Morgunblaðið - 21.07.2007, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 47
800 g lambakjöt, beinlaust og fitusnyrt
150 ml mild chilisósa (t.d. Heinz)
3 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
½ tsk. karríduft
2 msk. olía
safi úr límónu
nýmalaður pipar
salt
1 dós (250 ml) tómatmauk (purée)
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
28
81
6
Kjötið skorið í gúllasbita. Chilisósu, hvítlauk, karríi, olíu, límónusafa og pipar blandað
saman í skál, kjötið sett út í og látið standa í kæli í a.m.k. 1 klst. Þá er kjötið tekið úr
leginum, en hann er geymdur. Kjötið saltað og þrætt upp á teina. Útigrill eða grillið
í ofninum hitað og kjötið grillað við góðan hita þar til það hefur tekið góðan lit á
öllum hliðum og er steikt í gegn. Á meðan er kryddlögurinn settur í pott ásamt
tómatmauki. Hitað að suðu og látið malla í 5-10 mínútur. Smakkað til með
pipar og salti og borið fram með kjötinu.
Chilikryddað lambakebab
BRISSÓ B. Johannsson, hinn skel-
eggi ritstjóri Reykvísks eðalefnis,
veitti í gær Björgólfi Guðmundssyni
bankastjóra Landsbankans, styrk
að upphæð eittþúsund krónur. Að-
spurð sagði Brissó, einnig þekkt
sem Bryndís Björgvinsdóttir, að
með þessu vildi hún verðlauna
Björgólf fyrir gott gengi hér heima
og erlendis.
„Ég er nemi en mig langar að
verða listakona einhvern daginn.
Björgólfur er aðalnafnið þegar kem-
ur að því að gefa pening og styrkja
íslenska menningu. Ég sé alveg
fram á það að ég eigi eftir að þurfa
að sækja um styrk til hans. Þá þarf
maður að sýna fram á að maður sé
svo sniðugur og í góðum skóla með
góðar einkunnir. En þá fór ég að
spá – hann er að gera það gott líka,
bæði innanlands og utan. Af hverju
ekki að verðlauna hann líka?“
Með þessu vill Bryndís einnig slá
á þá einstefnu fjármagns sem liggur
frá bönkunum niður í fræðiheiminn
og menninguna. „Það er ansi erfitt
oft fyrir suma fræðimenn og lista-
menn að gagnrýna kerfið og ríku
kallana þegar þeir geta samt aldrei
verið neitt annað en þiggjendur
ölmusu. Með því að gefa Björgólfi
pening þá getum við snúið þessu við
– það er oft sagt að hann eigi menn-
inguna en þá þurfum við bara að
eignast hann líka svo við getum átt
þetta öll saman,“ segir Bryndís sem
sá á eftir 2% eigna sinna í styrkinn.
Hún segir Björgólf hafa verið
þann eina sem kom til greina fyrir
styrkinn en útilokar þó ekki að
þetta verði árviss viðburður. Ekki
náðist í Björgólf vegna styrkveiting-
arinnar en Bryndís sagði að hann
hefði verið mjög glaður með styrk-
inn.
Af hverju ekki Björgólfur líka?
Heilög þrenning Á ávísuninni veglegu stendur meðal annars: Áfram Ís-
land! Áfram menning! Áfram Björgólfur!
ÞAÐ VAR þétt setinn bekkurinn í
Bræðsluverksmiðjunni Gránu á
Siglufirði, þegar fjallalangspilsleik-
arinn Jerry Rockwell steig á stokk
til að leika listir sínar á þessa sér-
stæðu frænku íslenska langspilsins.
Fjallalangspilið (mountain dulcimer)
er ekki strokið heldur plokkað eða
slegið og mögulegt er að breyta tón-
hæðum allra strengjanna. Jerry er
með bakgrunn á gítar en hefur helg-
að sig þessu frumstæða hljóðfæri
um áratuga skeið, enda var undra-
vert að heyra hversu mikið vald
hann hafði á því og oft hljómaði eins
og margir menn væru að spila en
ekki aðeins einn. Hann hefur líka
fallega söngrödd sem hann notaði í
sumum lögunum. Þrátt fyrir ótví-
ræða snilli tónlistarmannsins var
framkoma hans látlaus og jarð-
bundin og tók hann sér tíma til að
segja frá uppruna laganna og út-
skýra músíkalskan efnivið þeirra og
meðhöndlun sína á þeim. Hljómur
fjallalangspilsins er mildur og þægi-
legur, enda er hljóðfærið oftast með
náttúrulegum tónbilum, sem ná vel
til eyrans og laða fram aukin hljóm
úr hljóðfærinu sem er annars mjög
lágstemmt, en sumir vilja meina að
náttúruleg stilling orki betur á fólk.
Það skal ósagt látið hvort þetta sé
rétt eður ei, en í öllu falli voru tón-
leikar Jerry Rockwell eins og heilt
sumarfrí útaf fyrir sig, það virtist
líða úr áhorfendum sem hlustuðu
hljóðir eða sungu með þegar það átti
við. Þessir fallegu tónleikar auðguðu
andann og vöktu í senn hlýlegt and-
rúmsloft og samkennd í salnum og
urðu ógleymanlegir fyrir vikið.
Náðar-
stund í
Gránu
Tónlist
Þjóðlagahátíð á Siglufirði – Jerry
Rockwell leikur á amerískt fjalla-
langspil. Gestur: Örn Magn-
ússon, langspil.
Flutt voru bandarísk þjóðlög og söngvar,
írsk og skosk sekkjapípulög og fiðlustef,
spuni í kirkjutóntegundum og blús.
Ólöf Helga Einarsdóttir
LEIT er hafin að nýrri aðalleikkonu
fyrir söngleikinn Spamalot, sem er
lauslega byggður á Monthy Python
and the Holy Grail og saminn af Pyt-
hon-liðanum Eric Idle. Aðstand-
endur söngleiksins breska hafa
ákveðið að leita til Svíþjóðar þar
sem leitin að nýrri leikkonu í hlut-
verk Vatnadísarinnar verður uppi-
staðan í nýjum raunveruleikaþætti.
Tólf keppendur komast í lokaúrslit
þáttarins sem svipar í mörgu til Idol-
þáttanna vinsælu en fyrirmyndin er
þó nýlegir sænskir þættir þar sem
leitað var að leikkonu í hlutverk
Maríu í Tónaflóði (Sound of Music).
Sigurvegarinn verður tilkynntur í
febrúar næstkomandi.
Idolið og
Monthy
Python
Kvenmannsleit Eric Idle leitar nú
sænskrar vatnadísar.