Morgunblaðið - 21.07.2007, Qupperneq 23
verkum Eggerts Péturssonar í
septemberbyrjun. Sigurþór er leik-
ari og starfar auk þess við Háskól-
ann í Reykjavík og Listaháskólann.
Þau hjónin hafa lagt mikla vinnu í
húsið sitt enda má segja að fátt sé
nú orðið upprunalegt nema sjálf
húshleðslan, sem er allt að einn
metri á þykkt þar sem hún er þykk-
ust, gamli hvíttaði furustiginn á
milli hæða, upprunalegu gólffjal-
irnar í risinu og loftið yfir eldhús-
inu. Annað hefur verið endurgert í
anda gamla tímans.
„Þetta verkefni hefur verið tekið í
nokkrum áföngum og fjölmargir
verið okkur innan handar við það
eins og arkitektarnir Helgi Bolla-
son, Pétur H. Ármannsson og Hjör-
leifur Stefánsson auk hers iðnaðar-
manna. Við byrjuðum árið 1993 á
því að endurnýja þak og glugga.
Aðalhæðin var síðan endurgerð og
kjallarinn var dýpkaður árið 1995
með því að brjóta upp mikinn og
gegnheilan stein í gólfi með haka,
járnkarli og loftpressu. Við létum
sérsmíða bæði gólfborð og vegg-
panel og létum svo smíða útidyra-
hurðina eftir upprunalegri en ónýtri
hurð. Eldhúsið var fært til í húsinu
og smíðaði ég það sjálfur þegar
konan var ófrísk að dótturinni fyrir
átján árum. Þá voru skáparnir
grænir, en eru nú orðnir hvítir og
háglansandi og lítið orðið eftir af
minni smíðavinnu. Tvær stofur urðu
að einni og gamli skorsteinninn,
sem gengur í gegnum allar hæðir,
fékk andlitslyftingu. Við bjuggum í
Bandaríkjunum á árunum 2001-
2003, en eftir heimkomu 2004 og
2005 endurnýjuðum við múrinn ut-
an á húsinu og létum hvítta það upp
á nýtt með „snow“-sementi. Svo
kláruðum við risið og innréttuðum
kjallarann til að tengja hann við
íbúðina. Við útveguðum okkur eld-
gamlar hurðir í húsið og fengum
hurðarhúna í versluninni Brynju í
stíl. Reykjavíkurborg veitti okkur
svo viðurkenningu 2004 fyrir vel
uppgert hús,“ segir Sigurþór.
Innanhúss arkitektinn Oddgeir
Þórðarson aðstoðaði við hönnun og
endurgerð þessa síðasta áfanga auk
þess sem nokkrar ómetanlegar til-
lögur komu frá arkitektinum Ívari
Guðmundssyni, sem tengist þeim
hjónum fjölskylduböndum.
Blanda saman gömlu og nýju
Húsið er alls 183 fermetrar, en
ætla má að um 20 fermetrar fari í
þykkt útveggjanna. Ekki er vitað
hver hlóð húsið, en fyrsti eigandi
þess var kaupmaðurinn Þórður
Guðmundsson. Í innanstokks-
munum segjast þau vera mjög með-
vituð um það að blanda saman
gömlum og nýjum munum enda ber
heimilið vott um það. „Við búum
nefnilega ekki á safni, en höfum af-
skaplega gaman af að hafa falleg og
þægileg húsgögn og muni í kringum
okkur,“ segir húsmóðirin og bætir
að lokum við að fjölskyldan hafi lán-
að húsið sitt undir myndlistarsýn-
ingu Áslaugar Thorlacius síðastliðið
haust sem hafi verið skemmtilegt
framtak. Þess sjást enn merki, bæði
inni og utan á húsinu.
join@mbl.is
Stofan Við Natuzzi-leðursófann var fundið eldgamalt þvottaborð, sem
húsbóndinn pússaði upp og gerði að stofustássi á klukkutíma.
Kjallarinn Hýsir unglingaherbergið, sjónvarpsrýmið og skrifstofuaðstöð-
una. Kjallarinn var dýpkaður áður en hann fékk þetta hlutverk.
Steinbær Húsið var hlaðið úr grágrýti árið 1882 og er þykkt veggjanna hátt í metri þar sem þeir eru þykkastir.
Heimasætudyngjan „Í garðrækt-
inni erum við núna að glíma við að
koma upp þyrnirósum fyrir framan
glugga 17 ára heimasætunnar og
eiga þær að virka sem strákafæla,“
segir Sigurþór.
Við búum nefnilega
ekki á safni en höfum
afskaplega gaman af
að hafa falleg og
þægileg húsgögn og
muni í kringum okkur.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 23
fjárreksturinn fyrir
meira en hálfri öld eins
og til stóð að lýsa heldur
hafði Víkverji farið á
milli sömu sveita með
fjárrekstur 20–30 árum
síðar og sú leið sat föst í
minni hans.
Enn vaknaði spurn-
ing um minni Víkverja
fyrir nokkrum dögum,
þegar einn viðmælandi
hans hélt því fram að
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir utanríkis-
ráðherra, sem nú er
komin vel á veg með að
gerast sáttasemjari í
deilunum fyrir botni Miðjarðarhafs,
hefði neitað að hitta sendiherra Ísr-
aels á Íslandi að máli fyrir nokkrum
mánuðum en sendiherrann er at-
hyglisverð og harðsnúin kona, Mi-
ryam Shomrat að nafni, sem fylgdi
utanríkisráðherra í heimsókn henn-
ar. Þetta kom heim og saman við
minni Víkverja sem að þessu sinni
hafði vit á því að kanna málið í
gagnasafni Morgunblaðsins. Þá kom
í ljós að þetta var tóm vitleysa. Ingi-
björg Sólrún hitti sendiherrann að
máli en las hins vegar yfir henni.
Kannski hefur Símon Peres verið að
hefna fyrir það ef satt er að hann hafi
tekið utanríkisráðherra okkar til
bæna um daginn.
Minni Víkverja erekki óbrigðult.
Það kom í ljós þegar
ágætur lesandi Morg-
unblaðsins fletti göml-
um myndum og fann
mynd af sjálfum sér eða
öllu heldur sjálfri sér
með Lady Bird John-
son á Íslandi í sept-
ember 1963 en fyrir
viku hélt Víkverji því
fram að hún hefði ekki
fylgt manni sínum,
Lyndon B. Johnson, í
heimsókn hans til Ís-
lands þá. Sennilega hef-
ur Víkverji verið of upp-
tekinn af Lyndu Bird, dóttur þeirra,
til þess að taka eftir Lady Bird. Þetta
leiðréttist hér með um leið og tryggir
lesendur Víkverja eru beðnir afsök-
unar á þessum mistökum.
Það er varasamt að treysta á
minnið og það eiga blaðamenn aldrei
að gera.
Annars hefur Víkverji sjaldan far-
ið ver út úr því að treysta á minni sitt
en fyrir allmörgum árum, þegar
hann skrifaði stuttan texta í bók og
lýsti m.a. fjárrekstri á milli sveita
nokkuð nákvæmlega og hvaða leið
var farin. Hafði þó vit á að láta kunn-
ugan mann lesa textann yfir.
Þá kom í ljós að leiðarlýsingin átti
ekki við þá leið sem farið var með
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Fréttir af Írskum dögum sem fram
fóru í byrjun júlímánaðar á Akranesi
voru flestar af unglingadrykkju og
skrílslátum á tjaldsvæði. Minna fór
fyrir fréttum af vel heppnuðum
götugrillveislum bæjarbúa þar sem
„innfæddir“ og gestir þeirra borð-
uðu saman og skemmtu sjálfum sér
og öðrum. Engin skrílslæti þar á
ferðinni. Það fór einnig lítið fyrir
fréttum af frábærri dagskrá sem
Akraneskaupstaður stóð fyrir á
Írskum dögum. Írskir dagar eru
komnir til að vera í þeirri mynd sem
þeir hafa verið í á undanförnum ár-
um. Vandamálin sem koma upp á
tjaldsvæðinu verða ekki leyst með
því að slá Írska daga út af borðinu.
Skagamenn hafa í gegnum tíðina átt
margar afrekskonur í íþróttum.
Ragnheiður Runólfsdóttir sundkona
fer þar fremst í flokki enda er hún
önnur af tveimur konum sem hafa
hlotið sæmdarheitið íþróttamaður
ársins. Akurnesingar geta nú státað
sig af því að eiga fulltrúa í íslenska
kvennalandsliðinu í golfi og er það í
fyrsta sinn í rúmlega 40 ára sögu
Golfklúbbsins Leynis sem það ger-
ist. Valdís Þóra Jónsdóttir er aðeins
17 ára gömul en þrátt fyrir ungan
aldur er henni treyst til þess að leika
fyrir Íslands hönd í A-landsliði
kvenna.
Það er mikil uppbygging á Akranesi
og íbúar bæjarins hafa aldrei verið
fleiri. Rétt rúmlega 6.100 eru á
íbúaskrá þessa stundina. Mikill
skortur hefur verið á leikskólapláss-
um á undanförnum misserum og til
þess að bjarga málunum verður
gamalt dagheimili við Háholt tekið í
notkun á ný sem leikskóli. Íbúar á
því svæði hljóta að fagna ákvörðun-
inni því allt útisvæðið verður endur-
nýjað, ný leiktæki verða sett upp
fyrir börnin, og munu þau standa
þar áfram þegar nýr leikskóli í
Flatahverfi tekur til starfa.
Það eru einnig framkvæmdir við
Akranesvöll þar sem að tvær nýjar
stúkur hafa verið reistar við þá
gömlu. Áhorfendaaðstaðan er því
með því besta sem gerist á Íslandi
en þrátt fyrir það eru Skagamenn
tregir í taumi og velja flestir að sitja
í grasbrekkunni þegar kappleikir
fara fram. Í stórleik ÍA og Keflavík-
ur á dögunum var afar fámennt í
áhorfendastúkunni á Akranesvelli
en fjölmargir sátu í grasbrekkunni
og sleiktu sólina í leiðinni.
Engin hótelgisting hefur verið í boði
fyrir ferðamenn á Akranesi á undan-
förnum misserum. Nú hillir undir að
breyting verði til batnaðar í þeim
efnum. Stórhuga aðilar hafa hug á
því að reisa stórt hótel við golfvöll-
inn á Akranesi og verður þar einnig
að finna félagsaðstöðu fyrir Golf-
klúbbinn Leyni. Gert er ráð fyrir að
mannvirkið rísi að vestanverðu við 1.
braut Garðavallar.
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Hekla Arnardóttir Ein af mörgum
leikskólabörnum á Akranesi.
AKRANES
Sigurður Elvar Þórólfsson blaðamaður
úr bæjarlífinu
SKEMMTUMOKKUR
ÍSUMAR!
VEL
ÁFENGIFYLGIRÁBYRGÐ
EKKI SPILLA GLEÐINNI
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
6
9
2
8