Morgunblaðið - 07.01.2008, Síða 34

Morgunblaðið - 07.01.2008, Síða 34
Fréttir í tölvupósti 34 MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand HÆ! ÉG KOM Í HEIMSÓKN TIL AÐ TALA VIÐ AFBRÝÐI- SAMA KÖTTINN SÆLL, GRETTIR... Ó... ÞETTA ERT ÞÚ Á MORGUN KOMA JARÐ- ÝTURNAR! Á MÁNUDAGINN ÆTLA ÞEIR AÐ RÍFA HÚSIÐ MITT OG LEGGJA VEG HÉRNA! ÆI... ÞÚ VARST GOTT HEIMILI ÉG HELD AÐ VIÐ SÉUM BÚNIR AÐ NÁ NÓGU GÓÐU FORSKOTI. VIÐ GETUM HVÍLT OKKUR Í SMÁ STUND HELDUR ÞÚ AÐ MAMMA ÞÍN SÉ BÚIN AÐ SJÁ BÍLINN Í SKURÐINUM? JÁ, ÖRUGGLEGA! HÚN HEFUR ÖRUGGLEGA HRINGT Í PABBA OG HANN ER Á LEIÐINNI HEIM NÚNA! ÞÚ ÞEKKIR REGLURNAR, SNATI! ÞAÐ ER EINS GOTT AÐ HÚN ÆTLI EKKI AÐ GISTA MIKIÐ GETUR ÞÚ VERIÐ LEIÐINLEGUR! OPNAÐU BARA DYRNAR, ATLI! TAKK FYRIR AÐ KOMA Á SÖLU- FYRIRLESTURINN, HERRA MINN ÉG SAMÞYKKTI ÞAÐ GEGN ÞVÍ AÐ ÉG FENGI FRÍA GISTINGU Á HÓTELINU YKKAR... EN EKKI LÁTA YKKUR DETTA ÞAÐ Í HUG AÐ ÞIÐ GETIÐ SELT MÉR NOKKURN SKAPAÐANN HLUT ÞAÐ VILL ENGINN LÁTA TROÐA HLUTUM UPP Á SIG MÁ BJÓÐA ÞÉR BEYGLU? NEI TAKK... ÉG KREFST ÞESS FÁÐU ÞÉR TVÆR! ÉG VERÐ AÐ BREYTA STEFNUNNI Á ÞESSARI LYFTU SVO HÚN LENDI EKKI Á FÓLKINU ERTU VISS UM AÐ ÞAÐ HAFI TEKIST? VIÐ SJÁUM ÞAÐ BRÁÐUM HANN BJARGAÐI M.J., EN... dagbók|velvakandi Matarupplifun ársins 2008 OKKUR hjónum ásamt góðu fólki veittist sá heiður að kvöldi nýárs- dags að verða boðið í árlegan ný- ársfagnað á Friðriki V. Þetta kvöld gefa meistarakokkar stað- arins, Hallgrímur, Guðmundur og Friðrik, ástríðunni lausan tauminn og ýmislegt er prófað með bros á vör. Eflaust eiga gestir staðarins á komandi ári eftir að fá að njóta margra listmunanna sem bornir voru á borð þetta einstaka kvöld. Á þessu kvöldi þar sem farið var með gestina í rúmlega 5 tíma mat- arferðalag um okkar frábæra norðlenska hérað ásamt því að bregða okkur um stund til annarra landa, t.d. Frakklands, Ítalíu, Spánar og Portúgals svo að eitt- hvað sé nefnt, fengum við að bragða á 23 mismunandi réttum ásamt kampavíni, tveimur teg- undum af hvítvíni, tveimur af rauðvíni, einni af portvíni, einni af eftirréttavíni og einni tegund af maltbjór. Ég ætla að nefna nokkra af réttunum rétt til þess að gefa innsýn í það sem boðið var upp á. Norðlensk kæfa, reyktur lax, þurrkað villisvínslæri sérinnflutt frá Spáni, humarrisotto, humarc- arpaccio, innbakaður humar í humarfarsi, rjúpusúpa, léttreykt andabringa með geitaosti og rús- ínucapersmauki, blóðbergsískrapi bornu fram á ísjaka, hægeldaður innanlærishreindýravöðvi, villiönd, heimagert konfekt, djúpsteikt skyr, súkkulaðikaka, ís og skyr- amisú. Réttirnir voru einhvern veginn svo fullkomnir og allir ein- staklega fallega bornir fram. Það er ljóst að Friðrik, Adda, Karen og Axel, ásamt starfsfólki lögðu sig fram við að gera kvöldið ógleymanlegt og það skein í gegn að allir sem að þessu komu höfðu mikla ánægju af, sem skilaði sér til gestanna. Andrúmsloftið skemmdi ekki fyrir, það var ein- staklega afslappað og til að setja punktinn yfir i-ið í þeim efnum söng Margrét Eir undurfallega nokkur lög við undirleik Jökuls Jörgensens. Að lokum fengu allir gestir að eiga diska sem voru sér- framleiddir fyrir kvöldið og komu þeir frá Stjörnunni glergalleríi á Dalvík. Þetta kvöld undirstrikar það enn og aftur að Friðrik V. er veit- ingastaður í toppklassa og megum við Norðlendingar vera stoltir af. Að hafa slíkan stað með fólki sem er í þessu ástríðunnar vegna skipt- ir alla matarmenningu á svæðinu miklu máli og styður svo sann- arlega við hana í sem víðustu sam- hengi. Gleðilegt og nýtt spennandi matarár. JÚLÍUS JÚLÍUSSON, framkvæmdastjóri fiskidagsins mikla á Dalvík. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is KISUR eru klókar að finna sína sælureiti, þetta kattargrey hefur fundið sinn í barnavagni nokkrum sem stóð við húsdýragarðinn. Morgunblaðið/Valdís Thor Kattarúrræði Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.