Morgunblaðið - 13.02.2008, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
ALÞJÓÐLEG kvikmyndahátíð í
Reykjavík endurreisti síðasta vet-
ur kvikmyndaklúbbinn Fjalakött-
inn ásamt fagfélögum kvikmynda-
gerðarmanna og leikara.
Klúbburinn tekur aftur til starfa
næstkomandi sunnudag og verður
sem fyrr með starfsemi sína í
Tjarnarbíói.
Vera Sölvadóttir hjá Alþjóðlegri
kvikmyndahátíð segir að Fjalakött-
urinn verði með sama sniði nú og í
fyrra. „Það verður kannski aðeins
fjölbreyttara myndaval hjá okkur
nú. Alls verða um sautján myndir
á dagskrá klúbbsins og er dag-
skránni skipt í fjóra meginflokka:
Erlend djásn, Nýjar þýskar, Norð-
urlönd og Truffaut-helgi. Við mun-
um m.a. frumsýna nýja íslenska
heimildarmynd að nafni Ketill um
Ketil Larsen. Þetta verður góð
blanda af gömlum og nýjum mynd-
um,“ segir Vera.
Opnunarmynd Fjalakattarins í
ár er heimildarmyndin Joy Divi-
sion sem fjallar um breska rokk-
bandið Joy Division. Klúbbnum
lýkur síðan í ár með sérstakri
helgi tileinkaðri franska leikstjór-
anum Francois Truffaut með sýn-
ingum á fimm myndum eftir hann.
Þess má geta að í flokknum Er-
lend djásn verður sýnd myndin
Hrossaþjófarnir eftir Micha Wald
en í henni hljómar tónlist eftir Jó-
hann Jóhannsson sem var samin
við íslenska leikritið Englabörn.
Allt úr sömu áttinni
Vera segir að Fjalakötturinn
hafi farið hægt af stað í fyrra en
þegar á leið hafi aðsóknin verið
mjög góð.
„Um leið og fólk fattaði Fjala-
köttinn í fyrra virkaði hann stórvel
og ég held að það sé alveg mark-
aður fyrir slíkan klúbb. Mér finnst
persónulega ekki vera gott fram-
boð af kvikmyndum hér á landi.
Það er kannski mikið framboð af
myndum en þær koma allar úr
sömu áttinni. Ég finn fyrir því að
fólk er mjög ánægt með þetta
framtak og sammála því að það sé
ekki nægilegt úrval í kvikmynda-
húsum,“ segir Vera og bætir við að
svona kvikmyndaklúbbur þyrfti
helst að vera starfræktur allt árið
um kring. „Það er langtímamark-
mið að hafa Fjalaköttinn í lengri
tíma í senn en þetta snýst um pen-
inga og húsnæðismál.“
Sýningar Fjalakattarins fara
fram á sunnudögum og mánudög-
um í Tjarnarbíói frá 17. febrúar og
til 24. mars. Hvern sýningardag
eru þrjár til fjórar sýningar. Hægt
er að kaupa sig á stakar sýningar
en einnig er hægt að skrá sig í
kvikmyndaklúbbinn Fjalaköttinn á
heimasíðunni www. filmfest.is. Fé-
lagsgjald er 5.000 kr. og veitir það
aðgang fyrir einn að öllum sýn-
ingum klúbbsins fram til marsloka.
Kisi fær enn eitt líf
Kvikmyndaklúbburinn Fjalakötturinn verður starf-
ræktur frá 17. febrúar til 24. mars í Tjarnarbíói
Djásn Fjalakötturinn sýnir mynd um breska rokkbandið Joy Division.
www.filmfest.is
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
EÐA að minnsta kosti í þunga-
rokksheimsfréttunum. Þessi
síðþungarokkssveit, sem á heima-
haga bæði í Breiðholti og Kópavogi,
hefur verið að hræra hressilega upp
í íslenskum jaðarrokksheimum að
undanförnu en fyrir stuttu kom út
fyrsta plata sveitarinnar, At The
Borders Of Arcadia. Fréttaveitan
blabbermouth.net, sem eru undir
hinu stóra og stæðilega útgáfufyr-
irtæki Roadrunner Records, hefur
nú birt frétt þess efnis að Celestine
sé búin að skrifa undir samning við
útgáfufyrirtækið Milkweed Records
sem gerir út frá Bandaríkjunum.
Þessi fréttaveita hefur mikið
vægi á heimsvísu og er gríðarlega
öflug og vel uppfærð en þungarokk-
arar hvaðanæva flykkjast þangað
inn til að lepja upp fréttir af nýj-
ustu þreifingum stórstjarnanna, og
því óneitanlega athyglisvert að sjá
frétt af Celestine innan um fréttir
af Slayer, Metalica og Kiss. Celest-
ine er lýst í fréttinni sem íslenskri
síðþungarokkssveit (e.post metal)
og hún dragi dám af sveitum eins
og Isis, Buried Inside og Mes-
huggah. Sagt er frá því að nefnd
plata komi út á Milkweed Records
síðar á þessu ári. Milkweed Re-
cords er smátt í vexti en samanber
heimasíðu fyrirtækisins stendur
mikið til á næstunni og er líklegasta
skýringin á að frétt þaðan hafi rat-
að inn á blabbermouth. At The Bor-
ders of Arcadia kemur svo út hjá
Sound Devastation Records í Bret-
landi sem er annað smáfyrirtæki og
þá er sjötomma í burðarliðnum með
þýsku sveitinni Actress. Celestine
fer á Evróputúr í sumar en hún
hélt útgáfutónleika í Heillinum,
TÞM, föstudaginn síðasta er lægðin
djúpa lagðist á landið og tré rifnuðu
upp með rótum …
Árvakur/Golli
Eftirtektarverðir Ekki leið langur tími frá því að fyrsta plata Celestine, At
the Borders of Arcadia, kom út þar til umheimurinn tók við sér.
Celestine í
heimsfréttunum …
www.myspace.com/celest-
inemusic
* Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ*
Meet the Spartans kl. 4 - 6 - 8 - 10
Ástríkur á Ólympíul.. kl. 3:30 - 5:40
Walk hard kl. 6 - 8 - 10 B.i.14 ára
Brúðguminn kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára
Brúðguminn kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LÚXUS
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í SmárabíóSími 462 3500 Sími 564 0000
Sími 551 9000
FYRST RAY,
SÍÐAN
WALK THE LINE...
NÚ ER KOMIÐ AÐ
DEWEY COX !!
FRÁ GAURNUM SEM FÆRÐI ÞÉR
KNOCKED UP, SUPERBAD OG TALLADEGA NIGHTS
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUM
EITTHVAÐ SKELFILEGT
ER Á SVEIMI!
eee
DÓRI DNA, DV
eee
- V.I.J., 24 STUNDIR
eee
- S.V, MBL
FERÐIN TIL DARJEELING
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUM SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI
SÝND Í REGNBOGANUM
NÚ VERÐUR ALLT
VITLAUST!
SÝND Í REGNBOGANUM
Missið ekki af einum
flottasta spennutrylli ársins!!
Cloverfield kl. 8 - 10 B.i.14 ára
Alvin og íkornarnir ísl. tal kl. 4
Meet the Spartans kl. 6 - 8 - 10
Walk hard kl. 6 - 8 B.i. 14 ára
The Darjeeling Limited kl. 6 - 10:10 B.i. 12 ára
Brúðguminn kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára
Aliens vs. Predator kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
SÝND Í SMÁRABÍÓI
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
- S.V. MBL
Rambo kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Ástríkur á Ólympíul.. kl. 5:30
Brúðguminn kl. 8 B.i. 7 ára
Atonement kl. 5:30 - 10 B.i. 12 ára
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
- V.I.J. 24 STUNDIR