Morgunblaðið - 07.01.2008, Page 8

Morgunblaðið - 07.01.2008, Page 8
8 MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MARGT var um manninn og mikið líf og fjör þegar jólin voru kvödd í gær á þrettándanum með brennum víða á höfuðborgarsvæðinu. Brennurnar voru í Gufunesi, í Vesturbænum og við Úlfarsfell í Reykjavík og einnig á Seltjarn- arnesi, Kópavogi, Hafnarfirði og Mosfellsbæ. Í Gufunesi var farið í blysför frá gamla Gufunes- bænum og þar og víðar var efnt til flugeldasýn- ingar. Þjóðtrúin segir að þrettándi jólasveinninn hafi haldið til fjalla í gær en þá tala kýr tungu manna, selirnir fara úr hömum sínum og álfar flytjast búferlum. Jólin voru víða kvödd með brennum á þrettándanum Morgunblaðið/Kristinn Álfadrottning og Álfakóngur Álfar og tröll létu sig ekki vanta á brennuna, sem var við Melaskóla í Vesturbænum i gær. Síðasti jólasveinninn farinn LÖGREGLAN á Suðurnesjum hafði í nógu að snúast um helgina og hand- tók meðal annars níu manns. Fjögur ungmenni um tvítugt voru handtekin við húsleit í Reykjanesbæ en þar fundust ætluð fíkniefni. Fólkið var látið laust eftir skýrslutökur. Ölvaður maður var handtekinn og færður í fangaklefa, grunaður um lík- amsárás á skemmtistað í Reykja- nesbæ. Sá sem varð fyrir árásinni fékk skurð á höfuð og þurfti að sauma í hann 12 spor. Maður var handtekinn grunaður um að hafa sprengt skoteldatertu mjög nálægt fjölbýlishúsi þannig að eldglæringar stóðu úr tertunni á hús- ið. Auk þess var hann grunaður um að hafa ógnað öðrum manni með hnífi. Þá voru tveir menn handteknir eft- ir að bifreið þeirra lenti á grindverki við bensínstöð í Reykjanesbæ. Þeir voru báðir ölvaðir og grunaðir um akstur bifreiðarinnar en annar þeirra reyndi að flýja af vettvangi. Ennfremur voru tveir menn hand- teknir, grunaðir um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Níu hand- teknir suð- ur með sjó ♦♦♦ PAR var staðið að verki og hand- tekið á hóteli í Reykjavík í gærmorg- un grunað um að hafa stolið mynda- vél og peningum af ferðamönnum er biðu í andyrinu eftir flugrútunni. Grunurinn reyndist á rökum reist- ur því í fórum þeirra handteknu fundust umræddir munir. Parið var fært í fangageymslur og því sleppt að lokinni yfirheyrslu síðdegis í gær. Fingralöng í morgunsárið Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is LANDSTJÓRINN í Kanada, Michaëlle Jean, tilkynnti um áramót að dr. T. Kenneth Thorlakson fengi þriðja stig Kanadaorðunnar í ár fyrir framlag sitt sem sjálfboðaliði og fjár- öflunarmaður til að styrkja og efla íslenska menningararfleifð í Mani- toba. Stjórn Lögbergs-Heims- kringlu ætlar að verðlauna hann með heiðurskvöldverði í Winnipeg 26. janúar nk. „Þetta er mikill heiður og ég er mjög ánægður með útnefninguna,“ segir Ken Thorlakson. Kanadaorðan er æðsta viðurkenn- ing Kanada. Hún var fyrst veitt 1967 og síðan hafa meira en 5.000 manns verið heiðraðir. Að þessu sinni verð- ur 61 einstaklingur verðlaunaður. Þrír fá æðsta stig orðunnar (C.C.), 18 það næstæðsta (O.C.) og 40 manns þriðja stigið (C.M.). Formlegri fjáröflun til að treysta stoðir blaðsins Lögbergs-Heims- kringlu í Winnipeg lauk fyrir skömmu, en Ken Torlakson var for- maður fjáröflunarnefndarinnar. Undirbúningsvinna hófst snemma árs 2004 og var takmarkið að safna 1,5 milljónum dollara, um 90 millj- ónum króna. Ken tókst ætlunarverk- ið rétt eins og um aldamótin, þegar hann fór fyrir söfnunarnefndinni Metið íslenska nærveru, sem skilaði af sér meira en tveimur milljónum dollara til styrktar íslenskudeild og íslenska bókasafninu við Manitoba- háskóla í Winnipeg. Stjórn LH hefur skipulagt Ljósa- nótt, kvöldverð með skemmtiatrið- um til heiðurs Ken, á Fort Garry hótelinu í Winnipeg 26. janúar nk. Landstjórinn í Kanada heiðrar Ken Thorlakson Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Kraftur Dr. Ken Thorlakson hefur á nýliðnum árum lagt mikið af mörkum til að viðhalda og efla íslenska menningararfleifð í Manitoba. KANADÍSKA dagblaðið Globe and Mail útnefndi Don Johnson í Tor- onto mann ársins 2007, en um 12 ára barátta hans fyrir skattfríð- indum vegna gjafa til góðgerð- armála í Kanada hefur skilað tilætl- uðum árangri. 2005 fékk hann Kanadaorðuna fyrir framlagið. Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Don Johnson maður ársins ÚR VESTURHEIMI CURTIS Olafson, öldungadeildarþingmaður í Norður Dakota, var kjörinn þingmaður ársins 2007. Curtis, sem er annar til vinstri á myndinni, er fyrsti nýliðinn á þingi N. Dakota til að vera útnefndur en alls er þar 141 þingmaður. Samtök sveitarstjórna í ríkinu sjá um valið en í þeim eru um 7.000 manns. Ljósmynd/Björk Eiríksdóttir Curtis Olafson þingmaður ársins BJÖRN Thoroddsen gítarleikari og félagar hans í djasshljómsveitinni Cold Front verða með tónleika á Nasa í Reykjavík föstudaginn 18. janúar nk. og er miðasala hafin (www.midi.is). Björn stofnaði sveitina vestra með Richard Gillis, trompetleikara og stjórnanda stórsveitar Winni- peg, sem er af íslenskum ættum, og bandaríska kontrabassaleikaranum Steve Kirby frá St. Louis. Síðan hafa bæst við Daniel Freedman, sem er einn af eftirsóttustu trommuleikurum New York og Will, Bonnes, einn efnilegasti píanó- leikari Kanada, en allir hafa þeir leikið með stórstjörnum. Djass á heimsmælikvarða

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.