Morgunblaðið - 13.01.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2008 B 11
Hafðu samband og fáðu
upplýsingar um Hafnarfjörð
og hundrað ára afmæli
Hafnarfjarðarkaupstaðar í síma
585 5500 og á heimasíðunni www.
hafnarfjordur.is
VELKOMIN TIL HAFNARFJARÐAR!
FÉLAGSLEG HEIMAÞJÓNUSTA
Óskum eftir hressum og áhugasömum starfsmönnum í dag, kvöld- og helgar-
þjónustu hjá Félagsþjónustunni í Hafnarfirði.
Helstu verkefni eru að aðstoða þjónustuþega við athafnir daglegs lífs, auka færni þeirra og
sjálfstæði. Við bjóðum starfsmönnum fjölbreytni í starfi, fræðslu og handleiðslu og öruggt
starfsumhverfi, Í boði er sveigjanlegur starfstími og starfshlutföll eru samkomulagsatriði.
Starfið gerir kröfu um jákvætt viðmót og góðra hæfileika til mannlegra samskipta.
Sjálfstæði og frumkvæði í starfi eru miklir kostir
Við leitum að einstaklingum með félagsliðamenntun eða aðra félagslega menntun, reynslu
eða mikinn áhuga á störfunum.
Laun fara eftir kjarasamningi Hafnarfjarðarbæjar og Verkalýðsfélagsins Hlífar.
Upplýsingar um störfin veita Sjöfn Guðmundsdóttir fulltrúi heimaþjónustudeild
og Kolbrún Oddbergsdóttir deildarstjóri í heimaþjónustudeild í síma 585 5700
FÉLAGSLEG LIÐVEISLA
Félagsþjónustan í Hafnarfirði auglýsir eftir starfsfólki í félagslega liðveislu
fatlaðra samkvæmt lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992.
Sérstaklega vantar starfsfólk í liðveislu fyrir karlmenn á öllum aldri.
Í boði er sveigjanlegur starfstími utan venjulegs vinnutíma. Starf við félagslega liðveislu
gerir kröfu til jákvæðs viðmóts, mannúðlegra viðhorfa og hæfni í mannlegum samskiptum.
Sjálfstæði og frumkvæði í starfi eru miklir kostir. Um er að ræða lærdómsríkt starf og
boðið er upp á handleiðslu með starfinu.
Laun fara eftir kjarasamningi Hafnarfjarðarbæjar og verkalýðsfélagsins Hlífar.
Upplýsingar um starfið veitir Guðrún Þ. Ingólfsdóttir, félagsráðgjafi í síma
585-5700. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á gudruni@hafnarfjordur.is.
RÁÐGJAFI Á SVIÐI FÉLAGSMÁLA
Félagsþjónustan í Hafnarfirði leitar að ráðgjafa í fullt starf til
1. september 2008.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst. Starfið felst aðallega
í afgreiðslu fjárhagsaðstoðar og almennri ráðgjöf varðandi framfærslu,
húsnæðismál o.fl. Við leitum að röskum einstaklingi sem á auðvelt með
að vinna sjálfstætt, er lipur og ákveðinn í samskiptum. Við leitum að
karlmanni ekki síður en konu vegna kynjahlutfalls á vinnustaðnum.
Viðkomandi þarf að hafa lokið prófgráðu á sviði félagsvísinda, sálarfræði
eða uppeldisfræða sem nýst getur í starfi.
Launakjör skv. samningi viðkomandi stéttarfélags og sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 21. janúar.
Nánari upplýsingar veita Ingibjörg Jónsdóttir, deildarstjóri, eða
Sæmundur Hafsteinsson, forstöðumaður, í síma 585 5700.
Umsóknum skal skila til:
Félagsþjónustunnar í Hafnarfirði
Strandgötu 33
220 Hafnarfirði
Verkefnisstjóri - Smitsjúkdómadeild
Project leader – Infectious Diseases
Starfi ð felst í því að leiða rannsóknaverkefni á sviði smitsjúkdóma sem
byggjast á að einangra erfðabreytileika sem valda sjúkdómum og ákvarða á
hvern hátt þessar breytingar leiða til sjúkdóma. Við rannsóknirnar eru tvinnaðar
saman aðferðir sameindalíffræði, tölfræði, erfðafræði og lífefnafræði. Unnið er í
hópum í náinni samvinnu erfðarannsóknasviðs við aðrar deildir fyrirtækisins sem
og stofnanir og háskóla í Bandaríkjunum, Evrópu, Afríku og Asíu.
Vísindamenn með þekkingu á rannsóknum á smitsjúkdómum eru sérstaklega
hvattir til að sækja um.
Hæfniskröfur
Háskólapróf (Ph.D. eða MD.) í sameindalíffræði, lífefnafræði, læknisfræði, töl-
fræði og stærðfræði eða skyldum greinum. Reynsla af störfum á rannsóknar-
stofu er nauðsynleg. Við leitum að öguðum og duglegum einstaklingi sem er
sjálfstæður og vinnur vel í hóp.
Íslensk erfðagreining er í fararbroddi rannsókna á erfðum algengra sjúkdóma
og býður starfsmönnum upp á mikla möguleika á starfsþróun og símenntun í
alþjóðlegu starfsumhverfi sem einkennist af nýsköpun, hugmyndavinnu og
góðum starfsanda.
Sérfræðingur í lífsýnadeild
Research Associate – Biological materials
Íslensk erfðagreining leitar að sérfræðingi í Lífsýnadeild fyrirtækisins, um er að
ræða einangrun á DNA úr lífsýnum, frumuræktun, undirbúning DNA sýna fyrir
arfgerðagreiningu ásamt umsjón með lífsýnabanka.
Hæfniskröfur
Háskólapróf (B.Sc.) í sameindalíffræði, lífefnafræði eða skyldum greinum.
Reynsla af störfum á rannsóknarstofu er æskileg. Við leitum að duglegum og
röskum einstaklingi sem er sjálfstæður, skipulagður og á auðvelt með að vinna
með öðrum.
Nánari upplýsingar er að fi nna á heimasíðu ÍE og hjá Starfsmannaþjónustu ÍE:
careers@decode.is / 5701900.
Íslensk erfðagreining I Sturlugötu 8 I 101 Reykjavík I s: 5701900 I www.decode.is I info@decode.is I careers@decode.is
Umsækjendur eru beðnir um að skila umsóknum á umsóknavef Íslenskrar erfðagreiningar
(www.decode.is) og láta stutt yfi rlit um reynslu af rannsóknarstörfum fylgja umsókn, þ.m.t.
aðferðir sem notaðar voru, auk lýsingar á áhugasviði ásamt upplýsingum um meðmælendur.
Sérfræðingur á erfðarannsóknarsviði
Research Associate/Scientist – Population Genomics
Íslensk erfðagreining leitar að sérfræðingum til starfa á erfðarannsóknarsvið, við
rannóknir á algengum sjúkdómum. Verkefnin felast í úrvinnslu gagna í meingena-
leit þar sem tvinnaðar eru saman aðferðir sameindalíffræði, erfðafræði og lífefna-
fræði. Störfi n eru unnin í hópum sem starfa saman að ákveðnum sjúkdómsverk-
efnum í samvinnu við aðra sérfræðinga og hópstjóra Íslenskrar erfðagreiningar.
Hæfniskröfur
Háskólapróf (B.Sc. eða M.Sc) í sameindalíffræði, lífefnafræði eða skyldum grein–
um. Við leitum að duglegum, sjálfstæðum og metnaðarfullum einstaklingum sem
sem eru skipulagðir og eiga auðvelt með að vinna í hóp.
Bókari
Íslensk erfðagreining leitar að bókara í fjármáladeild fyrirtækisins, um er að ræða
færslu fjárhagsbókhalds, viðskiptamanna- og lánadrottna. Bókhaldið er unnið frá
grunni til endurskoðunar. Starfi ð felur einnig í sér reikningagerð, uppgjör og ýmis
önnur sérverkefni.
Hæfniskröfur
Viðskiptafræði eða sambærileg menntun æskileg. Reynsla af starfi í bókhaldi og
bókhaldsþekking er áskilin. Góð enskukunnátta, kunnátta á Navision bókhald-
skerfi og Excel er einnig skilyrði. Við leitum að sjálfstæðum og öguðum ein-
stakling sem á auðvelt með samskipti.