Morgunblaðið - 21.07.2007, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 37
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Félag eldri borgara Kópavogi, ferðanefnd | Skráning
fer nú fram í dagsferð í Veiðivötn og virkjanir fimmtu-
daginn 26. júlí, ennfremur í tveggja daga ferð í Land-
mannalaugar, Eldgjá og Lakagíga. Nánari upplýsingar
og skráningarlistar eru á töflum félagsmiðstöðanna
Gjábakka s. 554-3400 og Gullsmára s. 564-5260.
Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi kl. 9 og
Hana-nú ganga kl. 10.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Ferð um Reykjanes
fimmtudaginn 26. júlí kl. 13. Farið um Kálfatjörn,
Voga, Keflavík, Sandgerði, Hvalsnes og Stafnes, síð-
an um Hafnir að Reykjanestá. Síðan í Grindavík í Salt-
fisksetrið. Kaffi drukkið í Bláa lóninu.
Kirkjustarf
Árbæjarkirkja | Helgistund í umsjá sr. Sigrúnar Ósk-
arsdóttur. Organisti Krisztina Kalló Szklenár. Félagar
úr kirkjukórnum leiða söng. Kaffisopi að stundinni
lokinni.
50ára afmæli. ElísabetGuðlaugsdóttir verður
fimmtug, sunnudaginn 22. júlí
næstkomandi. Af því tilefni
tekur hún á móti vinum og
ættingjum á heimili sínu að
Skólagerði 38, Kópavogi,
þennan sama dag, milli kl. 15
og 19.
Brúðkaup | Hinn 30. júní síð-
astliðinn voru gefin saman í
Kópavogskirkju af sr. Kjart-
ani Jónssyni, Dagný Björk
Pjetursdóttir og Gísli Páls-
son.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira les-
endum sínum að kostn-
aðarlausu.
Tilkynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dags- og mánudags-
blað.
Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja
afmælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Hægt er að hringja í
síma 569-1100, senda
tilkynningu og mynd á
netfangið ritstjorn-
@mbl.is, eða senda til-
kynningu og mynd í
gegnum vefsíðu Morg-
unblaðsins,
www.mbl.is, og velja
liðinn „Senda inn efni“.
Einnig er hægt að
senda vélritaða til-
kynningu og mynd í
pósti. Bréfið skal stíla
á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
dagbók
Í dag er laugardagur 21. júlí, 202. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu þjáningar þessa tíma neitt í samanburði við þá dýrð, sem oss mun opinberast. (Rm. 8, 18.)
Tónlist
Akranes | KK & Maggi Eiríks halda tónleika laugardags-
kvöldið 21. júlí í Bíóhöllinni. Á dagsskránni verða lög af
nýrri plötu þeirra félaga „Langferðalög“ auk margra
þekktra laga úr fórum þeirra félaga. Tónleikarnir hefjast
kl. 21 og er miðasala við innganginn.
Hallgrímskirkja | Hannfried Lucke, prófessor í orgelleik
við Mozarteum í Salzburg, leikur á hádegistónleikum kl.
12. Á efnisskránni eru verk eftir Johann Sebastian
Bach, César Franck, Alexandre Guilmant og Henry
Mulet.
Reykjahlíðarkirkja | Sumartónleikar við Mývatn kl. 20:
Ingibjörg Guðlaugsdóttir, básúna og Magnús Ragnars-
son, píanó og orgel, flytja tónlist eftir Duke Ellington,
Pergolesi og útsetningar á þjóðlögum frá ýmsum lönd-
um.
Skálholtskirkja | Tónleikar kl. 15. Verk eftir D. Buxte-
hude. Flytjendur: Sönghópurinn Gríma, Bachsveitin,
leiðari Jaap Schröder. Gestur: Margaret Irwin-Brandon,
orgelleikari. Ókeypis aðgangur. Kl. 17. Sálmar og útsetn-
ingar. Flytjendur: Skálholtskórinn, Steingrímur Þórhalls-
son og Jóhann Stefánsson. Stjórnandi: Hilmar Örn
Agnarsson.
Mannfagnaður
Jeppaklúbburinn 4x3 á flugi | Helgina 20.-22. júlí mun
sumarhátíð jeppaklúbbsins 4x4 verða haldin í Vík í Mýrdal.
Heimamenn í 4x3 flugi hafa umsjón með hátíðinni þetta ár-
ið. Þetta er alhliða fjölskylduskemmtun jeppamanna.
Skráning er á www.f4x4.is. Sjá nánar á www.4x3aflugi.-
com/sumarhatid.
Fyrirlestrar og fundir
OA-samtökin | Laugardagsdeild OA-samtakanna er með
fundi alla laugardaga í Tjarnargötu 20, kl. 11.30. Eina skil-
yrðið til þátttöku í OA er löngun til þess að hætta hömlu-
lausu áti. Nýliðar eru velkomnir. Nánari upplýsingar eru að
finna á www.oa.is.
Skálholtsskóli | Kl. 14. Margaret Irwin-Brandon orgelleikari
fjallar um D. Buxtehude og áhrif hans á J.S. Bach. Nánari
upplýsingar á www.sumartonleikar.is. Ókeypis aðgangur.
Börn
Patreksfjörður | Leikhópurinn Lotta mun sýna barna-
leikritið Dýrin í Hálsaskógi í Trjálundinum á Patreksfirði kl.
14 í dag. Upplýsingar og miðapantanir s. 699-3993 og
www.123.is/dyrinihalsaskogi.
HUNDUR fær sér sundsprett í Iskar-fljóti nærri Sófíu,
höfuðborg Búlgaríu, í gær. Í baksýn má sjá börn að leik á
meðan fullorðna fólkið sleikir sólina í von um svolitla
brúnku. Mjög heitt var í löndunum á Balkanskaga í gær og
fór hitastigið hæst í 40 gráður. Því brugðu margir á það
ráð að kæla sig með einum eða öðrum hætti.
Hundasund í hitanum
Reuters
Eftir að Hvalfjarðargönginkomu til sögunnar hefurdregið verulega úr ferðumfólks í Hvalfjörðinn. Við
ákváðum því að efna til þessarar hátíð-
ar, til að minna á Perluna í Hvalfirði, þá
náttúrufegurð, afþreyingu og þjónustu
sem finna má í Kjósarhreppi,“ segir
Sigurbjörn Hjaltason oddviti, en hátíð-
in Kátt í Kjós verður haldin í fyrsta
skipti í dag, laugardag.
Vin bak við Esjuna
Sigurbjörn segir Kjósarhrepp hafa
margt að bjóða gestum: „Margir gera
sér ekki grein fyrir að bak við Esjuna,
aðeins hálftíma akstur frá borginni, er
ýmislegt um að vera. Kjósin er fögur
sveit og róleg þar sem njóta má náttúru
og útivistar. Til dæmis má heimsækja
Hvammsvík þar sem er 9 holu golf-
völlur, hægt að veiða bæði ferskvatns-
og sjófiska, og eða fara í stutta ferð á
kajak um fjörðinn. Við Meðalfellsvatn
er starfrækt þjónustumiðstöð þar sem
kaupa má veiðileyfi, eða leigja árabát
eða hjólabát.“
Á laugardag verður m.a. haldinn
sveitamarkaður í Félagsgarði, sem
margir þekkja betur undir nafninu
Drengur: „Í Kjósarhreppi er mikil og
fjölbreytt búvöruframleiðsla, og ætla
heimamenn að kynna vörur sínar gest-
um og selja. Kvenfélagskonurnar verða
með ómótstæðilegar rjómavöfflur og
kaffi til sölu og rennur ágóðinn til góð-
gerðarmála,“ segir Sigurbjörn.
Saga og menning
Einnig verður boðið upp á fræðslu á
hátíðinni: „Í Eyrarkoti fjallar Þorvald-
ur Friðfinnsson fræði- og fréttamaður
um keltneska menningu í Hvalfirði og
keltnesk bæjarnöfn, sem lengi hafa
valdið mönnum heilabrotum. Dr. Gunn-
ar Kristjánsson sóknarprestur í Kjós-
arsókn flytur síðan fyrirlestur um Hall-
dór Laxness, og segir seinna um
daginn frá sögu svæðisins í fyrirlestri í
Reynivallakirkju,“ segir Sigurbjörn.
Finna má nánari upplýsingar um við-
burði hátíðarinnar Kátt í Kjós á slóð-
inni www.kjos.is. Á heimasíðunni má
einnig finna upplýsingakort yfir hrepp-
inn, með viðburðadagskrá, sem auð-
veldar gestum að finna þann viðburð
eða þjónustu sem þeir leita að.
Hátíð | Skemmtun og fræðsla og sveitamarkaður í Kjós í dag, laugardag
Kátt í Kjósarhreppi
Sigurbjörn
Hjaltason fæddist í
Reykjavík 1958.
Hann lauk bú-
fræðinámi frá
Bændaskólanum á
Hvanneyri 1978.
Sigurbjörn starf-
aði sem verkamað-
ur og sótti sjó áður
en hann gerðist bóndi á Kiðafelli.
Hann hefur sinnt ýmsum félagsmálum
og setið í hreppsnefnd um margra ára
skeið, oddviti í Kjósarhreppi frá 2006.
Sigurbjörn er kvæntur Bergþóru
Andrésdóttur ferðaþjónustubónda og
eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn.
FRÉTTIR
ÁTAKIÐ Tökum upp hanskann fyrir
Reykjavík er tækifæri fyrir borgar-
búa til að rækta eigin garð og leggja
öðrum lið við að fegra og hreinsa
borgina. Í dag, laugardag, munu íbú-
ar í hverfunum umhverfis Laugar-
dalinn: Sunda-, Laugarnes-, Voga-
og Heimahverfinu og starfsmenn
borgarinnar taka saman höndum við
þetta verkefni.
Á fundi í Langholtsskóla miðviku-
daginn 18. júlí hittu fulltrúar borg-
arinnar íbúa í hverfinu, tóku við
ábendingum um hvað mætti betur
fara og gáfu nokkur svör. Óskar
Bergsson, formaður framkvæmda-
ráðs Reykjavíkurborgar, hlustaði og
svaraði fyrirspurnum ásamt Guð-
bjarti Sigfússyni hjá Framkvæmda-
sviði og Axel Knútssyni hjá Um-
hverfissviði. Einar Örn Ævarsson
stjórnaði fundinum en hann er for-
maður hverfaráðs Laugardals.
Íbúar komu með ábendingar
Íbúar sögðust á fundinum vera
ánægðir með hverfin sín og sögðu að
umgengnin væri nokkuð góð. Þeir
bentu þó á nokkur atriði sem betur
mættu fara, t.d. að það vantaði leik-
tæki fyrir börn á aldrinum 10 til 13
ára. Sagt var að stígakerfið væri
nokkuð endasleppt og að bekki vant-
aði á ýmsum stöðum þar sem eldri
borgarar spássera.
Hreinsunardagurinn er á laugar-
dag milli kl. 11 og 14. Sex leiksvæði
verða sérstaklega tekin fyrir: við
Miðtún, Rauðalæk og Laugarnes-
veg, Kambsveg, Ljósheima og
Engjaveg. Mæting er við Laugar-
nesskóla og Langholtskirkju. Klukk-
an 14 verður grillveisla við Þróttar-
heimilið í Laugardalnum.
Íbúar reiðu-
búnir til að
fegra hverfin
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN (TM),
Farsímalagerinn og Hans Petersen
undirrituðu nýlega samstarfssamn-
ing um tækjatryggingu.
Samstarfið felst í því að Farsíma-
lagerinn og Hans Petersen bjóða
þeim viðskiptavinum sem kaupa
farsíma, myndavélar eða mynd-
bandsupptökuvélar í verslunum
þeirra að kaupa tækjatryggingu
TM fyrir tækin. Tækjatrygging TM
er vátrygging sem tekur til eðli-
legrar hættu á skemmdum á vöru,
hvort sem um er að ræða mynda-
vélar, farsíma eða myndbandsupp-
tökuvélar. Hún gildir hvar sem er í
heiminum og er án eigin áhættu.
Samstarf um
tækjatryggingu