Morgunblaðið - 07.01.2008, Qupperneq 4
4 MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skíðaveisla í
Austurríki
15. janúar - 11 nætur
frá kr. 19.990
Frábært skíðafæri í Austurríki!
Heimsferðir bjóða nú frábært sértilboð á flugsætum og gistingu í 11 nátta
ferð 15. janúar. Tryggðu þér flugsæti og gistingu og taktu þátt í skíða-
veislunni.Takmarkaður fjöldi flugsæta og gistingar!
Verð kr. 19.990
Flugsæti með sköttum. Fargjald A, 15. janúar.
Verð kr. 69.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Skihotel Speiereck í Lungau með hálfu fæði í 11
nætur. Sértilboð 15. janúar.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
ÍBÚÐ á fyrstu hæð í fjölbýlishúsi við
Neshaga í Reykjavík er mikið
skemmd vegna bruna, reyks og sóts
auk þess sem reykur barst í sameign
og aðrar íbúðir í stigaganginum.
Íbúðin var mannlaus þegar slökkvi-
liðið kom á staðinn laust eftir mið-
nætti á laugardag og eldsupptök eru
óljós en lögreglan útilokar ekkert í
því efni. Gera má því skóna að íbúar
annarra íbúða hafi verið í töluverðri
hættu en lögreglan kom öllum út
meðan á slökkvistarfi stóð og varð
engum meint af. Að sögn lögreglu
fór allt á besta veg miðað við tjónið á
íbúðinni.
Skömmu fyrir klukkan eitt aðfara-
nótt sunnudags barst lögreglu og
slökkviliði tilkynning um eld í fjöl-
býlishúsi við Neshaga 7 í vesturbæ
Reykjavíkur. Bæði slökkvilið og lög-
regla voru fljót á vettvang og fór
fyrsti reykkafari inn í íbúðina sjö
mínútum eftir að tilkynning barst
um eldinn. Eldur reyndist vera í hús-
gögnum í stofu og mikill reykur og
hiti um alla íbúð. Allar rúður voru
svartar af sóti og reyk sem bendir til
þess að eldurinn hafi kraumað í
nokkra stund áður en tilkynnt var
um hann. Að sögn lögreglu er hús-
ráðandi erlendis en einstaklingur
honum tengdur hefur haldið til í
íbúðinni og var þar fyrr um kvöldið.
Slökkvistarf gekk vel sem og
reykræsting og fengu íbúar annarra
íbúða að halda til síns heima að
henni lokinni en íbúðirnar voru
rýmdar meðan á slökkvistarfinu
stóð.
Einstæð móðir með ung börn
treysti sér ekki til að fara aftur í
íbúð sína og komu sjálfboðaliðar
Rauða krossins fjölskyldunni fyrir á
hóteli og veittu henni sálrænan
stuðning. Hún fór aftur heim til sín í
gær og nýtur áfram aðstoðar.
Eldsupptök ókunn en ekk-
ert er útilokað í því efni
Morgunblaðið/Júlíus
Viðbúnaður Slökkviliðið brást skjótt við og var ekki lengi að slökkva eldana og reykræsta íbúðina.
Miklar skemmdir
á íbúð við Nes-
haga vegna bruna
VIÐSKIPTAVINUR Sparisjóðsins á
Akranesi tók út í hraðbanka eða milli-
færði samtals um 6,5 milljónir króna
án þess að innstæða væri fyrir fénu.
Þorkell Logi Steinsson útibússtjóri
segir að langflestar úttektirnar hafi
verið milli jóla og nýárs en maðurinn
hafi notfært sér glufu í kerfinu sem
sé nú til skoðunar.
Fjársvikin komust upp strax eftir
áramót og kærði bankinn atvikið til
lögreglunnar á Akranesi. Rannsókn-
in gekk hratt fyrir sig og voru sjö
ungmenni, á aldrinum 17 ára til lið-
lega tvítugs, handtekin og yfirheyrð
vegna málsins.
Tapað fé
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu var ljóst að málið var talsvert
að umfangi og var því leitað til efna-
hagsbrotadeildar Ríkislögreglu-
stjóra eftir aðstoð og síðan óskað eftir
því að Ríkislögreglustjóri tæki við
rannsókn málsins.
Strax á fimmtudagskvöld var eig-
andi reikningsins, sem notaður var,
handtekinn og allan föstudag stóðu
yfir handtökur og yfirheyrslur. Játn-
ingar liggja fyrir og leiddi rannsókn-
in í ljós að verulegur hluti pening-
anna var notaður til fíkniefnavið-
skipta.
Þorkell Logi segir að reikningur-
inn hafi verið stofnaður í nóvember
en úttektirnar staðið yfir í um mánuð.
Verið sé að kanna hvernig þetta hafi
getað gerst en ljóst sé að ákveðin
glufa hafi verið varðandi þennan til-
tekna reikning, glufa sem starfsmenn
Sparisjóðsins hafi ekki vitað um.
Ríkisútvarpið sagði frá því að unnt
hefði verið að frysta innstæður upp á
samtals tæpar 800.000 kr. og auk
þess hafi fundist um 60.000 kr. við
húsleit. Málið er enn í rannsókn.
Tók út 6,5 milljónir án
innstæðu á reikningi
Sjö ungmenni játa fjársvik og verið er að rannsaka glufuna
Í HNOTSKURN
»Eigandi bankareiknings áAkranesi tók út eða milli-
færði samtals um 6,5 milljónir
króna á skömmum tíma án þess
að innstæða væri fyrir fénu á
reikningnum.
»Sjö ungmenni, á aldrinum 17ára til rúmlega tvítugs, voru
handtekin vegna málsins og hafa
játað aðild að því.
INGIBJÖRG Sól-
rún Gísladóttir
utanríkis-
ráðherra heldur í
dag í opinbera
heimsókn til
Egyptalands sem
standa mun dag-
ana 8. og 9. jan-
úar.
Heimsóknin
var ákveðin á
fundi hennar með Ahmed Abdoul
Gheit, utanríkisráðherra Egypta-
lands, á allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna í New York í haust, skv.
upplýsingum utanríkisráðuneyt-
isins. Í ferðinni mun hún eiga fundi
með 3 ráðherrum í egypsku ríkis-
stjórninni, Mohamed Rashid, við-
skipta- og iðnaðarráðherra, og
Mahmoud Mohieddin fjárfesting-
arráðherra auk Abdouls Gheit utan-
ríkisráðherra. Þá mun hún eiga sér-
stakar viðræður við Amra Moussa,
aðalritara Arababandalagsins.
Heimsækir
Egyptaland
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir.
SLÖKKVILIÐ á höfuðborgarsvæð-
inu hafði óvenju mikið að gera um
helgina og sinnti meðal annars 12
útköllum á dælubíl frá laugardags-
kvöldi til sunnudagsmorguns auk
þess að sjá um 43 sjúkraflutninga.
Skömmu eftir að slökkvistarfi
lauk í fjölbýlishúsi við Neshaga, eða
um klukkan 01.30 aðfaranótt
sunnudags, var tilkynnt um eld í
svonefndu Iðunnarhúsi, á mótum
Skerjabrautar og Nesvegar á Sel-
tjarnarnesi. Húsið var mannlaust
og er það tilbúið til niðurrifs en tal-
ið er að kveikt hafi verið í timbri
inni í húsinu. Eldur hafði auk þess
læst sig í einangrun og þakkant.
Slökkviliðið var um 40 mínútur að
slökkva eldinn.
Annir hjá
slökkviliðinu
ÍRAFOSS, skip Eimskips, tapaði
stýrisbúnaði við mynni Norðfjarðar í
fyrrinótt. Björgunarbátur og varð-
skip fylgdu skipinu til hafnar í Nes-
kaupstað. Sjö menn eru í áhöfn og
voru þeir ekki í hættu.
Írafoss var að sækja fiskimjöl á
Austfjarðahafnir. Skipið var komið
með tæp 800 tonn og var búið að
sigla um klukkutíma frá Neskaup-
stað, á leið til Hornafjarðar, þegar
áhöfnin varð vör við að eitthvað var
að stýrinu. Skipið lagðist við ankeri
innar í firðinum og naut við það að-
stoðar björgunarskipsins Hafbjarg-
ar. Eftir að í ljós kom að stýrið hafði
losnað af og tapast var ákveðið að
sigla til hafnar og varðskipið Ægir
sem var nærstatt fylgdi.
Að sögn Níelsar Eyjólfssonar hjá
skiparekstrardeild Eimskips þarf að
draga skipið í slipp og fá í það nýtt
stýri. Það getur tekið langan tíma.
Ekki var í gær ákveðið hvert farið
yrði með Írafoss eða hvenær. Níels
taldi hugsanlegt að mjölið yrði
geymt um borð í skipinu á meðan
gert yrði við það.
Varðskip fylgdi Írafossi með 800 tonn af mjöli til hafnar í Neskaupstað
Stýrisbúnaður
tapaðist á siglingu
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Aftur við bryggju Írafoss lagst að Bæjarbryggjunni á Norðfirði eftir að
það missti stýrið á leið út fjörðinni en Ægir er úti á firðinum.
VIÐ áramótabrennu Sandgerðinga í
fyrrakvöld, var ekið á 12 ára stúlku.
Að sögn lögreglunnar á Suð-
urnesjum voru meiðsl hennar ekki
talin alvarleg en hún hafði gengið
yfir Sandgerðisveginn og í veg fyrir
bíl sem átti leið hjá.
Lögregla hafði í nógu að snúast.
Tveir menn voru handteknir um
helgina eftir að bifreið þeirra lenti á
grindverki við bensínstöð í Reykja-
nesbæ. Þeir voru báðir ölvaðir. Bif-
reið hafnaði á ljósastaur á Reykja-
nesbraut og önnur valt út fyrir veg.
Ekið á stúlku
við brennu