Morgunblaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 35 Krossgáta Lárétt | 1 traustur, 8 slægjulandið, 9 ærin, 10 umfram, 11 glymur, 13 kaka, 15 háðsglósur, 18 rithöfundur, 21 glöð, 22 svala, 23 döpur, 24 ægi- legt. Lóðrétt | 2 aldan, 3 klæð- ir sig vel, 4 fnykur, 5 ýlfr- ar, 6 mjólkurlaus, 7 ilma, 12 elska, 14 tré, 15 poka, 16 styrkir, 17 hávaði, 18 sæti, 19 fangbrögð, 20 deyfð. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 kæpir, 4 fækka, 7 læpan, 8 loðin, 9 alt, 11 nára, 13 saur, 14 ungum, 15 skýr, 17 ágæt, 20 hal, 22 leiti, 23 ertum, 24 negla, 25 tunga. Lóðrétt: 1 kýlin, 2 pipar, 3 runa, 4 fölt, 5 koðna, 6 annar, 10 lygna, 12 aur, 13 smá, 15 súlan, 16 ýring, 18 gotan, 19 tomma, 20 hika, 21 lest. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Hvers vegna að leggja fyrir? Það er miklu skemmtilegra að eyða pening- unum! Þú ert í stuði til að trúa á eigin ríki- dæmi og heldur áfram að eyða. (20. apríl - 20. maí)  Naut Hópverkefni sem gekk vel gæti þróast illa. Vinnið ykkur í gegnum átökin og þá kemur í ljós að þetta var fyrir bestu. Hinn gullni meðalvegur er málið. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Ný sýn á vinnuaðstæður reynist frelsandi. Það er ekki vandamálið sjálft sem veldur þjáningunum, heldur viðhorf þitt til vandamálsins. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú ert einstaklega samúðarfull manneskja og munt hitta marga svipaða á næstu sjö dögum. Þú nærir og verður nærður. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú kemur með sérlega sannfærandi rök þegar þú þarft. En í dag eru bestu rökin þau sem þú þarft ekki á að halda því þið félagarnir gangið alveg í takt. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Ef þú átt erfitt er það vegna þess að þú ert of upptekinn af sjálfum þér. Góðu upplýsingarnar eru að þú rankar við þér og þá batnar allt. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Fáir skilja hvað fyrir þér vakir. Þótt fólk bjóðist til að aðstoða þig, þá ertu sá eini sem getur framkvæmt hugmyndir þínar. Ekki reyna samt að vera fullkom- inn. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Skrifaðu niður skuldbind- ingar þínar gagnvart öðrum og hvettu aðra til hins sama. Annars getur óþarfa misskilningur kostað ykkur peninga og tíma. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú ert svo hæfileikaríkur að þú hefur efni á að vera djarfur. Þú þarft ekki að læðupokast til að fá þörfum þínum fullnægt. Vertu samt djarfur á auð- mjúkan hátt. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Ekkert góðverk er einangrað. Góðsemin sem einhver sýnir þér gefur til kynna heilan heim af ástúðlegum tilfinn- ingum, hugsunum og draumum. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Spennandi atburðum og/eða fólki skýtur upp. Andaðu, haltu hönd- unum opnum og öxlunum slökum og láttu fara vel um þig. Þá segir þú réttu hlutina. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Ertu á fullri ferð í gegnum umferð borgarinnar til að ná í jógatíma? Eða hef- ur áhyggjur af spennu í sambandi? Því fylgir streita að losa sig við streitu! stjörnuspá Holiday Mathis Staðan kom upp á alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu sem lauk fyrir skömmu. Stórmeistarinn Va- dim Malakhatko (2600) sem teflir nú undir fána Belgíu hafði hvítt gegn portúgölskum kollega sínum Luis Galego (2529). 32. Be4! Hxe4 svart- ur hefði staðið einnig höllum fæti eftir 32. … De7 33. Dxe7 Rxe7 34. d6 Hxe4 35. Hc7. Í framhaldinu tapaði svartur drottningunni fyrir tvo létta menn. 33. Rf5 Dxf5 34. Dxf5 He5 35. Df6 Hxd5 36. He1 Kf8 37. Dc3 Hc5 38. Df6 Hd5 39. h4 gxh3 40. Kh2 Hd3 41. Hc1 Hf3 42. Hc8+ Bxc8 43. Dxf3 Bg4 44. Df6 Ke8 45. f3 Be6 46. Dg5 og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik. Þvingun – taka eitt. Norður ♠G6 ♥ÁKDG9 ♦75 ♣ÁDG7 Vestur Austur ♠4 ♠KD109852 ♥8742 ♥63 ♦D932 ♦G10 ♣K1096 ♣72 Suður ♠Á73 ♥104 ♦ÁK864 ♣843 Suður spilar 6G. Austur hindrar með 3♠ yfir opnun norðurs á 1♥, suður segir 3G og norður hækkar í 6G. Hörkusagnir, en samn- ingurinn er ekki alvondur. Hvernig á að spila með spaða út? Slagirnir eru ellefu með svíningu í laufi og úr því að vestur valdar báða lágliti ætti að vera hægt að kreista út úr honum tólfta slaginn. Fyrst þarf hins vegar að undirbúa jarðveginn með því að gefa slag, sem á fagmáli heitir að „leiðrétta talninguna“. Gott væri að geta dúkkað tígul, en það gengur ekki með spaðann galopinn. Þess í stað gef- ur sagnhafi fyrsta slaginn á spaða. Austur spilar aftur spaða, suður drep- ur og svínar í laufi. Hjörtun eru svo tekin í botn og það síðasta gengur frá vestri, sem mátti missa einn tígul (í spaðaásinn), en síðan ekki söguna meir: dæmigerð einföld þvingun. Við skoðum spilið aftur á morgun og veltum þá fyrir okkur hvort það breyti einhverju ef tígullinn er 3-3. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is 1 Ikea ætlar ekki að hækka vöruverð á næst-unni. Hver er framkvæmdastjóri Ikea á Ís- landi? 2 Fjármálaeftirlitið rannsakar áhlaup á ís-lensku bankana. Hver er forstjóri FME? 3 Fyrsta úthlutun tónlistarsjóðs fór fram í gær.Hvað heitir sjóðurinn? 4 Íslenskur tónlistarmaður verður í valnefndtónlistarhátíðarinnar kunnu, Womex, í Sevilla. Hver er hann? Spurter… ritstjorn@mbl.is Svör við spurningum gærdagsins: 1. Útlenskir starfsmenn hér á landi eru farnir að spyrjast fyrir um bóta- rétt sinn hjá Vinnumálastofnun. Hver er forstjóri hennar? Svar: Gissur Pétursson. 2. Hver hefur verið ráðinn forstöðumaður Rann- sóknamiðstöðvar Íslands? Hall- grímur Jónasson. 3. Til hvaða liðs í Þýskalandi er Einar Hólmgeirsson handknattleiksmaður að fara? Svar: Grosswallstadt. 4. Hvaða sögufrægu kvikmynd hefur Mad- dona hug á að endurgera? Svar: Casablanca. dagbók|dægradvöl Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig FRÉTTIR RÁÐSTEFNA um starfenda- rannsóknir verður haldin 4. apríl kl. 13-17, í Borgarholts- skóla. Flutt verða sex erindi um starfendarannsóknir, tvö al- menn inngangserindi og fjögur erindi þar sem kennarar lýsa starfendarannsóknum sínum. Fyrirlesarar eru Jean McNiff prófessor við St. Mary’s Uni- versity College í London, Haf- þór Guðjónsson, dósent við Kennaraháskóla Íslands, Sig- urbjörg Einarsdóttir, íslensku- kennari við MH, Sjöfn Guð- mundsdóttir, lífsleiknikennari við MS, Ívar Rafn Jónsson, sál- fræðikennari við Borgarholts- skóla, og Bolette Høeg, kennari við Þjórsárskóla. Í lok ráðstefnunnar verður stofnað Félag um starf- endarannsóknir á Íslandi og boðið upp á léttar veitingar, seg- ir í fréttatilkynningu. Skráning fer fram á heimasíðu Samtaka áhugafólks um skólaþróun, http://www.skola- throun.is/ Í BARÁTTUNNI við að verja lífs- kjör almennings lögðu Vinstri græn fram tillögur á þingi fyrir þremur vikum um víðtækar ráð- stafanir í efnahagsmálum. Til að kynna tillögurnar og fá umræður um þær hefur verið útbúið mynd- skeið og hleypt af stokkunum fundaröð um allt land undir yf- irskriftinni Tökum á efnahagsvand- anum: Tillögur Vinstri grænna. Myndbandið má nálgast á vefslóð- inni www.youtube.com/ watch?v=riojMcRCJ3w. Fundaröðin hefst í framhaldi af stjórnarfundi Vinstri grænna á Ak- ureyri 5. apríl, á Hótel KEA klukk- an 15. Að öðru leyti verða fundir sem hér segir: 6. apríl í Neskaupstað og í Grindavík, 7. apríl í Vík í Mýrdal og á Akranesi, 8. apríl á Sauðárkróki og í Garðabæ, 10. apríl í Reykjavík og á Ísafirði. Myndband og fundaröð Vinstri grænna UNG vinstri græn efna til opins fundar um málefni Tíbets í dag, miðvikudaginn 2. apríl, kl. 20 á Suðurgötu 3. Á fundinum fjallar tíbeski stjórnmálafræðingurinn Tsewang Namgyal um ástandið í heimalandi sínu og þingmaðurinn Ögmundur Jónasson um aðkomu Íslendinga að lausn vandans. Fundur um ástandið í Tíbet Ráðstefna um starfenda- rannsóknir MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá stjórn Hópferðamiðstöðvarinnar ehf. – TREX: „Stjórn Hópferðamiðstöðv- arinnar ehf. – TREX, lýsir yfir stuðningi við kröfur vöruflutn- ingamanna um aðgerðir af hálfu hins opinbera vegna mikilla hækk- ana eldsneytisverðs, hvíldar- tímareglna og fleiri álaga. Einnig vonbrigðum yfir aðgerðaleysi stjórnvalda og að erfitt skuli vera að ná sambandi við þau til að ræða þessi mál öðruvísi en með aðgerðum sem skapa óþægindi og kostnað fyrir almenning og fyr- irtæki í landinu. Ekki síst þegar við blasir að atvinnuöryggi og rekstrargrundvöllur atvinnu- greina, heimila og einstaklinga sem byggja afkomu sína á seldum akstri eru í verulegri hættu.“ Tekur undir kröfur bílstjóra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.