Morgunblaðið - 07.01.2008, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 07.01.2008, Blaðsíða 36
Þar er keppt um að sitja ótemjur, tarfa, snara kálfa og brenni- merkja … 38 » reykjavíkreykjavík Á skemmti- og menningarflugi helg-arinnar var millilent á Bar 11 í mið-borginni til þess að tapa sér í tryllt- um tónleikafíling með ungum og efnilegum músíkmönnum en þar spiluðu hljómsveitin hans Sindra Eldons Bjarkarsonar; Slugs, Morðingjarnir og tveggja manna bandið Fist Fuckers með þeim Kára Einarssyni sem barði húðirnar af miklum krafti og Úlfi sem fór hamförum á gítarnum – ber að ofan með jólaseríu yfir öxlina. Flugan okkar, sem er jú meira fyrir trega og tangó, smitaðist af stuðinu á sviðinu og naut þess að pæla í fantaflottum fatnaði gestanna á svæðinu, eins og Steinunnar Harðardóttur úr pönk- sveitinni Skelkur í bringu og annarra feg- urðardísa. Á laugardagsmorguninn skall svo skyndi- lega á yndislegt veður og því loksins vapp- fært í höfuðborginni. Flugufótum var smeygt í reimaða háhælaða lakkskó og strikið tekið upp Bankastrætið í blíðunni og splæst í verulega hressandi nýmalað kaffi í Kaffitári. Notaleg stemning þar í bítið á helgarmorgnum; þar ægir saman ilmi af prentsvertu nýjustu dagblaðanna, exótískum kaffibaunum og frjálslyndum skoðunum kaffidrykkjumanna. Þar var mættur sjálfur bæjarstjórinn í Bolgungarvík með ektak- vinnu sinni Helgu Völu Bachmann leikkonu og lögfræðinema og ungum syni. Alltaf gam- an að rekast á landsbyggðarlýðinn í heim- sókn í höfuðstaðnum. Annars hafa flugudagar nýja ársins bein- línis þotið hjá við annir í ræktinni því þótt fluga láti oft í ljós vanþóknun á ljósabekkja- brúnum hnökkum og hnátum, og lífsstíl þeirra, getur hún ekki annað en tekið þátt í átakinu: Látum lýsið leka. Hamborgarhryggurinn er tekinn af á hlaupabrettinu þar sem hangilærin eru mis- kunnarlaust látin kveljast klukkustundum saman og Waldorf-salatið og sörurnar spretta út um svitaholurnar í gufunni. Litríkir bæklingar ferðaskrifstofanna fylgdu helgarblöðunum og því eins gott að taka á því fyrir sumarið. Hvað varð annars um þá gömlu góðu daga þegar slíkir bækl- ingar voru myndskreyttir með léttklæddum íslenskum sundbolastelpunum með hvítar strípur í ljósu þunnu hárinu og sand í munn- vikunum? Hefur enginn húmor lengur ...? Morgunblaðið/Eggert Unnur Birna Vilhjálmsdóttir og Reynald Hinriksson. Arvid Krogh og Valgerður Sverrisdóttir. Elín Ryan og Bjarnfríður Jónudóttir. Sr. Pálmi Matthíasson og Unnur Ólafsdóttir. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Margrét Einarsdóttir, Anika Karen Guð- laugsdóttir og Andrea Þorkelsdóttir. Elín Pálsdóttir og Sindri Freyr Steinsson. Edda Reynisdóttir og Sigurður Hólm Lárusson. Teitur Magnússon og Inga María Eyjólfsdóttir Bergur Gunnarsson, Ellert Arnarson og Brynjar Þór Björnsson. Flugan … Að tapa sér í tryllt- um tónleikafíling … … Hangilærin kveljast á hlaupabrettinu … Jóhann Jóhannesson og Eyþór Magnússon. Ástríður Tómasdóttir og Birta Þórhallsdóttir. Nanna Ósk Jónsdóttir og Ólafur Friðrik Laufdal Jónsson. Ragna Sæmundsdóttir og Erna María Jónsdóttir. » Slugs, Morðingjarnir ogFist Fuckers léku á Bar 11 um helgina. » Bubbi Morthens með Stór-sveit Reykjavíkur fyllti Laugardalshöllina föstudags- og laugardagskvöld. Stefán Ólafsson og Edda Andrésdóttir. Aðalbjörg Einarsdóttir og Arnar Gauti Sverrisson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.