Morgunblaðið - 21.07.2007, Side 48

Morgunblaðið - 21.07.2007, Side 48
LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 202. DAGUR ÁRSINS 2007 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Dæturnar sluppu  Ingunn Arnórsdóttir, sem mjaðmagrindarbrotnaði er hún varð fyrir bíl á götu í Vestmannaeyjum, segir það guðsmildi að ekki skyldi fara verr. Tvær litlar dætur hennar sluppu með skrámur. » Forsíða Bíða eftir hjólunum  Þátttakendur í keppninni Siku Extreme Arctic Challenge, sem hefjast átti í Kulusuk á Grænlandi í morgun, bíða eftir 34 fjallahjólum sem eru veðurteppt í Reykjavík. » 2 Ekkert eftirlit  Engin stofnun hefur nú eftirlit með því hvort fæðubótarefni séu í samræmi við innflutningsreglur, flytji einstaklingar þau inn. Um- hverfisstofnun telur sig ekki hafa lagaheimild til að stöðva innflutning einstaklinga. » 4 SKOÐANIR» Staksteinar: Hvers vegna? Forystugreinar: Ísland og Kanada | Reynsla Akureyringa UMRÆÐAN» Seinheppinn vindbelgur svarar Í skugga greiningar Vistaskipti Hafrannsóknastofnunar? Dómstólum vantreyst Hvers er verið að minnast? Þetta bara gerist, ég er bókaður Sitthvað ósagt í ævisögu H.K. L. Heimspekileg viðspyrna LESBÓK» 0  !5 " + (! 6     /   4.  .4 . .4 4. . 4.  4.  .4 .4 . . .4 4. . 4  .4 . 4 * 7&2 " 4.  . . .4 4. . 4  89::;<= ">?<:=@6"AB@8 7;@;8;89::;<= 8C@"7 7<D@; @9<"7 7<D@; "E@"7 7<D@; "3=""@/ ,<;@7= F;A;@"7> F?@ "8< ?3<; 6?@6="3("=>;:; Heitast 18 °C | Kaldast 10 °C Hæg, breytileg átt víðast hvar á landinu, skýjað og einhverjar skúrir í flestum lands- hlutum. » 10 Birta Björnsdóttir fjallar um Mekka kvikmyndaáhuga- mannsins, vefsíðuna imdb.com. » 42 NETIл Allt um kvikmyndir TÓNLIST» Benni Hemm Hemm spilaði í LA. » 43 Er teiknimyndasag- an Tinni í Kongó uppfull af kynþátta- hatri líkt og samtök gegn rasisma halda fram? » 44 BÓKMENNTIR» Tinni og rasisminn FÓLK» Páll Óskar vekur athygli erlendis. » 45 BÓKMENNTIR» Harry Potter hefur tekið völdin. » 41 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Léttist um 200 kg 2. Lífstíð fyrir sæmdarmorð 3. Sting mælti með matreiðslumanni 4. „Var mjög ringluð“ Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is KOLBEINI Jóni Ketilssyni óp- erusöngvara hefur verið boðið að syngja með óperuflokki Arena di Ve- rona á Ítalíu, í söngferð hópsins til Ástralíu. Sung- ið verður á nokkrum stöðum, meðal annars í Sydney, og verð- ur Kolbeinn því fyrsti íslenski óp- erusöngvarinn sem syngur á sviði þess þekkta óperuhúss, að því að best er vitað. Kolbeinn syngur Don José, aðalkarlpersónuna í Car- men eftir Bizet. Kolbeinn segir jafn- framt frá því í viðtali í Lesbók í dag, að hann sé bókaður í verkefni allt til ársins 2010. Hann hefur verið í lausamennsku í evrópskum óp- eruhúsum síðustu ár og býr í Köln. Kolbeinn syngur hlutverk Bakk- usar í uppfærslu Íslensku óperunnar á Ariadne auf Naxos eftir Richard Strauss í vetur. Kolbeinn syngur í Sydney Kolbeinn Jón Ketilsson  Þetta bara gerist | Lesbók 4 FRÁGANGUR er heitið á nýjustu plötu Megasar sem kemur út á mánudaginn. Hljómsveitin Hjálmar er Megasi til halds og trausts á plöt- unni og í samtali við blaðamann Morgunblaðsins segir hann að sam- starfið hafi verið mjög gott. „Það var alveg sama hversu leiðinlegt efni ég kom með, þá varð það skemmtilegt þegar búið var að setja músík á bak- við það.“ Þá segir Megas að hann hafi hvorki þróast né þroskast frá tólf ára aldri. „Þannig að ég get sett inn lag frá því ég var kornungur og það tekur enginn eftir því. Það er al- veg sama hvar borið er niður; lögin eru alltaf á sama stigi.“ | 40 Megas gengur frá Megas Segist lítið breytast með árunum. Eftir Gunnhildi Finnsdóttur og Ylfu Kristínu Árnadóttur DAGMAR Ríkharðsdóttir fékk fyrsta eintakið af sjöundu og síðustu bókinni um Harry Potter í hendur í gærkvöldi, en hún beið í rúmlega sólarhring fyrir utan verslunina til þess að tryggja sér það. Hún var búin að birgja sig upp af mat og drykk og ætlaði ekki að linna lestr- inum fyrr en örlög galdrastráksins vinsæla kæmu í ljós á síðustu blað- síðunni. Dagmar sagði að sér liði í senn „hörmulega og mjög æðislega“ að fá síðustu bókina í hendur, en margir aðdáendur munu eflaust sakna þess að fá ekki að lesa um ný ævintýri Harry Potter með reglu- legu millibili. 205 manns í röð við Nexus Fjölda fólks dreif að versluninni Nexus á Hverfisgötu þegar klukkan fór að nálgast ellefu, en salan hófst á sömu mínútunni um allan heim, hér á landi á slaginu 23:01. Hogwarts Express, sem alla jafna flytur Harry og félaga hans í galdraskólann stoppaði í gærkvöld á Hverfisgötunni, en hafði fyrst við- komu í Digraneskirkju og sótti stór- an hóp Harry Potter-aðdáenda. Þegar dyrnar lukust upp voru 205 manns komnir í röðina, en nauðsyn- legt reyndist að númera þá sem biðu, svo allt færi skikkanlega fram, enda mikil spenna í loftinu og tak- markað upplag í boði. Birgðir versl- unarinnar reyndust þó nægja fyrir þá sem biðu fyrir utan, en telja má líklegt að fáar bækur séu eftir í dag. Lesið á gangstéttum Ekki var minni eftirvænting eftir Harry Potter í Máli og menningu á Laugavegi. Rétt eftir ellefu sátu nokkrar unglingsstúlkur strax nið- ursokknar í lesturinn á gangstétt- inni við búðina. Þær sögðust þó vera á heimleið, en gátu ekki setið á sér að kíkja örlítið á byrjunina. Erla Lilliendahl, starfsmaður Máls og menningar, stóð vaktina klædd í nornarbúning. Eftirspurnin eftir Harry Potter slær öll met í þetta skiptið, að hennar mati. Hún sagði að það yrðu sannarlega við- brigði fyrir bóksala, eins og aðra aðdáendur bókanna, að nú kæmu ekki fleiri bækur í ritröðinni. „En ég held að þessar bækur lifi, því næstu kynslóðir taka við og lesa þær.“ Örlög Harry Potter eru loksins orðin ljós Í HNOTSKURN »Bækurnar um Harry Potter og félaga hans í galdraskólanumHogwart eru nú orðnar sjö talsins. »Fyrsta bókin um Potter kom út árið 1997 og hefur hún selst í yfir107 milljónum eintaka. »Hún vermir níunda sætið yfir mest seldu bækur allra tíma. Aðeinsbækur á borð við Biblíuna, Kóraninn og Rauða kverið hafa verið prentaðar í fleiri eintökum. »Hinar bækurnar í ritröðinni eru allar meðal 20 mest lesnu bókaallra tíma. Skjóta þær tímamótaverkum í bókmenntasögunni á borð við Hundrað ára einsemd, Kofa Tómasar frænda og Á hverfanda hveli ref fyrir rass. »Bækurnar um Harry Potter hafa verið þýddar yfir á 67 tungumál,allt frá færeysku til forn-grísku. Mörg hundruð manns í biðröðum eftir síðustu bókinni Morgunblaðið/Sverrir Glatt á hjalla Í einu vetfangi fylltist miðbær Reykjavíkur af nornum og seiðkörlum. Galdrabrennur voru þó ekki haldnar. Ofan í kjölinn Óþreyjufullir aðdá- endur hófu lestur um leið og búið var að borga fyrir bókina góðu. Seiðmagn nýjustu Harry Potter- bókarinnar varð þess valdandi að þær Dagmar, Borghildur og Ingi- björg biðu eftir henni úti undir ber- um himni í 29 klukkustundir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.