Morgunblaðið - 13.02.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.02.2008, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Þeir heimta að Haarde minn sýni vottorð uppá að hann sé ekki anti-evruklikkaður, Saxi minn. VEÐUR Nú fer fram uppgjör í Sjálfstæð-isflokknum vegna REI-málsins. Þá er tekið eftir að oddvitar Sam- fylkingarinnar og Vinstri grænna fyllast heilagri vandlætingu yfir samstarfsfólki sínu í borgarstjórn. Dagur B. Eggertsson og Svandís Svavarsdóttir hafa líka sagt að þau muni ekki starfa með Sjálfstæðis- flokknum á þessu kjörtímabili, en nefna ekki Ólaf F. Magnússon. Þau hafa svo góða reynslu af sam- starfi við hann.     Með því eru þauauðvitað að biðla til Ólafs. Það er kunnugleg tak- tík.     Gerðu sjálf-stæðismenn ekki einmitt þetta fyrir um hálfum mánuði – að biðla til Ólafs? Og fylltust þá ekki sömu odd- vitar heilagri vandlætingu?     Þessi heilaga vandlæting virðistvera orðin oddvitunum töm. Þau fylltust líka heilagri vandlætingu yf- ir ákvörðunum Björns Inga Hrafns- sonar í REI-málinu. En þegar hann lét skína í að hann væri tilbúinn að kveðja Sjálfstæðisflokkinn fyrir tjarnarkvartettinn svonefnda gjör- breyttist málflutningur oddvitanna.     Og oddvitarnir fyllast heilagrivandlætingu yfir kaupréttunum sem gerðir voru við samruna REI og GGE. Þó gerði Samfylkingin enga athugasemd við þá þegar fulltrúi flokksins greiddi atkvæði með sam- runanum í stjórn OR og Vinstri grænir sátu hjá, án þess að setja kaupréttina sérstaklega fyrir sig.     Að fyllast heilagri vandlætingu.Það kunna þau, Dagur og Svan- dís. STAKSTEINAR Dagur B. Eggertsson Hin heilaga vandlæting Svandís Svavarsdóttir SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                            *(!  + ,- .  & / 0    + -                           12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (                    ! "    :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? # #   # # $# %#$ %# &# #$ # #& #  '# '#& '# '# $# $#$ $#' $# &# #                          *$BC             !" *! $$ B *! ( ")  *  )    ! +! <2 <! <2 <! <2 ( * , -. ! / D8- E                   /    F  F B  #   $        %    /    F  F B  #   $        %    <    87  & '$ (             )* 01 "!22 ! "3 ! !,  Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Baldur Kristjánsson | 12. febrúar Af baráttu gegn kyn- þáttafordómum ... ECRI, evrópunefndin gegn kynþátta- fordómum eins og hún hefur verið kölluð hér, gefur í dag út skýrslur um Andorra, Lettland, Holland og Úkraínu. ECRI andæfir gegn kynþáttaforrdómum, útlend- ingafælni, gyðingaandúð og slíku og allri mismunun sem af ofangreindu kann að stafa. ECRI er sjálfstæð sér- fræðinganefnd á vettvangi Evr- ópuráðsins og skýrslur hennar ... Meira: baldurkr.blog.is Anna Kristinsdóttir | 11. febrúar Hvernig mæla á traust Dagurinn í dag var ekki góður fyrir íslensk stjórnmál. Síst þó fyrir borgarmálin og traust almennings á stjórn- málamenn. Er ekki búin að gleyma þeim tíma þegar Halldór Ás- grímsson loks kaus að víkja sem for- maður Framsóknarflokksins. Þá höfðu margir góðir menn reynt um nokkurt skeið að gera honum stöðu sína ljósa. Almenningur hafi misst traust á honum sem leiðtoga og hann naut ekki lengur trausts ... Meira: annakr.blog.is Matthildur Helgadóttir | 12. febrúar Það sem hægt er að lenda í Kunningi minn lendir oft í slæmum málum og satt að segja er hann alltaf jafn hissa á við- brögðunum. Hann hefur til dæmis lent í því að aka of hratt, vera tekinn af löggunni og þurft að axla sína ábyrgð með því að greiða sekt og fá punkta í svörtu bókina hjá guði. Það fannst honum óréttlátt því þetta var óvart og lögg- unni var, að hans sögn, illa við hann.... Meira: matthildurh.blog.is Birkir Jón Jónsson | 12. febrúar Á að lækka skatta á lífeyrisgreiðslur og hvað um umboðs- mann aldraðra? Það er alltaf spennandi að fylgjast með því hvernig stjórn- málamenn fylgja eftir hugsjónum sínum. Ég fletti í gegnum hluta af kosningaloforðum Samfylkingarinnar fyrir síðustu kosn- ingar og leit þar á helstu forgangs- mál flokksins. Því hef ég lagt tvær fyrirspurnir fram í þinginu sem fjalla um brot af forgangsmálum Samfylk- ingarinnar og því forvitnilegt að heyra hvernig að staða þeirra mála er. Ég spyr Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, sem nú er komin með málefni aldr- aðra inn á sitt borð, um stofnun embættis Umboðsmanns aldraðra sem var eitt af forgangsmálum Sam- fylkingarinnar. Nú er það því á valdi Jóhönnu Sigurðardóttur hvað um þetta loforð verður og því vænt- anlega ekki langt í að þetta embætti verði sett á fót. Reyndar verð ég að geta þess að loforð Samfylkingarinnar í málefnum aldraðra hafa nú ekki beinlínis geng- ið eftir og mikil undirliggjandi óánægja gagnvart flokknum í röðum aldraðra og jú líka öryrkja. Það verð- ur því fróðlegt að heyra svör Jó- hönnu. Fjármálaráðherra, Árni M. Mathie- sen, fær fyrirspurn um hvort að hann hyggist beita sér fyrir því að lækka skatt á lífeyrisgreiðslur niður í 10%, rétt eins og Samfylkingin boð- aði fyrir síðustu kosningar. Þetta er eitthvað óljóst því ég sé ekkert um þetta í stjórnarsáttmálanum. Samt var málflutningur samfylkingarfólks á þann veg fyrir síðustu kosningar að þetta væri mál sem yrði að kippa í liðinn. Flokkurinn hlýtur því að hafa lagt þunga áherslu á það í við- ræðum við Sjálfstæðisflokkinn síð- astliðið vor að tekjuskattur lífeyr- isgreiðslna myndi lækka í 10%. Nú eigum við eftir að heyra svör Árna Matt, en einhvern veginn grunar mig að Samfylkingin hafi ekki lagt neina áherslu á þetta mál við stjórn- armyndunina. En það mun koma í ljós fljótlega ... Meira: birkir.blog.is BLOG.IS FRÉTTIR FÉLAGS- og tryggingamálaráð- herra, Jóhanna Sigurðardóttir, hef- ur úthlutað styrkjum til atvinnu- mála kvenna að fjárhæð 15.790.000 krón- ur. Styrkjunum er ætlað að styðja við bakið á konum sem hafa áhuga á að hasla sér völl sem sjálfstæðir at- vinnurekendur og eru með áhugaverða viðskiptahugmynd. Að þessu sinni var um að ræða aukaút- hlutun styrkja til atvinnumála kvenna fyrir árið 2007 vegna mót- vægisaðgerða ríkisstjórnarinnar og því mestu úthlutað til kvenna á landsbyggðinni. Alls bárust 115 umsóknir en 28 verkefnum er úthlutað styrk, allt frá 200.000 til 1.500.000 króna. Hæstu styrkina fá verkefnin Spá- konuhof á Skagaströnd og búninga- leiga á Akureyri. Mikil fjölbreytni var í viðskiptahugmyndum um- sækjenda en meðal þeirra verkefna sem styrkt eru má nefna vöruþróun í lífrænni sultugerð, stofnun og markaðssetningu á útfararstofu, „sölu“ á lifandi fé auk ýmiss konar verkefna sem ætlað er að styrkja ferðaþjónustu, meðal annars á Pat- reksfirði, Bakkafirði og í Húna- þingi, segir í frétt frá ráðuneytinu. Áformað að stórefla stuðning og ráðgjöf við konur Samhliða stórauknu fjármagni til styrkja atvinnumála kvenna hefur verið ákveðið að efla til muna stuðning og ráðgjöf við konur sem hafa áhuga á að vinna með sínar viðskiptahugmyndir í samstarfi við aðrar konur um allt land. Vinnu- málastofnun mun innan tíðar kynna þá þjónustu betur, en þessa dagana er verið að auglýsa eftir starfs- manni sem mun annast það verk- efni innan stofnunarinnar. Seinna á þessu ári verður úthlut- að 50 milljónum króna í styrki til atvinnumála kvenna. Með þeirri út- hlutun opnast tækifæri fyrir fleiri konur til að láta drauma sína ræt- ast og skapa sér áhugaverð at- vinnutækifæri og vinna um leið að eflingu atvinnulífs í sínu byggðar- lagi, segir í fréttatilkynningunni. Styrkja viðskipta- hugmyndir kvenna á landsbyggðinni Jóhanna Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.