Morgunblaðið - 21.07.2007, Side 34

Morgunblaðið - 21.07.2007, Side 34
34 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF/MESSUR Á MORGUN AKRANESKIRKJA: | Messa kl. 11. Fé- lagar úr Kór Neskirkju leiða safn- aðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhalls- son. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og spjall eftir messu á Torginu. AKUREYRARKIRKJA: | Messa kl. 11. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Tekinn verður í notkun nýr hökull, gerður af Herder And- erson Hlíðar og gefinn til minningar um Guðbrand og Jóhann Hlíðar. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti: Sig- rún Magna Þórsteinsdóttir. Kvöldkirkjan: Helgistund kl. 20. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Margrét Brynj- arsdóttir og Gísli Jóhann Grétarsson syngja og leiða söng. Eigum notalega stund í kirkjunni, allir velkomnir. BÚSTAÐAKIRKJA: | Sunnudagurinn 22. júlí. Sjöundi sunnudagur eftir þrenning- arhátíð. Messa klukkan 11. Prestur: Sr. Auður Inga Einarsdóttir. Organisti: Renata Ivan. Kór Bústaðakirkju syngur. Molasopi eftir messu. DIGRANESKIRKJA: | Vegna samstarfs- verkefnis kirknanna í Kópavogi í sumar verður messað í Kópavogskirkju kl. 11. Prestur sr. Magnús Björn Björnsson. DÓMKIRKJAN: | Kl. 11 messa sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson prédikar. Sönghópur úr Dómkórnum syngur, organisti er Mar- teinn Friðriksson. FÍLADELFÍA: | Almenn samkoma. kl. 16.30. Ræðum. Mike Warnke frá Banda- ríkjunum. Gospelkór Fíladelfíu leiðir söng. Ath. Engin barnakirkja (hefst aftur 26. ágúst). Í júlí verða engar útsendingar á Lindinni, gospel.is eða Omega. FRÍKIRKJAN KEFAS | Almenn samkoma kl. 20. Aage Hellemose frá Danmörku verður gestur okkar. Aage hefur spámann- lega gáfu og mun hann prédika ásamt því að leiða fyrirbænir. Á samkomunni verður einnig lofgjörð og að henni lokinni kaffi og samfélag. Allir hjartanlega velkomnir! GARÐAKIRKJA: | Kvöldmessa kl. 20. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar fyrir altari og predikar. Kór Vídalínskirkju leiðir lof- gjörðina undir stjórn Hrannar Helgadóttur organista. Boðið er upp á akstur frá Vídal- ínskirkju kl.19.30 og frá Hleinum kl.19.40. Allir velkomnir. GLERÁRKIRKJA: | Sunnudagur 22. júlí. Kvöldguðsþjónusta kl. 20.30. Ljúf stund í kirkjunni, íhugun og fyrirbæn. Forsöngvari er Örn Viðar Birgisson. Org- anisti Valmar Valjaots. Prestur sr. Arn- aldur Bárðarson. Kaffisopi og spjall í safnaðarsal, allir velkomnir. GRAFARVOGSKIRKJA: | Guðþjónusta sunnudag kl.11. Séra Bjarni Þór Bjarna- son prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvoskirkju syngur. Organisti: Gróa Hreinsdóttir. GRENSÁSKIRKJA: | Guðsþjónusta sunnu- dag kl. 11. Prestur sr. Petrína Mjöll Jó- hannesdóttir. Samskot til Hjálparstarfs kirkjunnar. Kirkjukór Grensáskirkju syng- ur. Organisti Ástríður Haraldsdóttir. Mola- sopi að lokinni guðsþjónustu. HALLGRÍMSKIRKJA: | Sunnudagur, messa kl. 11. Sr. Kristján Valur Ingólfs- son prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Hópur úr Mótettukór Hall- grímskirkju syngur. Organisti Ágúst Ingi Ágústsson. Orgeltónleikar kl. 20 á vegum Alþjóðlega orgelsumarsins í Hallgríms- kirkju. Hannfried Lucke frá Austurríki leik- ur. HÁTEIGSKIRKJA: | Messa kl. 11. Org- anisti Douglas Brotchie. Prestur sr. Hans Markús Hafsteinsson. HJÁLPRÆÐISHERINN: | Fermingarguð- sþjónusta sunnudag kl. 11. Umsjón Anne Marie Reinholdtsen. Samkoma sunnudag kl. 20 í umsjá Harold Reinholdtsen. Söng- ur og lofgjörð. Ferðamannakirkja / opið hús daglega kl. 16-20 nema mánudaga. Samkoma þriðjudag og fimmtudag kl. 20. HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: | Engar samkomur verða á sunnudag frá tíma- bilinu 22. júlí - 19. ágúst. Bæna- samkomur á miðvikudögum kl. 12. Matur í lok stundarinnar. Hóladómkirkja | Sunnudagur 22. júlí kl. 11. Messa, prestur sr. Lára Oddsdóttir. Organisti Jóhann Bjarnason. Kl. 14. Tón- leikar: Ingibjörg Guðlaugsdóttir og Magn- ús Ragnarsson leika saman á básúnu og orgel ljúfa tónlist meðal annars eftir Duke Ellington. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: | Samkoma kl. 20. með mikilli lofgjörð og fyrirbænum. Kent Langworth predikar. Samkoma á Eyj- ólfsstöðum á Héraði kl.20. Allir hjart- anlega velkomnir. KIRKJA JESÚ KRISTS hinna síðari daga heilögu, Mormónakirkjan: | Ásabraut 2, Garðabæ. Sunnudaga: kl. 11.15 sakra- mentissamkoma, kl. 12.30 sunnudaga- skóli, kl. 13.15 félagsfundir. Þriðjudaga: kl. 17.30 trúarskóli, kl. 18 ættfræðisafn opið, kl. 18.30 unglingastarf. Allir eru allt- af velkomnir. www.mormonar.is. KÓPAVOGSKIRKJA: | Sameiginleg guðs- þjónusta safnaðanna í Kópavogi í Kópa- vogskirkju kl. 11. Sr. Magnús Björn Björnsson, í Digraneskirkju þjónar. Landspítali – háskólasjúkrahús: Hring- braut | Guðsþjónusta kl. 10.30. Sr. Kjart- an Örn Sigurbjörnsson, organisti Helgi Bragason. LANGHOLTSKIRKJA: | Vegna sumarleyfa prests og starfsfólks 1.-29. júlí er bent á messu í Bústaðakirkju kl. 11. Sr. Pálmi Matthíasson í Bústaðakirkju þjónar Lang- holtsprestakalli í júlímánuði. LAUGARNESKIRKJA: | Samtalsguðsþjón- usta kl. 20. Sr. Bjarni Karlsson prédikar og gefur svo orðið laust til umræðu. MOSFELLSKIRKJA: | Guðþjónusta kl. 11. Prestur: sr. Jón Þorsteinsson. Kirkjukór Lágafellssóknar. Organisti: Jónas Þórir. Prestarnir. SELFOSSKIRKJA: | 22. júlí - 7. sunnudag- ur eftir trinitatis. Messa kl. 11. Sókn- arprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kirkjukór Selfoss undir stjórn Jörg E. Son- dermann, organista. Léttur hádegisverður eftir athöfnina. Miðvikudagur 25. júlí: Pabba- og ömm- umorgunn í safnaðarheimilinu. Opið hús, hressing og spjall. Þriðjudaga til föstu- daga er tíðagjörð í kirkjunni kl. 10. Fyr- irbænir. Kaffisopi á eftir. SELTJARNARNESKIRKJA: | Helgistund kl. 11. Opin kirkja til íhugunar. Sr. Arna Grét- arsdóttir. Verið velkomin í kyrrðina í kirkj- unni. Minnum á heimasíðuna www.seltj- arnarneskirkja.is. SÓLHEIMAKIRKJA | Helgistund verður í Sólheimakirkju sunnudaginn 22. júlí kl. 11 í umsjón Ingimars Pálssonar org- anista. Sr. Birgir Thomsen. VÍDALÍNSKIRKJA: | Kvöldmessa kl. 20 í Garðakirkju. Sjá www.gardasokn.is VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: | Helgi- stund á sumarkvöldi sunnudaginn 22. júlí, kl. 20. Prestur: Sr. Þórhildur Ólafs. Kór Víðistaðasóknar syngur létta söngva undir stjórn Úlriks Ólasonar. Allir velkomn- ir. Þingvallakirkja | Messa sunnudaginn 22. júlí kl. 14 en ekki kl. 11 eins og áður var auglýst. Organisti Guðmundur Vilhjálms- son, prestur sr. Kristján Valur Ingólfsson. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Dómkirkjan á Hólum í Hjaltadal. Guðspjall dagsins: Jesús mettar fjórar þúsundir manna. (Mark.8) Samtalsguðsþjónustur í Laugarneskirkju Í daglegu lífi er sífellt verið að segja manni eitthvað en sjaldnar erum við spurð hvað við höfum að segja. Næstu þrjá sunnudaga (22.7, 29.7. og 5.8) mun sr. Bjarni Karls- son sóknarprestur bjóða til samtals við sunnudagsguðsþjónustu í kirkj- unni kl. 20. Verður það með þeim hætti að þegar prédikun hefur ver- ið flutt mun orðið gefið laust til um- ræðu um efni hennar. Kirkjan er hús sem helgað er meistara sam- talsins, Jesú Kristi. Enginn spurði eins og hann eða hlustaði eins og hann. Þess vegna er gott að tala saman í húsi Krists í því augnamiði að læra betur á lífið. Verið velkom- in í Laugarneskirkju. Afmælishátíð í Hvammstangasókn Næsta sunnudag, 22. júlí, verður mikil kirkjuhátíð á Hvammstanga. Tilefnið er 50 ára vígsluafmæli Hvammstangakirkju, 10 ára end- urvígsluafmæli Kirkjuhvamms- kirkju og 10 ára vígsluafmæli kap- ellu sjúkrahússins. Kl. 11 þennan dag verður fjölskyldumessa í Hvammstangakirkju þar sem sr. Pálmi Matthíasson, fyrrum sókn- arprestur á Hvammstanga, predik- ar og sr. Sigurður Grétar Sigurðs- son sóknarprestur þjónar fyrir altari. Að messu lokinni verður grillveisla, hoppkastalar, líf og fjör á kirkjulóðinni. Kl. 14.30 verður dagskrá í kirkjunni undir yf- irskriftinni „Minningarbrot úr þjónustu“. Þar munu fyrrum prest- ar sóknarinnar, þeir sr. Gísli H. Kolbeins, sr. Pálmi Matthíasson og sr. Kristján Björnsson deila minn- ingarbrotum með okkur. Auk er- indanna verður tónlistarflutningur í umsjá kirkjukórsins og Tríós ungs fólks. Að lokinni þessari dagskrá verður kaffi í safnaðarheimilinu. Kl. 17 verður messa í kapellu sjúkrahússins þar sem sr. Gísli H. Kolbeins predikar en sr. Kristján Björnsson þjónar fyrir altari. Kl. 20 verður kvöldmessa í Kirkju- hvammskirkju þar sem sr. Kristján Björnsson predikar en Sigurður Grétar þjónar fyrir altari. Þetta verður sannkallaður gleðidagur í sókninni og eru heimamenn sem og brottfluttir hvattir til þátttöku. Klausturmessa í Viðey Á sunnudag kl. 14.30 verður klaust- urmessa í Viðeyjarkirkju. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson dómkirkju- prestur messar og söngflokkurinn Voces Thules syngur nokkur lög. Sr. Þórir Stephensen, fyrrverandi dómkirkjuprestur og staðarhaldari í Viðey, mun segja frá Viðeyj- arklaustri í athöfninni og eftir hana leiða gesti um uppgröftinn sem fór fram á gömlu klausturhúsunum. Viðeyjarklaustur var stofnað af Þorvaldi Gissurarsyni árið 1225 og var fyrsta klaustrið í Sunnlend- ingafjórðungi. Því voru tryggðar tekjur af bændum í nágrenninu og efnaðist það mikið. Viðeyj- arklaustur var næstríkasta klaust- ur landsins og átti þegar mest var 116 jarðir og allar jarðir í núver- andi borgarlandi. Húsakynni klaustursins voru mikil og búskap- ur og skepnuhald myndarlegt en auk þess var klaustrið bæði menntastofnun og fræðasetur. Endalok Viðeyjarklausturs voru söguleg, menn Danakonungs rændu því að morgni hvítasunnu- dags árið 1539 og markaði það upp- haf siðaskiptanna á Íslandi. Heimsókn í Fríkirkj- una Kefas Sunnudaginn 22. júlí verður Aage Hellemose gestadrédikari hjá okk- ur á samkomu kl. 20. Aage er danskur en hefur lengi búið í Bandaríkjunum. Hann hefur spá- mannlega þjónustu og mun prédika Guðs orð ásamt því að vera með fyrirbænir á eftir. Samkoman verð- ur túlkuð á íslensku af Sigrúnu Ein- arsdóttur. Á samkomunni verður einnig lofgjörð og kaffi og samvera að henni lokinni. Að sjálfsögðu eru allir velkomnir! Morgunblaðið/GolliHallgrímskirkja.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.