Morgunblaðið - 27.10.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 27.10.2007, Blaðsíða 26
|laugardagur|27. 10. 2007| mbl.is daglegtlíf Grænlensk náttúra, skandinav- ísk naumhyggja og asísk áhrif einkenna hönnun Ritu og Nickie Isaksen. » 30 tíska Titus Dickens var 16 ára er hann greindist með geðhvörf. Móðir hans Claire gafst aldrei upp í baráttunni við sjúkdóminn. » 28 daglegt Víkingar Stefán og Snær Seljan vöktu athygli þegar þeir sýndu íslenska glímu í Rússlandi. Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Rússarnir höfðu sambandvið okkur og buðu ís-lenskum glímumönnumað koma og taka þátt í þessu heimsmeistaramóti í svokall- aðri beltisglímu eða Belt Wrestling. Við þáðum það að sjálfsögðu þó svo að við séum ekki mjög vanir þess- um fangbrögðum, þau eru þónokk- uð ólík þeim sem viðhöfð eru í ís- lenskri glímu. En við fengum svolitla leiðsögn hjá íslenskum glímumönnum sem höfðu farið til Kasakstans og keppt þar í belt- isglímu í fyrrahaust,“ segir glímu- maðurinn Stefán Geirsson sem er nýkominn heim frá sinni fyrstu Rússlandsför þar sem hann tók þátt í fyrrnefndu heimsmeist- aramóti ásamt tveimur öðrum glímuköppum, þeim Snæ Seljan Þóroddssyni og Júlíusi Gunnari Björnssyni. „Beltisglíma er frekar ung íþróttagrein og keppendur úr öðr- um fangbragðaíþróttum eru gjarn- an fengnir til að taka þátt í mótum til að efla þessa íþrótt. Þetta var mjög skemmtilegt þó svo að við ættum ekki mikla von um verð- launasæti, enda höfðu þessir menn áralanga þjálfun í beltisglímu og margir þeirra vanir grísk-róm- verskum fangbrögðum. Þeir voru líka þó nokkuð ólíkir okkur í vext- inum, þéttir og samanreknir en við aftur á móti hávaxnari og grennri.“ Keppnin fór fram í borginni Ufa sem er austarlega í Evrópuhluta Rússlands, höfuðborg sjálfstjórnar- lýðveldisins Baskortostans. Lentu í yfirheyrslum „Það kom mér á óvart hversu evrópskt umhverfið var þarna, byggingar og annað slíkt, sér- staklega í ljósi þess að borgin er ekki svo langt frá Úralfjöllum og hinum megin við þau tekur Asía við. Þó var andrúmsloftið ólíkt því sem við þekkjum. Til dæmis lenti fréttamaðurinn og myndatökumað- urinn frá RÚV sem fóru með okkur í þessa ferð í yfirheyrslum vegna þess að þeir höfðu verið að taka myndir af olíuhreinsunarstöð. Eins var öryggisgæslan mjög ströng þar sem Pútín forseti kom og heiðraði okkur glímumenn með nærveru sinni á mótinu. Þetta var svolítið framandi fyrir okkur Íslendinga, sem eigum alveg eins von á því að rekast á forsetann okkar í næstu sjoppu. Það voru allir á nálum dag- ana áður en Pútín kom til borg- arinnar og fjöldi varðhunda á hverju strái og nánast heill her vopnaðra manna stóð vörð. Leitað var á öllum sem fóru inn á svæðið og allt var harðlokað og læst þar sem hann birtist. Það var sérstök glímusýning fyrir hann í þessar fáu mínútur sem hann staldraði við og við sýndum þá íslenska glímu og búningurinn okkar, þar sem ís- lenski fáninn nær yfir allan efri búkinn, vakti þónokkra athygli Rússanna,“ segir Stefán sem hefur glímt frá því hann var strákur. „Það er hefð fyrir glímu hér í Flóanum en glímuiðkun hafði legið niðri um tíma þegar Jón M. Ívars- son reif hana upp árið 1988 og fór að kenna hana. Síðan þá hefur hún verið stunduð af kappi hér í sveit- inni,“ segir Stefán, sem er kúabóndi í Gerðum og kennir yngri kynslóð- inni glímu en krakkarnir eru mjög áhugasamir og fleiri stúlkur en strákar æfa glímu hjá honum. Stefán segir að ætlunin sé að efla beltisglímu hér á landi og núna á sunnudag verður fyrsta Íslands- meistaramótið í beltisglímu og Stef- án ætlar að sjálfsögðu að taka þátt í því. Sama dag verður líka fyrsta Íslandsmeistaramótið í hrygg- spennu og lausatökum. Á laugardag verður fyrsta umferð í Meist- aramóti Íslands í hefðbundinni ís- lenskri glímu. Sniðglíma á lofti Stefán er hraustur og fór létt með að lyfta Snæ Seljan. Fangbrögð fjörleg í Rússlandi Beltisglíma Snær Seljan Þóroddsson tekst á við Goshovskiy Oleg og tekur á öllu sínu. www.glima.is Beltisglímumót í glímuhúsi Ár- manns á sunnud. kl. 10:00. Hefðbundin glíma í Íþróttahúsi Hagaskóla á laugard. kl. 14:00. Mikið er rætt og ritað um nýjaþýðingu á Biblíunni. Í Raup- ararímu stendur: Biblían er sem bögglað roð fyrir brjósti mínu, gleypti eg hana alla í einu, ei kom það að gagni neinu. Karl af Laugaveginum orti: Horfi ég upp í himininn í heiðríku veðri og stillu: Sá sem eitt sinn var eingetinn er orðinn að þýðingarvillu. Einar Jochumsson, bróðir Matt- híasar, orti á sínum tíma: Biblían er bók svo römm að börn til leiðir vantrúar. Hún er meiri höfuðskömm og hneyksli en ljóðin Símonar. Hilmir Jóhannesson mjólkur- fræðingur á Sauðárkróki hlustaði á útvarpsfréttirnar þegar fregnir bárust af menguðu vatni í Osló og varð þá að vísu: Vor þjóð með sanngirni sér sko sökina á oss brenna. Oslóardrullan er sko Íslendingum að kenna. Björn Stefánsson bendir á að „ef“ hafi dottið út í vísu Káins í Vísna- horninu og leiðréttist það hér með: Það er ekki út í hött ort að þessu sinni; ef hefi’ eignazt urðarkött, öllum köttum minni. Og Björn rifjar upp að urð- arköttur er samkvæmt Orðabók: „1. útileguköttur, 2. köttur, sem hefur lifað á dauðum manns- skrokkum í þrjá vetur, fyllst af forneskju og drepur með augna- tilliti sínu einu saman.“ pebl@mbl.is VÍSNAHORNIÐ Af Biblíu og þýðingu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.