Morgunblaðið - 13.02.2008, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
„STJÓRN BSRB mótmælir harð-
lega þeirri kröfu sem Samtök at-
vinnulífsins hafa sett fram á hendur
ríkisstjórninni um að hún fylgi
þeirri launastefnu sem mótuð verði
við samningaborð Samtaka atvinnu-
lífsins,“ segir í ályktun sem stjórn
BSRB sendi frá sér í gær.
BSRB segir ennfremur að þessi
krafa „um forræðisvald atvinnurek-
enda er ósvífin og ólýðræðisleg því
hún byggir á því að hundsaðar
verði kröfur sem fram koma frá
hendi samtaka opinberra starfs-
manna í kjarasamningum þegar
þeir losna í vor“. Þá segir í álykt-
uninni að standi vilji SA til þess að
semja á einu borði um samræmda
stefnu þá sé það sjálfstæð ákvörðun
sem semja verður um. „Engin slík
ákvörðun hefur verið tekin enda
nokkuð í land að samningar aðild-
arfélaga BSRB við ríki og sveit-
arfélög verði lausir.“
SA hafa lagt áherslu á þátttöku
stjórnvalda í kjarasamningunum,
m.a. um að hið opinbera hækki ekki
laun starfsmanna sinna umfram það
sem gerist í almennum kjarasamn-
ingum. Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri SA, sagði í gær að í
samningunum á almenna markaðin-
um væru menn að reyna að for-
gangsraða kjarabótum miðað við
það svigrúm sem fyrir hendi væri
og ef hið opinbera semdi um mun
meiri hækkanir til starfsmanna
sinna myndi það brjóta niður allt
það sem aðilar vinnumarkaðarins
væru að reyna að gera í komandi
samningum.
Mótmæla
kröfu um
launastefnu
ROSKINN ökumaður slasaðist tölu-
vert í hörðum árekstri tveggja bif-
reiða í Kelduhverfi í gær, að sögn
lögreglunnar á Húsavík. Var maður-
inn fluttur með sjúkrabifreið á
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Tildrög slyssins voru þau að mað-
urinn hugðist þvera veginn á bifreið
sinni en ók um leið í veg fyrir aðvíf-
andi bíl sem skall á fyrirstöðunni.
Maðurinn sem slasaðist mun ekki
hafa verið með bílbelti og kastaðist
út úr bifreið sinni.
Lögregla og sjúkralið voru kölluð
á vettvang og eru tildrög slyssins nú
í frekari rannsókn hjá lögreglunni á
Húsavík.
Harður
árekstur
ÞEIR deyja ekki ráðalausir, Ís-
firðingar. Þó nokkur snjór hefur
verið í bænum og yfirleitt er sú
aðferð notuð að sturta moksturs-
afurðum í sjóinn eftir að götur
bæjarins hafa verið hreinsaðar.
Erik Newman, nýr eigandi
Kaffi Edinborgar, sá sér þó leik á
borði og ákvað að nýta snjóinn
sem til félli á nýstárlegan hátt.
Hann tók formlega við rekstrinum
í fyrrakvöld og hellti sér þegar í
miklar framkvæmdir við snjó-
húsagerð. „Við hittumst í gær, ég
og fráfarandi vertinn, vinur minn,
og hann sagði mér að hann hefði
haft hugmynd um að gera þetta
einhvern tímann og við ákváðum
bara strax að sjá hvort við gætum
þetta ekki,“ segir Erik.
Hann fékk nokkra í lið með sér
og fyrir kvöldið var húsið risið.
Sjö manns tóku þátt í húsagerð-
inni og Erik segir að fleiri tonn-
um af snjó hafi verið handmokað
út úr haugnum sem vinnuvélar
höfðu skilað af sér uppi við húsið.
Snjóhúsið er tíu metrar á lengd
og fimm til sex metrar á breidd.
„Við ætlum að vökva það í
kvöld [gærkvöld] með vatni og
vona að það frysti í nótt. Svo á að
hlána, en við ætlum að setja plast
yfir þetta og vonum að þetta
haldist fram yfir helgi.“ Erik seg-
ir að þegar aðstæður leyfi muni
áfram stefnt að því að hafa snjó-
hús við Kaffi Edinborg. Í því er
aðstaða fyrir þá gesti Kaffi Ed-
inborgar sem reykja, og þeir
þurfa þá ekki að híma úti undir
vegg í stormum og stórviðrum.
Að sögn Eriks voru grafnir út
bekkir til að sitja á, kveikt verður
á kertum „… og svona hugguleg-
heit. Reykingamenn hafa staðið
hérna úti í kulda, vondu veðri og
stormum að undanförnu og þeir
eru mjög ánægðir í kvöld“, sagði
Erik.
Hann er stórhuga og bjartsýnn
á reksturinn. Í bígerð eru tón-
leikar og ýmsar uppákomur á
Kaffi Edinborg, Erik nefnir m.a.
að Bloodgroup og Ný dönsk muni
spila á næstunni. „Svo verður
ljóðalestur í kaffihúsinu og ým-
islegt fleira um að vera,“ segir
hann.
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Ráð undir
rifi hverju
Nýstárleg reykingaaðstaða við Kaffi Edinborg á Ísafirði
♦♦♦
„VIÐ erum mjög ánægð með að KSÍ,
sem vissulega hefur verið karlaveldi í
gegnum tíðina, leggi vinnu í að breyta
sínum áherslum,“ segir Silja Bára
Ómarsdóttir, fulltrúi Femínistafélags
Íslands, um jafnréttisstefnu sem
Knattspyrnusamband Íslands sam-
þykkti á ársþingi sínu fyrr í vikunni.
Markmiðið með áætluninni er „að
tryggja jafna möguleika allra til
knattspyrnuiðkunar á Íslandi“. Áætl-
unin byggist á gildandi lögum og
mannréttindasáttmálum sem Ísland
er aðili að. KSÍ og aðildarfélög munu
því í framtíðinni hafa jafnréttismál að
leiðarljósi í starfsemi sinni og eiga
þau að fléttast saman við alla knatt-
spyrnuiðkun á Íslandi.
Silja Bára segir sérstaklega
ánægjulegt að sjá að með jafnrétt-
isáætluninni fylgi aðgerðaáætlun.
Það sé nokkuð sem oft vanti þegar
slíkar áætlanir séu unnar. „Á vinnu-
markaði vantar oft að slíkt sé gert
sem vill leiða til þess að jafnrétt-
isáætlanir verða aldrei meira en
formleg plögg sem hvorki eru lifandi
né virt.“ Silja segir því greinilegt að
stjórn knattspyrnusambandsins sé al-
vara með áætluninni og ástæða sé til
að fagna því.
Meðal markmiðanna sem KSÍ set-
ur sér er að fjölga kvendómurum og
þjálfurum, fjölga konum í stjórnum
knattspyrnufélaga, skipa sérstakan
jafnréttisfulltrúa og veita jafnréttis-
viðurkenningu KSÍ á hverju ársþingi
félagsins.
KSÍ samþykkir jafnréttisáætlun
„Ánægjulegt“
segja femínistar
GRUNNSKÓLANEMAR og for-
eldrar þeirra ræddu örugga netnotk-
un á málþingi sem haldið var í gær á
Alþjóðlega netöryggisdeginum 12.
febrúar og kom þar fram mikill sam-
hljómur þátttakenda um kosti og
galla netsins.
Að sögn Maríu Kristínar Gylfa-
dóttur, formanns Heimilis og skóla,
voru allir sammála um að netið væri
mikil upplýsinga- og samskiptabylt-
ing sem hefði aukið aðgengi að námi
og rofið einangrun sumra þjóð-
félagshópa, ásamt því að styðja lýð-
ræðisþróun og bjóða upp á afþrey-
ingu, þjónustu og verslun.
Þegar gallar netsins voru ræddir
tilgreindu nemarnir þætti á borð við
villandi auglýsingar og sögðu frá því
að mjög auðvelt
væri að komast
inn á klámsíður
og einnig væri
auðvelt að sigla
undir fölsku
flaggi.
„Krakkarnir
gerðu sér grein
fyrir því að slíkt
væri ekki rétt,“
segir María
Kristín.
Foreldrarnir fjölluðu um ójöfnuð í
tengslum við tölvueign með því að
gert væri ráð fyrir því að allir ættu
nettengda tölvu nú á dögum „Það
eru ákveðnir þjóðfélagshópar, t.d.
innflytjendur, sem hafa ekki sama
aðgengi og geta orðið útundan,“
bendir María Kristín á.
Á þinginu var einnig rætt um
bloggið og ákveðið tilfinningalegt
hömluleysi sem þrifist á þeim vett-
vangi. Tilgreint var að ákveðnar
ranghugmyndir væru meðal ungs
fólks og hinna eldri um að blogg væri
einkamál hvers og eins. Gestir á mál-
þinginu töldu þá að siðferði væri
ábótavant í bloggheimum og erfitt
væri að vernda friðhelgi einkalífsins.
Á þinginu kom fram sú ósk að fólk
sýndi ábyrgð á netinu og jafnframt
var fjallað um mikilvægi fræðslu um
örugga netnotkun.
Veitt voru verðlaun fyrir jafn-
ingjafræðsluefni um netið og hlutu
þau Háteigsskóli og Síðuskóli.
Mikil samskiptabylting
en á sér dökkar hliðar
Kostir og gallar netsins í brennidepli á málþingi SAFT
María Kristín
Gylfadóttir
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
ELDSNEYTISVERÐ hækkaði í gær og kostar
nú lítrinn af 95 oktana bensíni í sjálfsafgreiðslu á
bensínstöðvum 137,90 kr. Lítrinn af díselolíu í
sjálfsafgreiðslu er á 142,4 kr.
Með fullri þjónustu kostar bensínlítrinn 142,90
og díselolía 147,40 kr.
Snögg viðbrögð hjá félögunum
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags
íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, segir lækkandi
gengi krónunnar og hækkun heimsmarkaðsverðs
hafa sitt að segja en hitt sé athyglisvert, hversu
snögg olíufélögin eru að hækka eldsneytið. „Síð-
ustu daga og vikur hefur lækkun á eldsneytisverði
ekki skilað sér til neytenda,“ bendir hann á. „Nú
hafa orðið hækkanir á heimsmarkaðsverðinu og
viðbrögð olíufélaganna eru nokkuð snögg.
Þetta er hæsta verð sem við höfum nokkurn
tíma séð á bensíni og díselolíu.“
Runólfur segist að vissu leyti bjartsýnn á að
hækkanirnar muni ganga til baka, en tekur fram
að í raun sé ekkert sérstakt sem styrki þá skoðun
sína.
Áhrif gengis koma sterkt inn
„Áhrif gengis koma sterkt inn, í þessari viku
hefur Bandaríkjadalur hækkað um liðlega fjórar
krónur sem á eftir að skila sér í hærra eldsneyt-
isverði á markaði.“
Runólfur segist horfa til dagsins í dag, miðviku-
dags, varðandi það hvort frekari breytingar á
eldsneytisverði muni koma fram. Þá sé hægt að
meta hvort hækkunin í gær hafi reynst vera
„skot“ eða hækkun sem muni vara lengur.
Í byrjun ársins 2007 var algengt sjálfsaf-
greiðsluverð á 95 oktana bensíni um 111 krónur og
síðsumars var verðið komið í 125 krónur.
Að fylla jeppa með 70 lítra díselolíutank kostar
núna nærri 10 þúsund krónur. Fullur tankur af
bensíni á fólksbíl með 50 lítra bensíntank kostar
nú tæpar sjö þúsund krónur en kostaði um 5.500
krónur fyrir um ári.
„Hæsta verð sem við höfum
nokkurn tíma séð á bensíni“