gert
að huggulegustu vistarverum fyrir
okkur.“
Ólöf starfar sem deildarstjóri
fræðsludeildar Listasafns Reykja-
víkur og sýningarstjóri við sama
safn og er nú að undirbúa sýningu á
Hús í sveit og borg
Í 125 ára gömlum hlöðn-
um steinbæ við Ægisíðu
búa hjónin Ólöf Kristín
Sigurðardóttir og Sig-
urþór Albert Heimisson
ásamt börnunum Sigríði
Regínu, 17 ára, og Ólafi
Gísla, 7 ára, og kettinum
Gutta í Görðum. Jóhanna
Ingvarsdóttir kíkti í
heimsókn.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Húsráðendur Hjónin í Görðum við Ægisíðu, þau Ólöf Kristín Sigurðardóttir og Sigurþór Heimisson, keyptu húsið
1993 og hafa síðan verið að gera bæinn sinn og lóð upp í áföngum.
Leyniloftið „Á ég að sýna þér al-
vöru indjánafjöður sem mamma mín
fékk hjá alvöru indjána í útlöndum.
Ég get galdrað með henni,“ sagði
Ólafur Gísli, sem geymir leyndar-
málin sín á leyniloftinu.
Eldhúskrókur Eldhús og borðkrókur fengu tilfærslu en panell á
veggjum er sérsmíðaður í upprunalegri mynd. Málverkin eru
verk Ólafar Sigurðardóttur heitinnar, móðursystur Ólafar.
Stigarnir Gamli stiginn er upprunalegur en sá neðri sem teng-
ir kjallarann við efri hæðir hússins var smíðaður úr hvíttaðri
furu sem fellur vel að anda gamla tímans.
Nýtt og gamalt Borðstofan hýsir m.a. eldgamlan skenk og
samtíning gamalla stóla en nýtískulega glerborðið var keypt í
versluninni Gegnum glerið og ljósið í Epal.
Baðherbergið Miklu betra er að búa í húsinu eftir tilkomu nýs baðher-
bergis í risinu þar sem hjónaherbergið - og barnaherbergi sonarins eru.