Morgunblaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. RÖDD SKYNSEMINNAR Þórarinn Ævarsson, fram-kvæmdastjóri IKEA, gefurtóninn í fréttasamtali hér í Morgunblaðinu í gær, þar sem hann segir að engin ástæða sé til þess að hækka vöruverð strax. IKEA muni halda sig við gjaldskrána sem gefin var út hjá fyrirtækinu í ágúst í fyrra og fyrirtækið muni standa við loforð um verðöryggi sem gefið hafi verið. Hér talar rödd skynseminnar og ættu aðrir forsvarsmenn fyrirtækja og verslana að taka afstöðu IKEA sér til fyrirmyndar. Ef um slíka samstöðu yrði að ræða, meðal kaup- manna, stórkaupmanna, forsvars- manna fyrirtækja og samtaka fyr- irtækja, gæti það haft umtalsverð áhrif í baráttunni sem nú er hafin af krafti við að hemja þá verðbólgu sem ógnar hag heimila, einstaklinga og fyrirtækja. Þórarinn bendir réttilega á að frá því í ágúst í fyrra og fram undir það síðasta hafi evran verið veikari og krónan sterkari en almennt hafi ver- ið reiknað með. „Á meðan krónan var sterk og evran veik nutum við þess með meiri framlegð. Núna hallar aðeins á og þá þurfum við bara að bíta á jaxlinn og kyngja því,“ segir Þórarinn orð- rétt. Þetta eru orð að sönnu og sömu- leiðis þau orð Þórarins, að hið sama eigi við um fjöldamörg fyrirtæki önnur en IKEA. Fyrirtækin hafi mörg hver gert framvirka samninga og séu búin að tryggja sér vöru á ákveðnu gengi. Dollarar, evra eða aðrir gjaldmiðlar hafi þegar verið keyptir, eins og tíðkist hjá mjög mörgum fyrirtækjum í innflutningi sem geri framvirka samninga. „Það á aldrei að vera fyrsta ráð- stöfun hjá neinu fyrirtæki að hækka verðið,“ segir Þórarinn Ævarsson. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, tekur raun- ar í sama streng í Morgunblaðinu í gær, þar sem hann segir að yfirlýs- ingar forsvarsmanna fyrirtækja og samtaka fyrirtækja að undanförnu um verðlag eða fyrirhugaðar breyt- ingar á verði geti raskað samkeppni og skaðað hagsmuni neytenda. Í yfirlýsingu sem Samkeppniseft- irlitið sendi frá sér segir að slík um- fjöllun geti verið til þess fallin að hvetja keppinauta á markaði til verðhækkana og stuðlað að ólög- mætu samráði. „Við munum fylgjast mjög vel með því að það sé ekki verið að nýta að- stæður og fjölmiðla til þess að koma af stað verðhækkunum sem grund- vallast á samráði og eiga sér ekki eðlilegar forsendur,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Sam- keppniseftirlitsins, orðrétt. Þeir sem forstjóri Samkeppniseft- irlitsins beinir orðum sínum til ættu að taka fullt mark á þeim, því miðað við þær aðstæður sem nú ríkja á markaði er full ástæða til að ætla að Samkeppniseftirlitið láti ekki sitja við orðin tóm, heldur láti kné fylgja kviði. Oft var þörf en nú er nauðsyn. ÞJÓÐFÉLAG ÁN JARÐEFNAELDSNEYTIS? Í 80 þúsund manna bæ í Svíþjóð erstefnt að því að minnka losun koltvísýrings um helming fyrir árið 2010 frá því sem var árið 1990 og 70% um miðbik aldarinnar. Markmiðið er að á endanum verði bærinn Växjö al- gerlega laus við jarðefnaeldsneyti. Í Morgunblaðinu í gær er haft eftir Henrik Johansson, sérfræðingi í um- hverfismálum í Ráðhúsi Växjö, að erfitt sé að hafa áhrif á atferli íbúa bæjarins, en margir séu þó farnir að breyta lífsháttum sínum. Växjö hefur fengið verðlaun Evrópusambandsins og erlendar sendinefndir þyrpast þangað til að kynna sér aðgerðir bæj- aryfirvalda. Upphaf átaksins var ákvörðun um að hreinsa menguð vötn í grennd við bæinn og nú getur fólk synt í þeim, veitt og borðað fiskinn. Umhverfisverndaraðgerðir yfir- valda í bænum Växjö eru um margt til fyrirmyndar. Á Íslandi eru betri for- sendur en víða annars staðar til að draga verulega úr notkun jarðefna- eldsneytis, ef ekki losna við það alfar- ið. Gríðarleg hækkun á eldsneytis- verði sýnir hversu dýrt það getur verið fyrir þjóð að vera háð jarðefna- eldsneyti. Fyrir nokkrum árum var rætt um það að Íslandi ætti að breyta í vetnissamfélag. Þá var markmiðið að bæði bíla- og skipafloti lands- manna gengi fyrir vetni. Í heiminum er nú víða rannsakað hvernig gera megi kleift að knýja bifreiðar með öðru eldsneyti en jarðefnaeldsneyti. Sumar aðferðirnar hafa aukaverkan- ir, sem í raun eru ekki boðlegar. Framleiðsla etanóls úr maís hefur leitt til slíkra hækkana á heimsmark- aði að fátækt fólk hefur ekki lengur efni á að kaupa fæðutegund, sem var grundvallarþáttur í mataræði þess. Á Íslandi eru kjöraðstæður til að framleiða vetni án mengunar. Meng- un fylgir ekki heldur hleðslu rafbíla. Vetnisátakið á Íslandi virðist ekki rekið af sama krafti og í upphafi, en það er full ástæða til að hleypa aukn- um krafti í að kanna leiðir til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Hags- munirnir eru tvíþættir. Jarðefnaelds- neyti er dýrt og nú fer fram mikið kapphlaup um að tryggja sér aðgang að helstu uppsprettum þess. Rússar nota gas- og olíulindir sínar til að tryggja sér völd og áhrif og eru ekki einir um það. Hér er því um öryggis- mál að ræða. Umhverfisþátturinn er ekki síður mikilvægur. Íslendingar bera sínar skyldur í umhverfismálum eins og aðrir og eiga að leggja sitt af mörkum til að draga úr losun gróðurhúsaloft- tegunda eftir mætti. Undanfarið hef- ur útblástur þeirra aukist hér á landi fremur en hitt. Þrátt fyrir það að heitt vatn og rafmagn sé unnið með vistvænum hætti hér á landi er út- blástur gróðurhúsalofttegunda í hærri kantinum. Hér þarf að taka til hendinni af sama metnaði og gert er í bænum Växjö. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Flutningasvið Samtaka verslunarog þjónustu (SVÞ) vinnur aðhandbók um frágang á farmi oger vonast til þess að hún komi út á vordögum. Signý Sigurðardóttir, for- stöðumaður flutningasviðs SVÞ, segir að í kjölfarið verði farið í mikla herferð til að vekja ökumenn til umhugsunar um mik- ilvægi þess að ganga ávallt rétt frá farmi. Í janúar 2007 hittust öryggisstjórar eða fulltrúar Eimskips, Samskips, Skeljungs, Húsasmiðjunnar og Landssambands vöru- bifreiðaeigenda og bundust samtökum um að taka á öryggismálum í sambandi við flutning á farmi vegna alvarlegra ábend- inga, einkum í fjölmiðlum, um að víða væri pottur brotinn í þessu efni. Einfaldar reglur Signý segir að strax á fyrsta fundi hafi komið í ljós að við ákveðið vandamál væri að etja sem þarfnaðist leiðréttingar. Allir öryggisstjórarnir hafi verið sammála um að gera þyrfti tilteknar breytingar á reglu- gerðinni til að leiðrétta misskilning um að svokallaðar styttur þyrftu alltaf að vera til staðar. Reglugerðin ætti að gefa skýr og einföld skilaboð um vandaðan frágang á farmi í stað þess að gera skilyrðislausa kröfu um styttur. Í mars í fyrra hafi hóp- urinn lagt til við Umferðarstofu og sam- gönguráðuneyti breytingar á reglugerð- inni. Öryggishópurinn hafi sérstaklega óskað eftir hlutlausu áliti sérfræðinga því ágreiningur hafi verið á milli hags- munaaðila og Umferðarstofu í málinu. Umferðarstofa hafi orðið við þeirri beiðni og var Línuhönnun falið að gera skýrslu um málið. Skýrslan hafi komið út í október og niðurstöður hennar staðfest álit hags- munaaðila um að skilyrðislaus krafa um styttur ætti ekki rétt á sér í reglugerðinni, en þær skuli nota þegar farmur geti auð- veldlega skriðið til eða rúllað fram af palli. Í skýrslunni kemur ennfremur fram að mikilvægt sé að samdar verði reglur um festingar á farmi til að koma í veg fyrir fleiri slys vegna þess að illa festur farmur losni og detti af bílpalli. Reglurnar þurfi að vera einfaldar og þannig úr garði gerðar að flutningsaðilar eigi auðvelt með að fara eftir þeim og löggæsluyfirvöld geti fylgt þeim eftir á vegum úti. Ekki sé til dæmis hægt að ætlast til þess að lögreglumenn þurfi að fara í gegnum flóknar reikni- reglur í hvert skipti sem þeir kanni hvort farmur sé rétt festur. Fyrir skömmu birti samgöngu- ráðuneytið drög að reglugerð um breyt- ingu á reglugerð um hleðslu, frágang og merkingu farms. Þar kemur meðal annars fram að til varnar hliðarskriði skuli binda farm tryggilega. Geti farmeiningar auð- veldlega skriðið til eða oltið til hliðar skal auk þess nota styttur, annaðhvort utan með eða í miðju, eða skjólborð sem skulu ná að minnsta kosti hæð efri brúnar farms. Signý segir að mestu skipti að reglu- gerðin verði einföld og skýr og gefi þeim sem eiga að fara eftir henni og þeim sem hafa eftirlit með höndum góða leiðbein- ingu um hvað skipti máli og hvað þurfi að hafa sérstaklega í huga, en aðalatriðið sé að rétt og vel sé gengið frá farminum. „Ég finn hjá mínum mönnum að það er mikill vilji og metnaður til að gera átak í þessum málum og það átak er þegar hafið,“ segir hún og vísar meðal annars til þess að stöð- ur öryggisstjóra hafi orðið til vegna breyt- inga á lögum og þær hafi skilað mjög miklu, en bætir við að tíma taki að stoppa í öll göt. Öryggismál í góðu lagi Eyþór H. Ólafsson, öryggisstjóri hjá Eim- skip, segir að öryggismál séu í góðu lagi hjá fyrirtækinu. Þegr farmur komi inn á svæðið sé hann yfirfarinn með frekari flutning í huga. Fullnægi frágangurinn ekki ýtrustu kröfum sé reynt að bæta úr því áður en bílstjóri komi til að taka farm- inn. Allur búnaður eins og til dæmis við- urkenndir borðar og strekkjarar eða spennubönd séu til staðar til að ganga frá farminum, hvort sem hann sé á athafna- svæði Eimskips eða annars staðar. Bíl- stjórum sé líka uppálagt að taka ekki farm Herferð til að vekja ökumenn til umhugsunar Búnaður Sig svæði fyrirtæ Festing Flut urkenndum b Flutningasvið Samtaka verslunar og þjón- ustu vinnur að handbók um frágang á farmi Fyrsti orkupósturinn hérlendis varformlega tekinn í notkun viðBankastræti 7 í Reykjavík í gær,en auk þess eru orkupóstar á bílastæðum Kringlunnar í Reykjavík og bílastæðum Smáralindar í Kópavogi. Fimm orkupóstar Orkuveita Reykjavíkur hefur í sam- starfi við Reykjavíkurborg, Kringluna og Smáralind sett upp samtals fimm orku- pósta á bílastæðum á fyrrgreindum þrem- ur stöðum og þar geta rafbílaeigendur hlaðið rafmagnsbíla endurgjaldslaust. Markmið framtaksins er að hvetja íslensk bílaumboð og bílaeigendur til að kynna sér kosti rafmagnsbíla til notkunar í borgar- umferðinni. Samtals komast 10 bílar í hleðslu í einu í orkupóstunum. Engir stöðumælar eru við verslunarmiðstöðv- arnar og leggja má vistvænum bílum ókeypis í 90 mínútur í hvert sinn í mið- bænum. Orkupósturinn er ósköp venjuleg raf- magnsinnstunga í kassa og geta rafbíla- eigendur sótt lykla að orkupóstunum í höf- uðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur. Kjartan Magnússon, stjórnarformaður Orkuveitunnar, og Gísli Marteinn Bald- ursson, formaður umhverfis- og sam- gönguráðs Reykjavíkur, tóku fyrsta orku- Frítt rafmagn á b  Hvatt til notkunar rafmagnsbíla í borgarumferðinni  Rafmagnshleðsla Gísli Marteinn Baldursson, formaður u arformaður Orkuveitunnar, búnir að leggja REVA-rafbíln

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.