Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.2008, Qupperneq 1

Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.2008, Qupperneq 1
Ný plata Sigur Rósar Fólk á eftir að verða hissa, segir Arnar Eggert Thoroddsen um væntanlega plötu Sigur Rósar. Hann fékk að fylgj- ast með æfingu sveitarinnar og heyra ofan í Georg Holm bassaleikara um efni plötunnar og vinnslu sem er með öðrum hætti en áður. » 4 Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson lesbók ESB, ÞJÓÐ OG TUNGA MYNDI AÐILD AÐ EVRÓPUSAMBANDINU HAFA MIKIL ÁHRIF Á STÖÐU ÍSLENSKRAR TUNGU TIL HINS BETRA? » 12 Viggo Mortensen er laus við sjálfumgleði margra frægra karlleikara Hollywood » 3 VIÐURNEFNI Í VESTMANNAEYJUM Einstök bók um Sæma afturábak og áfram, Gústa bauk, Jón alýfát, Koppa-Mundu, Sigurgeir æskulýðsbruggara og tæplega 700 aðra. holar@simnet.is Háskólabíó við Hagatorg • 107 Reykjavík • Sími 525 4003 • Fax 525 5255 hu@hi.is • www.haskolautgafan.hi.is Frá Sýr- landi til Íslands Arfur Tómasar postula Tómasarguð- spjall, Tóm- asarkver og Tómas saga postula eru rit tileinkuð heilögum Tómasi postula og veita innsýn í sum elstu varðveitt ummæli Jesú frá Nasaret þar sem upprisa frá dauðum er hvergi nefnd. Lykill að guðs- ríki er þekking á ástirðum holdsins, ekki píslarvætti frelsarans og siðferðileg álita- mál á vog syndar og aflausnar. Í Tómas- arkristni gefur að líta eina af elstu túlkun- um á persónu Jesú frá Nasaret og orðum hans. Sú túlkun átti ekki upp á pallborðið hjá kirkjulegum yfirvöldum á fjórðu öld né lengi síðan. En þessi rit eiga erindi til samtímans þar sem þröngsýni fortíðar víkur fyrir nýjum viðhorfum. Jón Ma. Ásgeirsson og Þórður Ingi Guð- jónsson. 406 bls. 5.490 kr. - Kilja Ungmenni og ættar- tengsl Skilnaður for- eldra er oftast áfall fyrir börn, sem yfir 1000 þeirra upplifa árlega á Ís- landi. Því skiptir miklu að skilja aðstæður og líðan ung- menna í kjölfar skilnaðar foreldranna. Hér er greint frá rannsókn meðal skilnaðar- barna sem tjá viðhorf sín og eigin reynslu. Fjöldi barna þarf að aðlagast breytingum eins og búsetuskiptum, lakari fjárhag og minni fjölskyldustuðningi. Móðirin virðist áfram gegna lykilhlutverki í lífi þeirra. Hlutverk föðurins virðist óljós- ara og tengslin veikjast eftir skilnað og þau telja hann ekki til síns nánasta kjarna og hafa síður áhyggjur af aðstæðum hans og framtíð en móður sinnar. Sigrún Júlíusdóttir Jóhanna Rósa Arnar- dóttir og Guðlaug Magnúsdóttir. 76 bls. 1.990 kr. - Kilja Eftir skyldu míns embættis Presta- stefnudómar Þórðar biskups Þorláksson Sýnisbækur íslenskrar alþýðumenningar Þórður Þorláksson er þekktastur fyrir bók sína um Ísland árið 1666, hljóðfæraleik, garðræktartilraunir og kaup á kryddi er- lendis frá. Ekki var hann atkvæðamikill sem biskup en vandaði verk sín og naut virðingar meðal annarra ráðmanna. Hér birtast dómar sem Þórður lét ganga á prestastefnum á Þingvöllum og í héraði. Þeir sýna kirkjustjórn hans og afskipti af siðferði landsmanna, en ekki síst hagi og hegðun presta, sem margir hverjir voru skrautlegir náungar. Bókinni fylgir yfir- gripsmikil skrá yfir nöfn og atriðisorð. Gunnar Örn Hannesson og Már Jónsson tóku saman. 276 bls. 3.600 kr. - Kilja Mál mál- anna Mikil gróska hefur verið í rannsóknum innan hagnýtra málvísinda. Þar skipta rannsóknir á tungumála- kennslu, tileinkun erlendra tungumála og fjöltyngi sífellt meira máli enda varpa þær ljósi á eðli máltöku, málbeitingar og starf- semi mannsheilans. Sú þekking sem til hefur orðið með rannsóknunum setur nú svip sinn á umræðuna á þessu fræða- sviði. Hér er fjallað um nýjar rannsóknir á tileinkun og kennslu annars máls og er- lendra tungumála. Fátt hefur verið ritað á íslensku um þetta efni. Bókinni er ætlað að koma á framfæri nýrri þekkingu í því skyni að styrkja fræðasviðið og efla um- ræðu um þessi mál á íslensku. Auður Hauksdóttir og Birna Arnbjörns- dóttir ritstjórar. 326 bls. 3.900 kr. - Kilja Eftir Þröstur Helgason throstur@mbl.is Tónleikar afrísku hljómsveitarinnar SuperMama Djombo eru einn áhugaverðasti enjafnframt óvenjulegasti viðburður Listahá-tíðar að þessu sinni. Hljómsveitin kom hing- að fyrst í nóvember síðastliðnum til þess að taka upp plötu sem nú er komin út og er samnefnd hljómsveit- inni. Saga hljómsveitarinnar er samofin sögu lýðveld- isins Gíneu-Bissá í Vestur- Afríku allt frá byrjun átt- unda áratugarins. Í henni spila sjálflærðir tónlist- armenn og syngja um sjálf- stæði þjóðar sinnar og framtíðardrauma en Gínea- Bissá er meðal fátækustu landa heims. Tónlistin er blanda af kreól og hefðbundnum gí- neskum hljómum og gengur undir nafninu gumbé. Hljómsveitin er sögð hafa verið helsti meistari í túlk- un þessarar tegundar tónlistar. Lögin eru lýrísk og kröftug í senn, tregablandin og kátleg með marg- radda söng sem er studdur fjörugum áslátt- arhljóðfærum og gítar. Upprunalega hljómsveitin fór aðeins í eina upptöku árið 1980 sem síðan hefur komið út á nokkrum plöt- um. Hljómsveitin átti mikið efni óútgefið en leystist upp árið 1986. Endurkoma hennar hér á landi er því mikið fagnaðarefni. Seinni tónleikar Super Mama Djombo fara fram á Club Nasa í kvöld kl. 22. Meistarar gumbé Laugardagur 31. 5. 2008 81. árg.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.