Morgunblaðið - 10.12.2007, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2007 F 19
Spönginni 37 – 112 Reykjavík – www.fmg.is
Opið virka daga
frá kl. 9:00-18:00
Sími 575 8585
Sigrún Stella Einarsdóttir
lögg. fasteignasali.
GSM 824 0610.
Karl Dúi Karlsson
sölumaður.
GSM 898 6860.
Sigrún Stella Einarsdóttir löggiltur fasteignasali
VALLARHÚS - ENDARAÐHÚS
Fallegt og vel skipulagt 4-5 herb., 126,8 fm, endaraðhús á tveimur hæð-
um auk rislofts við Vallarhús í Grafarvogi. Húsið er staðsett innst í götu.
Garðurinn er stór, gróinn og skjólgóður. Þrjú svefnh., tvö baðherb.,
rúmgóð stofa og eldhús, gluggi við borðkrók. Stutt er í leik-, grunn-, og
framhaldsskóla. Íþróttamiðstöð og sundlaug eru í göngufæri. Hús og
þak nýlega málað. V. 37,9 millj. Áhv. 11 millj. frá ÍLS, 5,1% vextir
LAUFRIMI - 4RA HERBERGJA MEÐ SÉRINNGANGI
Falleg 98,4 fm 4ra herbergja endaíbúð með sérinngangi af svölum í ná-
grenni við Spöngina og Borgarholtsskóla. Þrjú svefnherbergi með góðum
skápum. Íbúðin er rúmgóð og vel skipulögð. Suðursvalir. Glæsilegt útsýni
er af svölunum yfir borgina. Einnig er glæsilegt útsýni af svalagangi, m.a.
yfir Esjuna og Snæfellsjökulinn. Góð geymsla er á jarðhæð. Sérmerkt bíla-
stæði fylgir eigninni. Áhvílandi 17 millj.
EINBÝLISHÚS Í STYKKISHÓLMI
Lítið snoturt 115,7 fm einbýlishús sem stendur á hornlóð við Silfurgötu,
ásamt 19,2 fm sérstæðum bílskúr. Húsið er klætt að utan. Efri hæð: For-
stofa, eldhús með borðkrók, borðstofa, stofa, svefnherb. og baðherb.
Neðri hæð: Svefnherb., þvottaherb. og geymsla. Hús á góðum stað. V.
14,9 millj.
FLÚÐASEL - ENDARAÐHÚS
Fallegt endaraðhús á 2. hæðum auk stæðis í bílageymslu við Flúðasel.
Húsið er 149 fm., afar skemmtilega skipulagt, bjart og opið. Stórt og
bjart eldhús. Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Flísar og parket á
gólfum. V. 37,3 millj.
VEGHÚS - 4RA TIL 5 HERBERGJA - GÓÐ LÁN FYLGJA
Falleg 166,4 fm, 4-5 herb. íbúð á 2 hæðum. Snyrtileg sameign. Hátt er
til lofts í íbúðinni, gluggar stórir og er eignin afar björt og vistleg. Hol
með skápum, rúmgott eldhús með borðkrók, borðstofa og afar rúmgóð
stofa. Vestursvalir. 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi og sjónvarpshol.
Gólfefni eru fallegar flísar, parket og dúkur. Á jarðhæð er sér geymsla
og sameiginl. hjóla- - og vagnageymsla. HAGSTÆÐ ÁHV. LÁN FYLGJA.
V. 34,9 millj. 16 millj. kr. LSR lán með 4,15% föstum vöxtum.
ÞÓRÐARSVEIGUR - 2JA HERB. - ÁHVÍLANDI LÁN 13,6 MILLJ.
Glæsileg 2ja herb., 51,3 fm íbúð á 3. hæð í nýlegu lyftuhúsi í Grafarholti.
Flísalagt anddyri með fataskáp. Stofa og eldhús í opnu parketlögðu rými,
aðskilið með lágum, léttum vegg. Eldhús með fallegri innréttingu, vönd-
uðum tækjum og borðkrók. Vestursvalir. Svefnherb. parketlagt og með
fataskápum. Baðherb. flísalagt, með sturtuklefa, veggh. salerni. Tengt
fyrir þvottavél. V. 17,9 millj. Laus við kaupsamning
BLÁSKÓGAR - EIGN FYRIR VANDLÁTA
Glæsilegt 272,9 fm einb. á 2 hæðum ásamt einf. bílskúr. Á jarðhæð
eru 3 herb., þvherb. og geymsla. Innangengt í bílskúr. Steyptur stigi
er á milli hæða. 3 svherb. eru á efri hæðinni. Glæsilegt, nýlega uppgert
baðherb.. Eldhús með borðkrók, tvískiptri 6 hellu Blomberg eldavél,
stál háf og ofni og veglegum Amana ísskáp sem fylgir. Rúmgóð og
björt setu- og borðstofa, inn af stofu er sjónvarpsrými. Arinn. Rúm-
góðar svalir m/markisum. Fallegur, ræktaður garður. V. 105 millj.
GRAFARHOLT - VERSLUNAR/ÞJÓNUSTUHÚSNÆÐI
Mjög gott 200 fm verslunarpláss á jarðhæð með góðum bílastæðum.
Húsnæðið hentar margvíslegum rekstri og er laust til afhendingar.
Áhugaverður kostur hvað varðar stærð og staðsetningu. Skipti möguleg.
Nánari upplýsingar á skrifstofu.
STYKKISHÓLMUR - PARHÚS
157,4 fm. parhús á 2 hæðum við Höfðagötu í Stykkishólmi, ásamt 30,6
fm bílskúr. Íbúðin er afar rúmgóð. Neðri hæð: forstofa, gangur, 2 stofur,
rúmgott eldhús, lítið baðherb. og svefnherb.. Út af eldhúsi er sólpallur.
Efri hæð: 4 svefnherb. og baðherb.. Sameiginlegt þvottahús í kjallara.
Góð gólfefni. Á bílskúrnum er nýtt þak og ný hurð. Húsið er klætt, járn á
þaki er lélegt. Mjög gott útsýni. V. 15,85 millj.
VESTURHÓP - GRINDAVÍK - HAGSTÆÐ ÁHVÍLANDI LÁN
Nýtt, glæsilegt 118,5 fm parhús ásamt 42,3 fm bílskúr í nýju hverfi í
Grindavík. Húsið er tilbúið til afh. Flísalögð forstofa. Stofa er rúmgóð og
björt og þaðan er gengið út á sérlóð. Eldhús með afar fallegri kirsuberj-
ainnréttingu og glæsilegum tækjum frá Electrolux. Flísalagt þvottah.. 3
svefnh. Glæsilegt baðh., flísalagt í hólf og gólf, hornbaðkar með nuddi,
falleg innrétting. Laus við kaupsamning.
LITLIKRIKI - EINBÝLI - MOSFELLSBÆR
Í byggingu glæsilegt einbýlishús með innbyggðum tvöföldum bílskúr.
Birt flatarmál 293,5 fm. Möguleiki á litilli aukaíbúð. Húsið verður á
þremur pöllum og er hér um að ræða afar fallegt og vel skipulagt einbýl-
ishús með fallegri aðkomu og góðum suðvesturgarði á einum besta stað
í Mosfellsbæ. Húsið afhendist fokhelt skv. ÍST 51:2001 og eru frekari
lýsingar um skil og fleira á skrifstofu FMG og www.fmg.is
LA
US
LA
US
Lengst af síðustu öld voruhitakerfi, ef þau á annaðborð voru lögð í hús, ofna-kerfi. Í upphafi þekktist
vart annað en að ofnar væru níð-
þungir pottofnar, sem enginn barna-
leikur var að rogast með upp á hæð-
ir, því þá þekktist ekki að við
nýbyggingar risu himinháir kranar
til að létta mönnum störfin. Ekki
einu sinni settur upp gálgi með talí-
um og köðlum, menn áttu að svitna
og vinna fyrir kaupinu sínu. Svo hóf
Sveinbjörn í Ofnasmiðjunni að fram-
leiða léttari stálofna, hina vel þekktu
helluofna, sem meira að segja eru
enn í notkun í eldri húsum. Eftir
miðja öldina kom geislahitunin og
varð mjög vinsæl um tuttugu ára
tímabil en hvarf þá nær alfarið. Hins
vegar eru mörg hús frá þessum tíma
með geislahitun sem getur verið
ágætasta hitakerfi ef stjórntæki
geislakerfanna væru ekki látin
drabbast niður, sem því miður er
raunin. Upp úr 1960 prófuðu nokkrir
ofurhugar að leggja gólfhitalagnir,
en ýmiss konar vankantar og þekk-
ingarleysi kom í veg fyrir að gólfhit-
inn næði fótfestu.
Svo rann upp tími gólfhitans þeg-
ar nær dró síðustu aldamótum og
þar voru Þjóðverjar og Svíar í far-
arbroddi. Að sjálfsögðu náði þessi
þróun til Íslands og nú er svo komið
að ekki er ofmælt að segja að gólfhiti
sé lagður í mikinn meirihluta af ein-
býlis-, par- og raðhúsum. Gólfhitinn
sækir einnig inn í fjölbýlishús og er
þar sem annars staðar góður kostur
ef rétt er staðið að hönnun og lögn.
Eitt af þeim fyrirtækjum, sem
hafa þróað og framleitt margs konar
lagnaefni, er þýska fyrirtækið Upo-
nor. Ekki er með öllu rétt að segja
það þýskt, miklu frekar finnskt og
að hluta sænskt, þannig eru fyrir-
tækjafléttur í dag.
En nýlega komu tveir þýskir sér-
fræðingar til landsins á vegum
Tengis ehf. í Kópavogi, sem hefur
verið eitt af framsæknustu innflytj-
endum og seljendum lagnaefnis á
síðustu árum. Meðal þess sem Upo-
nor hefur þróað undanfarið eru ál-
plaströr, en þau eru meir og meir
notuð af lagnamönnum. Álplaströrið
sameinar kosti plaströrs og málm-
rörs, innst er rör úr plasti, í miðjunni
rör úr áli og utan um það annað
plaströr. Þetta rör hefur þannig
ótvíræða eiginleika að það er hægt
að nota til allra vatnslagna í einu
húsi hvort sem það er gólfhiti, ofna-
kerfi eða neysluvatnslagnir bæði
fyrir heitt og kalt vatn.
En það sem kynnt var á þessum
fundi í Grand hótel voru tvenns kon-
ar gólfhitakerfi. Í fyrsta lagi gólf-
hitakerfi sem einkum er ætlað til
endurlagna í eldri byggingar. Þar er
lögð höfuðáhersla á að gólfhitakerfið
hækki gólf sem minnst þannig að
lofthæð haldist að mestu. Ætlunin er
að hægt sé að leggja gólfhitakerfið á
steininn eins og hann kemur fyrir
þegar búið er að fjarlægja slitlög
eins og parket eða teppi. Til þess að
það sé hægt verður að nota grönn
rör og þar slær Uponor metið því
rörin eru aðeins 9,9 mm að utanmáli
eða tæplega 1 cm. Einhvern tíma
hefði þeim sem hófu röraöldina á Ís-
landi og þurftu að berjast við að
snitta og skrúfa saman stálrör að
sverleika allt að 3 tommur, þótt spá-
dómur um rör sem væru svo grönn
rugl og vitleysa.
Í öðru lagi var kynnt athyglisverð
nýjung við gólfhitalögn í nýbygg-
ingar sem einfaldar mjög lagna-
vinnu. Í stað þess að nota takka-
mottur eða einangrunardúk undir
rörin eru lagar niður
einangrunarplötur
með sérstöku yfir-
borði. Gólfhitarörin
sem eru af stærð-
unum 17 eða 14 mm,
eru þannig framleidd
að um leið og þau
koma út úr véla-
samstæðunni er
spírallaga renningur
festur á rörin, en
þessi renningur er
franskur rennilás.
Sama yfirborð er á
einangrunarplöt-
unum og þegar rörin
eru lögð út festast
þau við yfirborð
einangrunarplötunn-
ar, engra annarra
festinga er þörf, milli-
bil röra er eftir vali
hönnuðar eða lagna-
manns.
Það var sannarlega
gleðilegt hve vel þessi
kynning var sótt, en á hana komu
um 200 gestir. Lagnamenn, hvort
sem eru pípulagningamenn eða
hönnuðir, eru svo sannarlega að
vakna meir og meir til vitundar um
það að í fagi, þar sem þróunin er svo
ör, verða menn stöðugt að sækja sér
aukna þekkingu. Slíkar kynningar
erlendra framleiðenda og íslenskra
umboðsmanna þeirra eru kjörinn
vettvangur til að auka þekkingu sína
auk þeirrar fjölbreyttu endurmennt-
unar sem nú er í boði hérlendis.
Tengi kynnir
þýsk gólfhitakerfi
LAGNAFRÉTTIR
Sigurður Grétar Guðmundsson
siggigretar@mbl.is
Höfundur er pípulagningameistari.
Franskur rennilás Gólfhitarörin
lögð á einangrunarplötur og þau
festast um leið.
Þversnið Lágt byggða Uponor gólfhiatkerfið má
leggja á mismunandi undirlag, steinsteypu (A),
gamlar flísar (A1) eða trégólf (A2). Fyrst er lögð
einangrun (C1), festiplötur (2), gólfhitarör (3), yfir-
flotlag (C) og síðan mismunandi gólfefni.