Morgunblaðið - 07.01.2008, Qupperneq 39
Fréttir á SMS
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008 39
Þjóðleikhúsið
um helgina
Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00 mán. og þri.
Aðra daga frá kl. 12.30–20.00. Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga.
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Ógleymanleg, ljúfsár og launfyndin
„Það er líka sjaldgæft að verða vitni að jafn
kraftmikilli sýningu og þessari, jafn miklum
galsa, jafn fumlausum tökum á forminu, jafn
afdráttarlausri túlkun, jafn tilgerðarlausri en
jafnframt útpældri sviðsmynd…“
Þröstur Helgason Lesbók MBL, 29. des.
Ívanov
e. Anton Tsjekhov. Aðlögun og leikstjórn: Baltasar Kormákur
fös. 4/1 & lau. 5/1 örfá sæti laus
SAMTÖK kvikmyndagagnrýnenda í
Bandaríkjunum veittu árleg verð-
laun sín um helgina. Kvikmyndin
There Will Be Blood var valin besta
mynd ársins. Leikstjóri hennar,
Paul Thomas Anderson, var valinn
besti leikstjórinn og leikarinn Dani-
el Day-Lewis tók verðlaunin sem
besti leikarinn fyrir hlutverk sitt í
myndinni.
Julie Christie var valin besta
leikkonan fyrir hlutverk sitt í Away
From Her. Bestu aukaleikarar voru
Casey Affleck fyrir hlutverk sitt í
The Assassination of Jesse James
og Cate Blanchett fyrir hlutverk
sitt sem Bob Dylan í I’m Not
There.
Mynd um utanríkismál
Rúmenska myndin Fjórir mán-
uðir, þrjár vikur og tveir dagar var
valin besta erlenda myndin og No
End in Sight var valin besta heim-
ildarmyndin en hún fjallar um utan-
ríkisstefnu Bandaríkjanna, sér-
staklega í Írak.
There Will Be Blood er tilnefnd
sem besta dramamyndin á Golden
Globes-verðlaununum sem verða af-
hent bráðlega og kemur hún einnig
sterklega til greina í flokk bestu
mynda á Óskarsverðlaununum.
Í Samtökum kvikmyndagagnrýn-
enda í Bandaríkjunum er sextíu og
einn félagsmaður.
Reuters
Bestur Daniel Day-Lewis í hlutverki sínu í There Will Be Blood.
Gagnrýnendur verðlauna
TÓNLEIKAR sem halda átti 9. árið í röð til styrkt-
ar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna milli
jóla og nýárs, en þurfti að fresta vegna veðurs,
hafa fengið nýja dagsetningu. Tónleikarnir fara
nú fram í Háskólabíói sunnudaginn 20. janúar og
hefjast stundvíslega kl. 16. Húsið verður opnað kl.
15.30.
Ljóst mátti vera þegar þurfti að fresta tónleik-
unum að einhverjar breytingar á dagskránni yrðu
óumflýjanlegar en enn sem komið er hefur þó eng-
inn listamaður þurft að fresta þátttöku segir í til-
kynningu frá tónleikahöldurum.
Í gegnum tíðina hefur komið fram á þessum tón-
leikum rjómi þekktustu tónlistarmanna landsins á
hverjum tíma og hafa allir þeir sem koma að tón-
leikunum gefið alla vinnu sína. Nylon Stúlkurnar koma fram á tónleikunum.
Styrktartónleikar fara fram 20. janúar