Morgunblaðið - 07.01.2008, Síða 2

Morgunblaðið - 07.01.2008, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is SÍÐASTLIÐIN 10 ár hefur verið haldið svonefnt hattaball á þrettándanum í Hestakránni á Skeiðum. Það eru hjónin Ástrún Dav- íðsson og Aðalsteinn Guðmunds- son sem eiga og reka Hesta- krána sem er í senn veitingahús og gistiheimili. Mikill fjöldi fólks sækir þessar samkomur og skemmtir sér vel í dansi og gleði undir dúndrandi tónlist. Dómnefnd velur skrautleg- asta hattinn hjá körlum og kon- um og eru verðlaunin hestaferð- ir sem eru kallaðar Víkingaferðir og Prinsessu- ferðir en þau Ástrún og Að- alsteinn reka hestaleigu og skipuleggja hestaferðir á sumr- in. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsso Dans og gleði á hattaballi í Hestakránni Dómnefnd á Skeiðum valdi skrautlegustu hattana Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is Á VEGUM fjármálaráðuneytisins er í gangi endurskoðun á skatt- lagningu ökutækja og eldsneytis og hefur endurskoðunin það að markmiði að hvetja til notkunar vistvænna ökutækja og minnka út- blástur gróðurhúsalofttegunda. Starfshópur vinnur að þessari end- urskoðun og er gert ráð fyrir að hann skili af sér tillögum sínum fyrri hluta næsta mánaðar. Hann á meðal annars að skoða fjárhæð ol- íugjalds í samanburði við vörugjald af bensíni, en dísilolíulítrinn er nú 2-3 kr. dýrari en bensínlítrinn vegna þróunar heimsmarkaðs- verðs. Bílar sem brenna dísilolíu eyða minna eldsneyti en bensínbíl- ar og brennsla þess eldsneytis mengar minna. Böðvar Jónsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, sagði að starfs- hópurinn hefði verið skipaður síð- astliðið haust í samræmi við ákvæði í stjórnarsáttmálanum um að auka vægi umhverfisvænna orkugjafa. Um væri að ræða starfshóp innan ráðuneytisins og hefði hann meðal annars rætt við og fengið á sinn fund hagsmuna- aðila á þessu sviði og myndi gera það enn frekar á næstunni. Alþingi samþykkti skömmu áður en það fór í jólafrí að festa ótíma- bundið lækkun olíugjalds um fjór- ar krónur á lítra, úr 45 kr. í 41 kr. en sú lækkun var ákveðin tíma- bundið árið 2005 vegna óhagstæðr- ar þróunar á heimsmarkaðsverði á dísilolíu í samanburði við heims- markaðsverð á bensíni. Sú verðþróun hefur haldið áfram og er dísilolíulítrinn nú 2-3 kr. dýrari en lítrinn af bensíni. Heildarendurskoðun Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu þar sem lækkun olíu- gjaldsins er fest í sessi ótímabund- ið að „með heildarendurskoðun löggjafar á þessu sviði gefst tæki- færi til þess að móta stefnu til frambúðar í þessum málaflokki. Hlutverk starfshópsins er að gera tillögur um samræmda skattlagn- ingu ökutækja og eldsneytis sem hafi það að markmiði að hvetja til notkunar vistvænna ökutækja, orkusparnaðar, minnkunar á losun gróðurhúsalofttegunda frá sam- göngum, aukinnar notkunar inn- lendra orkugjafa og að fjármagna uppbyggingu og viðhald vegakerf- isins, auk þess að þjóna áfram sem almenn tekjuöflun fyrir ríkissjóð.“ Nefnd á vegum fjármálaráðuneytis skilar af sér tillögum í byrjun febrúar Skoða fjárhæð olíugjalds gagnvart bensíngjaldi „VEIÐARNAR hafa að minnsta kosti byrjað betur en í fyrra,“ segir Daði Þorsteinsson, skip- stjóri á Aðalsteini Jóns- syni SU 11, frystiskipi Eskju á Eskifirði. Skipið er eitt fjögurra loðnu- skipa sem eru við loðnu- leit norður af Langanesi. Daði segir að loðnu sé að sjá á talsvert stóru svæði. Skipin hafa kastað á torfur og veitt ágætlega og eru byrjuð að frysta. „Við höf- um þó enn ekki fengið þá stóru loðnu sem við sækjumst eftir,“ segir Daði. Þeir sigldu austar en skipin hafa séð mest af loðnunni, kipptu tæpar þrjátíu mílur. Daði segir að þar sé einnig loðna en svæðið líti talsvert öðruvísi út. Þar lóðaði á stórar, stakar torf- ur og gerir sér vonir um að þar sé loðnan stærri. Voru þeir nýlega búnir að kasta á eina þeirra um kvöldmatarleytið í gær, þegar rætt var við Daða. „Við gleyptum eina torfu en erum ekki búnir að sjá hvað þetta er stórt síli,“ sagði hann. Skipverjar á Aðalsteini voru í gær búnir að frysta um 200 tonn í túrnum, þótt loðnan væri smærri en þeir voru að sækjast eftir. Daði segir að loðnan sé á hraðri leið suður. Rannsóknarskip á miðin Reiknað er með að fleiri loðnubátar fari á miðin næstu daga. Vegna góðrar síldveiði undanfarna daga hefur það dregist og svo er talið að útgerðirnar hinkri við, þangað til aukið verði við kvótann, því þær vilji eiga kvóta á hrognatímanum. Áætlað var að rannsóknarskip Hafrann- sóknastofnunar færu til loðnurannsókna strax í upphafi árs. Daði hafði fregnir af því að annað skipið færi af stað í dag. „Við gleyptum eina torfu“ Veiði Loðnan er farin að veiðast. LÖGREGLAN á Hellu veitti um miðnætti í fyrrakvöld eftirför bíl sem hafði ekki sinnt merkjum lögreglumanna. Ökumaðurinn var 16 ára og því réttindalaus og í bílnum með honum voru einnig fjórir 15 ára ung- lingar. Bíllinn var gamall og hafði verið af- skráður. Að sögn varðstjóra var bílnum ekið á 100 km hraða í gegnum Helluþorpið og út á Gunnarsholtsveg en mikil hálka var á veginum. Við leit í bílnum fannst bakpoki fullur af heimagerðum sprengjum en að sögn lögreglunnar hafði ungling- urinn sem ók bílnum fullt leyfi foreldra sinna og gerði það með vitund þeirra. Ók um með sprengjur Eftir Hjálmar Jónsson. hjalmar@mbl.is STARFSHÓPUR á vegum Alþýðusambands Íslands og embættismanna á vegum rík- isstjórnarinnar mun í dag og á morgun fara yfir útfærslur á mögulegum aðgerðum stjórnvalda til að liðka fyrir gerð nýrra kjarasamninga. Gylfi Arnbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Alþýðusam- bands Íslands, segir að drög að niðurstöðu í þeim efnum sé forsenda þess að hægt sé að setjast yfir launalið nýrra kjarasamn- inga til tveggja ára með atvinnurekendum. Ef það takist ekki að fá niðurstöðu hvað þetta snerti í þessari viku sé það hans mat að kjaradeilunni verði vísað til ríkissáttasemjara. Þá muni hvert og eitt landssamband fara fram fyrir sig og óviss- an aukast til mikilla muna þar sem þá verði ekki um samræmda og sameiginlega lausn að ræða. „Ef það gerist ekkert í þessari viku óttumst við að málið fari af þessu sameiginlega borði. Það er þá ekki nægilegur vilji að okkar mati til að koma að því. Við getum ekki dregið þetta mikið lengur. Okkar fólk fékk ekki launahækkun um áramótin, samningar eru lausir, og það er á okkur mjög mikill þrýstingur eðlilega að semja,“ sagði Gylfi. Hann sagði að það væri sitt mat að það væri ekki mikill ágreiningur milli Alþýðusambandsins og stjórnvalda um umfang aðgerða stjórnvalda vegna gerðar kjarasamninganna heldur fyrst og fremst form og það einkum gagnvart tillögu ASÍ um sérstakan persónuafslátt. Samkvæmt hans upplýsingum væri ekki mikill ágreiningur um aðrar kröfur ASÍ, eins og hvað varðaði framlög til fullorðinsfræðslu, vaxtabótakerfið og atvinnu- leysisbótakerfið. Þær tillögur féllu vel að áform- um ríkisstjórnarinnar í þeim efnum. Ágreining- urinn væri fyrst og fremst varðandi tillögu Alþýðusambandsins um sérstakan persónuaf- slátt til hinna lægst launuðu vegna jaðarskatta- áhrifa þeirrar aðgerðar. Það væri alveg rétt að það væri sá galli á þessari aðferð að jaðarskatta- áhrifin væru mikil, en ASÍ hefði ekki fundið nein- ar aðrar aðgerðir sem kæmu að sama gagni fyrir hina lægst launuðu og þessi aðferð. Ef einhver önnur aðferð væri til sem kæmi að sama gagni væri Alþýðusambandið opið fyrir því að ræða hana. Það væri hins vegar ekki tilbúið að sam- þykkja almenna hækkun persónuafsláttar. „Við slíka aðgerð fara að minnsta kosti tveir þriðju hlutar til allra annarra. Það að þvinga fram að aðgerðin verði almenn, að allir eigi að fá eitt- hvað, gerir það að verkum að allir fá mjög lítið. Það gagnast ekki nægilega vel lágtekjufólkinu.“ Þak á jaðarskatt Hann sagði að þeir viðurkenndu að sérstakur persónuafsláttur hefði þann ókost að jaðarskatt- arnir yrðu háir en það breytti því ekki að hann kæmi lágtekjufólkinu til góða. Gylfi bætti því við að eitt af því sem verið væri að skoða væri hvort hægt væri að fara þessa leið sérstaks persónuafsláttar en setja þak á jaðar- skattinn með einhverjum hætti. Það væru for- dæmi fyrir því frá Danmörku. Fundað um útfærslur á aðgerðum stjórnvalda Líkur á að deilunni verði vísað til ríkissáttasemjara finnist ekki lausn í vikunni Gylfi Arnbjörnsson MIKILVÆGT er að vita hvaða stefnu sveit- arfélögin og ríkið taka í launamálum sinna starfsmanna, í kjölfar samninga á almennum vinnumarkaði, að sögn Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hann telur ekki tíma- bært að ríkisstjórnin komi með innlegg sitt til lausnar kjara- viðræðna, ekki fyrr en meiri skriður komist á viðræðurnar. Vilhjálmur telur að viðræður við full- trúa launþega séu í eðlilegum farvegi miðað við umfang málsins. Reiknað er með að fulltrúar vinnuveitenda hitti full- trúa Starfsgreinasambands Íslands næst- komandi fimmtudag. Segir Vilhjálmur mikilvægt að það fáist á hreint hvort menn séu tilbúnir að ræða saman á þeim grunni sem Samtök atvinnulífsins lögðu upp með, það er að nýta svigrúm til launahækkana til að hækka laun lág- tekjufólks. Vilhjálmur Egilsson Vilja stefnuna í launamálum hins opinbera

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.