Morgunblaðið - 21.07.2007, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 41
Alþjóðlegt
orgelsumar í
Hallgrímskirkju
21. júlí kl. 12.00:
Hannfried Lucke, orgel
22. júlí kl. 20.00:
Hannfried Lucke, prófessor í orgelleik
við Mozarteum, leikur verk eftir
Buxtehude, Bach, Brahms,
Mendelssohn, Duruflé og Vierne.
www.listvinafelag.is
Sumartónleikar í Skálholtskirkju
SKÁLHOLTSHÁTÍÐ 21. - 22. JÚLÍ
Laugardagur 21. júlí
Kl. 14:00
Erindi í Skálholtsskóla:
Margaret Irwin-Brandon fjallar um D.
Buxtehude og áhrif hans á J. S. Bach
Kl. 14:55
Tónlistarsmiðja fyrir börnin
Leiðbeinandi: Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths
Kl. 15:00
Dieterich Buxtehude: 300 ára ártíð
Tríósónötur og kantötur eftir D. Buxtehude
Sönghópurinn Gríma, Bachsveitin í Skálholti,
leiðari Jaap Schröder, gestur M. Irwin-Brandon
Kl. 17:00
Söngarfurinn.
Sálmar og útsetningar m. a. eftir Róbert A. Ottós-
son, Þorkel Sigurbjörnsson og Atla H. Sveinsson
Skálholtskórinn, Hilmar Örn Agnarsson
stjórnandi, Steingrímur Þórhallsson orgel
Sunnudagur 22. júlí
Kl. 14:00
Hátíðarguðsþjónusta
Kl. 17:00
Tónleikar þátttakenda á orgelnámskeiði
M. Irwin-Brandon
Ókeypis aðgangur
www.sumartonleikar.is
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
Ídag, eða öllu heldur í nótt, komút sjöunda bókin um HarryPotter, sú síðasta í röð met-sölubókanna miklu eftir Jo-
anne Kathleen Rowling. Það segir
sitt að áður en bókin kom út höfðu
selst af henni margar milljónir ein-
taka, fyrirframpantanir voru víst á
fjórðu milljón eintaka. Mikið er og
um bókina ritað á vefsetrum og í
blöðum, öryggisgæsla náði nýju há-
marki til að tryggja að ekkert spyrð-
ist út um sögulokin og menn keppt-
ust um að giska á hver endirinn yrði
– sumir gengu svo langt að skrifa
umsögn um bókina áður en hún kom
út og ef marka má þær umsagnir
sem hægt er að lesa á netinu voru all-
margir að skrifa um bók sem þeir
ekki höfðu lesið, því svo ólíkar eru
umsagnirnar hvað varðar endi sög-
unnar. Hvað sem því líður er þó eitt
ljóst; sagan af Harry Potter, sjö
bækur, 4.200 síður alls, er öll.
Bókaröðinni um Harry Potter
svipar um margt til annarra barna-
bóka sem segja frá því er ungmenni
þroskast með því að glíma við ýmsar
þrautir. Eins er til legíó af bókum
sem flétta töfrum og illum öflum
saman við söguþráðinn til að auka
spennu eða gefa lit. Einnig eru bæk-
urnar dæmigerðar fyrir verk sem
leggja áherslu á vináttu og traust, þó
æ erfiðara verði að átta sig á hverjir
eru raunverulegir vinir og hverjum
eigi að treysta eftir því sem líður á
bækurnar.
Rowling hefur ekki gefið upp
neina sérstaka höfunda sem áhrifa-
valda en þó sagst hafa sótt innblástur
í svo ólíka höfunda sem Jane Austen,
Shakespeare, TH White og Susan
Cooper, aukinheldur sem menn sjá
líkindi með ákveðnum þáttum í sög-
unni og ævi og verkum Elizabeth Go-
udge, Eva Ibbotson og Jessica Mit-
ford.
Launráð og morð
Bækurnar um Harry Potter hefj-
ast þar sem heimur galdramanna
fagnar því að hinn illi galdramaður
Voldemort bíður bana þegar hann
reynir að myrða barnið Harry, en áð-
ur hafði hann drepið foreldra drengs-
ins, Lily og James Potter. Fyrir ein-
hverjar sakir fór svo að
dauðabölvunin sem hann beindi að
Harry litla Potter beindist að honum
sjálfum svo Voldemort varð nánast
að engu, aðeins illur andi hans varð
eftir, en það eina sem henti drenginn
litla var að hann fékk ör sem líktist
eldingu á ennið.
Í kjölfarið var Harry Potter fluttur
til móðursystur sinnar, Petunia
Dursley, og elst upp hjá henni, Ver-
non manni hennar og Dudley syni
þeirra.
Þó Harry Potter sé barn galdra-
manns, James Potter, eru Dursley-
hjónin og sonur þeirra mjög andvíg
allri ónáttúru og kukli og Harry er
refsað miskunnarlaust ef hann sýnir
einhverja tilburði í þá átt. Svo kemur
þó að hann er kallaður í skóla,
galdraskólann í Hogwarts, og þrátt
fyrir mótþróa Dursley-hjónanna
heldur Potter hinn ungi í skólann og
kemst þá loks að því hver uppruni
sinn er og ætt.
Eftir það gerast bækurnar að
mestu leyti í Hogwarts-skólanum og
hver bók segir frá einu skólaári. Í lok
hverrar bókar glímir Harry síðan við
þraut, en þær verða óttalegri með
hverri bókinni.
Í íslenskri þýðingu heita bækurnar
Harry Potter og viskusteinninn,
Harry Potter og leyniklefinn, Harry
Potter og fanginn frá Azkaban,
Harry Potter og eldbikarinn, Harry
Potter og Fönixreglan og Harry Pot-
ter og blendingsprinsinn, en sjöunda
bókin, Harry Potter and the Deathly
Hallows, sem kemur út í dag á ensku,
verður gefin út á íslensku 15. nóv-
ember næstkomandi. Ekki er kom-
inn á hana íslenskur titill.
Söguþráðurinn
Á leið í skólann í fyrsta sinn í
Harry Potter og viskusteinninn
kynnist Harry Potter Ron Weasley
og Hermione Granger, sem verða
vinir hans upp frá því og fylgja hon-
um í gegnum söguna. Skólastjóri
Hogwarts, Albus Percival Wulfric
Brian Dumbledore verður helsti
verndarengill hans í gegnum bæk-
urnar, en í skólanum er líka fjand-
menn að finna, þá helst Draco
Malfoy, samnemanda Harrys en fað-
ir hans Lucius er í slagtogi við Volde-
mort.
Í skólanum kemst Harry Potter á
snoðir um að frásagnir af andláti
Voldemorts séu mjög orðum auknar,
en bókinni lýkur þar sem hann larf
að finna goðsagnakenndan visku-
stein til að koma í veg fyrir að hann
verði notaður til að lífga Voldemort.
Í Harry Potter og leyniklefanum
er Harry Potter í sumarleyfi er hon-
um birtist álfur sem varar hann við
að snúa aftur í skólann. Ýmislegt
verður og til að seinka því að hann
komist í Hogwart, en einnig er sitt-
hvað sérkennilegt á seyði í skólanum
sem snýr að leyniklefa. Í þeim klefa
glímir Harry síðan við anda Volde-
morts sem Tom Marvolo Riddle og
hefur sigur.
Harry Potter og fanginn frá Az-
kaban hefst þar sem Harry Potter
notar galdra í mannheimum og lend-
ir í klandri fyrir vikið. Um líkt leyti
sleppur fangi úr fangelsinu illræmda
í Azkaban, en flóttamaðurinn er Si-
rius Black og menn óttast að hann
hyggist gera Harry Potter mein. Í
ljós kemur að hann er að verja Harry
fyrir illvirkjum í skólanum, enda var
hann besti vinur foreldra Harrys og
er guðfaðir hans.
Harry Potter og eldbikarinn snýst
að mestu um þrautakóng töframanna
þar sem ungir töframenn keppa í
hættulegum þrautum. Harry Potter
kemst í úrslitin fyrir hundaheppni að
því er virðist en er hann er í þann
mund að grípa sigurbikarinn kemur í
ljós að hann hefur verið leiddur í
gildru og Voldemort, sem hefur nán-
ast náð fullum styrk, reynir enn og
aftur að drepa hann en Harry hefur
betur.
Í Harry Potter og Fönixreglunni
er Harry og félögum ljóst að Volde-
mort hefur snúið aftur og safnar liði.
Hann kemst í samband við leynireglu
fönixins sem hefur að markmiði að
sigrast á Voldemort, en í miklu upp-
gjöri í galdramálaráðuneytinu fellur
Sirius Black þó Harry og félagar hafi
sigur að lokum.
Eftir uppákomuna í galdra-
málaráðuneytinu er mönnum al-
mennt orðið ljóst í Harry Potter og
blendingsprinsinum að Voldemort
hefur náð fyrri styrk og galdramenn
skiptast í fylkingar eftir því hver þeir
telji að bera muni sigur af hólmi. Að
þessu sinni fara höfuðátökin fram í
Hogwart-skólanum og nú er það ann-
ar stuðningsmaður Harry Potters,
Albus Dumbledore, sem lætur lífið í
glímunni í lok bókarinnar, fellur fyrir
„blendingsprinsinum“ Severus Tobi-
as Snape.
Umdeildar bækur
Bækurnar hafa verið umdeildar að
segja frá því fyrsta bindið kom út.
Þannig hafa ýmsir orðið til að gagn-
rýna hve flatur stíllinn á þeim sé og
söguþráðurinn ófrumlegur, til að
mynda Harold Bloom, en einnig hafa
ýmsir gagnrýnt þær sem birting-
armynd yfirborðskenndrar menning-
ar okkar tíma og má þar nefna gagn-
rýni rithöfundarins kunna A.S.
Byatt. Heittrúarfólk víða um heim
hefur gagnrýnt bækurnar fyrir að
ýta undir galdratrú og djöfladýrkun
og ýmsir kristnir söfnuðir vestan
hafs hafa beitt sér fyrir því að þær
yrðu bannaðar.
Alla jafna er bókunum hampað
fyrir að hafa aukið bóklestur til
muna, enda segir salan sitt. Þeir eru
þó til sem halda hinu gagnstæða
fram, benda á að í útgáfumánuði
hverrar bókar komi varla út aðrar
barnabækur og lítið sé gefið út í mán-
uðinum á eftir. Þannig verði hinar
gríðarlegu vinsældir eins höfundar,
eða í þessu tilfelli einnar sögu-
persónu, til þess að kæfa aðra höf-
unda eða bækur; það bitni á lág-
gróðri og grósku þegar ein tegund
verði allráðandi. Aðrir hafa svo bent
á að obbinn af lesendum Harry Pot-
ter bókanna sé fullorðnir og draga þá
ályktun af því að „fullorðinsútgáfa“
bókanna seljist jafnan mun betur en
„barnaútgáfan“, en bækurnar eru al-
veg eins, það eina sem er frábrugðið
er kápan.
Reuters
Bókarkápan „Það segir sitt að áður en bókin kom út höfðu selst af henni margar milljónir eintaka, fyrirframpantanir voru víst á fjórðu milljón eintaka.“
Harry Potter allur
Bílfarmur Öruggt má telja að síðasta bókin muni seljast í bílförmum.
MR. SKALLAGRIMSSON
- höf. og leikari Benedikt Erlingsson
Sjá sýningadagatal á www.landnamssetur.is
Miðapantanir í síma: 437-1600
Fréttir á SMS