Morgunblaðið - 07.01.2008, Síða 6

Morgunblaðið - 07.01.2008, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is VERULEGA hefur verið vikið frá þeim teikningum sem upphaflega voru samþykktar vegna breytinga og viðbyggingar við Bergstaðastræti 12. Samkvæmt þeim teikningum sem fyrst voru samþykktar átti að múr- húða húsið en nú stendur til að klæða húsið með sléttum málmplötum. Á fyrri teikningu var gert ráð fyrir gluggum með krosspóstum, líkt og sjá má í flestum húsum frá þessum tíma, en þess í stað voru settir tví- skiptir álgluggar. Breytingarnar voru gerðar meðan á framkvæmda- tíma stóð og það var ekki fyrr en byrjað var að setja gluggana í og koma fyrir festingum fyrir málm- klæðninguna, sem byggingafyrir- tækið fékk leyfi frá borginni til að breyta frá áður samþykktri teikn- ingu. Fyrst var breytt, síðan sam- þykkt. Þórður Magnússon, stjórnarmað- ur í Torfusamtökunum, gagnrýnir byggingafulltrúa Reykjavíkur harð- lega og telur að borginni hefði verið í lófa lagið að gera kröfu um að bygg- ingafélagið héldi sig við upphaflega teikningu. Bergstaðastræti 12 var byggt árið 1928. Verið er að gera upp og breyta húsinu en jafnframt er byggt tölu- vert við það, m.a. var það hækkað um eina hæð og byggt á það nýtt ris sem Þórður segir raunar að sé nánast eins og aukahæð þar sem kvistirnir séu fram úr hófi stórir og á mörkum þess að teljast löglegir. Horfa líka til meðalhófs Inntur eftir skýringum á því hvers vegna leyfi var veitt til þess að breyta á þennan háttt frá teikning- unum á byggingartíma sagði Magn- ús Sædal Svavarsson, bygginga- fulltrúi í Reykjavík, að í ljós hefði komið að útveggir gamla hússins hefðu verið gallaðir og byggingafyr- irtækið ekki treyst sér til að klæða húsið með öðrum hætti en að setja á það málmplötur. Eftir ítarlega skoð- un og viðræður hefði verið fallist á það. Væntanlega hefði verið mögu- legt að múrhúða húsið en það hefði getað orðið mjög kostnaðarsamt og erfitt væri að meta hver ætti að bera ábyrgðina á því að múrhúðin yrði í lagi. „Það er til svolítið sem heitir meðalhófsregla í stjórnsýslulögum og menn verða aðeins að horfa til hennar líka,“ sagði Magnús. Varð- andi breytingar á gluggum sagðist Magnús ekki hafa handbærar upp- lýsingar um það atriði. Að baki Bergstaðastrætis 12 stendur lítill steinbær sem var reist- ur árið 1881, einn af um 25 slíkum sem eftir standa í Reykjavík. Að sögn Magnúsar hefur sama bygg- ingafélag og er að gera upp Berg- staðastræti 12 fengið leyfi til að lag- færa steinbæinn og nýta sem hjóla- og vagnageymslu. Þórður Magnús- son telur málið grafalvarlegt. Bygg- ingafélagið hafi í raun getað gert það sem því sýndist og síðan sótt, og fengið, samþykki borgarinnar eftir á. Úr því að svo hrappallega tókst til með þetta hús sé full ástæða til efast um getu skipulags- og byggingasviðs til að halda utan um svona fram- kvæmdir yfirleitt. Menn þurfi því ekki einungis að óttast um þau gömlu hús í miðborginni sem búið er að heimila niðurrif á, heldur nánast öll hús í miðborginni sem ekki séu stranglega friðuð. Breytingarnar sem gerðar hefðu verið á Bergstaða- stræti 12 jafngildi því nánast að hús- ið hafi verið rifið og nýtt hús, algjör- lega úr takti við umhverfi sitt, verið byggt í staðinn. „Það hefði verið illskárra ef húsið hefði verið rifið, því þá hefði verið hægt að byggja hús sem passaði í götumyndina,“ sagði hann. Þannig hús, nýbygging í gömlum stíl sem að mörgu leyti líktist gamla húsinu við Bergstaðastræti 12, hefði raunar verið reist í Laugarneshverfi nýlega og passaði það ágætlega inn í hverf- ið. Hinu uppgerða og breytta húsi við Bergstaðastræti 12 svipaði á hinn bóginn á engan hátt til þess húss sem fyrir var. Þórður sagði að vissulega hefði byggingafélagið sparað sér fé með því að málmklæða, frekar en að múr- húða. Borgin gæti hins vegar ekki tekið tillit til slíkra sjónarmiða og um leið fórnað götumyndinni eða a.m.k. stórskemmt hana. Þar að auki væri í byggingasögu Bergstaðastrætis 12 komið fordæmi fyrir því að leyfa stórfelldar breytingar á bygginga- tíma, breytingar sem væru ekki í nokkrum takti við upphaflega áætl- un. „Það er í raun verið að hjálpa óvönduðum verktökum á kostnað þeirra sem stunda vönduð vinnu- brögð,“ sagði Þórður. Þeir sem stunduðu vönduð vinnubrögð væru að sjálfsögðu aðeins dýrari en þó ein- ungis ef horft væri til skammtíma- sjónarmiða. „Það er verið að grafa undan þeim fjöldamörgu aðilum sem stunda heiðarleg vinnubrögð með því að leyfa óvandaðar aðferðir.“ Önnur stefna var mörkuð Þórður minnti á að seint á síðasta ári hefði Hanna Birna Kristjánsdótt- ir, þáverandi formaður skipulags- ráðs Reykjavíkur, stöðvað sambæri- legt mál sem var u.þ.b. að sleppa í gegn. Eigendur Fiskifélagshússins við Ingólfsstræti hefðu þó farið fram á að fá að klæða húsið með sléttu blikki í staðinn fyrir að nota hrafn- tinnu, eins og fyrst var áætlað. Hanna Birna hefði tekið undir með Torfusamtökunum og fengið það í gegn að upphaflegum áætlunum var fylgt. „Byggingafulltrúi virðist því miður ekki hafa tekið mark á þessari pólitísku stefnu sem þarna var mörkuð,“ sagði Þórður. Embætti byggingafulltrúa ætti að hans dómi ekki að hafa rétt til þess að leyfa svo stórvægilegar breytingar á bygg- ingatíma án þess að bera þær undir skipulagsráð og jafnvel grenndar- kynna. Miðað við meðferðina á Berg- staðastræti 12 mætti breyta um 2⁄3 hlutum húsa í Austurbænum á sam- bærilegan hátt. Og þá væri voðinn vís. „Illskárra ef húsið hefði verið rifið“ Morgunblaðið/Valdís Thor Málmur Festingar fyrir málmklæðningar eru komnar á húsið.  Byggingafulltrúi segir að gamlir veggir hafi verið gallaðir og því varð að klæða með málmi  Meðalhófsregla Á eldri teikningu af húsinu (til vinstri) sést að gert var ráð fyrir sléttri múrhúðun og krosspóstum í gluggum eins og víða má sjá á eldri húsum. Á nýrri teikningu sem var samþykkt á byggingartíma sést hvernig samþykkt útlit hefur breyst og er nú gert ráð fyrir að nota málmklæðningu og tvískipta glugga. Við þetta breytir húsið mjög um svip. Frá múr og krosspóstum til klæðningar og álglugga FÓTBOLTINN er í fullum gangi þó að hávetur sé, enda talsvert síðan íþróttin varð að heilsársíþrótt. Það er helst að menn taki sér smáhlé á haustin eftir að deildarkeppninni lýkur, en nú er allt löngu komið í fullan gang og deildarbikarkeppnin framundan sem hefst um miðjan febrúar en hún er leikin í hinum mörgu glæstu knattspyrnuhúsum sem sprottið hafa upp eins og gor- kúlur um allt land síðustu árin. Gervigrasvellirnir eru einnig orðn- ir margir og góðir og aðstaðan því ekki slorleg, eins og sjá má á mynd- inni þar sem meistaraflokkur Fylk- is leggur sig fram á gervigrasvelli sínum í Elliðaárdal á fyrstu æfingu þessa almanaksárs. Þeir vita sem er að æfingin skapar meistarann. Morgunblaðið/Kristinn Æfingin skapar meistarann Húsið Bergstaðastræti 12 var byggt árið 1928. Eins og sést á myndinni var húsið með gluggum með krosspóstum og þakið var svokallað Mansard-þak, líkt er á húsinu við hliðina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.