Morgunblaðið - 27.10.2007, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv.
Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
BETUR fór en á horfðist þegar Þórir Hans Svavarsson
datt milli skips og bryggju í Reyðarfjarðarhöfn á mið-
vikudag, en félagar hans björguðu honum á þurrt. Hon-
um líður nú þokkalega og er þakklátur öllum þeim sem
komu að björguninni.
„Ég missti fótanna þegar ég var að fara um borð og
féll milli skips og bryggju,“ segir Þórir. „Ég meiddi mig
á mjöðminni og fór á kaf við fallið. Gunnar [Oddsteins-
son], skipsfélagi minn, kom og hélt mér uppi, en hann er
útskrifaður.“ Gunnar fór á sjúkrahúsið um leið og Þórir
þar sem hann fékk hjartaáfall og hneig út af eftir að
Baldur Bragason, annar skipsfélagi, fór ofan í sjóinn og
lyfti Þóri upp. Félagar hans hófu þá hjartahnoð á Gunn-
ari og hringdu á Neyðarlínuna.
Þórir liggur enn á sjúkrahúsinu í Neskaupstað þar
sem hann marðist svo illa við fallið að hann getur ekki
stigið í annan fótinn. „Þegar ég get farið að komast um
ætla ég að komast heim,“ segir Þórir en ekki var alveg
ljóst hvenær það yrði. „Ég er mjög þakklátur og heill að
segja má. Þó að ég sé aðeins skaddaður er ég þó lifandi.“
Þórir segir ljóst að ef félagar hans hefðu ekki verið ná-
lægt hefði farið illa. „Af því að ég fór alveg á kaf, Gunnar
rétt náði að grípa í höndina á mér,“ lýsir hann.
Þórir nefnir sérstaklega skipsfélaga sína á Stíganda
VE 77, auk Baldurs og Gunnars, Ægi Ármannsson og
Magna Hauksson sem tóku allir þátt í björguninni, ásamt
Birgi Þór Sverrissyni, skipstjóra á Vestmannaey, sem
líka lá við bryggju í Reyðarfjarðarhöfn er slysið varð.
Naumlega bjargað
úr ísköldum sjónum
Missti fótanna og féll
milli skips og bryggju
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Slys Þórir Hans Svavarsson er að jafna sig eftir slysið.
NÝBYGGING við Grand hótel, við Sigtún í Reykjavík,
var tekin formlega í notkun í gær, en með stækkuninni
rekur Kaupgarður, fyrirtæki Ólafs Torfasonar hótel-
stjóra, orðið stærstu hótelkeðju landsins. 314 herbergi
eru í Grand hóteli, en með Hótel Reykjavík og Hótel
Reykjavík Centrum eru herbergin samtals 482.
Grand hótel með stærstu hótelkeðjuna
Morgunblaðið/Kristinn
SAMTÍMALISTASAFNIÐ Safn við
Laugaveg lokar dyrum sínum um
áramótin og hefur húsnæðið verið
selt. Reykjavíkurborg hefur enn
ekki gengið til samninga við hjónin
Pétur Arason og Rögnu Róberts-
dóttur um áframhaldandi samstarf,
þrátt fyrir að þau hafi óskað eftir við-
ræðum. Pétur og Ragna lögðu Safni
til hús og safnkost, en þau eiga mjög
stórt safn samtímalistar. Reykjavík-
urborg lagði á móti fram fé til rekst-
ursins. Samstarfið hefur staðið frá
árinu 2003.
Hugsanlega eru þó breytingar í
bígerð því Margrét Sverrisdóttir tók
við formennsku í menningar- og
ferðamálaráði eftir uppstokkun í
borgarstjórn á dögunum. Hún segist
hafa mikinn áhuga á því að tryggja
áframhaldandi samstarf um rekstur
Safns. „Þetta er stórmerkilegt safn
og við viljum gera því hátt undir
höfði,“ segir Margrét. | 20
Áhugi á
Safni eflist
Borgin treg í taumi
en það gæti breyst
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
LÖGREGLAN á Akureyri stöðvaði
tvenn unglingaslagsmál í síðustu
viku. Ofbeldið var grófara en lögregl-
an hefur áður séð hjá unglingum.
Myndband af öðrum slagnum, milli
tveggja 15 ára drengja, var sett inn á
vefinn youtube.com og hafa margir
lýst skoðun sinni á þeim þar.
„[…] áttir ekki að hætta, það er svo
gaman að berja menn liggjandi,“ eru
viðbrögð eins notanda youtube. Þótt
annað mætti ætla af ofangreindum
ummælum sló annar drengurinn hinn
átta sinnum í andlitið á meðan hann lá
í götunni. Atburðurinn átti sér stað
við Glerártorg á miðvikudaginn og
kom lögreglan á vettvang. Hún kom
einnig að Giljaskóla á fimmtudags-
kvöldið þar sem aðrir tveir 15 ára
drengir voru að slást. Í bæði skiptin
var fjöldi áhorfenda á staðnum sem
hvatti slagsmálahundana áfram.
Slást um léttvæg mál
Gunnar Jóhannsson, yfirmaður
rannsóknardeildar lögreglunnar á
Akureyri, segir að rætt hafi verið við
foreldra allra drengjanna sem hlut
áttu að máli. „Við viljum taka þetta
föstum tökum þannig að það verði
ekki framhald af þessu.“ Hann segir
merkilegt að svo virðist sem ungling-
um finnist eðlilegt að gera upp um af-
ar léttvæg mál sín á milli með því að
skipuleggja slagsmál sem fjöldi fólks
horfi á sér til skemmtunar.
Með tilkomu myndsíma færist í
vöxt að slagsmálin séu tekin upp og
sett á Netið og á youtube.com eru
nokkur myndbönd af slagsmálum ís-
lenskra unglinga. Þar halda áhorf-
endur áfram að hvetja til slagsmála.
„Þessi börn virðast ekki gera sér
nokkra grein fyrir afleiðingunum.
Það skapast náttúrlega mikil hætta
þegar menn eru farnir að berja hver
annan síendurtekið, af öllum lífs og
sálar kröftum, í andlitið með kreppt-
um hnefa,“ segir Gunnar. „Þetta er
ofsafengið og gróft ofbeldi og grófara
en við erum vanir að sjá hjá 15 ára
unglingum.“
Unglingaslagsmálin
endursýnd á Netinu
Í HNOTSKURN
»Einn myndbandsáhorfand-inn segir að sá sem hafði
yfirhöndina hefði átt að
„ganga alla leið“ og hvetur því
næst til hópslagsmála.
Tvenn slagsmál 15 ára drengja stöðvuð á Akureyri í vikunni
Heilbrigðisráð-
herra hefur skip-
að Ingu Jónu
Þórðardóttur for-
mann sjö manna
nefndar sem hef-
ur það hlutverk
að efla og styrkja
eftirlit með upp-
byggingu fast-
eigna heilbrigðis-
stofnana og
aðstöðu þeirra og rekstri fasteigna
Landspítala og Sjúkrahússins á Ak-
ureyri.
Nefndin mun m.a. hafa yfirumsjón
með undirbúningi, hönnun og bygg-
ingu nýs sjúkrahúss fyrir Landspít-
ala.
Í september var greint frá þeirri
ákvörðun heilbrigðisráðherra að Al-
freð Þorsteinsson, fyrrv. borgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins, myndi
ekki áfram stýra starfi byggingar-
nefndar nýs Landspítala. Nefndin
yrði lögð niður og verkefnin flutt.
Nefnd um
byggingu
nýs spítala
Inga Jóna
Þórðardóttir
BIÐRÖÐ myndaðist fyrir utan Apple-verslunina við Laugaveg í gær þegar
sala hófst á Leopard, sjöttu útgáfu Mac OS X-stýrikerfisins. Ásgeir Jónsson
verslunarstjóri sagðist hafa neyðst til að loka búðinni tímabundið. Versl-
unin fékk aðeins 150 eintök af nýju útgáfunni en fleiri koma í sölu í næstu
viku. Meðal nýjunga sem Apple kynnti er sjálfvirk afritun á öllum gögnum.
Ásgeir segir greinilegt að fólk sé spennt að skoða þessar nýjungar.
Fólk stóð í biðröð eftir
nýju stýrikerfi frá Apple
Morgunblaðið/Kristinn
Spennandi Leopard