Morgunblaðið - 07.01.2008, Síða 16
fjármál fjölskyldunnar
16 MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Samkvæmt okkar bókunumert þú með innbústrygg-ingu upp á 5,2 milljónirkróna, en ættir með réttu
að vera með innbúið þitt tryggt
fyrir 8,6 milljónir króna,“ sagði
söluráðgjafi tryggingafélags míns
við mig í síma kvöld eitt fyrir hátíð-
ar eftir að hafa kynnt sig formlega.
Ég hváði og tilkynnti viðkomandi
sölumanni að hingað hefði ekki
komið nokkur maður frá trygg-
ingafélaginu til að meta verðmæti
búslóðar minnar og því gætu þeir
varla vitað hvort heimilið mitt sam-
anstæði af tómum samtíningi eða
hreinum lúxusvarningi. Títtnefndur
söluráðgjafi tjáði mér þá að það
tíðkaðist ekki að senda ráðgjafa
heim til að verðmeta innanstokks-
munina nema tryggingatakar ósk-
uðu sérstaklega eftir því. Algeng-
ara væri að menn mætu eignir
sínar og innanstokksmuni sjálfir og
keyptu síðan tryggingu á grund-
velli þess mats. Hins vegar væru
tryggingafélögin með ákveðin við-
mið, sem gjarnan tækju mið af
íbúðastærð og fjölda heimilismanna
auk þess sem gera mætti ráð fyrir
að eldra fólk ætti verðmætari hluti
en þeir sem yngri væru. Í ljósi
þessa og miðað við að ég byggi í
135 fermetra íbúð og við værum
þrjú í heimili væri 8,6 milljóna
króna innbústrygging mjög eðlileg
og rökrétt.
Vernd fremur en kvöð
Eftir þessa reynslusögu lék Dag-
legu lífi forvitni á að kynna sér inn-
bústryggingar og leitaði til þriggja
tryggingafélaga: Vátryggingafélags
Íslands, Sjóvár-Almennra og
Tryggingamiðstöðvarinnar. Tals-
menn þessara félaga voru allir
sammála um að „lenskan“ væri sú
að menn gættu þess ekki að vera
með nógu góðar tryggingar og
mjög bæri á því að menn bæði van-
mætu og vantryggðu innbú sitt.
Margir litu á tryggingar sem kvöð
fremur en nauðsynlega vernd og
öryggi gegn hvers konar vá.
Tryggingaráðgjafar mæla að
vonum með því að allir nýti sér
fjölskyldu- og innbústryggingar og
að vátryggingafjárhæðin sé þannig
að hún dugi fyrir öllu innbúi. Mik-
ilvægt er að endurskoða trygginga-
fjárhæðina reglulega eftir því sem
verðmæti búslóðarinnar eykst og
mælt er með því að skrá sér-
staklega verðmæta hluti á borð við
skartgripi, málverk og önnur
einkasöfn. Rétt þykir t.d. að endur-
skoða innbúsfjárhæðina þegar ver-
ið er að skipta eldri hlutum út fyrir
nýja og dýrari. Fæðing barns getur
sömuleiðis kallað á endurskoðun
hjá tryggingatökum og þegar börn-
in flytja að heiman eða ef minnkað
er við sig í húsnæði má ef til vill
lækka innbústrygginguna.
Í þeim dæmum, sem tiltekin eru
í töflu og varða innbústryggingar
þriggja fjölskyldugerða, verður
ekki lagt mat á hvaða kostir teljist
hagkvæmastir því tryggingaþörf er
mismikil eftir einstaklingum og
tryggingaverndin mismikil milli
tryggingapakka. Eigin áhætta er
að sama skapi mismikil eftir því
hvaða leiðir eru valdar og afslátt-
arkjör til viðskiptavina geta verið
byggð á mörgum þáttum, svo sem
fjölda trygginga, greiðslufyr-
irkomulagi og tjónleysi.
Hlutirnir eru fljótir að telja
„Vátryggingaráðgjafar okkar
nota þau viðmið sem við fengum
með því að kalla til fjölbreyttan
hóp af viðskiptavinum og starfs-
mönnum til að fylla út mjög ít-
arlega samantekt á innbúi sínu.
Þannig fengum við nokkuð góða
sýn á tryggingaþörfina. Hlutirnir
eru ansi fljótir að telja og sem
dæmi er áætlað að fatnaður kosti
500 þúsund til eina milljón á hvern
fjölskyldumeðlim,“ segir Erna
Kristjánsdóttir, vörustjóri hjá
Tryggingamiðstöðinni.
„Við hjá TM bjóðum upp á
margs konar vátryggingavernd og
er algengast að innbústrygging sé
tekin í formi Heimatryggingar sem
við bjóðum í fjórum flokkum, TM1,
TM2, TM3 og TM4, sem býður upp
á mesta vátryggingavernd. Inn-
bústryggingin er eins í öllum þess-
um tryggingum, en vátrygging-
arfjárhæðin er þó misjöfn eftir
aðstæðum einstaklinga. Hagstæð-
ast er hins vegar fyrir viðskiptavini
að hafa allar tryggingar hjá okkur í
pakka, sem heitir TM-Öryggi.“
Innbúsreiknar á heimasíðum
„Af reynslu höfum við byggt
okkur upp þekkingu á hvert væri
meðal innbúsverðmæti miðað við
fjölskyldustærð og stærð íbúðar-
húsnæðis. Þetta geta aldrei orðið
annað en nálganir og ber því að
taka þessar viðmunarfjáræðir með
fyrirvara þar sem það er mjög ein-
staklingsbundið hversu mikið fólk
leggur upp úr því að eiga mikið eða
lítið innbú eða hversu verðmætt
það er,“ segir Agnar Óskarsson,
forstöðumaður tryggingaþjónustu
VÍS. Inni á heimasíðum trygginga-
félaga má finna innbúsreiknivélar
þar sem fólk getur sett inn sínar
tölur og reiknað út innbúsverðmæti
sitt.
Að sögn Agnars býður VÍS upp á
innbústryggingu, sem tekur ein-
göngu á skemmdum á innbúi vegna
bruna-, vatns- og innbrotstjóna.
Heimilistryggingin er svo heldur
víðtækari, en algengast er að við-
skiptavinirnir vilji alhliða fjöl-
skyldutryggingar í formi F plús 1
til 4.
Fjárhæðin til grundvallar
„Fjölskylduvernd 1 er ódýrasta
fjölskylduverndin okkar og sam-
anstendur af innbústryggingu og
ábyrgðartryggingu, sem greiðir
bætur vegna tjóns þriðja aðila ef
vátryggingartaki er skaðabóta-
skyldur,“ segir Rúrik Vatnarsson,
lögfræðingur hjá Sjóvá-Almennum.
„Að baki iðgjaldinu í Fjöl-
skylduvernd 1 liggur vátrygginga-
fjárhæð innbústryggingarinnar, en
hvorki aldur vátryggingataka né
fjöldi fjölskyldumeðlima skiptir
máli í okkar viðmiðunartölum,“
segir Rúrik og bætir við að Sjóvá
bjóði einnig upp á Fjölskylduvernd
2 og 3, sem veiti víðtækari trygg-
ingar og vernd vegna persónutjóna.
join@mbl.is
Gæta þarf að innbústryggingunni
Morgunblaðið/Eggert
Innbrot Það er betra að hafa innbústrygginguna á hreinu verði maður fyrir því að brotist sé inn hjá manni.
!"# $%
; $( < ; $(
=/ $( %/ #:
>1#
5# @:%
/
/ & " !" !'( )" )*+'!
,*
-.
/,
!"#
$ !%
&'(
)*
0102 ( 1 1 3 (412(0 3 *! "++ )" !
,*
-.
/,
!"#
$ !%
&'(
)*
(&14 0 2313(4 (21 0& 2 1( & !*! 2 )" '! !
,*
-.
/,
!"#
$ ! %
&'(
)*
1 3& 41 0 (31 3 2(1& 5! ,*6
"%*
$A
6
0
( 58
$(
/5$ : $(
>/5$ : $(
(:(
5#
A
%9
7 (:%
:(
A/ $( (
:59
$ ?
0
((
/#
6B
.%9A/
( (
0:
"%*
$A
0
A:# (
$(
7
0
:
(
A
A
,
9 %9 C
7
A
$
%8
: C
< :
: $(
-.6
1
#:
$ (
A(:
(,A( (
:
$(
%/
<( C
,
0
((
;DE) $(
F
/
6G
/
0
7A
:
HG
/
#
A(:
(,A(
%9
0:
*#(
( (
$
. ( (
#(
( (
A((
(
0 (
A(:
(,
7/
A
(A(
0(:
$ (
(
;(
:
/
;DE) $(
7
:
$(
:
( (
;D2
@ ((:
( 58
$( C
/5$ : $( C
$
$(
0C
(:
$( C
0/
: $( C
( 58
9C
$( C
*
%8
:
(
.:
(:( (
AA#:( ;D2
@ ((
*0
(:(
;D
/
0
0* $(
5 C
%8 8
$(
$(
'
;D
0
# (
5#
0( (
((
/#
;D2
@ ((
*0
(:(
;D
0
7
(
%8 8
$(
# (
5#
0( (
((
/#
/,6
'
*0
#0 0
(:
8
/
7A
:
A(:0 (
$(
( (
%/
<(
( 5
/5$ : E
9 $( C
<
0:
5 $(
58: 8
#:(
8
( $(
58: 8
#:(
C
<
%9
C
(:(
(:%*(
/
#
0/
>0:
5:E
:
5( (:
0?
0:
$(
/
0
%
@ ((
,( 5
%*C
7
A(:E
5 A %
Mikilvægt er að verð-
meta innbúið sitt reglu-
lega til að tryggja í
samræmi við raun-
verðmæti. Jóhanna
Ingvarsdóttir fékk
tilboð hjá þremur
tryggingafélögum í
innbústryggingar
þriggja fjölskyldugerða
í misstórum húsum.
ÞEGAR einhver í fjölskyldunni er greindur með Alz-
heimers-sjúkdóminn geta áhrifin á aðra í fjölskyld-
unni verið yfirþyrmandi. Að ástvinur sé með svo ill-
vígan sjúkdóm getur kallað fram margs konar
tilfinningar, m.a. ótta, sorg, óvissu og reiði og ekki
er óalgengt að deilur komi upp í fjölskyldunni er fólk
reynir með mismunandi hætti að takast á við vand-
ann.
Til að draga úr hættunni á deilum borgar sig að
allir taki saman á þeim vandamálum sem upp koma
segir á vefsíðu bandarísku heilbrigðistofnunarinnar
MayoClinic.
Deilið ábyrgðinni. Takið tillit til óska, getu og bol-
magns hvers fjölskyldumeðlims. Sumir eiga t.d. auð-
veldar með að sinna daglegri aðhlynningu, en aðrir
hvíldarumönnun, heimilisstörfum og erindagjörðum.
Enn aðrir eiga síðan e.t.v. best með að taka að sér
fjárhags- eða lagaleg málefni sjúklingsins.
Hittist reglulega. Skipuleggið reglulega fjöl-
skyldufundi, eða símafundi sé ekki annars kostur.
Ræðið þar hlutverk hvers og eins í umönnun sjúk-
lingsins, þau vandamál sem upp koma og gerið breyt-
ingar ef þess er þörf. Ef fjölskyldufundirnir leysast
jafnan upp í rifrildi kann að borga sig að fá óháðan
aðila eins og fjölskylduráðgjafa eða lögfræðing til að
sitja fundina.
Verið heiðarleg. Það hjálpar að ræða tilfinningar
sínar á opinn, uppbyggilegan máta og getur dregið
úr spennu. Ef þinn hluti í umönunarstarfinu reynist
þér um megn skaltu óska eftir hjálp.
Ekki gagnrýna. Það eru margar „réttar“ leiðir við
að sinna sjúklingnum. Virtu þá leið sem hver og einn
velur og sýndu sérstakan stuðning þeim sem sinna
daglegri aðhlynningu.
Að hindra fjölskyldudeilur
vegna Alzheimers
daglegt líf