Morgunblaðið - 13.02.2008, Page 31

Morgunblaðið - 13.02.2008, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 31 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Heilsa REYKSTOPP MEÐ ÁRANGRI STREITU- OG KVÍÐALOSUN. Notuð er m.a. dáleiðsla og EFT (Emotional Freedom Techniques). Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur, sérfræðingur í EFT, sími 694-5494, www.EFTiceland.com. Mikið úrval fæðubótarefna Prótein - Kreatín - Glútamín - Gainer Ármúla 32. Sími 544 8000 Opið mán.-fös. frá kl. 10-18. Húsnæði í boði Íbúð til leigu Björt og falleg 2 herbergja íbúð til leigu í Njarðvík. Verð 75 þús. Íbúðin er laus strax. Upplýsingar gefur Berglind í síma 868 8376. Sumarhús Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Námskeið Vefinn í verklagið: Spennandi námskeið "Láttu netið vinna fyrir þig" 21. feb. fyrir fagfólk á ýmsum sviðum, háskólanema o.fl. "Konur - með á nótunum" 28. feb. Nánari uppl. á á www.infopro.is. Microsoft-kerfisstjóranám MCSA-kerfisstjóranámið hefst 25. febr. Nýr Windows Vista áfangi. Nokkur sæti enn laus. Upplýsingar á www.raf.is og í síma 863 2186 (Jón). Rafiðnaðarskólinn. Tómstundir Plastmódel í miklu úrvali. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600. www.tomstundahusid.is Til sölu Til sölu fatastandar fyrir verslanir, slár á hjólum og herðartré. Upplýsingar í síma 6963900 Tékkneskar og slóvenskar handslípaðar kristal- ljósakrónur. Mikið úrval. Frábært verð. Slóvak kristall, Dalvegi 16b, Kópavogi. S. 544 4331. Stórir skór.is hætta 50-70% afsláttur af öllum dömuskóm í stærðum 42-44 og herraskóm í stærðum 47-50. Opið í dag kl. 16-18.30. Síðasti dagur á föstudag. Ásta skósali, Súðarvogi 7, sími 553 60 60. Þjónusta Grafa (3,0 t) til allra verka. Lagnir, rotþrær, múrbrot, stauraborun, lóðavinna, smíðavinna, einkum sólpallasmíði og almenn lóðavinna. Starfssvæði: höfuðborgar- og Suðurlandið. Halur og sprund, verktakar, ehf., sími 862 5563, www.lipurta.com Ýmislegt sýningarkerfi 580 7820 MarkBric BannerUp Taska fylgir myndrenninga- 580 7820 standar Vefhýsing og heimasíðugerð Svissnesk gæði á ótrúlegu verði. 50GB á 115 evrur. Við erum að tala um ársverð .... lestu meira hér á netsíðu: www.icedesign.ch Fóðruð vetrarstígvél fyrir dömur í úrvali. Stærðir 37 - 42 Verð frá: 6.850.-.- Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070. Opið mán.-föst. 10-18, og laugardaga 10-14 Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. Vélar & tæki Til leigu með/án manns. Gerum einnig tilboð í hellulagnir og drenlagnir. Upplýsingar í síma 696 6580. Bátar Vantar góðan plastbát strax max. 10,99 m, godan lúkar, net, hand, verð 6-7 millj., myndir óskast sendar, olebloe@gmail.com Jeppar Volvo XC90, diesel árg. 2007 Umboðsbíll, Gæðabíll í fullri ábyrgð. Inscription leður, lúga, krókur, 7 manna o.m.fl. Verð 6,3. Tilboð eða skipti. Uppl. 660-1000. Ökukennsla Bílaskóli.is Bókleg námskeið - ökukennsl - akstursmat - kennsla fatlaðra Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '06. 696 0042/566 6442. Sigurður Jónasson Toyota Rav4 ‘06. 822 4166. Snorri Bjarnason Nýr BMW 116i ´07. Bifhjólakennsla. 892 1451/557 4975. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '06 . 892 4449/557 2940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 863 7493/557 2493. Yaris, árg. '05, EKKERT ÚT Yaris´05, ekinn 67 þús., beinsk., 5 dyra, nýskoðaður ´09, ný nagladekk, óslitin sumardekk. Ekkert út, Yfirtaka á láni 980 þús. 19 þús. á mán. Uppl. í síma 865 0713. 3ja herb íbúð til leigu í Vesturbæ Falleg þriggja herbergja íbúð (87 fm) til leigu á Lynghaganum í Vesturbæn- um. Laus strax. Langtímaleiga. Verð 140.000 kr. á mánuði. Uppl.: netfang: atlimar1@gmail.com Bílar Hinn 13. febrúar verður Einar Hann- esson, fyrrverandi skrifstofustjóri á Veiðimálastofnun, áttræður. Við undir- ritaðir viljum senda honum innilegar heillaóskir í tilefni dagsins og þökkum honum gott samstarf á liðnum árum. Einar hóf störf hjá veiðimálastjóra vorið 1947, þá nýútskrifað- ur frá Samvinnuskól- anum. Störf hans voru mjög fjöl- breytt og vann hann jöfnum höndum að fiskrannsóknum og skrifstofuhaldi fyrir embættið. Einnig vann hann að öflun ýmis konar skýrslna um veiði og fisk- rækt, t.d. söfnun veiðiskýrslna varðandi laxveiðina hér á landi. Einnig kom hann að félagslegum þætti veiðimála með aðstoð við stofnun veiðifélaga. Einar var burðarás í þeirri þróun og kom að stofnun fleiri veiðifélaga en nokk- ur annar. Með auknum umsvifum jókst skrifstofuhald og Einar starfaði þá sem skrifstofustjóri til loka starfsferils síns hjá Veiði- málastofnun. Einar naut þess að vinna að félagsmálum enda fé- lagslyndur og áhugasamur um slík málefni. Hann var samviskusamur og átti auðvelt með að umgangast fólk, sem kom sér vel í samskipt- Einar Hannesson um hans við fjölda veiðieigenda og veiði- manna. Einar skrif- aði um veiðimál í dagblöðum landsins og fjölda greina um einstaka þætti veiði- mála í ýmis tímarit. Hæst ber greinar um fiskrækt og laxastiga hér á landi og ýmsa aðra þætti veiðimála. Með skrifum sínum vann hann merkilegt kynningarstarf, sem byggðist á víðtækri þekkingu. Eftir 40 ára starfsferil hjá Veiði- málastofnun starfaði Einar hjá Landssambandi veiðifélaga sem framkvæmdastjóri. Þar kom reynsla í veiðimálum að góðum notum og þangað leituðu margir veiðiréttarhafar. Einar var ritari nefndar, sem endurskoðaði hluta laxveiðilaganna um 1994. Kom sér þá vel yfirgrips- mikil þekking hans á veiðimálum. Auk starfsemi að veiðimálum hef- ur hann starfað mikið í Góðtempl- arareglunni og gegnt trúnaðar- störfum innan hennar. Kona Einars var Katrín Péturs- dóttir, sem lést fyrir nokkrum ár- um. Við sendum Einari og fjölskyldu hans bestu kveðjur og árnaðar- óskir í tilefni dagsins. Árni Ísaksson, Þór Guðjónsson. AFMÆLI FRÉTTIR FÉLAG um hugræna atferlis- meðferð boðar til málþings um af- leiðingar áfalla og meðferð þeirra í sal Þjóðminjasafnsins 15. febr- úar kl. 13-17. Á síðastliðnu ári hefur verið mikil umræða í þjóðfélaginu um alvarleg áföll, eins og ofbeldi og bílslys, og vitað er að áföll geta haft alvarlegar og víðtækar afleið- ingar, segir í fréttatilkynningu. Skoðuð verður birtingarmynd sál- rænna afleiðinga og þau meðferð- arúrræði sem sýnt hafa góðan ár- angur við að hjálpa fólki að ná bata í kjölfarið. Í tilkynningunni segir að mál- þingið sé öllum opið og ætlað að stuðla að þverfaglegri umræðu um víðtækar afleiðingar áfalla og þau meðferðarúrræði sem í boði eru. Til þess hafi verið fenginn þverfaglegur hópur sérfræðinga í afleiðingum áfalla til þess að koma saman og fjalla um efnið frá ýms- um sjónarhornum. Frummælendur verða: Mar- grét Blöndal hjúkrunarfræðingur, Sigfinnur Þorleifsson prestur, Guðbrandur Árni Ísberg sálfræð- ingur og dr. Berglind Guðmunds- dóttir sálfræðingur. Aðgangseyrir á málþingið er 1.000 krónur. Málþing um afleiðingar áfalla og meðferð þeirra Geðheilbrigðisþjónusta við börn í dreifbýli var til umræðu á ráð- stefnu sem haldin var á Ak- ureyri í lok ágúst síðastliðnum. Í erindi sem Kristín Guðmunds- dóttir, aðjúnkt við Félagsvís- inda- og lagadeild Háskólans á Akureyri, flytur í dag tekur hún upp þráðinn frá því í haust. Er- indið verður haldið á Félagsvís- indatorgi í dag, miðvikudaginn 13. febrúar kl. 12 í L 201, Sól- borg, í Háskólanum á Akureyri. Hún beinir sjónum að rann- sóknum á íhlutun barna með sérþarfir, þ.e. sannreyndum að- ferðum (evidence-based practi- ces). Sérstaklega verður fjallað um íhlutun fyrir börn með al- varleg frávik í þroska og hegð- un sem þurfa á mjög sérhæfðri þjónustu að halda, en búa fjarri stöðum þar sem slíka þjónustu er að fá, segir í fréttatilkynn- ingu. Spurningum verður velt upp hvernig unnt sé að veita þessum börnum viðunandi þjónustu, segir í fréttatilkynn- ingu. Ræðir þjónustu við börn með sérþarfir í dreifbýli ÁRSFUNDUR Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði verður haldinn í hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, stofu 103, 1. hæð, Eirbergi, Eiríksgötu 34, fimmtudaginn 14. febrúar kl. 14. Þess verður sérstaklega minnst á fundinum að áratugur er liðinn frá því að fyrstu MSc-nemendurnir voru teknir inn í framhaldsnám við hjúkr- unarfræðideild HÍ og að fyrstu nem- endur með embættispróf í ljósmóð- urfræði útskrifuðust frá deildinni. Yfirskrift fundarins er Hjúkrun og heilbrigðisvísindi. Fundarstjóri verður Hildur Friðriksdóttir, forstöðumaður Rannsóknastofnunar í hjúkrunar- fræði. Ársfundur Rann- sóknastofnunar í hjúkrunarfræði MIÐVIKUDAGSFYRIRLESTUR Kenn- araháskóla Íslands verður 13. febrúar í Bratta, fyrirlestrarsal í Kennarahá- skóla Íslands kl. 16-17. Fyrirlesturinn fjallar um reynslu og upplifun kennara af erlendum uppruna af því að starfa í grunnskólum á Ís- landi. Fyrirlesari að þessu sinni er Björk Helle Lassen, kennari við Ing- unnarskóla í Reykjavík. Hún leitar m.a. svara við því hvernig upplifun kenn- aranna er af samspili menningarheima og hvaða áhrif það hefur haft á líf þeirra og starf, segir í fréttatilkynn- ingu. Í tveimur menn- ingarheimum ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.