Morgunblaðið - 10.12.2007, Blaðsíða 28
28 F MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Sætir sófar er húsgagnaversl-un sem Helga Pálsdóttirhefur rekið í fjórtán ár áSmiðjuveginum í Kópavogi.
Verslunin hefur ekki bara haldið sig
öll þessi ár á sama stað, grundvall-
arhugsunin hefur alla tíð verið hin
sama – að selja sígild eða klassísk
húsgögn. Þó er enginn hörgull á
vöruúrvalinu. Hér eru sófar af alls
konar gerðum og í margs konar lit-
um og efnisáferð.
Ekta amerískir sófar
„Þetta eru sófar frá Bandaríkj-
unum, eða amerískir sófar eins og
þeir eru oftast kallaðir, en sameig-
inlegt með þeim er að þeir eru hann-
aðir og smíðaðir í klassískum stíl og
með hreinar línur. Þó er auðvitað
fjölbreytni og úrvali fyrir að fara
enda eru klassísk húsgögn af ýmsu
tagi,“ segir Helga. Reyndar eru
horn- og tungusófar, og sófar með
skemli, vinsælastir þessa dagana.
margir leggja mikið upp úr að hægt
sé að flatmaga fyrir framan sjón-
varpsskjáinn og þá eru þetta réttu
sófarnir“
Hún segir ekkert lát vera á eftir-
spurninni og þakkar það góðri hönn-
un og því að sígild húsgögn lifa ekki
á neinni tískubylgju.
„Þessi húsgögn koma frá Norður-
Karólínu en þangað fer ég reglulega
á stóra húsgagnasýningu sem nefn-
ist „High Point“ og haldin er tvisvar
á ári. Það skemmtilega við þessi hús-
gögn er að þau fara aldrei úr tísku
eða kannski er hægt að orða það
þannig að þrátt fyrir nýjar stefnur
og strauma halda þau sínu gildi og
seljast ótrúlega vel. Lágt gengi doll-
arans síðustu misserin hefur nátt-
úrulega verið hagstætt fyrir mig og
það tryggir að hægt er að bjóða
vönduð húsgögn á viðráðanlegu
verði,“ segir Helga.
Fer alltaf eigin leiðir
Óhætt er að segja að verslunin
Sætir sófar hefur skorið sig úr og
valið að fara eigin leiðir í vöruúrval-
inu.
„Íslendingar eiga ekki langar
hefðir í húsgagnagerð og húsgögnin
breytast ár frá ári og tískusveifl-
urnar hafa mikil áhrif á val við-
skiptavinanna. Það er ekkert
óvenjulegt að fólk skipti um húsgögn
á þriggja–fjögurra ára fresti og fólk
virðist reiðubúið að vera stöðugt að
breyta um. Sérstaklega á þetta við
um yngri viðskiptavini og þá einkum
á síðasta áratug. Það er hins vegar
mín reynsla að fólk sem hefur keypt
klassísk húsgögn einu sinni heldur
sig lengur við þann stíl og vill heldur
kaupa vandaðar og stílhreinar vörur
en það allra nýjasta á markaðinum
hverju sinni.“
Áherslan hefur verið á sófasett frá
því verslunin hóf starfsemi sína árið
1994 en þó segir Helga að hún hafi
tekið inn bæði borð, hillur og komm-
óður að auki.
„Það eru svo margar nýjar versl-
anir að koma sem selja dýr húsgögn
eftir heimsþekkta hönnuði eða sér-
stakar módelvörur, sem er mjög
gott því vöruúrvalið eykst af þeim
sökum. Á hinn bóginn er alltaf stór
hluti kúnnanna sem velur heldur
klassísk húsgögn og heldur tryggð
við þau. Ég held að ég sé meira í því
sem fólk flest vill og það er eiginlega
hugmyndin að baki vöruúrvalinu,“
segir Helga.
Sígildir sófar eiga alltaf við
Í eðli sínu er klassíkin íhaldssöm
og heldur fast við hefðirnar. Það
þýðir þó ekki að stíllinn sé íhalds-
samur því klassíkin hefur alltaf
grundvallast á hönnun sem er tíma-
laus og stendur fyrir sínu í nálega
hvaða umhverfi sem er.
„Fjölbreytnin í hönnuninni er
mikil og þetta eru húsgögn sem
staðist hafa tímans tönn og þykja
falleg og þægileg án tillits til tísku-
strauma. Völ er á margs konar efni
og litum sem áklæði og sófarnir eru
mjög mismunandi að lögun. Þetta
eru þó allt saman sígild húsgögn og
þau eiga það sameiginlegt að það er
gott að sitja í þeim og þau eru til
prýði á hvaða heimili sem er,“ segir
Helga.
Þess má að lokum geta fyrir for-
vitnissakir að netfang verslunar-
innar er auðvitað sofarsogood-
@vortex.is.
Sígildir og þægilegir sófar
Morgunblaðið/Frikki
Þægilegir Sófar til að flatmaga í fyrir framan sjíonvarpsskjáinn.Sígild Helga Pálsdóttir er búin að selja sígild húsgögn í fjórtán ár.
Stefán B.
Bjarnas.
Kristín
Daníelsdóttir
Ólafur S.
Pálsson
Ástrós
Hjálmtýsdóttir
Björn
Daníelsson
Ásmundur
Ásmundsson
Sigurbjörg
Hjaltadóttir
Þverholti 14 | 105 Reykjavík | Sími 595 9000 | Fax 595 9001 | www.holl.is | holl@holl.is
ERLUÁS
Vönduð 4ja herbergja íbúð. 104,4fm þar
af geymsla 7,5fm. Glæsilegt útsýni úr
stofu. Samtengd stofa og eldhús. Vand-
aðar innréttingar. Eign a mjög skemmti-
legum stað sem vert er að skoða.
Verð 29,9millj.
ÞERNUNES
Falleg 3ja herb. Íbúð í tvíbýli með sérinn-
gangi á 1.hæð alls 139.9fm ásamt bíl-
skúr m. sjávarútsýni. Rúmgóð og björt
stofa. Glæsilegt baðherbergi. LAUS VIÐ
KAUPSAMNING. Verð 39,5millj.
PERLUKÓR
Lúxus 4ra herbergja íbúð alls 172 fm, þar
af geymsla 11 fm. Hún er fullbúin og var
mikið lagt í allar innréttingar og frágang.
Hún er vel staðsett og stutt er í grunn-
skóla, leikskóla og aðra þjónustu.
Verð 49,9millj.
KÁRSNESBRAUT
Mjög góð 2ja – 3ja herb íbúð í litlu fjöl-
býli alls 73,1 fm. Fallegt útsýni. Stórar
vestur svalir. Flísalagt baðherbergi.
Þvottahús í íbúð. Íbúð á góðum stað
sem leynir á sér. Verð 19,9 millj
ÞERNUNES
Mjög vönduð 7 herb. sérhæð í tvíbýlis-
húsi á 2. hæð ásamt bílskúr, alls 230,8
fm. Sjávarútsýni. Búið er að gera 2ja
herb. auka íbúð m. sérinngangi.
Verð 69,5 millj.
Mjög fallegt 5 herb. raðhús á 3 hæðum ásamt bílskúr, alls 210,3 fm á
fráb.útsýnisstað. 70 fm óskráð rými í kjallara. Ræktaður garður. Ásett verð
59,9 millj.
LAXAKVÍSL
Glæsileg og rúmgóð 5 herb. sérhæð (efsta) á vinsælum stað alls 109,4 fm.
Glæsilegt útsýni yfir Laugardalinn. Verð 31,2 millj.
RAUÐALÆKUR
Falleg 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýli alls 62,6 fm. Rúmgóð
stofa,stórar svalir með góðu útsýni. Stofa og eldhús samliggjandi. Stórt
svefnherbergi m. góðu skápaplássi. Parket og flísar á gólfum. Sameign
lítur vel út. Verð 16,9 millj.
KRUMMAHÓLA
Vandað og snyrtilegt
skrifstofuhúsnæði alls 87
fm á 2. hæð. 2 rúmgóð
herbergi. Annað mjög
stórt og með rými fyrir 4
starfsstöðvar. Móttaka,
baðherbergi og rúmgóður
gangur. Dúkur á gólfum.
Allar tölvulagnir til staðar.
Næg bílastæði. Nánari
upplýsingar gefur Björn
Daníelsson s. 849-4477
NETHYLUR
Mjög vel skipulagt 194 fm
skrifstofuhúsæði. 8 rúmgóð
herbergi, vandaðar inn-
réttingar og lýsing til fyrir-
myndar. Næg bílastæði.
Laust til afhendingar fljót-
lega.
Nánari upplýsingar gefur
Björn Daníelsson
s. 849-4477
Verð 49 millj.
NETHYLUR