Morgunblaðið - 07.01.2008, Síða 40

Morgunblaðið - 07.01.2008, Síða 40
40 MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ ÉG MAN eftir því fyrir mörgum ár- um þegar frændurnir Bubbi og Haukur Morthens skiptust á að flytja lög hver annars í sjónvarpssal. Uppátækið vakti mikla lukku, eink- um og sér í lagi vegna þess hve ólíkir tónlistarmenn þeir voru – en þá var Haukur kóngurinn á meðan Bubbi var organdi pönkari. Það var ekki laust við að andi Hauks frænda svifi yfir vötnum í Laugardalshöllinni síð- astliðið laugardagskvöld þegar Bubbi sté þar á svið ásamt Stórsveit Reykjavíkur. Reiði pönkarinn hafði verið skilinn eftir og lög Bubba, í fáguðum útsetningum Þóris Bald- urssonar, fengu að hljóma fyrir áhorfendum sem ný. Bubbi sjálfur er í stórgóðu formi. Hann hafði greinilega gaman af því að flytja lögin sín með bigbandi. Hann var jafnvel örlítið feimnislegur til að byrja með – en feimnin, ef ein- hver var, vék fljótt fyrir alkunnum gáska hans og spilagleði. Útsetn- ingar Þóris Baldurssonar voru með besta móti og fóru lögum Bubba vel. Lögin nutu sín sérlega vel í flutningi Stórsveitar Reykjavíkur sem lék einstaklega vel þetta kvöld. Sam- hæfing Bubba og sveitarinnar var eins góð og á verður kosið – ég vona að þessu samstarfi sé ekki lokið. Garðar Thór Cortes og Ragnar Bjarnason sungu sitt lagið hvor en að Bubba og Garðari ólöstuðum verður að taka fram hve einstakur söngvari Raggi Bjarna er. Hann hef- ur engu gleymt og hljómar rödd hans eins og flauel. Kvöldið var í alla staði vel heppn- að en það sem stóð þó upp úr var leikgleði Bubba. Ég hef áður farið á tónleika þar sem rokktónlistarmenn hafa leitt hesta sína saman við óhefð- bundna flytjendur – svona í rokk- tónlistarlegum skilningi. Það hefur hins vegar átt það til að vera til- þrifalaust og leiðinlegt. Virðing Bubba fyrir samstarfsmönnum sín- um á sviðinu síðastliðið laugardags- kvöld gerði tónleikana að sérstakri reynslu þeirra sem í salnum voru og gæddi þá lífi og sál. Kóngurinn og Stórsveitin TÓNLIST Laugardalshöllin Bubbi Morthens og Stórsveit Reykjavíkur bbbbn Klapp klapp Garðar Cortes lét sig ekki vanta, enda sonurinn á sviðinu, og virtist skemmta sér vel. Góðir „Lögin nutu sín sérlega vel í flutningi Stórsveitar Reykja- víkur sem lék einstaklega vel þetta kvöld.“ Morgunblaðið/Eggert Töff „Bubbi sjálfur er í stórgóðu formi.“ Söngfélagar Raggi Bjarna, Bubbi og Garðar Thór voru góðir saman. Helga Þórey Jónsdóttir Vinir Raggi átti gott faðmlag skilið.Stemning Áhorfendur létu ekki eftir sér að standa upp og klappa með.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.