Morgunblaðið - 07.01.2008, Síða 22

Morgunblaðið - 07.01.2008, Síða 22
22 MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. SVIPLAUS BORG Hver borg hefur sinn persónu-leika. Sumar borgir eru lit-lausar og fátt kemur á óvart, aðrar eru fullar af sérkennum. Í sum- um borgum er varla hægt að snúa sér við án þess að rekast á sögulega minnisvarða, í öðrum er allt svo nýtt og einsleitt að það er eins og þær eigi enga sögu. Sumar borgir endur- spegla sögu heimsvelda, aðrar eiga sér hógværari rætur, en engu ómerk- ari. Fyrir einni öld bjuggu átta þús- und manns í Reykjavík, flestir í Kvos- inni. Nú búa í Reykjavík rúmlega 117 þúsund manns. Íbúafjöldinn hefur nánast fimmtánfaldast. Borgin hefur því vaxið gríðarlega hratt og ber þess merki. Þar sem eitt sinn var komið fyrir litlum húsum þykir nú þörf fyrir háhýsi. Hefðu menn séð vöxtinn fyrir er ólíklegt að á sínum tíma hefði verið veitt leyfi til að reisa litlu húsin Laugaveg 4 og 6, sem nú stendur til að rífa. Heimilað var að rífa húsin í deiliskipulagi árið 2003 og leyfi til niðurrifs gefin út í sumar og haust eins og fram hefur komið í Morgun- blaðinu. Þegar ljóst var að húsafrið- unarnefnd sá ekki ástæðu til að grípa til skyndifriðunar húsanna gerði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri samkomulag við eigendur þeirra um að fresta niðurrifi húsanna til að borgin fengi ráðrúm til að flytja þau burt með það fyrir augum að koma þeim fyrir annars staðar, til dæmis í Hljómskálagarðinum. Í þessu ferli gleymist að gildi þess- ara húsa er einkum fólgið í að þau standa við elsta hluta Laugavegar og eru hluti af einni af síðustu heillegu götumyndunum, sem bera vitni upp- byggingu Reykjavíkur í mótun. „Minjagildi húsanna og verðgildi þeirra yfirleitt er á þeim stað þar sem þau standa. Ef þú fjarlægir þau eyði- leggur þú þetta gildi þeirra. Það er bara algjört rugl að mínu mati. Ég skil ekki í nokkrum manni að láta sér detta þetta í hug,“ sagði Hjörleifur Stefánsson arkitekt í samtali við Morgunblaðið á laugardag um þá ákvörðun Reykjavíkurborgar að láta flytja húsin Laugaveg 4 og 6 á nýja lóð. Hjörleifur skoðaði húsin í haust að ósk borgarminjavarðar til að meta hvort fýsilegt væri að flytja þau og endurreisa nærri þeim stað, sem þau standa á nú. Niðurstaða Hjörleifs er að fýsilegra væri að kaupa lóðirnar og húsin þótt dýrar séu en verja mikl- um fjármunum í að flytja húsin og koma þeim fyrir annars staðar. „Sú ráðstöfun myndi gagnast málstað al- mennings en ef Reykjavíkurborg leggur til fjármuni í að flytja húsin af staðnum er hún að kosta niðurlæg- ingu Laugavegar til að auka á gróða núverandi eigenda,“ segir í minnis- blaði Hjörleifs. Byggingararfur og -saga Reykja- víkur er mikilvæg þótt ekki sé hún fólgin í foldgnáum höllum og hana ber að varðveita. Ef það er ekki gert verður borgin sviplaus og rúin sér- kennum, staður til að búa á, en ekki til að lifa. HVAR ERU UMBÓTAMÁLIN? Talsmenn núverandi ríkisstjórnarhafa lýst henni sem frjálslyndri umbótastjórn en nú er kominn tími til að spyrja hvar umbótamálin séu. Stjórnarflokkarnir hafa verið á ró- legri siglingu frá því að ríkisstjórnin tók við. Það hefur engin stefnubreyting orð- ið í nokkrum málaflokki. Ríkisstjórnin fylgir óbreyttri stefnu í utanríkismál- um, efnahags- og atvinnumálum og ríkisfjármálum. Engin breyting. Stefnan í umhverfismálum er óljós- ari ef eitthvað er. Það eru vísbending- ar um að unnið sé að breytingum í heilbrigðismálum. Áfram er unnið samkvæmt sömu stefnu í menntamál- um. Tilþrifin í samgöngumálum, iðnað- armálum og viðskiptum eru takmörk- uð en að vísu mikill hávaði í kringum suma þessa málaflokka. Félagsmálaráðherrann bretti upp ermarnar í byrjun en er ráðherrann að missa flugið? Í sjávarútvegsmálum er í fyrsta sinn tekin kjarkmikil ákvörðun í kvótaákvörðun en um leið tekin skref til baka í auðlindagjalds- málum. Hvar eru umbæturnar sem lofað var þegar ríkisstjórnin skilgreindi sjálfa sig sem frjálslynda umbóta- stjórn? Nú er meira en hálft ár liðið frá því að ríkisstjórnin tók við og þess vegna hægt að ætlast til einhverra breytinga en þær sjást ekki. Þótt margt hafi áunnizt í meira en sextíu ára sögu lýðveldisins er margt ógert og verkefnin blasa við. Í stað þess að stíga skref aftur á bak í auðlindagjaldsmálum er ástæða til að stíga skref fram á við og taka upp auðlindagjald á fleiri sviðum en í sjáv- arútvegi. Það er ekki hægt að ræða um framtíðarstefnu í orkumálum á þann veg sem talsmenn Sjálfstæðis- flokksins gera án þess að ræða auð- lindagjald í orkumálum. Landsmenn hafa tekið fyrstu skref- in í þá átt að flytja valdið frá stjórn- málamönnum til almennings. At- kvæðagreiðslan um stækkun álversins í Straumsvík er dæmi um það. Nú er tímabært að undirbúa grundvallarlöggjöf um þau málefni, sem festa atkvæðagreiðslu meðal al- mennings um stærstu mál, hvort sem er á landsvísu eða í sveitarstjórnum, í sessi. Í tilefni forsetakosninga næsta vor er brýnt að taka til umræðu þau mál- efni sem borið hefur á góma um for- setaembættið, bæði takmörkun á þeim fjölda kjörtímabila sem forseti getur setið en ekki síður afnám úr- eltra ákvæða um stöðvunarvald for- seta. Það ákvæði á að afnema en fela fólkinu í landinu þess í stað það vald. Hið sama á við um fjármögnun á kosningabaráttu forsetaframbjóð- enda. Þær tillögur verða að liggja fyr- ir áður en kosningabaráttan hefst þannig að nýjar reglur taki gildi nú. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Það virðist vera talsvertgóðæri í íslenskri óp-erusmíð um þessarmundir. Eitt þeirra tón- skálda sem standa í stórræðum á því sviði er Sveinn Lúðvík Björns- son, sem lengi hefur verið eitt af hirðskáldum Caput. Sveinn Lúðvík las bók, fékk hug- mynd og eftirleikurinn hefur ekki verið svo erfiður, og samvinna er töfraorðið. Uppfærsla verksins og frumsýning verður á Skál- holtshátíð sumarið 2009. Þegar blaðamaður tekur hús á Sveini í vikunni fyrir jól situr hann við stórt borð í fundaherbergi Reykjavíkurakademíunnar, ásamt tveimur Bretum. Þetta eru þeir Robert Millner og Darren Roy- ston. Darren verður leikstjóri óp- erunnar, en hann er dramatúrg og danshöfundur hjá The European Chamber Opera Company. Robert er líbrettisti óperunnar – vinnur það verk að breyta skáldsögu í sönghæfan texta. Hann er sjálfur söngvari og bókmenntafræðingur, vinnur sem líbrettisti hjá Kon- unlegu óperunni í Covent Garden og hefur langa reynslu af vinnu sem þessari. Hann er líka fiðlari í þjóðlagatónlist. Darren og Robert eru hér í vikuheimsókn hjá Sveini Lúðvíki – saman eru þeir þrír að leggja lokahönd á undirbúning textasmíðinnar. En hvernig má það vera að tón- skáld sem nær eingöngu hefur sinnt hljóðfæratónlist skuli nú ráð- ast í glímu við stærsta form söng- listarinnar – óperuna? Sagan eftir William Golding „Ég las The Spire eftir William Golding fyrir um 24 árum. Frá byrjun sá ég söguna sem óperu eða einhvers konar sviðsverk, sem mig langaði að ráðast í þegar ég hefði þroska til. Fyrir þremur, fjórum árum, fannst mér ég loks vera orð- inn nógu þroskaður, þannig að ég fór að íhuga að gera þessa hug- mynd opinbera, þótt ég hefði ekki hugmynd um hverjum ég ætti að segja frá. Ég hitti þá Þorstein heit- inn Gylfason prófessor heima hjá Atla Heimi Sveinssyni og nefndi þetta við hann. Honum fannst hug- myndin alveg brilljant, en hafði ekki lesið bókina. Það hafa fáir les- ið þessa sögu, en fyrir mér er hún algjör gimsteinn í breskum litterat- úr. Hún er frábær og algjör klass- ík. Þorsteinn vildi endilega kanna þetta betur og sagðist ætla að lesa bókina. Hann hringdi svo í mig, bú- inn að lesa og alveg í skýjunum en kvaðst ekki geta tekið það að sér sjálfur að semja óperutextann. Hann var þá farinn að kenna veik- inda sinna. Þorsteinn las bókina í þaula, og við hittumst nokkrum sinnum til að ræða bókina ofan í kjölinn og spjalla. Það var mjög gaman, því Þorsteinn var mjög greindur, víðsýnn og skemmtilegur maður. Honum fannst bókin bæði mjög flókin en líka margræð. Þor- steinn stakk upp á Darren Roy- ston, sem hann þekkti að góðu og hafði séð sýningar hans erlendis. Ég var svo heppinn að Darren kom til Íslands til að sinna vinnu við rannsóknarverkefni sitt sem sner- ist um þjóðdansa í Evrópu, en líka til að hitta okkur Þorstein. Hann var búinn að lesa bókina og þetta small allt saman, því hann langaði strax að taka þátt í verkefninu sem leikstjóri, danshöfundur og drama- túrg. Þá vantaði okkur bara texta- höfundinn. Eftir svolitla íhugun stakk Darren upp á Robert Millner sem hefur unnið við að búa til líb- rettó með tónskáldum. Það er stór- kostlega gaman að vinna með þess- um mönnum. Þeir vinna þetta á mjög heiðarlegan hátt – alveg frá hjartanu, eins og ég vil vinna.“ Dóttir skáldsins reyndist vel Sveinn Lúðvík hitti Darren og Ro- bert á vinnufundi í London fyrir tveimur árum. Á þann fund kom líka Judy Carver, dóttir Williams Goldings, og henni leist strax ákaf- lega vel á Svein Lúðvík og tónlist hans, en Sveinn hafði þá se tvær plötur með eigin verk gefnar af Smekkleysu. „Henni leist rosalega ve og fannst hugmyndin skem Þetta er virðuleg frú í Suðu Englandi og lifir á arfi föðu Ég var hissa, því það er er geta sér til um hvernig fólk nútímatónlist. En hún reyn upplýst og vel menntuð ko taldi tónlistina mína mynd mjög vel við verk föður sín gerði mér kleift að fá rétt t gera þetta, en Faber & Fa með útgáfuréttinn á verku ings. Ég, sem tónskáld og staklingur hér heima, hafð möguleika á að borga fyrir Þetta er aðf að búa til óp Sveinn Lúðvík Björnsson semur óperu byggða á sögu » „En Judy Curver áttaði sig strax á því aðvar í svipaðri stöðu og pabbi hennar – han skrifaði bækur, ég skrifa tónlist, og fólk verð ekki efnað af því. Hún sá til þess að ég fengi inn til að gera þetta fyrir skynsamlegt verð.. » „Frá byrjun sá ég söguna sem óperu eða hvers konar sviðsverk, sem mig langaði a ast í þegar ég hefði þroska til. Fyrir þremur um árum, fannst mér ég loks vera orðinn nóg þroskaður...“ Tónlistarmenn Darren Royston leikstjóri, Robert Millner líbrett

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.