Morgunblaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR GEIR H. Haarde forsætisráð- herra og Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir utanríkisráðherra áttu í gær fund með nýskipaðri nefnd um þróun Evrópumála. Formenn nefndarinnar eru Illugi Gunn- arsson alþingismaður, skipaður af forsætisráðherra, og Ágúst Ólafur Ágústsson alþingismaður, skipaður af utanríkisráðherra. Í nefndinni eiga einnig sæti fulltrú- ar stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi, einn frá hverjum flokki. Að auki skipa ASÍ, BSRB, SA og Viðskiptaráð hvert einn fulltrúa í nefndina. Verkefni nefndarinnar er að fylgja eftir tillögum Evrópu- nefndar frá mars 2007, m.a. að athuga nánar hvernig hags- munum Íslendinga verði best borgið í framtíðinni gagnvart Evrópusambandinu, á grunni nið- urstaðna Evrópunefndar frá mars 2007 og að fylgjast með þróun mála í Evrópu og leggja mat á breytingar út frá hagsmunum Ís- lendinga. Morgunblaðið/Kristinn Á góðri stundu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Geir H. Haarde. Evrópunefnd- in fundaði ÍSLENSK málnefnd og Blaðamannafélag Íslands efna til málþings um stöðu íslenskrar tungu í fjöl- miðlum föstudaginn 4. apríl kl. 16-18 í Þingholti, Hótel Holti, Bergstaðarstræti 37, og er það öllum opið. Steinunn Stefánsdóttir hjá Íslenskri málnefnd setur þingið. Erindi munu flytja: Svanhildur Hólm Valsdóttir, ritstjóri Íslands í dag, Aðalsteinn Dav- íðssson, cand. mag., Þröstur Helgason, ritstjórn- arfulltrúi á Lesbók Morgunblaðsins, og Silja Aðalsteinsdóttir, ritstjóri Tíma- rits Máls og menningar. Fyrirspurnir og umræður verða að loknu hverju erindi. Fundarstjóri verður Arna Schram, formaður Blaðamannafélags Ís- lands. Að loknu málþinginu býður Blaðamannafélagið upp á léttar veitingar. Málþingið er hið sjöunda í röð ellefu málþinga sem íslensk málnefnd stend- ur fyrir um ýmislegt sem lýtur að íslenskri málstefnu en nefndin vinnur nú að tillögu að málstefnu fyrir menntamálaráðuneytið. Íslensk tunga í fjölmiðlum AÐALFUNDUR SFR – stétt- arfélags í almannaþjónustu, sem haldinn var s.l. laugardag, bendir á að misrétti í launum hafi aukist í samfélaginu á undanförnum ár- um. Bilið á milli þeirra sem hafa hæstu launin og þeirra sem lægstu launin hafi verið að aukast. SFR telur mikilvægt að horft verði til þess við gerð næstu kjarasamninga. Fundurinn samþykkti einnig ályktanir um almannaþjónustu, kjaramál, efna- hagsmál, skattamál og umhverf- ismál. SFR ályktar REYKJAVÍKURMÓT grunn- skólasveita í skák fer fram í húsa- kynnum Taflfélags Reykjavíkur í skákhöllinni í Faxafeni 12 miðviku- daginn 2. apríl. Þáttökurétt hafa allir grunnskólar í Reykjavík og getur hver skóli sent eins margar sveitir og kostur er. Hver sveit skal skipuð fjórum mönnum og skal þeim raðað eftir styrkleika. Mótið hefst kl. 17 á miðviku dag og fer skráning sveita fram á staðn- um frá kl. 16.30. Skólaskák SAMTÖK ferðaþjónustunnar fagna í tilkynningu samkomulagi um að samgöngumiðstöð rísi í Vatnsmýr- inni sem hýsa mun allar tegundir samgangna á svæðinu. Löngu sé brýnt að reisa sam- göngumiðstöð við Reykjavík- urflugvöll en með því sé sköpuð við- unandi aðstaða fyrir flugrekendur í innanlandsflugi og þjónusta bætt til muna við farþega með nýju húsi og góðri tengingu við almennings- samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Samgöngubót STUTT GERÐ Sundaganga eiga ekki að fylgja nein stórkostleg vandræði vegna jarðlaga á fyrirhugaðri gangaleið að mati Hreins Haralds- sonar, framkvæmdastjóra þróunar- sviðs Vegagerðarinnar, en hann er með doktorspróf í jarðfræði. Ísleifur Jónsson, verkfræðingur og fyrrver- andi stjórnandi Jarðborana ríkisins, varar við gerð Sundaganga, og raunar jarðganga undir sjó sunn- anlands, í grein í Morgunblaðinu á sunnudaginn var. Hann nefnir þar hættu á jarðskjálftum og telur að lekt í ungu bergi svæðisins verði mikil. Hreinn byggir álit sitt á rann- sóknum sem búið er að gera á fyr- irhugaðri gangaleið og áliti sérfræð- inga sem skoðað hafa málið fyrir Vegagerðina. „Það er orðið mjög vel þekkt bergið og hugsanlegur leki á þeirri leið, bæði eftir rannsóknir síð- astliðins sumars og eins er mikið til af gögnum frá borunum í Reykjavík fyrr og síðar. Þegar þetta er allt lagt saman tel ég að engin stórhætta sé á miklum leka á þessari gangaleið,“ sagði Hreinn. Í nýlegri kostnaðaráætlun vegna Sundaganga er reiknað með því að gerð þeirra verði eitthvað dýrari á lengdareiningu en t.d. gerð Hval- fjarðarganga. Sagði Hreinn að reiknað sé með heldur meiri þétt- ingum á bergi við gerð Sundaganga en þurfti að beita í Hvalfirði. Hvað varðar hættu af jarðskjálft- um fyrir Sundagöng sagði Hreinn að jarðskjálftasérfræðingar væru sammála um að hætta af jarðskjálft- um sé ekki meiri fyrir jarðgöng en önnur mannvirki. Ísleifur bendir á að einungis ein rannsóknarhola af 13 hafi verið boruð niður í sjávar- botninn á 1,5 km hluta gangaleið- arinnar. Hreinn sagði að auk hol- unnar sem boruð var frá sjó hafi verið skáboraðar rannsóknarholur frá landfyllingum undan Kleppi og Gufunesi og inn undir sjávarbotn- inn. Hann sagði menn telja sig hafa mjög góða mynd af jarðlögum á þessu svæði. Þau séu raunar óvíða jafn vel þekkt og á Reykjavíkur- svæðinu. Auk rannsóknarborana nú hafi menn öðlast mikla þekkingu á jarð- lögunum við kaldavatns- og heita- vatnsboranir í gegnum árin. Hreinn benti á að við undirbúning Hval- fjarðarganga hafi engin rannsókn- arhola verið boruð frá sjó. Hann sagði að Árni Hjartarson jarðfræð- ingur, sem stýrði rannsóknarborun- um vegna Sundaganga, þekki jarð- fræði Reykjavíkur manna best. Því hafi hann verið fenginn til verksins. Hvað varðar áhyggjur Ísleifs vegna loftræstingar Sundaganga sagði Hreinn að ekki væri búið að fullhanna verkefnið, enda ekki verið ákveðið hvort í það verði ráðist. Hann taldi þó líklegast að slík göng yrðu loftræst út um gangamunnana. Ef mengun úr göngunum reynist vera umfram leyfileg mörk þurfi að hreinsa loftið úr þeim með hreinsi- búnaði. Jarðfræði á leið Sunda- ganga er vel þekkt                                            !               !     "  #           Boranir Unnið við rannsóknir á berglögum vegna Sundaganga. BÆNDUR á Mýrum ætla að minn- ast þess um helgina að tvö ár eru lið- in frá því að kviknaði í sinu á Mýr- um. Guðbrandur Guðbrandsson, formaður Búnaðarfélags Mýra- manna, segir að afmælishátíðin sé farin að hlaða utan á sig og sé að verða að lítilli landbúnaðarsýningu. Landbúnaðarráðherra ætlar m.a. að hitta bændur og ræða við þá um landbúnaðarmál. Landbúnaðarráðherra mætir til fundar Vorhátíðin, sem kölluð er „Eftir Mýraelda“, hefst fimmtudaginn 3. apríl kl. 20.30 með almennum fundi um landbúnaðarmál, en framsögu- menn verða Einar K. Guðfinnsson landbúnaðarháðherra og Haraldur Benediktsson, formaður Bænda- samtaka Íslands. Hátíðin heldur áfram laugardag- inn 5. apríl kl. 13 með landbún- aðarsýningu í félagsheimilinu Lyng- brekku. Guðbrandur sagði að ýmis fyrirtæki og stofnarnir ætluðu að sýna vörur sínar og þjónustu. Meðal þeirra væri MS, Mjólka og SS. Einn- ig yrði vélasýning á planinu við fé- lagsheimilið. Þá yrði nýtt fjós á bæn- um Þverholtum til sýnis frá kl. 13 á laugardeginum, en fjósið byggist á nýjustu tækni og notast er við tvo mjaltaþjóna. Viðamiklar rannsóknir á áhrifum brunans á fugla- og dýralíf hafa staðið yfir á Mýrum. Á sýningunni mun Náttúrufræðistofa Kópavogs fjalla um þessar rannsóknir. Guð- brandur sagði að bændur á Mýrum og úr sveitum í nágrenninu hefðu staðið í ströngu við að slökkva eld- ana. Almennt er talið að vinna bændanna hafi skipt sköpum um að eldarnir breiddust ekki enn meira út. Guðbrandur sagði að bruninn hefði kennt mönnum mikilvægi þess að vera á varðbergi fyrir þessari hættu. Aðstæður núna væru ekki ósvipaðar og fyrir tveimur árum þegar eldarnir kviknuðu. Það væri því full ástæða fyrir fólk að fara var- lega í umgengni við eld. Mýramenn minnast sinubrunans mikla Morgunblaðið/RAX Sinubruni Mýramenn minnast þess á laugardag að tvö ár eru liðin frá því að mesti sinubruni á Íslandi geisaði á Mýrum. Þrjá daga tók að slökkva þá. Aðstæður nú eru svipaðar og þegar Mýraeldar kviknuðu Í HNOTSKURN »Sungið verður á vorhátíð-inni undir forystu Stein- unnar Pálsdóttur. Ennfremur koma söngvarar úr Reyk- holtsdal og syngja lög úr leik- ritinu Þið munið hann Jör- und. »Mýraeldarnir eru taldirmestu sinueldar í Íslands- sögunni, en alls brann um 68 ferkílómetra svæði. Þeir komu upp 30. mars við Snæ- fellsnesveg en það tók eldinn innan við 5 klukkustundir að komast niður að sjó. Þrjá daga tók að slökkva eldana. LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð- inu og líkamsræktarstöðvar World Class hafa gert samning sín á milli sem er um margt nýstárlegur. Samningurinn leyfir lögreglu- mönnum að skrá sig í líkamsrækt í eitt ár án endurgjalds – svo lengi sem þeir stunda ræktina reglu- lega. Ef lögreglumennirnir mæta ekki að lágmarki einu sinni á viku þurfa þeir að greiða 4.000 kr. sekt fyrir þann mánuðinn, en lögreglan greiðir þó kostnaðinn vegna fyrstu fimm sektanna, vegna fjarveru sem orsakast getur vegna veikinda eða sumarfría lögreglumanna. Allt umfram það dregst af launum. Jökull Gíslason hjá starfsmanna- skrifstofu lögreglunnar segir að mörgum lögreglumönnum reynist æ erfiðara að samræma vinnu, fjöl- skyldu og líkamsrækt. Þetta fyrir- komulag sé tilvalið að því leyti að það verkar hvetjandi á lögreglu- menn að stunda æfingar samvisku- samlega, en býður þó töluverðan sveigjanleika. Morgunblaðið/Júlíus Hraustir Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu geta nú stundað líkams- rækt ókeypis, svo fremi sem þeir sinna æfingum samviskusamlega. Sektaðir ef þeir mæta ekki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.