Morgunblaðið - 07.01.2008, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 07.01.2008, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008 41 ÓPERUFERÐ TIL NEW YORK Vinafélag Íslensku óperunnar stendur fyrir ferð í Metropolitan-óperuna í New York 4.-11. maí 2008. Boðið verður upp á eftirfarandi óperusýningar í ferðinni: Brottnámið úr kvennabúrinu eftir Mozart með Diönu Damrau, Matthew Polenzani og Kristni Sigmundssyni. Macbeth eftir Verdi með Carlos Alvares, Andreu Gruber og René Pape. The First Emperor eftir Tan Tun með Plácido Domingo. Boðið verður upp á aðra menningartengda atburði og verður því um allsherjar menningarferð að ræða. Fararstjórar eru Tómas H. Heiðar, stjórnarformaður Vinafélags Íslensku óperunnar, og Edda Jónasdóttir, starfsmaður markaðssviðs Íslensku óperunnar. Edda Jónasdóttir veitir nánari upplýsingar og annast skráningu í síma 562-1077 kl. 10-16. Einnig er unnt að senda tölvupóst á edda@opera.is. Upplýsingar um ferðina má finna á www.opera.is undir Vinafélagið. Blús Sleðarnir héldu uppi stuðinu á staðnum. Morgunblaðið/Kristinn Sleðakarlar Halldór Jóhannesson rekstrarstjóri og Baldur Baldursson þjónustustjóri Ellingsen. Blús og vélsleðar Í ELLINGSEN á Fiskislóð var kynning á 2008 árgerðinni af Lynx- vélsleða á föstudaginn. Af því tilefni flutti blússveitin Sleðarnir nokkur vel valin lög, meðal annars viðeig- andi Sleðablús. Meðlimir Sleðanna eru þeir Dóri Braga, Bjöggi Gísla, Robbi Þórhalls og Biggi Baldurs. Héldu þeir uppi stemningunni á meðan fólk skoðaði nýjasta vetr- arleiktækið. Mætt Gústaf Franzson, Sigfús Guðnason og Hrafnhildur Jóns- dóttir kíktu á nýjasta sleðann. Kát Ragnar A. Sigurðsson, Þóra Hrönn Nálsdóttir og Sigurjón Pét- ursson. Hressir Steinar Gíslason og Egill Egilsson. Gaman Stella Hlynsdóttir prófaði vélsleða. GRÍNLEIKARINN Jack Black og kona hans Tanya Haden eiga von á sínu öðru barni saman. Þetta til- kynnti Black á laugardag- inn en neitaði að gefa upp hvenær von væri á erf- ingjanum í heiminn. Fyr- ir eiga þau eins og hálfs árs strák. Black seg- ist taka á for- eldra- hlutverkinu frá degi til dags. „Mér hefur verið sagt að tvö börn séu þrisvar sinnum meiri vinna en eitt barn,“ sagði hann í léttum dúr og bætti við: „En þetta er svo skrítið að þrjú börn eru auðveldari en eitt.“ Black fjölgar sér Grín Jack Black með leikkonunni Gwyneth Paltrow.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.