Morgunblaðið - 13.01.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2008 B 15
Hafnargötu 2 - Vestmannaeyjum
2. stýrimaður
óskast á neta- og humarbátinn
Gandí VE 171,
Upplýsingar gefur Guðni I. Guðnason
útgerðarstjóri í síma 488 8000 eða 893 9741.
Rafvirkjar
Óskum eftir að ráða rafvirkja til starfa við
almennar raflagnir og tölvulagnir.
Upplýsingar í síma 517 6900 eða
660 6901 á skrifstofutíma 9 til 17
netfang: fagtaekni@fagtaekni.is
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Starfsmannasvið,
Álfabakka 16, 109 Reykjavík www.heilsugaeslan.is
Reykjavík 13. janúar 2008.
Miðstöð heimahjúkrunar
Hjúkrunarfræðingur
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa við Miðstöð
heimahjúkrunar. Um er að ræða starf sem felst í
heimavitjunum með nánu þverfaglegu samstarfi í
aukinni þjónustu við veika aldraða á höfuðborgar-
svæðinu. Um er að ræða samstarfsverkefni
Landspítala háskólasjúkrahúss og Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins og er tilgangurinn að veita
sérhæfða þjónustu við veika aldraða í heimahúsum og
auðvelda þeim að vera lengur heima. Sérstök áhersla
er lögð á teymisvinnu lækna, hjúkrunarfræðinga,
sjúkraliða, félagsliða, sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa.
Einnig er lögð áhersla á stuðning við fjölskyldur þeirra
sem þjónustuna þiggja. Verkefnið hefst að tilstuðlan
Heilbrigðis- og tryggingarmálaráðherra.
Hjúkrunarfræðingur í heimateymi
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa í heimateymi HH
og Lsh við Miðstöð heimahjúkrunar. Um er að ræða
starf sem felst í heimavitjunum með nánu þverfaglegu
samstarfi í aukinni þjónustu við veika aldraða á
höfuðborgarsvæðinu. Viðkomandi þarf að geta hafið
störf sem fyrst.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist til starfsmannasviðs
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík, fyrir 28. janúar 2008.
Sjúkraliðar
Sjúkraliðar óskast til starfa við Miðstöð
heimahjúkrunar sem fyrst eða eftir nánara samkomu-
lagi. Um er að ræða dag- og kvöldvaktir. Starf sjúkra-
liða við Miðstöð heimahjúkrunar krefst sjálfstæðra
vinnubragða og þarf umsækjandi að búa yfir góðri
reynslu og hæfileikum til að geta unnið sjálfstætt. Bíll
til afnota á vinnutíma. Starfsemi heimahjúkrunar er ört
vaxandi, fjölbreytt og mjög gefandi starf. Miðstöðin
sinnir sólarhringsþjónustu.
Hjúkrunarfræðingur í geðteymi
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa í geðteymi
Miðstöðvar heimahjúkrunar. Við teymið starfa tveir
hjúkrunarfræðingar og tveir sjúkraliðar. Leitað er eftir
hjúkrunarfræðingi með geðhjúkrunarmenntun og/eða
mikla starfsreynslu a.m.k. 3 - 5 ára reynslu við
umönnun geðsjúkra. Um er að ræða 100% stöðu.
Viðkomandi þarf að geta unnið mjög sjálfstætt, hafa
góða skipulagshæfileika og starfa sem hluti af teymi.
Nánari upplýsingar um stöðurnar veitir Þórdís Magnúsdóttir forstöðumaður Miðstöðvar heima-
hjúkrunar Heilsugæslunnar í síma 513 1300 eða á netfangi: thordis.magnusdottir@hhjuk.hg.is
Hjúkrunarfræðingur
Heilsugæslan Sólvangi óskar eftir hjúkrunarfræðingi
til starfa við heilsugæsluhjúkrun sem fyrst eða eftir
nánari samkomulagi. Megin starfssvið er
heimahjúkrun og hjúkrunarmóttaka. Hlutastarf kemur
til greina. Starf hjúkrunarfræðings krefst sjálfstæðra
vinnubragða og þarf umsækjandi að búa yfir góðri
reynslu og hæfileikum til að geta unnið sjálfstætt. Bíll
til afnota á vinnutíma.
Hjúkrunarfræðingar í kvöldþjónustu
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa í sameiginlegri
kvöldþjónustu heimahjúkrunar í Hafnarfirði, Álftanesi
og Garðabæ. Vinnutími skiptist í bakvaktir milli kl. 16
- 18:30 og vitjanir frá 18:30 til 23:30. Helgarvaktir eru
ca. þriðju hverja helgi. Starfshlutfall 20 - 40% eða eftir
samkomulagi. Starf hjúkrunarfræðings krefst sjálf-
stæðra vinnubragða og þarf umsækjandi að búa yfir
góðri reynslu og hæfileikum til að geta unnið sjálf-
stætt. Bíll til afnota á vinnutíma. Viðkomandi þarf að
geta hafið störf sem fyrst.
Heilsugæsluna Sólvangi
Upplýsingar um stöðurnar veitir: Kristín Pálsdóttir, hjúkrunarforstjóri Heilsugæslunni Sólvangi
Hafnarfirði í síma 550 2600 eða netfang: kristinp@hgsolvangur.is
Hjúkrunarfræðingur í skóla
Leitað er eftir hjúkrunarfræðing til starfa þar sem
starfssvið er í heilsugæslu í skólum og almenn
hjúkrunarmóttaka. Í starfinu felst heilsuvernd, fræðsla
og stuðningur við skólabörn auk færni í slysa og
sárameðferð. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf
sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Æskilegt er
að umsækjendur hafi sérfræðimenntun í heilsugæslu-
hjúkrun eða búi yfir góðri reynslu í hjúkrun.
Hjúkrunarfræðingar í heimahjúkrun
Leitað er eftir hjúkrunarfræðingi til starfa þar sem
starfssvið er í heimahjúkrun. Starf hjúkrunarfræðings
krefst sjálfstæðra vinnubragða og þarf umsækjandi að
búa yfir góðri reynslu og hæfileikum til að geta unnið
sjálfstætt. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem
fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Bíll til umráða á
vinnutíma.
Heilsugæsluna Kópavogi
Nánari upplýsingar veitir Sigríður A. Pálmadóttir, hjúkrunarforstjóri Heilsugæslunnar Kópavogi
í síma 594 0500 eða 594 0400 og á netfangi: sigridur.a.palmadottir@hgkop.is
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
auglýsir laus störf við:
Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs.
Sjá nánari upplýsingar um störfin á: www.heilsugaeslan.is