Morgunblaðið - 07.01.2008, Síða 44

Morgunblaðið - 07.01.2008, Síða 44
ÁRLEG jólaskemmtun Vildarbarna var haldin á Nordica Hilton hótelinu í gær. Trúðurinn Óliver kom í heimsókn og fjölskyldur sem farið höfðu í ferðalög á vegum sam- takanna sögðu frá ferðum sínum og fleira var sér til gamans gert. 70 börn fóru með fjölskyldum sínum til út- landa á síðasta ári í tilefni af 70 ára afmæli Icelandair, en til samanburðar fóru 50 börn til útlanda á vegum sam- takanna árið áður. Ferðalögin eru fjármögnuð m.a. með vildarpunktum og með erlendri smámynt sem farþegar Icelandair gefa í þar til gerð umslög. 70 vildarbörn ferðuðust út Árleg jólaskemmtun Vildarbarna var haldin í gær Morgunblaðið/Kristinn MAÐUR slasaðist illa í andliti þegar hann datt sunnan við Borgarfjarð- arbrú, skammt frá Hótel Venus um miðjan dag í gær, en lögreglan segir að hann hafi verið að skoða brennu á Seleyri. Margir vegfarendur óku fram hjá manninum áður en tveir ökumenn stöðvuðu til að huga að honum. Að sögn lögreglunnar í Borgar- nesi hringdi vegfarandi í hana í gær- kvöldi og sagði ekki rétt sem fram hefði komið að margir ökumenn hefðu ekið fram hjá slösuðum manni, sem hefði legið í vegarkantinum skammt sunnan við Borgarfjarðar- brúna, án þess að koma honum til hjálpar. Í fyrsta lagi hefði hann séð mann, mjög blóðugan í framan, hlaupa álútan og reikulan í spori meðfram veginum og í öðru lagi hefði ekki verið hægt að stöðva vegna mik- illar umferðar. Hann hefði því hringt í neyðarlínuna og fengið þau svör að þegar hefði verið tilkynnt um atvikið og lögreglan væri á leiðinni. Þegar lögreglan kom á staðinn höfðu tveir vegfarendur stoppað til að huga að manninum. Hann var al- blóðugur og illa skorinn í andliti. Maðurinn var fyrst fluttur á Heilsu- gæslustöðina í Borgarnesi og síðan á spítala í Reykjavík. Margir óku fram- hjá slösuðum Vegfarandi segir að ekki hafi verið hægt að stöðva vegna mikillar umferðar Umferð Lögreglan í Borgarnesi fylgdist með við Borgarfjarðarbrú. MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 7. DAGUR ÁRSINS 2008 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Á móti niðurrifi  Ólafur Magnússon, borgarfulltrúi F-listans og forseti borgarstjórnar, vill vernda nítjándu aldar götumynd Laugavegar og leggst gegn því að húsin á Laugavegi 4 og 6 verði rifin eða flutt annað. Segist hann hafa beitt sér af þunga fyrir þessu máli innan meirihlutans og vonast til að hægt verði að bjarga húsunum. » Forsíða Fara yfir útfærslur  Starfshópur á vegum Alþýðu- sambands Íslands og embættis- manna á vegum ríkisstjórnarinnar mun í dag og á morgun fara yfir út- færslur á mögulegum aðgerðum stjórnvalda til að liðka fyrir gerð nýrra kjarasamninga. Gylfi Arn- björnsson, framkvæmdastjóri Al- þýðusambands Íslands, segir að drög að niðurstöðu í þeim efnum séu forsenda þess að hægt sé að setjast yfir launalið nýrra kjarasamninga til tveggja ára með atvinnurekendum. » 2 Eldur við Neshaga  Íbúð á fyrstu hæð í fjölbýlishúsi við Neshaga í Reykjavík er mikið skemmd vegna bruna, reyks og sóts auk þess sem reykur barst í sameign og aðrar íbúðir í stigaganginum. Íbúðin var mannlaus þegar slökkvi- liðið kom á staðinn laust eftir mið- nætti á laugardag og eldsupptök eru óljós en lögreglan útilokar ekkert í því efni. » 4 Sparisjóðunum fækkar  Líkur eru á að sparisjóðum í land- inu haldi áfram að fækka á árinu vegna sameininga. Þeir eru nú tólf talsins og hefur fækkað um 10 síð- ustu fjögur árin. » 9 UMRÆÐAN» Flott án fíknar Skólastefna Springur í Evrópu Möstrin verði fjarlægð FASTEIGNIR» Sögufrægt hús til sölu á Akureyri Hjálpræði er á næsta leiti Minnisblað kaupenda og húsbyggjenda Heitast 0 °C | Kaldast -6 °C Norðlæg eða breyti- leg átt, víðast 3-8 m/s. Bjartviðri en él á Vest- fjörðum og líkur á sjó- komu suðvestanl. » 10 Sæbjörn Valdimars- son velur tíu bestu kvikmyndir ársins 2007 sem fóru ekki í bíó heldur beint á mynddiska. » 38 KVIKMYNDIR» Bestu mynd- diskarnir MYNDASÖGUR» Myndasöguárið 2007 tek- ið fyrir. » 43 Af öllum Hollywood- leikurum skilar Johnny Depp kvik- myndahúsaeigend- um mestum tekjum í kassann. » 43 FÓLK» Depp færir fé í budduna KVIKMYNDIR» Gagnrýnendum þykir Day-Lewis bestur. » 39 FÓLK» Flugan fór á Bubba og Bar 11. » 36 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Magnús Scheving með þeim ríku 2. Óhapp við þrettándabrennu 3. Ekið á stúlku við brennu 4. Óttuðust um syni Britney Ljósv: Listmálari á öldum ljósvaka Staksteinar: Mikilvæg heimsókn Forystugreinar: Sviplaus borg | Hvar eru umbótamálin? NÝ íslensk ópera eftir Svein Lúðvík Björnsson, byggð á sögunni The Spire eftir Willi- am Golding, verð- ur frumflutt á Skálholtshátíð sumarið 2009. Dóttir Golding, Judy Carver leist vel á hugmynd Sveins um óperu eftir sögu föður síns og gerði honum mögulegt að fá rétt til að vinna verkið en Faber & Faber fer með útgáfuréttinn á verkum Goldings. „Ég, sem tónskáld og ein- staklingur hér heima, hafði enga möguleika á að borga fyrir réttinn, það sem Faber & Faber settu upp. Það verð hefði bara verið fyrir Holly- wood,“ segir Sveinn en Breska sendi- ráðið hyggst bjóða erfingjum Gold- ings að koma til Íslands þegar óperan verður frumsýnd. Sveinn Lúðvík segist ekki vita hvað taki við eftir frumuppfærslu verksins. Konunglega óperan í Co- vent Garden hefur þó sýnt nýju óper- unni áhuga. „Þá langar að koma hingað og skoða þegar óperan verður frumsýnd. Það eru reyndar fleiri sem fylgjast með okkur og leikhús í Nor- egi hefur sýnt því áhuga að setja verkið upp. Það eru því allar líkur á því að óperan fari á eitthvert flakk og það þætti mér gaman.“ | Miðopna Vinnur að nýrri óperu Sveinn Lúðvík Björnsson SKOÐANIR» SETT hefur verið á sölu síðasta timb- urstórhýsið, sem reist var í elsta bæj- arhluta Akureyrar, Höepfnershúsið, sem svo er kallað. Húsið hefur lengi þótt með þeim glæsilegustu á Akureyri en lokið var við smíði þess árið 1911. Var eigandi þess danski kaupmaðurinn Carl Juli- us Höepfner en hann var um skeið langumsvifamestur allra kaupmanna í bænum. Var verslun hans í húsinu ein sú glæsilegasta á sinni tíð og var hún oft kölluð „Hvíta búðin“ eftir ljós- um litnum á húsinu auk þess sem hún var óvenjulega björt | Fasteignir Sögufrægt hús til sölu Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Höepfnershúsið á Akureyri. „LÖGIN nutu sín sérlega vel í flutningi Stórsveitar Reykjavíkur sem lék einstaklega vel þetta kvöld. Samhæfing Bubba og sveitarinnar var eins góð og á verður kosið – ég vona að þessu samstarfi sé ekki lok- ið,“ segir Helga Þórey Jónsdóttir, tónlistargagnrýn- andi Morgunblaðsins, meðal annars um tónleika Bubba Morthens og Stórsveitar Reykjavíkur sem fóru fram í Laugardalshöllinni um helgina. Tónleikarnir fá fjórar stjörnur af fimm mögulegum og segir í dómnum að kvöldið hafi í alla staði verið vel heppnað en það sem hafi þó staðið upp úr hafi verið leikgleði Bubba. | 40 Leikgleðin stendur upp úr Bubbi Morthens

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.