Morgunblaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 29
✝ Huginn HeiðarGuðmundsson
fæddist í Keflavík
18. nóvember 2004.
Hann lést á gjör-
gæsludeild Land-
spítalans aðfaranótt
24. mars síðastlið-
ins. Foreldrar hans
eru Guðmundur
Bjarni Guðbergs-
son, f. 3. janúar
1968, og Fjóla Æv-
arsdóttir, f. 22. des-
ember 1970. Huginn
Heiðar átti fjögur
systkini, Natan Frey, f. 13. janúar
1989, unnusta Sóley Ásgeirs-
dóttir, Hafrúnu Evu, f. 22. mars
1991, Guðjón Örn, f. 23.mars
1993, og Ásdísi Rán, f. 12. febrúar
1997.
Fljótlega eftir fæðingu Hugins
Heiðars greindist hann með al-
varlegan lifrarsjúkdóm og hinn
17. maí 2005 gekkst Huginn undir
lifrarígræðslu á Barnaspítalanum
í Pittsburgh í
Bandaríkjunum, þá
tæplega sex mánaða
gamall. Aðgerðin
gekk vel, en í kjöl-
far hennar greindist
Huginn Heiðar með
alvarlegan lungna-
sjúkdóm sem hann
barðist við til loka-
dags. Huginn eyddi
stórum hluta ævi
sinnar á sjúkrahúsi,
fyrstu vikurnar á
vökudeild Barna-
spítalans, svo á
skurðdeildinni. Sjúkrahúsdvöl
Hugins í Bandaríkjunum varaði í
tæpa sex mánuði og eftir að hann
kom heim aftur var hann samfellt
á sjúkrahúsi í 14 mánuði. Síðustu
13 mánuði ævi sinnar dvaldist
Huginn að mestu leyti heima hjá
sér.
Útför Hugins Heiðars verður
gerð frá Keflavíkurkirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.
Huginn Heiðar, við trúum því að
þú hafir verið sendur til okkar til að
kenna okkur svo margt um lífið og til-
veruna. Þú fæddist veikur og þurftir
strax að berjast fyrir lífinu og þú
gerðir það af svo miklum krafti í þau
rúmu þrjú ár sem þú varst með okkur
hérna á jörðinni að það er ekki hægt
annað en að dást að þér fyrir það. Á
þinni stuttu ævi gekkstu í gegnum
meira en flestir gera á heilli ævi.
Samt var alltaf stutt í brosið og
prakkaraskapinn hjá þér. Þú varst
alltaf svo ánægður og glaður; að fara í
bað var eitt það skemmtilegasta sem
þú gerðir. Jafnvel þegar þú fékkst
hiksta, þá var það ótrúlega fyndið. Þú
lást og hlóst að hikstanum og við það
jókst hikstinn og þá hlóstu bara enn
meira. Þér fannst meira að segja
gaman að fara að sofa á kvöldin, þeg-
ar við lögðum þig í rúmið þitt þá
brostir þú og fórst að leika þér við
bangsana sem sváfu alltaf hjá þér.
Við erum heppin að hafa fengið að
hafa þig svona lengi hjá okkur, þú
varst lengur hjá okkur en læknar
bjuggust við, við erum líka mjög
þakklát fyrir hvernig þú kvaddir okk-
ur, við trúum að þú hafir verið búinn
að ákveða að kveðja okkur þennan
dag. Þú gerðir það svo yndislega og
það hefur hjálpað okkur mikið í sorg-
inni.
Þú kenndir okkur svo mikið um líf-
ið, kenndir okkur að bera virðingu
fyrir því og hvað það er mikilvægt að
njóta þess sem maður hefur. Við
ákváðum að njóta tímans sem þú
varst hjá okkur og það gerði líf okkar
auðveldara. Við trúum því líka að það
hafi verið ástæðan fyrir því að við
fengum að hafa þig svona lengi.
Núna ertu að leika þér á himnum
og við öfundum þá sem tóku á móti
þér að fá svona fallegan engil til sín,
engil sem loksins getur farið að
hlaupa um og gera hluti sem hann gat
ekki gert í lifandi lífi. Við munum
sakna þín ástin okkar og við vitum
líka að allir sem hafa fengið að kynn-
ast þér munu sakna þín líka. Við vit-
um að þú ert núna að leika þér við
litlu englana sem þú kynntist á
barnaspítalanum og fóru á undan þér
og við vitum að það er fjör hjá ykkur.
Þó að þinni jarðvist sé lokið, þá munt
þú lifa áfram í hjörtum okkar og allra
þeirra sem voru svo gæfusamir að
kynnast þér.
Við elskum þig.
Mamma og pabbi.
Elsku hjartans engillinn minn.
Engin orð fá því lýst hversu sárt ég
sakna þín. Ég man það þegar þú
fæddist hvað mér leið vel, mér leið
eins og ég gæti flogið. Þegar ég sá þig
fyrst langaði mig til að gráta yfir feg-
urð þinni. Að fá að halda á þér og
finna hitann og lífsorkuna frá þér gaf
mér svo mikið. Þú varst alltaf svo
sterkur ástin mín, samt gastu alltaf
brosað og brostir svo fallega til allra
og heillaðir alla upp úr skónum. Það
veit Guð hversu hrædd ég alltaf var
og hversu þakklát ég var að heyra í
súrefnisvélunum þegar ég vaknaði á
morgnana.
Ég er svo þakklát fyrir allt sem þú
hefur gert og kennt mér. Elsku Hug-
inn, ég sakna þín svo, sakna þessarar
yndislegu lyktar af þér, ég sakna fal-
legu augnanna þinna og skemmtilega
prakkaraglottsins.
Sofðu ástar anginn minn,
svefni hinna sáttu.
Sofðu elsku ljósið mitt,
langt frá öllum hættum.
Sofðu hjartans engillinn minn
og dreymi þig vel!
Elsku Huginn minn, þakka þér fyr-
ir allar þær samverustundir sem við
áttum. Þú varst og verður alltaf hetj-
an mín! Ég sakna þín! Ég elska þig
svo óendanlega mikið.
Hvíldu í friði ástin mín.
Við sjáumst svo einhvern tímann.
Þín elsta systir
Hafrún Eva.
Ég sakna þín óhuggulega mikið, ég
skil þetta bara ekki, af hverju þurft-
irðu að fara svona fljótt? Ég hlakkaði
til að segja öllum að þú værir hættur
með sjúkdóminn. Ég skil ekki að þú
hafir þurft að fara að sofa þessum
langa svefni, þú sem varst alltaf glað-
ur og alltaf kátur. Ef þú grést þá var
eitthvað að, þú varst kátur allan
páskadaginn og um nóttina lagðistu
út af og sofnaðir þessum langa svefni.
Allt sem þú barðist fyrir var lífið og
þú þurftir að berjast svo mikið fyrir
því, að að lokum gastu ekki meir.
Takk fyrir allt og takk fyrir allt
sem þú gerðir fyrir mig og allt sem þú
kenndir mér. Ég mun alltaf muna
brosið þitt og hvað þú varst alltaf góð-
ur og glaður. Ég elska þig og ég
sakna þín.
Þín stóra systir
Ásdís Rán.
Elsku Huginn Heiðar, við erum
alls ekki tilbúin að kveðja þig og verð-
um það sjálfsagt aldrei.
Það er svo óréttlátt að þú hafir ekki
fengið lengri tíma með okkur en þér
hefur eflaust verið ætlað mikilvægt
hlutverk á himnum.
Þú varst hetja sem komst okkur sí-
fellt á óvart með krafti þínum og
dugnaði.
Það var svo gaman að fá að hitta
þig og fá að knúsa þig og kyssa þótt
þær stundir hafi verið allt of fáar.
Í minningu um stóru fallegu augun
þín og yndislega brosið þitt kveðjum
við þig elsku frændi.
Elsku Mummi, Fjóla, Natan, Sól-
ey, Hafrún Guðjón og Ásdís, megi
Guð veita ykkur styrk um ókomna
tíð.
Sara, Vilhjálmur, Óli Björn
og Rakel.
Ég er búin að þekkja Hugin frá því
hann fæddist. Hann var mikil hetja.
Mamma hans, pabbi og systkin eru
líka miklar hetjur. Mér fannst gaman
að fara að leika við hann. Hann var
svo glaður með bangsann sem ég gaf
honum í þriggja ára afmælisgjöf.
Þegar hann dó skrifaði ég þetta fyrir
hann: Þú ert fallegur sem blóm, hug-
rakkur sem ljón, þú ert duglegur
strákur. – Vonandi fer allt vel uppi
hjá þér.
Elsku Fjóla, Mummi, Natan, Haf-
rún, Guðjón og Ásdís, ég og fjölskyld-
an mín sendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Guðný Hanna og fjölskylda,
Greniteigi 23.
Sum börn sem gestir koma
gleymum aldrei því.
Í minningunni brosið bjarta
býr hjarta okkar í.
Það gull við geyma skulum
og allt sem okkur er kært,
við vitum þegar birtu bregður
börn Guðs þá sofa vært.
(Bubbi Morthens)
Í lagi Bubba, sem ber nafnið „Börn
Guðs“, segir einnig að það sé erfitt að
skilja þegar lítil börn eru tekin frá
okkur. Við sem eftir sitjum spyrjum
okkur: Hver var tilgangurinn með
þessu öllu saman? Allar þær þjáning-
ar sem lítill drengur og hans nánustu
þurftu að ganga í gegnum. Við fáum
aldrei svör við því. Ég er þess þó full-
viss að Huginn Heiðar hefur nú feng-
ið nýtt hlutverk og nýjan tilgang.
Hann hafði komið svo oft á óvart með
mikilli baráttu og þrautseigju vegna
þess að hann var ekki tilbúinn að
kveðja þennan heim – núna var hann
tilbúinn.
Það var erfitt að heyra að Huginn
Heiðar væri látinn.
Ég kom inn í líf hans í lok árs 2006
þegar hann þurfti heimasjúkraþjálf-
un og fylgdi ég því eftir þar til hann
lést. Það var alltaf gott að koma heim
til Hugins, kærleiksríkt heimili og
inni í stofu beið manns stóra, fallega
brosið frá prinsinum. Alltaf tók hann
vel á móti mér og var farinn að knúsa
mig með því að rétta fram hendurnar
og biðja um koss sem mér þótti af-
skaplega vænt um. Ég á eftir að
sakna þess að halda utan um hann,
gefa honum öxlina mína og klóra hon-
um í höfðinu eins og honum þótti svo
gott.
Huginn sýndi alltaf framfarir þótt
þær hafi verið hægar. Stundum voru
tvö skref fram og eitt aftur en með
hjálp foreldranna og þeirra aðstoð í
þjálfuninni var Huginn farinn að geta
setið aðeins án stuðnings og það var
stór áfangi fyrir litla blómið mitt eins
og ég kallaði hann svo oft.
Í minningunni situr eftir lítill
drengur með stórt hjarta, góðan
húmor og mikinn lífsvilja – sannköll-
uð hetja. Þínu fallega brosi mun ég
aldrei gleyma.
Elsku Fjóla og Mummi. Í mínum
huga eruð þið líka algjörar hetjur. Ég
veit að enginn getur sett sig í þau
spor sem þið hafið verið í. Öll ykkar
hlýja, umhyggja og umönnun á litla
drengnum ykkar var til sóma. Nú líð-
ur honum betur, fylgist með ykkur
fjölskyldunni úr fjarlægð og sefur
vært á nóttunni hjá Guði og englun-
um án þess að þurfa aðstoð.
Öllum aðstandendum votta ég
mína dýpstu samúð og bið þess að
Guð gefi ykkur styrk til að takast á
við sorgina.
Björg Hafsteinsdóttir.
Í dag kveðjum við lítinn vin sem
okkur var ákaflega hjartfólginn.
Við hjónin tókum að okkur það
verkefni að flytja inn á heimili Hugins
og taka við stóru systkinunum hans
þegar ljóst var að flytja þyrfti Hugin
nánast með hraði til Bandaríkjana í
stóru aðgerðina sem hann og mamma
hans þurftu að gangast undir og við
gleymum því aldrei hvernig það var
að sitja og bíða. Í von og ótta kúrðum
við systkini Hugins okkur saman og
báðum algóðan Guð um að allt færi
vel og eftir óendanlega langan tíma
fengum við þær gleðifréttir að allt
hefði gengið vel, það var eins og allar
heimsins áhyggjur hefðu verið teknar
af herðum okkar, slíkur var léttirinn.
Aðgerðirnar á þeim mæðginum tók-
ust vonum framar en fljótlega kom í
ljós að þó að lifrarígræðslan hefði
gengið vel þá voru aðrir og ekki betri
sjúkdómar, sem síðar kom í ljós að
hrjáðu Hugin, sem að lokum urðu til
þess að hann kvaddi þessa jarðvist
allt of ungur, en þó svo að hann hafi
alla sína stuttu ævi verið veikur þá
var alltaf svo ótrúlega stutt í brosið
og hláturinn hjá honum.
Við verðum ævinlega þakklát fyrir
að hafa fengið tækifæri til að kynnast
Hugin Heiðari í eigin persónu og
minningin um kossana, knúsin og
faðmlögin frá honun munu aldrei
gleymast. Takk fyrir allt elsku litli
drengurinn okkar.
Elsku Fjóla og Mummi, Natan og
Sóley, Hafrún Eva, Guðjón Örn, Ás-
dís Rán, Ester og Guðbergur, Ingi-
björg og Ævar og aðrir aðstandend-
ur, okkar innilegustu
samúðarkveðjur til ykkar allra.
Berglind og Jón Brynjar.
Huginn Heiðar
Guðmundsson
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Yvonne Tix
✝
VILHJÁLMUR SIGURÐSSON,
Krossbæ í Nesjum,
Hornafirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði föstudaginn
25. mars.
Útför hans verður gerð frá Hafnarkirkju á Höfn
laugardaginn 5. apríl kl. 14.00.
Systkini og fjölskyldur.
Við sendum innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og vinsemd við andlát og útför okkar
kæru,
HANNE RAGNARSSON,
Rauðahúsinu,
Suðurhlíð.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á 4. hæð á Skjóli
fyrir góða umönnun.
Leif, Kirsten, Katrine Østlund.
✝
Systir mín, mágkona og frænka,
ERLA ÁGÚSTSDÓTTIR
fyrrverandi flugfreyja,
Grænuhlíð 12,
sem andaðist fimmtudaginn 20. mars, verður
jarðsungin fimmtudaginn 3. apríl kl. 13.00 frá
Dómkirkjunni.
Jóhann Ágústsson, Svala Magnúsdóttir,
Sigríður Magnúsdóttir,
Magnús Valur Jóhannsson, Bjarnveig Ingvarsdóttir,
Guðmundur Örn Jóhannsson, Íris Gunnarsdóttir,
Sólveig Fríða Jóhannsdóttir, Ingimar Bjarnason,
Gunnar Ágúst Harðarson, Guðbjörg E Benjamínsdóttir,
Steinunn Harðardóttir, Magnús Ólafsson,
Guðrún Harðardóttir, Árni Svanur Daníelsson,
Karin Cannaday,
Donna Lefever, Bruce Lefever,
Jim Houhoulis, Barbara Houhoulis.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi, sonur og bróðir,
JÓHANNES SÆVAR JÓHANNESSON
frá Vestmannaeyjum,
Suðurtúni 19,
Álftanesi,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju fimmtudaginn
3. apríl kl. 13.00.
Ágústa G.M. Ágústsdóttir,
Svava Jóhannesdóttir,
Alda Lára Jóhannesdóttir, Halldór Klemenzson,
Jóhanna María, Þórunn Ágústa, Ella og Anna Lillý,
Þórunn Alda Björnsdóttir
og systkini hins látna.