Morgunblaðið - 07.01.2008, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 07.01.2008, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008 13 MENNING BEBOPFÉLAG Reykjavíkur heldur tónfund á Kaffi Kúltúra við Hverfisgötu í kvöld. Félag- ið stóð fyrir mörgum skemmti- legum uppákomum fyrsta mánudag hvers mánaðar á síð- asta ári sem góður rómur var gerður að. Fyrstu tónleika árs- ins 2008 mun saxófónleikarinn Haukur Gröndal leiða ásamt Ásgeiri Ásgeirssyni á gítar, Þorgrími Jónssyni á bassa og Erik Qvick á trommur. Eftir hlé verður „djamm- session“ en þá fá ýmsir gestir, sem því sýna áhuga, færi á að taka í. Tónleikarnir hefjast kl. 22 og er aðgangseyrir 500 kr. Tónlist Bebopfélag Reykja- víkur á Kúltúra Haukur Gröndal FYRSTI fyrirlestur Mann- fræðifélags Íslands á nýju ári undir yfirskriftinni Frásögn, túlkun, tengsl verður haldinn á morgun, 8. janúar, í Reykjavík- ur Akademíunni, Hringbraut 121, 4. hæð, og hefst kl. 20. Dr. Gunnar Þór Jóhann- esson fjallar um efnið: Er mannfræði vefnaðarvara? Vettvangsrannsóknir í ljósi tengslahyggju. Í erindinu er velt upp spurningum um þekkingarsköpun í mannfræði. Athygli er sérstaklega beint að hug- myndum um vettvanginn og samspili vettvangs- rannsókna og framsetningar niðurstaðna. Fyrirlestur Er mannfræði vefnaðarvara? Dr. Gunnar Þór Jóhannesson Á MORGUN, þriðjudag, kl.12.05 verður fyrsta sér- fræðileiðsögn Þjóðminjasafns- ins á nýju ári. Þá leiðir Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari gesti um ljósmyndasýninguna Undrabörn sem nú stendur yf- ir í Myndasal safnsins. Þar getur að líta myndir Mary Ell- en Mark af fötluðum börnum á Íslandi. Einar Falur hefur á síðustu tveimur áratugum unn- ið með Mary Ellen að ýmsum verkefnum og í leið- sögninni fjallar hann um aðdraganda sýning- arinnar í Þjóðminjasafninu og verkefnið almennt. Sýningin stendur til 3. febrúar. Leiðsögn Leiðir gesti um Undrabörn Mary Ellen Mark Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is INGA Jónsdóttir myndlistarkona tók við stjórnartaumum í Listasafni Árnesinga fyrir ári og hefur sett mark sitt á starfsemina. Þær sýn- ingar sem hafa verið í stjórnartíð hennar einkennast af því að þar er myndlistarsögunni og samtímalist- inni markvisst att saman. Með þessu vill Inga greiða leið ókunnugra til nútímalistar. „Fólk hefur sterk tengsl við það sem er liðið. Samtímalistin verður að vera fersk og er oft fyrir vikið óaðgengi- legri. Mig langar til þess að brúa þetta bil.“ Hún lítur á safnið sem menning- arstofnun í stóru samhengi. Það er í Hveragerði en er í sameiginlegri eigu allra sveitarfélaganna á Suður- landi. „Til þess að réttlæta fjár- framlög af almannafé þarf safnið að leggja áherslu á fræðsluhlutverkið með því að sýna breidd og þannig höfða til fleira fólks. En það má aldrei vera á kostnað gæða.“ Víður sjóndeildarhringur Inga er fædd á Selfossi og uppal- in í Hveragerði. Það að eiga rætur á svæðinu hjálpar henni í starfi en hún segir sjóndeildarhring safnsins verða að ná út fyrir verndarsvæði bergrisans. Sýningar verða ekki einskorðaðar við sunnlenska lista- menn eða viðfangsefni. „Það verður aldrei aðalatriðið, mér finnst það vera eitt af hlutverkum safnsins að flytja nýja strauma inn í landshlut- ann. Ég vil alls ekki hafa sjóndeild- arhringinn þröngan. En þegar tæki- færi gefast til að varpa einhverju ljósi á Suðurland mun ég að sjálf- sögðu gera það,“ segir Inga. Reykjavík er óskoruð miðstöð listalífsins á Íslandi þó að ýmsir staðir á landsbyggðinni hafi sótt í sig veðrið og sýnt metnað í menn- ingarstarfi. Inga lítur á staðsetn- inguna sem heillandi ögrun. „Það eru margir í Reykjavík sem hafa tengsl fyrir austan eða eiga sum- arhús þar. Það hefur orðið vitund- arvakning um myndlist og fólk er farið að sækja sýningar mun meira en það gerði. Það er þess vegna gaman að tengja það að fara út úr bænum og heimsækja listasafn. Það eru fjölmörg dæmi um það erlendis frá að metnaðarfull söfn þrífist utan við borgarmörk, t.d. Lousiana og Arken í Danmörku.“ En Inga vill ekki eingöngu fá borgarbúa í bíltúrum á safnið. Sam- félagið á Suðurlandi er helsti mark- hópur safnsins. „Það má heldur ekki gleyma því að fólki fjölgar mjög á þessu svæði og íbúarnir sjálfir krefjast þess að hafa aðgang að ým- iskonar þjónustu. Það skapar okkur líka vettvang.“ Inga Jónsdóttir er safnstjóri Listasafns Árnesinga í Hveragerði Greiðir leiðina til nútímalistar Í HNOTSKURN »Kjölfestan í safneign Lista-safns Árnesinga er gjöf Bjarnveigar Bjarnadóttur og sona hennar. »Safnið á verk eftir margaþekktustu listamenn þjóð- arinnar, m.a. Ásgrím Jónsson, Jóhannes S. Kjarval, Erró og Hring Jóhannesson. »Nú stendur yfir sýninginStefnumót við safneign. Hún verður opnuð aftur eftir jólafrí 16. janúar. Morgunblaðið/Golli Sunnlensk Inga tók við stjórn Listasafns Árnesinga fyrir ári síðan. PULITZER Prize-verðlaunahafinn, Norman Mailer, sem lést 10. nóv- ember síðastliðinn, seldi Harry Ransom hugvís- indarannsókn- armiðstöðinni í Háskólanum í Texas allt skjala- safn sitt. Næsta fimmtudag verð- ur það gert op- inbert almenn- ingi. Mailer seldi safnið árið 2005 fyrir 2,5 milljónir dollara og hefur það tekið starfsmenn miðstöðv- arinnar tvö ár að sortera það svo það verði nothæft til sýnis og gagnlegt námsmönnum og rann- sakendum. Safn Mailer er yfir þúsund kass- ar af handritum, bréfum, tímarit- um, teikningum, ljósmyndum og fleiru. Það inniheldur efni frá þriðja áratug seinustu aldar til ársins 2005. Meðal annars má finna í því óbirt efni eftir Mailer eins og kvikmyndahandrit, smá- sögur og bókarhandritið No Per- centage sem Mailer skrifaði sem námsmaður í Harvard. Það eru um 40.000 bréf í safn- inu til og frá fjölskyldu hans, öðr- um rithöfundum og önnur per- sónuleg, meðal annars frá mönnum eins og Allen Ginsberg, Aldous Huxley, Muhammad Ali og John Lennon. Sannfærð um snilli sonarins Í safninu er einnig að finna tvær sögur sem Mailer skrifaði þegar hann var aðeins átta og ellefu ára að aldri. Í því má líka finna skjöl frá bókhaldara hans og lögmönn- um, nótur og reikninga. „Móðir hans geymdi allt, hún var svo sannfærð um snilli hans,“ segir Thomas Staley, stjórnandi Harry Ransom-miðstöðvarinnar. Opinbert líf Mailers gerir það að verkum að fátt á líklega eftir að koma á óvart í safninu þó að ým- islegt sé þar að finna. Til dæmis er í því símanúmeralisti sem inn- heldur númer Playboy-kóngsins Hugh Hefner, kvenréttindabar- áttukonunnar Gloriu Steinem, leik- arans Montgomery Clift og rithöf- undarins Truman Capote. Skjalasafn Mailer er stærsta safn eins rithöfundar í Ransom- miðstöðinni. Það er metið á um eina billjón dollara. Persónulegt skjalasafn Mailers Inniheldur bréf, ljós- myndir, handrit og fleira Norman Mailer NÚ ER rétt um ár síðan leikrit Birgis Sigurðssonar, Dagur Vonar, var frumsýnt í Borgarleikhúsinu í tilefni af 110 ára afmæli Leikfélags Reykjavíkur. Síðastliðinn laugardag var þeim merka áfanga náð að flutt var 50. sýningin á þessari uppfærslu verksins sem er í leikstjórn Hilmis Snæs Guðnasonar. Af því tilefni fengu aðstandendur sýningarinnar að gæða sér á glæsilegri köku eins og meðfylgjandi mynd ber með sér. Leiksýningin hefur fengið góðar viðtökur og var meðal annars valin sýning ársins við afhendingu Grímu- verðlaunanna síðasta vor auk þess sem Sigrún Edda Björnsdóttir fékk Grímuverðlaun sem besta leikkona í aðalhlutverki. Birgir Sigurðsson, höfundur Dags vonar, segist ekki geta svarað því af hverju verkinu vegni svona vel í hvert sinn sem það er sett upp. „Það er greinilegt að verkið höfðar til fólks, það eru allskonar manngerðir sem virðast njóta þess og það hefur mjög breiða skírskotun. Það kom mér á óvart að það virðist vera að verkið eldist ákaflega vel svo það höfðar að sínu leyti kannski alveg eins til fólks nú og það gerði þegar það var frumsýnt fyrir tuttugu ár- um,“ segir Birgir en Dagur Vonar var fyrst sett upp á fjölum Iðnó. Birgir segist aldrei hafa hugsað út í það þegar hann skrifaði Dag vonar hvort það yrði klassískt. „Ég er nátt- úrlega óskaplega glaður yfir þeim viðtökum sem verkið hefur fengið núna. Þetta er allt mjög glæsilegt.“ Síðasta sýning á Degi vonar verð- ur í febrúar. Birgir Sigurðsson ánægður með þær viðtökur sem Dagur vonar fær hjá Leikfélagi Reykjavíkur Fimmtíu sýning- ar á Degi vonar Morgunblaðið/Kristinn Samtaka Birgir Sigurðsson, Hilmir Snær Guðnason, Sigrún Edda Björnsdóttir og Guðjón Pedersen. Á NÝJU ári verður margt í boði á Listasafni Árnesinga. Í febrúar verður Hrafnhildur Schram með námskeið um íslenska myndlistarsögu frá upp- hafi fram til um 1945. Þegar Stefnumóti við safneign lýkur tekur við sýning þeirra Borghildar Óskarsdóttir og Sigríðar Ólafsdóttur. Borghildur vinnur með ættarsögur af svæðinu og Sigríður sýnir portrett af föngum á Litla-Hrauni. Vinna er hafin við sýningu um Magnús Kjartansson myndlistarmann, sem bjó og starfaði að miklu leyti í Hveragerði. Þá verður yfirlitssýning á verkum Höskuldar Björnssonar sem helst er kunnur fyrir fuglamyndir sín- ar. Árinu lýkur síðan á sýningu þar sem íslensk myndlist frá fjórða ára- tugnum verður í forgrunni. Þar verður fjallað um áhrif Picassos á Íslandi, meðal annars á meðlimi Septemhópsins. Árið framundan hjá LÁ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.