Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.2008, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.2008, Side 3
Eftir Úlfhildi Dagsdóttur varulfur@centrum.is H ann var kallaður ‘ljóti biðillinn’ í kvikmynd Jane Champion, The Portrait of a Lady, en hún var byggð á samnefndri skáldsögu Henry James. Árið var 1996 og tíðarandamyndir voru í mikilli uppsveiflu, meðal ann- ars vegna vinsælla kvikmyndana á skáldsögum Jane Austen. Sagan er skrifuð árið 1881 og segir frá auðugri bandarískri stúlku, ástum hennar og biðlum. Hún er á ferðalagi um Evr- ópu til að finna sjálfa sig en myndin fjallar öðrum þræði um breytt við- horf til kynhlutverka í aldarlok, við- fangsefni sem var Champion hug- leikið. Árið áður hafði Viggo Mortensen leikið djöfulinn í hrollvekjunni The Prophecy (1995), og sama ár dundaði hann sér neðansjávar í kvikmynd Tony Scott, Crimson Tide. Þar lenti hann í eldlínunni milli (kalda) stríðsóða skipstjórans (Gene Hack- man) og fulltrúa varúðarinnar (Den- zel Washington). Hann efast um að- ferðir skipstjórans og hallast frekar að Denzel (gerum við það ekki öll?). Þetta hlutverk styrkti stöðu leik- arans mjög en fyrsta kvikmynda- hlutverk hans var tíu árum áður, lítið hlutverk bróður hins vonsvikna von- biðils í mynd Peter Weir, Witness (1985). Witness var á sínum tíma mest umtöluð fyrir að vera fyrsta bandaríska kvikmynd þessa frábæra ástralska leikstjóra, en margir ótt- uðust að hæfileikar Weir myndu ekki lifa Hollywood af og höfðu rétt fyrir sér. Hinsvegar má þarna sjá fyrstu ummerki þess að Mortensen höfðar til sérviskulegra leikstjóra, sem síðan hafa leikið lykilhlutverk í því að skapa honum nafn. Þar eru aug- ljóslega efstir á blaði hinir bresku Scott-bræður, kolóði Nýsjálending- urinn Peter Jackson og Kanadamað- urinn David Cronenberg. The Prophecy er eitt fjölmargra dæma um tengsl Mortensen við hið eðla form hrollvekjunnar, árið 1990 lék hann afar óeftirminnilega í þriðju Texas Chainsaw Massacre-myndinni og átta árum síðar, 1998, var hann kærasti sturtu-atriðis-dömunnar Marion Crane í illræmdri endurgerð Gus Van Sants á Pscyho Hitchcocks. Þar var hann sannarlega ekki lengur ljótur biðill, heldur ástæðan fyrir því að Marion stal peningum, flýði og faldi sig á Bates-mótelinu, bara til að vera slægð í sturtu af frægasta morð- ingja kvikmyndanna, hinum dagfar- sprúða Norman Bates. Og þrátt fyrir að Hringadróttinsmyndirnar teljist tæplega til hrollvekja þá var leik- stjórinn fyrst og fremst þekktur sem hrollvekjumaður, en áður en Jackson endurskapaði þessa nútímagoðsögn bókmenntanna í kvikmyndaformi hafði hann getið sér sérlega góðan orðstír (sem deyr aldrei) fyrir dásam- lega gróteskar hrollvekjur. Ári áður en Mortensen ýtti Marion Crane út í dauðann lék hann aftur hermann, að þessu sinni var hann al- gert ódó í kvikmynd Ridley Scott, G.I. Jane (1997) sem er ein af fjöl- mörgum myndum sem gerði út á lík- ama aðalleikkonunnar Demi Moore. Myndin er áhugaverð fyrir þá mis- skildu femínisku sýn sem hún býður uppá, en þar er fjallað um tilraun til að gera herinn kvenvænni með því að sýna að herkona geti allt sem sér- þjálfaðir hermenn geta. Og herþjálf- aranum Viggo líst ekki á blikuna og leggur sitt af mörkum til að gera Moore lífið leitt – en gleðja hinsvegar þeim mun meira þá kvenkynsáhorf- endur sem höfðu lítinn áhuga á sílí- konbrjóstum aðalleikkonunnar. Eftir þessa uppsveiflu kom klast- ur. A Perfect Murder (1998) var einn- ig endurgerð á kvikmynd Hitchcock (Dial “M For Murder 1954), en því miður afar misheppnuð. Enda leik- araúrvalið slappt, Michael Douglas og Gwyneth Paltrow sem leika (ó) hamingjusöm hjón. Hún er rík og hann vill losna við hana og Viggo var listræni elskhuginn í vöruskemmunni sem leikur tveimur skjöldum. Hann lék reyndar einmitt tveimur skjöld- um í myndinni, birtist sjálfur sem listmálari, myndir elskhugans eru hans og lofuðu hreint ekki góðu. Ekki hætta í dagvinnunni þinni hugsaði ég á sínum tíma, en sem betur fer hefur Mortensen síðan ekki aðeins þróast sem leikari heldur líka sem myndlist- armaður. En svo kom Hringadróttinssaga og eftir það var ekki aftur snúið. Það þarf tæplega að hafa mörg orð um þessa kvikmyndatrílógíu Peter Jack- sons, en fyrir utan þau áhrif sem myndirnar höfðu á feril leikaranna þá sköpuðu þær ný viðmið í gerð æv- intýra- og fantasíukvikmynda og juku mjög á virðingu fyrir slíkum. Eins og frægt er orðið var Morten- sen fenginn til liðs fyrir föruneytið á síðustu stundu, aðallega fyrir það að vera gamall (hvernig tilfinning ætli það sé?), en leikstjórinn áleit þann leikara sem hann hafði fyrst valið, Ír- ann Stuart Townsend, vera of ungan. Viggo var þarna 42 ára, en hann er fæddur árið 1958 og verður því fimm- tugur í ár, hinn 20. október (hann er vog, enda vogir alræmdar fyrir fág- un, fegurð og smekkvísi). Fyrsta myndin var frumsýnd árið 2001 og þrátt fyrir að ýmsir hafi verið kallaðir þá var það Viggo Mortensen sem var hinn útvaldi, aðalhetjan Aragorn, hinn eini sanni hilmir, enda af- skaplega konunglegur með kámugan maskara, síðar krullur og sveiflandi sverði. Þarna fóru af stað goðsagnir um ‘aðferðir’ hans, en þær fólust í ákafri innlifun í hlutverkin, meðal annars með því að ‘vera í þeim’ utan tökustaðar. Sjálfsagt hefur þetta heilkenni verið hluti af listamanns- dæminu í A Perfect Murder, en eins og áður hefur komið fram óx drengn- um ásmegin og þessi aðferð hans hélt áfram að nýtast honum í þeim kvik- myndum sem eiga ekki síður eftir að halda nafni hans á lofti meðal kvik- myndanörda, en það eru myndirnar tvær sem hann hefur (hingað til) gert með Cronenberg. Áður en að þeim kafla er komið verður þó að týna til hina afskaplega misheppnuðu ævintýramynd Hi- dalgo (2004), sem er óskiljanlegt val eftir velgengni Hringadróttinssögu og alveg út takti við þá breidd sem leikarinn hafði sýnt að hann byggi yf- ir. Þar leikur Mortensen drykk- felldan kúreka sem er trámatíser- aður eftir að hafa horft upp á útrýmingu indíána, vina sinna, og ákveður að taka þátt í frægu eyði- merkurkapphlaupi. Sem betur fer vænkaðist hagur strympu fljótlega og árið eftir, 2005, sendi leikstjórinn David Cronenberg frá sér kvikmyndina A History of Violence, með Viggo Mortensen í að- alhlutverki. Myndin er byggð á sam- nefndri myndasögu og segir frá fjöl- skylduföðurnum Tom Stall sem virðist eiga sér fullkomið friðsælt líf í amerískum smábæ. Stall rekur skyndibitastað og eitt kvöldið koma þar inn glæpamenn sem ætla sér ekki aðeins að ræna staðinn heldur myrða alla. Stall bregst snarlega við og slátrar báðum og við það breytist hann í ameríska hetju sem fjölmiðl- arnir elska. Nema bjart ljós fjöl- miðlanna vekur einnig athygli maf- íósa sem álíta Stall einn af sínum mönnum, sérlegan drápara sem hvarf fyrir áratugum. Það þarf ekki að koma þeim sem þekkja Cronen- berg á óvart að auðvitað er Stall þessi týndi bófi og við taka átök við bófana, fjölskylduna, sem skelfist skiljanlega, og svo fyrri fjölskyldumeðlimi, eldri bróður sem á harma að hefna. Við hittum Stall fyrst fyrir þar sem hann huggar dóttur sína, en hún hafði vaknað við martröð um skrímsli. Hér eru engin skrímsli seg- ir góði pabbinn og faðmar barnið, en svo kemur auðvitað í ljós að það er hann sjálfur sem er skrímsli, óður drápari. Þannig fjallar myndin, eins og aðrar myndir Cronenberg, um of- beldi og óvætti og mörk milli heima; það sem býr undir hinu dagfarsprúða yfirborði. Þó er A History of Violence um margt ólík fyrri myndum Cronen- berg, hún virkar mun hefðbundnari og höfðar meira til meginstraumsins. Þannig er hún kannski meiri Viggo Mortensen mynd, en þrátt fyrir allt hefur hann haldið sig réttum megin meginstraumsins, þó að vissulega hafi hann daðrað við hið (hæfilega) óvenjulega. Það er eitthvað sem þrælsmellur saman í samstarfi þess- ara tveggja manna, Cronenberg með sína bjöguðu sýn á veruleikann og Mortensen sem hin óvenju blæ- brigðaríka ‘ameríska hetja’. Enda hélt samstarfið áfram í kvikmyndinni Eastern Promises (2007), en þar lék Mortensen aftur mafíósa í dul- argervi. Myndin gerist í London og fjallar öðrum þræði um mansal, en kona flækist í mál erlendrar stúlku sem deyr af barnsförum. Barnið lifir og móðirin skilur eftir sig dagbók á rússnesku og í ljós kemur að neyða átti hana í vændi. Aftur tekst Cro- nenberg á við tvo ólíka heima, yf- irborðið þar sem allt gengur sinn vanagang og svo það öfugsnúna sem býr undir niðri, nema nú, líkt og í A History of Violence, er hið falda ekki lengur fantasíukennt heldur blákald- ur veruleiki. Mortensen leikur bíl- stjóra sonar aðalmafíósans, en sá er samkynhneigður og hrífst af Viggo (eðlilega). Viggo er hinsvegar metn- aðargjarn og ætlar sér að komast langt. Líkami hans ber ummerki skrautlegs ferils en hann er allur tattóveraður með táknum sem segja til um ævi og fyrri störf í fangelsum og glæpum. Þessi líkamlega áhersla ætti ekki að koma aðdáendum Cronenbergs á óvart en nú ber svo við að þessi húð- flúrasýning (sem hefur gert garðinn frægan, ekki síst þar sem í henni felst að nakinn líkami leikarans er ítrekað í forgrunni) er hugmynd Mortensen, sem lagðist í mikla undirbúnings- vinnu fyrir myndina. Hinsvegar er óhætt að segja að fáir leikstjórar hefðu unnið jafnvel úr þessum efni- viði og Cronenberg sem hefur lagt mikla áherslu á hið líkamlega, hryll- ing og grótesku, í myndum sínum. Á sínum tíma ögraði Cronenberg gagn- kynhneigðum aðdáendum has- armynda þegar hann kvikmyndaði sæberpönkaða skáldsögu vís- indasagnahöfundarins J.G. Ballard, Crash (1996), en þar undirstrikaði hann mjög hómóerótíska undirtóna sögunnar. Á sama hátt spilar Cro- nenberg hér á áhrifaríkan hátt með hómóerótík, sem leikararnir, Mor- tensen og frakkinn Vincent Cassel, fanga af tærri snilld. Snilld er þó ekki endilega það orð sem fangar leikaraferil Mortensen, til þess er hann of mistækur. Annað sem veikir hann sem leikara er að það vantar nokkuð upp á húmor í þeim hlutverkum sem hann hefur tekið að sér, eins og ljóst má vera af ofangreindu. Undantekningu er þó kannski að finna í rómantísku gam- anmyndinni um drykkjusýki, 28 days (2000), en hana gat ég ómögulega haldið út og get því ekki dæmt um hæfileika leikarans sem gamanleik- ara, að öðru leyti en því að í alvarlegri hlutverkum vottar óþarflega lítið fyr- ir því að hann sýni smáhúmor fyrir sjálfum sér – en segja má að þessi grafaralvara sé hluti af prófíl amer- ísku hetjunnar. Á hinn bóginn er Mortensen alveg laus við þá sjálf- umgleði sem einkennir svo marga fræga karlleikara Hollywood í dag og annað sem er óvenjulegt er að hann kann að skapa hlýju í kringum per- sónur sínar sem er ekki endilega al- gengt meðal amerískra hetjuleikara. Þó á hann það til að ganga of langt og hverfast yfir í væmni (sbr. söng- atriðið í Hilmir snýr heim). Þessi galli eru þó léttvægur miðað við það sem hann gerir vel og það er svo margt annað en að koma nakinn fram. Litli ljóti andarunginn sem varð að tattóveruðum mafíósa Harðskeyttur Í Eastern Promises leikur Viggo harðskeyttan bílstjóra. Viggo Mortensen er þekktur Hollywood-leikari, en færri vita að hann er ljósmyndari og opnar sýningu á verkum sínum í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í dag kl. 14. Í tilefni af því ætlum við að rifja upp leikferil Mortensens sem er lengri og fjölbreyttari en margur heldur. En spurningin er þessi: Er Viggo Mortensen góður leikari? » Á hinn bóginn er Mortensen alveg laus við þá sjálfumgleði sem einkennir svo marga fræga karlleikara Hollywood í dag og annað sem er óvenjulegt er að hann kann að skapa hlýju í kring- um persónur sínar sem er ekki endilega algengt meðal amerískra hetjuleikara. Höfundur er bókmenntafræðingur. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 3 VIÐURNEFNI Í VESTMANNAEYJUM Einstök bók um Sæma afturábak og áfram, Gústa bauk, Jón alýfát, Koppa-Mundu, Sigurgeir æskulýðsbruggara og tæplega 700 aðra. holar@simnet.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.