Morgunblaðið - 07.01.2008, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008 21
EINS og fjölmargir aðrir las ég
bók þeirra Sigmundar Ernis Rúnars-
sonar og Guðna Ágústs-
sonar - Guðni af lífi og
sál, nú um jólin. Þetta
var góð jólalesning og
eftirminnilegt ferðalag í
100 ár frá 1907 - fæðing-
arári föður Guðna og til
dagsins í dag. Minningar
Ágústs Þorvaldssonar
frá æskuárunum á Eyr-
arbakka eru hverjum og
einum þörf lesning í alls-
nægtum nútímans. Ekki
var síður fróðlegt að lesa
lýsingar Guðna á lífinu til
sveita um miðja síðustu
öld, þegar tæknibylting umbylti
sveitunum á örfáum árum. Fyrir þá
sem fylgst hafa með stjórnmálum
lengi, er þó einna fróðlegast að renna
í leiðinni gegnum sögu Framsókn-
arflokksins, sem samofin er lífshlaupi
þeirra feðga, en þingseta þeirra
spannar nú þegar nærri 40 ár. Og
rödd Ágústs er mér ekki síður minn-
isstæð en Guðna og arfurinn augljós.
Framsóknarflokkurinn
annar valdapóllinn
Allt frá stofnun Framsókn-
arflokksins árið 1916 hefur flokk-
urinn verið annar valdapóllinn í
stjórnmálunum og næststærsti
stjórnmálaflokkurinn. Það er fljót-
legra að telja árin utan ríkisstjórnar
en ríkisstjórnarár flokksins. Á árinu
2007 verða hins vegar umskiptin.
Samfylkingin kemst í fyrsta skipti í
ríkisstjórn, Framsóknarflokkurinn
geldur afhroð í kosningum og það
liggur í loftinu að nýrri öld fylgi nýir
tímar í stjórnmálunum. Til að undir-
strika þetta, þá er son-
ur Steingríms Her-
mannssonar,
Guðmundur, kominn í
framboð fyrir Sam-
fylkinguna og ævi-
skrárritari Steingríms,
Dagur B. Eggertsson,
verður borgarstjóri í
Reykjavík sem fulltrúi
Samfylkingarinnar.
Kannski var saga
Guðna Ágústssonar
fyrst og fremst saga
veraldar sem var, en
ekki innlegg í framtíð-
ina fyrir nýkjörinn formann Fram-
sóknarflokksins - Guðna.
Spor Halldórs Ásgrímssonar
Guðni kemur vissulega til dyranna
eins og hann er klæddur og það er
samhljómur milli skoðana hans og
þess flokks, sem hann fæddist inn í
upp úr miðri síðustu öld. En sá tími
kemur ekki aftur og það var ekki síst
forveri Guðna í formannsstóli, Hall-
dór Ásgrímsson, sem skar á þær ræt-
ur.
Hér eru nokkur dæmi: Kvótakerfið
núverandi er öðrum fremur á ábyrgð
Halldórs. Þar var sameign þjóð-
arinnar, fiskimiðin, í raun einkavædd.
Þjóðareign auðlinda samrýmdist vel
lífsviðhorfum samvinnumanna. Með
einkavæddu kvótakerfi var skorið á
þann streng. Einn merkasti forystu-
maður Framsóknarflokksins á 20.
öldinni var Eysteinn Jónsson. Undir
lok stjórnmálaferils síns gerðist hann
frumkvöðull í umhverfis- og nátt-
úruverndarmálum og hann var þing-
maður Austfirðinga í 40 ár. Tæpast
hefði hann orðið stuðningsmaður
Kárahnúkavirkjunnar. Að sú virkjun
varð að veruleika er ekki síst verk
Halldórs Ásgrímssonar og þar með
skar hann á þann streng, sem Ey-
steinn og ýmsir samherjar hans höfðu
búið til milli stefnu Framsókn-
arflokksins og náttúruverndar. Þriðja
dæmið er Íraksmálið. Afdráttarlaus
stuðningur Halldórs við ráðamenn í
Washington skar af flokknum marga
þá, sem ávallt höfðu verið andstæðir
hersetu og amerískum áhrifum hér á
landi.
Samvinnumenn, umhverfissinnar
og hernaðarandstæðingar sáu ekki
lengur ástæðu til að styðja áfram
Framsóknarflokkinn og nýir pólitísk-
ir valkostir og breytt þjóðfélagsgerð
munu leiða til þess að fáir koma til
baka hvað sem Guðni reynir.
Ris og fall hreyfinga og ríkja
Með hruni samvinnuhreyfing-
arinnar kringum 1990 og fólksflutn-
ingum af landsbyggðinni í kjölfarið,
brustu rætur Framsóknarflokksins.
Á sama tíma féllu múrarnir í austri og
um leið helstu hindranirnar á móti
sameiningu jafnaðarmanna í öflugan
flokk. Draumar jafnaðarmanna hafa
loksins ræst í Samfylkingunni, en
Framsóknarflokkurinn glataði
draumi sínum áður en ný öld rann
upp.
Nýlátinn er Þráinn Valdimarsson,
sem var framkvæmdastjóri Fram-
sóknarflokksins lengst af á seinni
helmingi síðustu aldar. Hann átti ekki
síst þátt í því að halda flokknum
lengst af í ríkisstjórnum og fylginu
kringum fjórðung þjóðarinnar. Eftir
hans tíma fór verulega að halla undan
fæti. Kannski var andlát hans punkt-
urinn yfir i-ið.
Fróðlegt er að bera saman umsvif
samvinnuhreyfingarinnar á Íslandi
og veldi Sovétríkjanna í austri. Á
sama tíma og byltingin var gerð í
Rússlandi setti Sambandið á stofn
skrifstofu í Reykjavík. Upp úr seinni
heimsstyrjöld lagði Stalín undir Sov-
étríkin alla Austur-Evrópu og Vil-
hjálmur Þór gerðist forstjóri SÍS og
byggði upp það stórveldi, sem Sam-
band ísl. samvinnufélaga varð. Allt
þetta hrundi kringum 1990. Kannski
var sagan að fara þarna í hring og nú
bíðum við eftir næstu hringferð. En
þá verða leikendurnir aðrir.
Ég vona að bók þeirra Guðna og
Sigmundar Ernis verði mörgum til
umhugsunar um vegferð okkar
lengst norður í Atlantshafi. Þar er
ekkert sjálfgefið og þessi 100 ára
saga segir okkur ótrúlega sögu þjóð-
ar, sem brýst úr örbirgð til allsnægta.
Framsóknarflokkurinn átti þar sína
góðu spretti, en nú eru aðrir komnir
með keflið. Vonandi helst þeim vel á
því.
Saga Guðna Ágústssonar
– veröld sem var
Reynir Ingibjartsson fjallar um
bók Guðna Ágústssonar og
slakt gegni Framsóknarflokks
Reynir Ingibjartsson
»Með hruni sam-vinnuhreyfing-
arinnar kringum 1990
og fólksflutningum af
landsbyggðinni í kjöl-
farið, brustu rætur
Framsóknarflokksins.
Höfundur er kortaútgefandi.
stétt karla og kvenna en ljósmóð-
urstéttin eingöngu skipuð konum.
Samkvæmt formlegum viðmiðum
menntamálaráðherra á æðri menntun
og prófgráðum, byggðum á lögum
númer 63 um háskóla, frá árinu 2006,
er embættispróf í ljósmóðurfræði
jafngilt meistaraprófi, rétt eins og
embættispróf í lögfræði. Hingað til
hefur ljósmóðurnám hins vegar verið
metið til jafns á við 4 ára háskólanám
og launin ákvörðuð samkvæmt því,
þrátt fyrir að sex ára háskólanáms sé
krafist frá íslenskum yfirvöldum, til
þess að geta öðlast starfsréttindi sem
ljósmóðir. Að mínu mati er það mjög
skrýtið að hjúkrunarfræðingur sem
bætir við sig tveimur árum í háskóla
til að öðlast réttindi sem ljósmóðir,
eigi það á hættu að lækka í launum og
í besta falli haldi nánast óbreyttum
launum. Ég vona að fleiri séu mér
sammála.
Verða loforðin efnd?
Í fréttum síðustu mánuði hefur fé-
lagsmálaráðherra haldið því fram að
hún vilji leiðrétta kjör kvennastétta.
Eins og áður sagði þá tel ég að ein
helsta orsök þessa mikla launamunar
okkar systra sé fólgin í því að ljós-
mæðrastéttin er eingöngu skipuð
konum. Þessi orð Jóhönnu Sigurð-
ardóttur eru því okkur ljósmæðrum
mikil gleðitíðindi.
Ég vona innilega að ég geti í vor
þakkað systur minni þá hvatningu
sem varð til þess að ég fór að sinna
kjaramálum ljósmæðra, í stað þess að
velta því raunverulega fyrir mér
hvort val mitt á ljósmóðurstarfinu
hafi verið rangt. Reyndin er einfald-
lega sú að áhugi minn á ljósmóð-
urfræðinni dugir ekki til að fram-
fleyta heilli fjölskyldu.
»Ég tel að ein helstaorsök þessa mikla
launamunar okkar
systra sé fólgin í því að
ljósmæðrastéttin er ein-
göngu skipuð konum.
Höfundur er ljósmóðir.
Á ÍSLANDI er meira misvægi
atkvæða milli landshluta en í
nokkru lýðræðisríki sem notar
svipað kosningakerfi og við.
Misvægið getur orðið enn meira
í öðrum kosn-
ingakerfum eins og
t.d. einmennings-
kjördæmakerfum, en
þá kemur misvægið
niður með tilvilj-
unarkenndum hætti,
eftir úrslitum kosn-
inganna.
Á Íslandi er það
ákveðið fyrirfram,
hvaða landshlutar, og
þar með hvaða kjós-
endur, skuli búa við
hálfan kosningarétt,
og hverjir heilan.
Kosningarétturinn er helgasti
réttur hvers manns í lýðræðisríki,
og allt annað en „einn maður – eitt
atkvæði“ er því mannréttindabrot.
Skýringin sem gefin er á þessu
misvægi er sú, að bæta þurfi fólki
á sumum landsvæðum upp meint-
an aðstöðumun, og er þetta stund-
um nefnt nálægð við stjórnsýsluna.
Vandséð er að höfuðborgarbúar,
sem standa fastir í umferðaröng-
þveiti kvölds og morgna, og eru
allt að 50 mínútur á leið í og úr
vinnu aðra leiðina, átti sig á hvað
átt er við með meintum að-
stöðumun. Og ekki virðist nálægð-
in við stjórnsýsluna hjálpa til við
að fá eðlileg framlög úr vegasjóði
til stofnbrauta höfuðborgarsvæð-
isins.
Sú skoðun, að hægt sé að bæta
upp meintan aðstöðumun, með
mannréttindabrotum, er gersam-
lega út í hött!
Misvægi atkvæða er að sjálf-
sögðu ekki eina skýringin á mis-
munun í úthlutun á vegafé, sem
fjallað var um í fyrri grein.
Öll viljum við
byggja upp vegakerfi
landsins. Borgríkið er
ungt, og öll eigum við
rætur að rekja út á
land, og öll höfum við
samúð með lands-
byggðinni sem átt hef-
ur undir högg að
sækja undanfarna
áratugi.
Þetta virðist skila
sér inn á Alþingi og
birtist m.a. í nefnda-
skipan þingsins, en
eins og fyrr segir, þá
er drjúgur meirihluti fulltrúa í
samgöngunefnd og fjárlaganefnd,
sem ráða mestu um ráðstöfun
vegafjár, landsbyggðarþingmenn,
þó að alþingismenn höfuðborg-
arsvæðisins séu í meirihluta á Al-
þingi.
En sjaldan launar kálfurinn
ofeldið, og því miður er nið-
urstaðan sú að þrátt fyrir ástandið
á stofnbrautum höfuðborgarsvæð-
isins renna aðeins 20% vegafjár til
þeirra þó að um 70% tekna vega-
sjóðs verði til á höfuðborgarsvæð-
inu.
Fulltrúar landsbyggðarinnar á
Alþingi og á landsfundi flokkanna
virðast valdir eftir því hvað þeir
lofa miklu herfangi heim í hérað,
og hve mikilli hörku þeir hóta
gagnvart höfuðborginni.
Kjósendur á landsbyggðinni
virðast, öfugt við kjósendur höf-
uðborgarinnar, kjósa fyrst og
fremst eftir heimahagsmunum, og
koma sínum skilaboðum skil-
merkilega til flokkanna, um hvaða
afleiðingar það mun hafa á fylgið
ef ekki er orðið við ýtrustu kröfum
þeirra.
Flokkarnir þora ekki fyrir sitt
litla líf að ögra þessu ægivaldi
samstöðunnar í skjóli misvægis at-
kvæða, og lofa öllu fögru.
Ekki er nóg með að hagsmunir
höfuðborgarinnar verði undir,
heldur hafa samgönguyfirvöld ægi-
vald á skipulagsmálum á höf-
uðborgarsvæðinu í gegnum úthlut-
unarvald sitt á vegafé.
Með því að leggja aðeins blessun
sína yfir, og þar með fé úr vega-
sjóði í þær framkvæmdir sem þeim
eru að skapi, geta samgöngu-
yfirvöld ráðið úrslitum í skipulags-
málum borgarinnar.
Færsla Hringbrautar er gott
dæmi um þetta. Það var sýnt fram
á það með óyggjandi hætti, að hag-
kvæmara og arðsamara væri að
leggja Hringbrautina í stokk en á
yfirborði, vegna landsins sem spar-
ast ofan á stokknum á þessu dýr-
asta svæði höfuðborgarinnar.
Auk fjárhagslegs ábata borg-
arinnar af nýrri Hringbraut undir
yfirborði hefði miðborgin getað
vaxið hindrunarlaust út í kjörlendi
sitt í Vatnsmýrinni, þegar og ef
borgaryfirvöld öðlast þann kjark
sem þarf til að hrista af sér hlekki
flugvallarins sem lamað hefur
skipulagsmál borgarinnar í ára-
tugi.
Það er því ljóst, að vegna þess
ástands, sem lýst er hér að fram-
an, eru teknar ákvarðanir í skipu-
lagsmálum borgarinnar, sem
ganga þvert á hagsmuni borg-
arsamfélagsins.
Hvenær þrýtur langlundargeð
borgarbúa?
Langlundargeð
höfuðborgarbúa
Einar Eiríksson skrifar
um misvægi atkvæða
»Kosningarétturinner helgasti réttur
hvers manns í lýðræð-
isríki, og allt annað en
„einn maður – eitt at-
kvæði“ er því mannrétt-
indabrot.
Einar Eiríksson
Höfundur er kaupmaður í Reykjavík
og í stjórn Samtaka um betri byggð.
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Í FRÉTTUM Stöðvar 2 hinn 27. des-
ember sl. segir Óli Tynes frá jóla- og
áramótakveðju Saving Iceland-
hreyfingarinnar í frétt sem hann kall-
ar „Við unnum – Saving Iceland“. Tit-
illinn sem og innihald fréttarinnar
gefur lesandanum þá mynd að Saving
Iceland hafi lýst yfir persónulegum
sigri á andstæðingum sínum.
Ég veit ekki hvort Óli hefur af
ásettu ráðið logið til um innihald
kveðjunnar eða hann ræður bara ekki
við að lesa einfaldan texta á ensku, en
hvergi er tengill á kveðjuna sjálfa og
fá lesendur því ekki tækifæri til að
lesa upprunalega textann í réttu sam-
hengi. (Kveðjuna má finna á vefsíð-
unni www.youtube.com undir nafninu
Potatoes for Heavy Industry)
Í jólakveðju Saving Iceland er per-
sónulegur sigur aldrei nefndur, setn-
ingin „Við unnum“ kemur hvergi
fram. Hins vegar stendur skýrum
stöfum að miklir sigrar hafi unnist í
umhverfisbaráttunni á Íslandi.
Til að rifja upp það helsta kaus
meirihluti Hafnfirðinga gegn stækk-
un álvers Alcan í Hafnarfirði. Sú nið-
urstaða sýnir að enn þykir fólki vænt
um umhverfi sitt og lætur ekki
blekkjast af gylliboðum stórfyr-
irtækja. Landsvirkjun ákvað að selja
ekki orku til frekari álvers-
framkvæmda á suðvesturhorni lands-
ins. Bændur við Þjórsá og stuðnings-
menn þeirra hafa margeflst í baráttu
sinni gegn fyrirhuguðum skemmdum
Landsvirkjunar á ánni og landinu þar
í kring og ríkisendurskoðandi hefur
nú sagt að örvæntingarfullt framsal
ríkisstjórnarinnar á vatns- og lands-
réttindum sínum við Þjórsá til Lands-
virkjunar þremur dögum fyrir kosn-
ingarnar í vor hafi verið kolólöglegt.
Til að toppa þetta allt saman virðist
sem Langasjó hafi verið bjargað og
verður hann nú loks tekinn inn í fyr-
irhugaðan Þjóðgarð norðan Vatna-
jökuls.
Þetta eru miklir sigrar þótt enn sé
langt í land. Enginn einn hópur, sam-
tök eða einstaklingur á heiðurinn af
þessum sigrum, heldur geta allir þeir
sem lagt hafa eitthvað á vogar-
skálarnar í umhverfisbaráttunni tek-
ið þetta til sín. Hver einasta rödd
skiptir máli og vaxandi fjölbreytileiki
innan umhverfishreyfingarinnar er
til marks um hversu stór og öflug hún
er að orðin.
Við hjá Saving Iceland erum eins
og aðrir hópar stolt af þessum sigrum
enda höfum við með þrotlausri vinnu
lagt mikið til baráttunnar. Með sí-
felldu upplýsingaflæði, tilkynningum,
ráðstefnu, tónleikum, blaðamanna-
fundum, beinum aðgerðum og öðrum
atburðum höfum við haldið barátt-
unni ferskri og komið nýjum upplýs-
ingum til fólks og fjölmiðla. Með
áherslu á áliðnaðinn höfum við víkkað
út baráttuna og sýnt óhugnanleg
tengsl hans við vopnaframleiðslu og
stríðsrekstur. Við höfum bent á
tengsl aukinnar neyslu og uppbygg-
ingar stóriðju og einnig á spillinguna
sem felst í því að fyrirtæki, sem eiga
fjárhagslegra hagsmuna að gæta
varðandi byggingu virkjana og ál-
vera, sjái um gerð umhverfismats
þeirra. Áfram mætti svo lengi telja
um okkar starf og þá er ótalin þrot-
laus vinna annarra einstaklinga og
hópa.
Ekki lasta ég Óla Tynes og Stöð 2
fyrir umfjöllun sína enda er nauðsyn-
legt að halda umræðunni um um-
hverfismál uppi á hvaða árstíma sem
er, ekki síst nú á jólunum þegar hug-
ur margra landsmanna virðist fyrst
og fremst snúast um kaup og skipti á
veraldlegum hlutum. Hins vegar
hefðu þeir betur valið raunsæja og
rétta fyrirsögn; þ.e. „Við munum
vinna!“
SNORRI PÁLL JÓNSSON,
tónlistarmaður og starfsmaður
á samvinnurekna
kaffihúsinu Hljómalind.
Við munum vinna
Frá Snorra Páli Jónssyni