Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.2008, Qupperneq 11

Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.2008, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 11 Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is Brú/Forlag hefur gefið út ljóða-bókina Að kveikja sér í vindli með þýðingum á ljóðum eftir Char- les Bukowski. Þýðandi er Hallberg Hallmundsson. Þetta er áttunda bókin sem Brú gefur út í flokkn- um Bandarísk skáld. Hallberg skrif- ar inngang að úrvalinu um ævi og störf Bu- kowskis. Charles Bukovski fæddist 1920 í Andernach í Þýskalandi en ólst upp í Los Angeles og átti þar heima mestalla ævina. Hann tók að yrkja árið 1955 og þegar hann lést nærri fjörutíu árum síðar lét hann eftir sig rúmlega fjörutíu ljóðabæk- ur sem margar hverjar voru á milli tvö og þrjú hundruð blaðsíður. Mestum hluta ævinnar eyddi Bu- kowski í drykkjuskap og flæking – utangarðs meðal róna og gleði- kvenna. Hann skrifaði um líf sitt og annarra sem eins var ástatt um í hráum, stundum grófyrtum en ein- földum ljóðum.    Samhljómur nefnist ljóðabók ell-efu skáldkvenna. Þetta er átt- unda ljóðabókin sem hópurinn gef- ur út undir ritstjórn Þórðar Helgasonar. Þær sem eiga ljóð í bókinni eru Inga Guðmundsdóttir, Ragna Guðvarðardóttir, Guðrún G. Jónsdóttir (Edda), Ólöf Stefanía Eyjólfsdóttir, Heiður Gestsdóttir, A. Helga Sigurjónsdóttir, Sig- urbjörg Björgvinsdóttir, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Aðalbjörg Jóns- dóttir, Guðfinna Lilja Gröndal og Bergþóra Jónsdóttir. Höfundar gefa út.    Útgáfa Forlagsins á klassískumkiljum heldur áfram. Í vik- unni kom út Samastaður í tilver- unni eftir Málfríði Einarsdóttur eins og sagt hef- ur verið frá í blaðinu og einnig Ástin á tímum kólerunnar eftir Gabriel García Márquez er einn- ig komin út í er- lendri klassík en það er Guð- bergur Bergsson sem þýðir. Ástin á tímum kólerunnar er ástarsaga um Florentíno Aríza sem verður á unga aldri gagntekinn af hinni ómótstæðilegu Fermínu Daza og bíður hennar í hálfa öld.    Sú þrá að þekkja og nema …nefnist bók sem inniheldur greinar um og eftir séra Jónas Jón- asson frá Hrafnagili. Árið 2006 voru liðin 150 ár frá fæðingu Jón- asar Jónassonar prests og fræð- manns sem kenndi sig við Hrafnagil í Eyja- firði og var þess þá minnst á ýms- an hátt bæði norðan og sunn- an heiða. Sýn- ingar um ævi og störf séra Jónasar voru settar upp og málþing haldin, allt undir yfirskriftinni „Sú þrá að þekkja og nema“, en þannig hefst erfiljóð Matthíasar Jochumsonar um Jónas. Ljóðlínan þótti lýsa við- fangs-efninu vel. Hér eru prentaðar fjórar ritgerðir Jónasar sjálfs um þjóðfræðileg málefni, sem birtust fyrst á árunum 1908 til 1915, erindi sem haldin voru um séra Jónas á afmælisárinu og ritaskrá hans. Greinarnar gefa góða mynd af þjóðfræðingnum, guðfræðingnum og rithöfundinum séra Jónasi Jóns- syni frá Hrafnagili sem þekktastur er fyrir brautryðjenda verk sitt ís- lenska þjóðhætti. BÆKUR Charles Bukowski Jónas Jónasson frá Hrafnagili Málfríður Einarsdóttir Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is Þiþek er frekar fyrirb¿ri en heimspek-ingur,“ segir breski bókmenntafræðing-urinn Terry Eagleton í ritdómi í TimesLiterary Supplement um nýja bók Sla- vojs Žižeks, In Defense of Lost Causes. Eagleton hefur þó augljóslega lúmskt gaman af Žižek og raunar segir hann að Žižek sé ekki bara fyndinn heldur nokkuð frambærilegur menningar- gagnrýnandi. Ritdómur Eagletons er þó með moð- kenndustu textum sem ég hef lesið eftir hann. Hann virðist ekki geta gert það upp við sig hvað Žižek er eða hvernig. Það verður að hafa í huga að Eagleton og Žižek eiga það sameiginlegt að vera hallir undir marxísk fræði og hafa megnustu fyrirlitningu á póstmód- ernískum fræðum svokölluðum. Ritdómurinn ber þessa merki. Žižek er sonur slóvensks kommúnista og um- fram allt lacanisti – raunar kallar Eagleton hann fulltrúa franska sálgreinandans Jacquez Lacan (1901-1981) hér á jörðu. Með því að kalla hann fyr- irbæri á Eagleton við að Žižek hefur ferðast um heiminn í tvo áratugi (meðal annars tvisvar til Ís- lands) líkt og „rokkstjarna gáfumannanna“ og safnað að sér hópi aðdáenda. „Hann er svívirðileg- ur, ögrandi og skemmtilegur,“ segir Eagleton. „Hann langaði, að eigin sögn, til að kynna sig með eftirfarandi hætti á einni bóka sinna: Frístundum ver Žižek í að leita að barnaklámi á Netinu og kenna ungum syni sínum að slíta lappirnar af köngulóm.“ Eagleton segir b¿kur Þiþeks vera samansafn hugmynda, eins konar klippiverk þar sem vísað sé til Kants jafnt og tölvunarfræði, Ágústínusar kirkjuföður og Agötu Christie. Fátt virðist Žižek óviðkomandi. Og iðulega tapi hann þræðinum í eig- in bókum eins og lesandinn. Umræðuefnið eigi það til að hverfa í móðu hugmyndavensla og tenginga sem stundum komi efninu lítið við. Í ofanálag séu bækur Žižeks alltaf að verða meiri að umfangi. Eagleton dregur þá ályktun að Žiþek sé eitt helsta d¿mið um póstmódernískan heimspeking í Evrópu nú um stundir. Hann sé á mörkum þess að vera gúrú og suðandi fluga, vitringur og skemmti- kraftur. Að hætti póstmódernista skrifi hann verk sem skari bæði há- og lágmenningu. Hann sé menntaður heimspekingur í Ljubljana og París en starfi sem kvikmyndagreinandi, fræðimaður á sviði sálgreiningar, trúarbragðafræðingur og stjórnmálaskýrandi. En þótt bækur Žižeks séu póstmódernískar í að- ferðafræðilegum skilningi telur Eagleton þær „eigi að síður skrifaðar á skiljanlegu máli“. Að því leyti stingi hann upp í alla þá sem haldi því fram að meginlandsheimspekingar séu upp til hópa mál- haltir. „Texti Žižeks er skýr og lesendavænn.“ Hið sama er ekki hægt að segja um ritdóm Eagletons. Stuttu seinna í grein sinni segir hann að Žižek sé hreint enginn póstmódernisti. Hann kallar það annan tveggja brandara Žižeks á kostn- að lesenda: „Í raun og veru er hann mjög andvígur þeim hugmyndastraumi eins og kemur fram í bók- inni. Þótt hann klæði sig í föt póstmódernista hef- ur hann megnustu andúð á fjölmenningu þeirra, afstæðishyggju, fræðilegri sundurgerð og menn- ingarþráhyggju.“ Eagleton segir að In Defense of Lost Causes andmæli þeirri hugmynd að hugmyndafræði sé ekki lengur til, að stórsögur séu búnar að vera, að tími allsherjarlausna sé liðinn. Hann segir að Žižek sé full alvara með skrifum sínum. Það sé nefnilega hinn brandarinn á kostnað lesenda hans að hann virðist skemmtilegur og sé það að mörgu leyti en hann sé líka mjög djúpur hugsuður með rætur í merkilegri hefð evrópskrar heimspeki. Með þeim orðum hittir Eagleton naglann á höf- uðið. Žižek á það nefnilega sameiginlegt með evr- ópskum póstmódernískum fræðimönnum eins og Michel Foucault, Jacquez Derrida, Jean Baudrill- ard, Júlíu Kristevu og fleirum að standa styrkum fótum í evrópskri heimspekihefð. Og eins og þau hefur hann umfram allt fengist við að endurskoða þá hefð. Žižek er þó öðruvísi að því leyti að hann virðist flæktari í hið póstmóderníska menningar- ástand sem hann rannsakar en áðurnefndir fræði- menn. Sennilega veldur það þokunni í ritdómi Eagletons. Hvað er Žižek? »En þótt bækur Žižeks séu póstmódernískar í aðferða- fræðilegum skilningi telur Eagle- ton þær „eigi að síður skrifaðar á skiljanlegu máli“. Að því leyti stingi hann upp í alla þá sem haldi því fram að meginlands- heimspekingar séu upp til hópa málhaltir. „Texti Žižeks er skýr og lesendavænn.“ ERINDI Eftir Ólaf Guðsteinn Kristjánsson olafurgudsteinn@googlemail.com C lemens Meyer er fæddur í bæn- um Halle (Saale) í Saxlandi- Anhalt árið 1977. Ólst hann þó upp í Leipzig þar sem hann býr enn. Það var því heimamaður sem hlaut verðlaunin í ár. Hann er sem sagt Austur-Þjóðverji og ber frumraun hans, skáldsagan, Als wir träumten (Þegar okk- ur dreymdi) þess merki. Hún fjallar um fjóra unglingsstráka í Leipzig eftir fall múrsins sem alast upp milli skólans og götunnar, ólöglegra diskóteka og „swinger“-klúbba, fangelsis og öldurhúsa í hverfi þar sem ofbeldi, áfengis- og eiturlyfjaneysla eru alvanalegir þættir tilver- unnar og glæpir tíðir. Sem sagt frekar dökk mynd af eftir-múrfalls-árunum í Austur- Þýskalandi og öllu myrkari en sú sem landi hans og verðlaunahafi umræddar bókamessu síðasta árs Ingo Schulze hefir dregið upp í verkum sínum, þótt ekki samanstandi sú mynd beint af gylltum litum. Eftir stúdentspróf benti fátt til þess að Meyer hlyti frama á rithöfundarbrautinni. Hann kemur enda úr svipuðu umhverfi og sögu- persónur hans í Als wir träumten. Meyer vann um hríð við byggingarvinnu og búslóðaflutn- inga, en sakir bakverkja varð hann að hætta í þeim geira. Árið 1998 venti hann sínu kvæði í kross og hóf nám við þýsku bókmenntastofn- unina í Leipzig (Deutsche Literaturinstitut), þar sem meðal annars Íslandsvinurinn Saša Stanišiæ og þýsk-íslenski rithöfundurinn Krist- of Magnússon lærðu. Árið 2006 leit svo frumraun hans dagsins ljós. Hana setti hann saman með aðstoð félagslegs styrks og bókmenntastyrkja. Aflaði hún honum góðs orðspors og var hann til að mynda til- nefndur til Leipziger-verðlaunanna það árið. Fyrir utan þessi tvö verk hafa birst eftir hann sögur í þó nokkrum tímaritum. Hefir hann og hlotið góðan hluta þeirra fjölmörgu bókmennta- verðlauna og styrkja sem útdeilt er í Þýska- landi á ári hverju. Sigurverkið Í kjölfar velheppnaðar bókar; bókar sem kemur manni á kortið, er óhjákvæmilegt að ástund- aður sé einhvers konar samanburður við þá sem á eftir fylgir. Oftast felst í þeim sam- anburði mat á því hvor bókin sé betri. Það er þó ekki síður áhugavert að skoða innihalds- og formlegan mun; hvort höfundarverkið taki breytingum og svo framvegis. Í tilfelli Meyers er augljóslega formlegur munur. Fyrri bókin er 528 blaðsíðna skáldsaga og sú síðari 272 síðna sagnasafn. Og líkt og gefur að skilja er stíll þeirra síðarnefndu knappari og hnitmiðaðri. Hefir stíl bókarinnar til dæmis verið líkt við stíl amerískra sagnahöfunda eins og Richards Fords og Hemingways. Innihaldslega séð er fjölbreytnin og meiri. Og þrátt fyrir að allar sögurnar nema ein segi frá karlmönnum er víða komið við í samfélagsstig- anum. Sögupersónurnar eiga það þó sammerkt að hafa upplifað betri daga og eiga í erfiðleikum með lífið, hvort sem það felur í sér að geta ekki borgað reikningana, almenn hegðunarvandræði, sjálfskipaða útilokun frá umheiminum eða fang- elsisvist. Til að mynda er greint frá vínsölumanni sem vaknar upp í lest og veit ekki hvernig hann hef- ir lent þar, hollenskum boxara sem hefir það hlutskipti að tapa bardögum til að byggja upp sjálfstraust fyrir mótspilarann, kennara sem verður yfir sig hrifinn af ellefu ára kvenkyns nemanda sínum, manni er fellur algerlega í stafi fyrir vændiskonu frá Litháen og virðist tilbúinn að fórna öllu fyrir hana, hundaeiganda sem veðjar aleigu sinni á hlaupabrautinni til að afla fjár fyrir dýrri aðgerð fyrir hund sinn, at- vinnulausum manni sem upp úr þurru fær bréf frá gömlum félaga sínum sem óvænt hefir kom- ist í álnir og skrifar honum frá Kúbu þar sem hann nýtur lífsins, gömlum manni sem jarðar dýr sín áður en hann sjálfur kveður, fyrrum viðskiptamanni, listaverkasafnara og nú lista- manni sem staddur er í svítu á fimm stjörnu hóteli og þjáist af súrrealískum ofskynjunum sem eiga rætur að rekja til þeirra málverka sem hann hefir haft með að gera … Þessar innihaldslýsingar láta kannski ekki mikið yfir sér. Engu að síður tekst flestum sög- unum að vísa út fyrir sig og segja meira en þær láta yfir sér. Þannig skiptir hið ósagða ekki síð- ur máli en hið sagða. Á þetta ekki bara við um þýskan veruleika (eða Leipzigar veruleika), eins og í Als wir träumten, heldur um sammann- legan veruleika; einmanaleikann, hamingjuleit- ina, sjálfseyðingarhvötina og að mistakast. Sög- ur bókarinnar eru enda um margt staðlausar, þótt flestar eigi sér klárlega stað í Þýskalandi. Meyer segist enda sjálfur fyrst og fremst skrifa um venjulegt fólk úr sínu nánasta umhverfi og sé sama um alla pólitík og stéttir og vill ekki að slengt sé pólitík eða félagslegum áróðri á sög- urnar, þótt vissulega mætti freistast til þess. Hefir honum í því samhengi verið líkt við landa sinn rithöfundinn Ralf Rothmann. Við þetta skal bæta að andrúmsloft sagnanna er það sem kalla mætti í rökkrinu. Allar, nema ein, gerast þær um kvöld eða nótt og skapar það, ásamt oft á tíðum óvæntum vinklum og uppákomum, mystískan og drungalegan blæ. Dómnefnd messunnar vildi enda meina að Meyer hefði tekist að binda saman á dul- úðarfullan hátt virðingu fyrir persónum sínum sem drifnar eru áfram í einsemd sinni, sjálfs- eyðingarhvöt, þrám og blekkingum og að í þessum fimmtán sögum væri að finna efnivið í jafnmargar skáldsögur. Meyer virðist alltént um margt vera von- arstjarna á hinum þýska bókmenntahimni og er úthrópaður sem öðruvísi hóll í bókmenntalands- laginu, enda er hans frásagnarvinkill um margt öðruvísi, hrárri og myrkari en gengur og gerist í þýskum samtímabókmenntum. Rökkursögur um venjulegt fólk Hinn 13. mars síðastliðinn var verðlaunum bóka- messunnar í Leipzig úthlutað í fjórða sinn. Í flokki fagurbókmennta var rithöfundurinn Cle- mens Meyer hlutskarpastur fyrir sagnasafn sitt Die Nacht, die Lichter (Nóttin og ljósin). Sló hann þar við þeim sjö hundruð og fimmtíu bók- um, sem upphaflega komu til álita, þótt einungis hafi fimm bækur lent á hinum svonefnda „short- list“; Das dunkle Schiff eftir Sherko Fatah, Heimsuchung eftir Jenny Erpenbeck, Liebes- brand eftir Feridun Zaimoglu og Teil der Lös- ung eftir Ulrich Peltzer. Meyer er tiltölulega nýr af nálinni í þýsku bókmenntalandslagi. Í þessum greinarstúf verður sagt aðeins frá höfundinum og verðlaunaverki hans. Nóttin, ljósin „Meyer virðist alltént um margt vera vonarstjarna á hinum þýska bók- menntahimni.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.