Morgunblaðið - 21.07.2007, Síða 38

Morgunblaðið - 21.07.2007, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Lífið á landnámsöld Sýningin er opin alla daga frá 10–17 Aðalstræti 16 101 Reykjavík www.reykjavik871.is Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞÚ ERT AULI VILTU HEYRA HVAÐ STENDUR Í BRÉFINU? ALLT Í LAGI... FYRST ÉG STEND HÉRNA HA! „KÆRI KALLI... TAKK FYRIR SÍÐASTA BRÉF... ÞAÐ VAR SVO SKEMMTILEGT AÐ ÉG LAS ÞAÐ UPPHÁTT FYRIR BEKKINN MINN...“ „VIÐ VORUM ÖLL SAMMÁLA UM AÐ ÞÚ HLYTIR AÐ VERA GÓÐ MANNESKJA OG GÓÐUR VINUR.“ VILTU LESA „HAMSTRA HALLA OG SLÍMIГ? MIG LANGAR EKKI AÐ LESA HANA FYRIR ÞIG. Á ÉG EKKI AÐ LESA EITTHVAÐ ANNAÐ? EN ÉG VIL AÐ ÞÚ LESIR „HAMSTRA HALLA OG SLÍMIГ! ÉG ER BÚINN AÐ LESA HANA HUNDRAÐ SINNUM LESTU HANA AFTUR... GERÐU ÞAÐ ALLT Í LAGI. ALLT Í LAGI. ÆTLAR ÞÚ EKKI AÐ TALA MEÐ HAMSTRA- RÖDDINNI OG GERA ÓGEÐSLEGA HLJÓÐIÐ Í SLÍMINU? EIGUM VIÐ EKKI BARA AÐ LESA AÐRA BÓK? MAMMA, ÉG SKIL EKKI KARLMENN! EKKI ÉG HELDUR ÞEIR TALA ALLTAF MEÐ FULLAN MUNNINN ...OG EKKI GLEYMA AÐ SLÁ Í KRINGUM RUNNANA! ALLTAF SAMA NÖLDRIÐ MAMMA! KALLI ULLAÐI Á MIG! JÁ! HÚN SAGÐI AÐ ÉG VÆRI FÍFL! EIGUM VIÐ EKKI AÐ GERA EITTHVAÐ SKEMMTILEGT OG BAKA SAMAN? GOTT AÐ SJÁ ÞIG... ÉG Á EFTIR AÐ GERA SVO MARGT! AF HVERJU EYDDIR ÞÚ ÞÁ ÖLLUM DEGINUM Í AÐ BAKA? EF ÉG ER Í TÖKUM Á DAGINN OG ÞÚ ERT AÐ TAKA MYNDIR Á KVÖLDIN... HVENÆR GETUM VIÐ ÞÁ VERIÐ SAMAN? VIÐ HÖFUM TÍMA NÚNA, ER ÞAÐ EKKI? Ó! HÆ ROD! ÞETTA ER MEÐLEIKARI HENNAR. HVAÐ VILL HANN? dagbók|velvakandi Opið bréf til Velferðarsviðs ÞAÐ hefur komið í ljós vegna fyr- irhugaðrar staðsetningar „heimilis“ fyrir virka alkóhólista og dópista á Njálsgötu 74 að íbúar í þessu gamla, mjög þröngsetna og þéttbýla hverfi eru mjög ósáttir við þessa ákvörðun. Þeir hafa látið það óspart í ljós, enda hvorki grenndarkynning farið fram né nokkurt samráð við þá haft. Í þessari umræðu hafa aftur á móti íbúar í hinum ýmsu hverfum borgarinnar látið í ljós undrun sína og fordæmingu á skorti á náunga- kærleika og kristilegum hugs- unarhætti hjá Njálsgötubúum, m.a. nú síðast íbúar á Háaleitisbraut og Hjarðarhaga. Virðist því að náunga- kærleika, mannskilningi og kristi- legum hugsunarhætti sé mjög mis- skipt milli íbúa hverfa borgarinnar og margir íbúar tækju því fagnandi að geta sýnt þessar dyggðir sínar með því að bjóða velkomna ut- angarðsmenn í nágrenni sitt. Gefur það auga leið að Velferð- arsvið borgarinnar þarf að endur- skoða aðferðafræði sína þegar vand- kvæði félagsþjónustunnar eru að sliga það, húsnæði þarf að kaupa og „heimili“ að stofna fyrir þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu. Því sýnist hægðarleikur einn að komast hjá „þröngsýni, eigingirni og for- dómafullum skoðunum“ íbúa ein- stakra hverfa, svo sem við Njálsgötu „sem hafa æpt og gólað og dregið börn inn í umræðuna“, sbr. skrif Kolbrúnar Berþórsdóttur, í Blaðinu 13. júlí vegna staðsetningar fyrr- greinds „heimilis“ í götu þar sem nánd milli íbúa er mikil. Lausnin virðist einföld. Sú að gefa þeim hverfum borgarinnar, þar sem ,,kristilegu kærleiksblómin spretta“, kost á að hýsa starfsemi sem þessa. Með því er þessum hjartahlýju og skilningsríku íbúum borgarinnar gefið „tækifæri til að gera þjóðfélag okkar betra og líf einstaklinga bæri- legra“, sbr. hjartnæma grein Bolla Thoroddsen í Morgunblaðinu 2. maí. Velferðarsviði er því vinsamlega bent á þessa lausn og að koma þann- ig í veg fyrir ósætti milli íbúa og yf- irvalda og skítkast manna á milli. Edda Ólafsdóttir. Ráðleggingar ÉG VIL hvetja alla til að ferðast um hálendið á meðan þurrkurinn er því þá er rykmökkurinn í algleymingi. Þeir sem ekki vilja laga hálendisveg- ina geta þar með fengið rykmökkinn í æð. Ég vil þó endilega biðja ferða- menn að vara sig þegar þeir mæta bíl í rykmekkinum, það gæti verið annar bíll rétt á eftir honum sem ekki sést vegna ryksins. Í tengslum við tvöföldum Suður- landsvegar vil ég einnig benda þeim sem ekki vilja laga hálendisvegi á að fara Krísuvíkurleiðina. Þar er líka hægt að fá rykið beint í æð auk þess sem það myndi létta svolítið á um- ferð á Hellisheiði. Sveinn Tyrfingsson. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is RIGNINGIN barði á hverri regnhlíf ferðamannanna í miðbænum í gær. Loks rignir Morgunblaðið/Eyþór Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.