Morgunblaðið - 07.01.2008, Page 43

Morgunblaðið - 07.01.2008, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008 43 Þvottavél verð frá kr.: 99.900 vi lb or ga @ ce nt ru m .is Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri | Sími 588 0200 www.eirvik.is Íslenskt stjórnborð Íslenskar leiðbeiningar Stórt hurðarop 20 ára ending Gerð Listaverð TILBOÐ Þvottavél W1514 142.714 99.900 1400sn/mín/5 kg Þvottavél W1714 172.286 128.464 1400sn/mín/6 kg Þurrkari T7644C 135.571 94.900 rakaþéttir/6 kg Eirvík kynnir sportlínuna frá Miele Miele gæði TILBOÐ SAMKVÆMT árlegri úttekt færði Johnny Depp kvikmyndahúsaeigend- um í Bandaríkjunum mest í vasann af Hollywoodstjörnunum árið 2007. Á árinu birtist Depp í aðal- hlutverki í myndunum Pirates of the Caribbean: At World’s End og Swee- ney Todd og sló þar með út Will Smith, Tom Cruise og George Cloo- ney. Miðar á þessar tvær myndir Depp hafa selst fyrir meira en 340 milljónir dollara í Bandaríkjunum. Þetta er í annað sinn sem Depp er á toppi listans en Pirates of the Caribbean: Dead Man’s Chest skilaði ansi miklu í kassana í kvikmyndahúsum vest- anhafs árið 2006. Annar á listanum er Will Smith með myndina I Am Legend og George Clooney er þriðji með Ocean’s Thirteen og Michael Clay- ton. Tom Cruise, sem hefur oft prýtt fyrsta sæti listans, nær aðeins því sjö- unda núna en aðsókn á mynd hans Lions For Lambs olli vonbrigðum á nýliðnu ári. Engin kvenmaður komst inn á topp tíu listann núna, í fyrsta skipti í 24 ár. Depp færir mestu tekjurnar Johnny Depp Will Smith George Clooney STÓRU fyrirtækin í has- arblaðabransanum héldu áfram að moka út risaseríum sem erfitt er að sjá fyrir endann á. Marvel kláraði Civil War- bálkinn með því að kála sjálfu íkoninu, Captain America. Sú að- gerð gekk einstaklega vel í hönd- unum á Ed Brubaker. Hulk upp- færði sinn hefðbundna berserksgang í Planet Hulk og World War Hulk og stjarnfræði- hetjur Marvel tókust á við al- heimseyðandi öfl í Annihilation. Ég hef alltaf verið svolítið veikur fyrir geimsúperhetjuóperum en Annihilation stóð ekki undir vænt- ingum og jafnvel verndarengillinn minn, sjálfur Silver Surfer var frekar slappur á því. DC á hinn bóginn gerði góða og slæma hluti á árinu. Hin ferska tilraun 52 tókst nánast fullkomlega. Þar fengu 4 heitustu höfundarnir í DC að spreyta sig á því að skrifa sam- an seríu sem kom út á vikufresti með liðsinni margra flinkra teikn- ara. Þegar upp var staðið og 1.144 blaðsíður (með forsíðum) höfðu litið dagsins ljós á einu ári var þetta verkefni leyst vel af hendi og tímamóta súperhetjuverk orðið til. En þeir hjá DC gátu aug- ljóslega ekki setið á sér og stört- uðu strax svipuðu verki, Count- down sem er þeim síst til framdráttar. Betra heima setið þar. Fyrir þá sem ekki þekkja til framleiðsluhluta myndasögugeir- ans er mikilvægt að útskýra að það er oft nokkur misbrestur á því að fyrirtækin komi út verkum sínum á réttum tíma og þar sem myndasögumarkaðurinn er mjög virkur og lesendur velja og hafna með miklum hraða getur það kostað heilu seríurnar lífið ef ein- hvers staðar klikkar í fram- leiðsluferlinu. Það virðist hafa verið raunin í endurræsingu titl- anna The Authority og Wild Cats í umsjá Grant Morrison en þeir eru hægt og enn hægar að hverfa út fyrir radarinn eftir því sem lengra dregur á milli tölublaða. Morrison stendur vaktina betur í Batman og All Star Superman en önnur goðsögn í myndasöguheim- inum, Frank Miller, virðist vera orðinn svo svakalega póstmódern- ískur og kaldhæðinn í skrifum sín- um í All Star Batman and Robin að enginn fattar grínið og allir hætta að lesa. Myndasögur ársins: 1. Garage Band eftir Gipi Myndasöguútgáfan frábæra First Second gaf út tvær bækur eftir þennan unga Ítala á síðasta ári; Notes for a War Story og Ga- rage Band. Báðar bækurnar hefðu sómt sér vel á þessum lista en af þeim tveim er Garage Band fremri og þá kannski helst af því hún sameinar tvær af mínum helstu ástríðum, tónlist og myndasögur. Sagan segir af fjórum ungum strákum sem eru að basla við tón- listarsköpun í bílskúrnum. Bókin skiptist í 5 kafla sem hver lýsir lauslega einu lagi af demó- spólunni sem þá dreymir um að gefa út til að verða uppgötvaðir og hvernig líf þeirra spinnst inn í tón- listina. Allir eiga þeir í storma- sömum samböndum við feður sína og lesandinn fær stöðugt betri inn- sýn í þær flækjur eftir því sem hann les dýpra í söguna. Sagan er mjög sannfærandi og persónurnar eru, þrátt fyrir nokkuð sterk sér- kenni sem oft má finna í sögu- persónum skáldsagna til að gera þær eftirminnilegar, mjög eðlileg- ar í þessu samhengi. Frásögnin er hnitmiðuð og tengir lesandinn mikið út fyrir sjálfan textann sem gefur bókinni aukna dýpt. Teikn- ingarnar gefa síðan tóninn í bók- staflegri merkingu. Pennastrikin eru laus og fíngerð með mikilli hreyfingu. Senurnar þar sem hljómsveitin hamrar sig í gegnum lögin í bílskúrnum eru lifandi og svo orkumiklar að það liggur við að maður leiti að innstungu fyrir hátalara á blaðsíðunni til að leggja við hlustir. Tónlist fyrir augun og besta myndasaga ársins. 2. All Star Superman eftir Grant Morrison og Frank Quietly Það á ekki að vera hægt að gera neitt nýtt úr erkitýpu ofurhetj- unnar, Superman. Því ákvað títt- nefndur Grant Morrison að hverfa aftur til fortíðar og endurvekja gamla fantasíuandann í blöð- um sínum um All Star Su- perman. Hann kúplar sig hér frá þeirri óþarfa dramatík sem umlukið hefur persónuna undanfarna áratugi og býður upp á vísindaskáldsögur þar sem hugarflugið fær að njóta sín. Eins og í verkinu W3 er það Frank Quietly sem held- ur um pennann og gerir það af stakri snilld. Hvert smáat- riði fær að njóta sín og hver endurlestur býður upp á nýja sýn. Hasarblað ársins. 3. I killed Adolph Hitler eft- ir Jason Ég held það hafi verið ára- mótin 2002-2003 sem Norð- maðurinn Jason hlaut topp- sætið með verk sitt Hey Wait. Hann hefur verið nokk- uð brokkgengur síðan og eitt- hvað borið á stöðnun og doða. Nú hefur hann þó hrist af sér slyðruorðið og gefið út frá- bært verk sem fjallar í grunninn um leigumorðingja sem fenginn er til að ráða sjálfa For- ingjann af dögum með tímaflutn- ingi. Það er langt síðan Jason hef- ur náð jafngóðu jafnvægi í súrrealisma, húmor og spennu og í þessu verki. Lesandinn finnur að Jason hefur verið í góðu skapi þegar hann skrifaði bókina sem sýnir að þegar Jason er í stuði þá er hann svo sannarlega með guði. 4. Blame! eftir Tsutomu Nihei Beint í svartholið. Blame! er kolbiksvört martraðarkennd fram- tíðarsýn á japanska vísu. Sögu- hetjan Killy fetar sig í gegn um endalausa ranghala gríðarlegrar byggingar sem viðheldur sjálfri sér með vélmennum sem vinna í hið óendanlega. Á vegi hans verða stöku mannverur og slatti af mjög vel útfærðum sæborgarskrímslum sem hann tekst á við af mikill hörku. Ljósið er af skornum skammti og mött áferð teikning- anna leiðir til þess að lesandanum finnst eins og skuggarnir geymi óræðar hættur. Stemningin í bók- unum er þung en þegar kemur að bardagaatriðunum springa blaðsíð- urnar af hreyfingu svo erfitt getur verið að fylgjast með. Það verður ekki hjá því komist að snúa út úr nafni höfundarins og kalla þetta nihiliskasta verk ársins. 5. The League of Extraordinary Gentelmen: The Black Dossier eftir Alan Moore og Kevin O’Neill Sagan um furðuverurnar í Leyniþjónustu hennar hátignar heldur áfram. Hér hefur Moore náð að toppa sig í tyrfninni þar sem myndasagan blandast saman við langa þykjustutexta úr bók- menntasögunni. Moore sýnir yf- irburðagetu sína til að draga fram það besta úr menningarsögunni til að mynda djúpa og yfirgripsmikla frásögn og þar sem skortir á efni- við skáldar hann í eyðurnar. Þetta er löng lesning og sumt hefði ef- laust mátt missa sig en það er stórkostlegt að sjá að Moore er enn jafnfrjór og áður. Það er jafn- vel að aukist bara á tilrauna- mennskuna með hverri nýrri út- gáfu. Þrívíddargleraugu og allt. Myndasögur ársins 2007 Síðasta ár var eitt af þessum góðu, jöfnu myndasöguárum þar sem margt var ansi gott en fátt stóð virki- lega upp úr. Heimir Snorra- son fer yfir árið 2007 í mynda- söguheiminum. Garage band Tónlist fyrir augun eftir Gipi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.