Morgunblaðið - 02.04.2008, Page 24

Morgunblaðið - 02.04.2008, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ og 24 Stund- ir skýrðu frá því hinn 6. fyrri mán- aðar að tímaritið Nature hefði birt merka grein fjögurra líffræðinga, þar af tveggja íslenskra, Arnþórs Garðarssonar prófessors og dr. Árna Einarssonar, um vistfræði Mývatns. Í fréttinni segir m.a. að mýflugustofninn sveiflist eftir áður óþekktum lögmálum og verði náttúrlegar sveiflur á 4-7 ára fresti. Á niðursveiflu- tíma sé því fyrir öllu, að mýlirfur á botni vatnsins hafi nægilegt æti, og eru kísilþör- ungar þar mjög mik- ilvægir. Brottnám kís- ilgúrsins, sem er leðja úr skeljum kísilþör- unganna, magnar því niðursveifluna stórlega og getur valdið hung- urdauða mýflugulirfanna. Þá hefur bleikjustofninn í vatninu, sem lifir á mýflugu, ekkert að éta og snarm- innkar eða líður undir lok. Hér velt- ir lítil þúfa þungu hlassi. Í fyrrnefndri fásögn Morg- unblaðsins er haft eftir dr. Árna Einarssyni, að hann telji „að nið- urstöður rannsóknanna geti átt við fleiri vistkerfi en Mývatn. Það er vel hugsanlegt að svipuð lögmál komi við sögu í lífríki hafsins“. Hinn 26. janúar sl. var sú frétt í Morg- unblaðinu, að félagið Björgun ehf. hafi „lagt fram tillögu að matsáætl- un vegna efnistöku í sunnanverðum Faxaflóa“. Sagt er að félagið hafi sótt möl og sand af sjávarbotni með leyfi iðnaðarráðuneytisins áratugum saman, aðallega til fyllingar og framleiðslu steypu og malbiks. Nú mun leyfi félagsins til efnistöku úr sjáv- arbotni vera að renna út, og er það nú að sækja um endurnýjun leyfa og býst við stór- aukinni efnistöku í Faxaflóa, Hvalfirði og Kollafirði. Ekki er fyr- irhugað að opna nýjar námur segir í fréttinni, en stækka á eina nám- una af fjórum við Syðra-Hraun verulega. Auk þessara náma eru þrjár út af Hafnarfirði, en alls munu vera sjö námusvæði í sunnanverðum Faxaflóa. Fyrrgreindri frétt í Morg- unblaðinu fylgir Faxaflóakort er sýnir tvö „Viðbótarsvæði til efn- istöku“ við Syðra-Hraun, og er helst að sjá að með því sé ráðgert að tvö- falda flatarmál námusvæðanna á þessum slóðum. Í þessari frétt segir m.a. eftirfarandi: „Efnistakan fer fram með dæluskipum sem dæla efninu af hafsbotni. Þannig fletta skipin smám saman efsta hluta sets- ins af botninum og á löngum tíma eykst sjávardýpi á vinnslusvæðinu.“ Í efsta hluta botnsetsins lifir meiri- hluti þeirra smádýra sem á botn- inum búa, og við dælinguna – þegar þessu lagi er flett af botninum – enda öll þessi smádýr í sandinum eða mölinni uppi í dæliskipi. Þessi dýr eru hryggleysingjar, t.d. skeljar og kuðungar, krabbadýr og ormar og ótal fleiri, sem öll eru fæða þeirra fiska, sem við botninn dvelja. Lík- legt er, að slíkt brottnám fæðu í miklum mæli hafi áhrif á lífsferil botnfiska. Í fréttinni frá 26. janúar segir m.a. að dæling efsta hluta botnsets- ins valdi því, að „á löngum tíma eykst sjávardýpi á vinnslusvæðinu“. Slík röskun af tilflutningi fæðu af grunnsvæðum vatnsins til dýpri hluta botnsins olli allsherjar fæðu- skorti og hruni átustofnanna í Mý- vatni. Dæling kísilgúrsins tók fæð- una frá mýlirfunum, bleikjustofninn leið þar með fæðuskort og kís- ilvinnslan gekk af bleikjustofninum dauðum. Í frásögn sinni af fyrrgreindum Mývatnsrannsóknum, segir Árni Einarsson m.a. að það sé „vel hugs- anlegt að svipuð lögmál komi við sögu í lífríki hafsins og nú hafa kom- ið í ljós í Mývatni“. Í fréttinni í Mbl. frá 26. janúar kemur fram að Björg- un ehf. sækir nú „um leyfi til töku 25 milljóna rúmmetra efnis“ á næstu 10 árum úr sunnanverðum Faxaflóa. Hve miklu af öllum þeim smádýrum sem lifa í og á efstu lögum botnsins er þar með kippt burt úr fæðukeðj- unni og koma engum að gagni? Hve mikið af botndýrum er í 25 millj- ónum rúmmetra sands og malar á einum gjöfulustu fiskimiðum hér við land? Halda menn að botnfiskar bíði ekkert tjón við þessar aðgerðir? Er ekki líklegra, að hér verði keðju- verkun í svipuðum dúr og í Mý- vatni? Hingað til hefur þetta ekki verið rannsakað að neinu marki, enda heyrir efnistaka af sjávarbotni undir iðnaðarráðuneytið en ekki sjávarútvegsráðuneytið og stofnanir þess. En þar eð iðnaðarráðherra nú- verandi ríkisstjórnar er fiskifræð- ingur ætti að vera von til þess, að hér verði breyting á. Mývatn og Faxaflói, sömu öfl að verki? Ingvar Hallgrímsson skrifar um áhrif efnistöku af sjáv- arbotni á lífríkið » Bleikjustofninn í Mývatni er talinn hafa hrunið vegna efn- istöku á vatnsbotninum. Getur efnistaka á botni Faxaflóa haft svipuð áhrif á lífríkið þar? Ingvar Hallgrímsson Höfundur er sjávarlíffræðingur. TUTTUGASTA öldin var öld vega- gerðar á Íslandi. Lítið var þó um bíl- færa vegi á fyrstu árum aldarinnar. Fyrstu vegirnir voru gerðir út frá Reykjavík, það þurfti að tengja höfuðborgina við landið og. landið við höfuðborgina. Teng- ingin við Akureyri og Vesturland í Borgarnes var þó farin sjóleiðina fram eftir öldinni. Fram á fimmta ára- tuginn voru vegirnir ruddir með handafli. Á þeim áratug í lok stríðs- ins tók vélvæðingin við. Jarðýtan kom til sög- unnar. Með jarðýtunni voru lagðir vegir með því að jafna mishæð- ir og einnig með því að gera svokall- aðan uppbyggðan veg. Þá var ýtt upp jarðvegshryggjum sem á var sett þunnt malarlag. Með ýtuvegunum og þeim handruddu voru lagðir vegir um allt land. Inn í dali, út á nes og um heiðar. Árið 1974 var hringveginum lokað með veginum um Skeið- arársand og brú á Skeiðará. Þegar kom fram á níunda áratuginn kom í ljós að uppbyggðu vegirnir höfðu ekki nægjanlegt burðarþol fyrir umferð- ina. Þá var farið að gera áætlanir um vegagerð. Farið að gera vegi með bundnu slitlagi og betri burði. Nú er svo komið að hringvegurinn er að mestu kominn með bundið slitlag. Framhaldið er nokkuð óljóst. Stefnan er a.m.k. ekki markviss. Umræðan snýst um Sundabraut, jarðgöng og tvöföldun akreina í nánd við þéttbýli. Handruddu vegirnir og ýtuvegirnir voru ekki aðeins hringvegurinn held- ur einnig margar aðflutningsleiðir að hringveginum og fram hjá honum. Hringvegurinn dugar ekki einn til að tengja saman landshluta né landið við höfuðborgina. Vegum sem áður báru hluta umferðarinnar hefur ekki verið sinnt á undanförnum árum. Þeir eru enn malarvegir og sniðgengnir af veg- farendum jafnvel þótt viðkomandi þurfi að fara lengri leið til að aka á vegi með bundnu slit- lagi. Skógarstrandarvegur frá Stykkishólmsvegi í Dali, svo og vegurinn um Laxárdal og Lax- árdalsheiði milli Dala og Stranda eru vegir sem áður voru farnir en nú meira og minna snið- gengnir. Þörf þeirra í samgöngukerfinu hefur ekki minnkað frekar aukist. Þessir vegir mynda kross- götur í Dölum þar sem þeir tengjast þjóðveginum um Brattabrekku að sunnan og Vestfjarða-Strandaleið að norðan. Að loknum fyrirhuguðum vega- framkvæmdum á Vestfjörðum mun umferð þangað og þaðan aukast. Þeg- ar þeim framkvæmdum lýkur verða Skógarstrandarvegur svo og veg- urinn um Laxárdalsheiði og Lax- árdaldal að vera komnir í það lag að geta tekið við umferð. Sundabraut og tvöföldun akreina eru nauðsynlegar framkvæmdir. Vegirnir sem hér eru nefndir eru það ekki síður. Það er ljóst að skammtað hefur ver- ið of naumt til vegagerðar á síðustu árum. Fyrir það þarf að bæta. Það gengur ekki að ferðamaður sem á leið af Vestfjörðum á Snæfellsnes þurfi að aka suður yfir Brattabrekku að Borg- arnesi til að hafa akfæran veg undir hjólum ökutækisins í stað þess að skjótast út Skógarströndina. Á sama hátt er það fráleitt að sá sem er á leið að norðan á Vestfirði þurfi að fara suður yfir Holtavörðuheiði að Dals- mynni í Norðurárdal til að vera á öku- færum vegi í stað Laxárdalsheiðar. Hliðar- og tengivegir geta mjög víða létt umferð af hringveginum, þar með dregið úr mengun, eru umhverf- isvænir. Þessir vegir eru einnig mjög mikilvægir til að styrkja byggð. Ef hliðar- og tengivegum er ekki við- haldið eða þeir endurbyggðir færist umferð af þeim á hringveginn og verður óhagkvæm. Þetta síðastnefnda er að gerast varðandi Skógarströnd og Laxárdalsheiði og sjálfsagt fleiri vegi á landinu. Trúlega myndi stór hluti, a.m.k. sumarumferðar, á hringveginum Reykjavík – Borgarfjörður færast á veginn um Lundarreykjadal um Uxa- hryggi á Þingvöll ef vegur þá leið væri endurbyggður með bundnu slitlagi. Sú vegagerð tengdi Suður- og Vest- urland fram hjá ofhlöðnu vegunum auk þess að vera mjög þörf hjáleið ef óhöpp loka leiðinni Borgarfjörður – Reykjavík. Það verður að veita mjög auknum peningum til vegagerðar á allra næstu misserum. Ríkisstjórn Samfylking- arinnar og Sjálfstæðisflokksins hefur afl til þess. Aðkallandi vegagerð Það verður að veita mjög aukn- um peningum til vegagerðar, segir Skúli Alexandersson »Nú er svo komið að hringvegurinn er að mestu kominn með bundið slitlag. Fram- haldið er nokkuð óljóst. Stefnan er a.m.k. ekki markviss. Skúli Alexandersson Höfundur er fyrrv. sveitarstjórnar- og alþingismaður. BIRTINGARMYNDIR fastheldni okkar Íslendinga í úreltar og skaðleg- ar hugmyndir um nýtingu landsins hrúgast upp þessa dagana og sú nýj- asta er skeytingarleysi okkar gagn- vart þeim gæðastimpli sem aðild að heimsminjaskrá UNESCO gefur hverri þjóð. Þar er um að ræða heið- ur, sem hægt er að meta til mikils fjár svo að ég tali um það eina sem virðist skipta okkur Íslendinga, þessa miklu græðgisþjóð, ein- hverju máli. Hér á landi er saga pælinga um heimsminjaskrána meira en tíu ára gömul og voru Þingvellir og Mývatn meðal staða sem okkur þótti fyrst koma til greina. Mývatn var hlegið út af borðinu erlendis vegna Kísiliðj- unnar, eins ósjálfbærs og skaðlegs fyrirtækis fyrir einstæða náttúru vatnsins og hugsast gat með óafturkræfum spjöllum á stórum hluta lífríkisins sem ekki sér fyrir endann á. Ég sýndi þáverandi sveitarstjóra þar einn helsta kynningarbækling Norð- manna um land sitt þar sem bryggju- húsin í Björgvin voru á forsíðu til að laða að ferðafólk. „Heimsminjaskrá UNESCO, hvað með það?“ voru við- brögð sveitarstjórans sem sagði að sveitin myndi leggjast í eyði ef hrófl- að yrði við Kísiliðjunni. Verksmiðjan fór nú samt og entist ekki nema í 40 ár en eyðibyggðin mikla lætur standa á sér þrátt fyrir áframhaldandi tóm- læti um þá stórkostlegu möguleika sem náttúruverndarnýting getur fært Mývetningum. Á næstu árum mun Mývatn fjarlægjast heims- minjaskrána enn frekar ef skefja- lausar virkjanaframkvæmdir austan og norðaustan vatnsins verða að veruleika með sínum hrikalegu óaft- urkræfu spjöllum á einhverju ein- stæðasta svæði landsins. Nú ætla menn sér að stefna eina heims- minjaskrársvæði Íslands, Þingvöll- um, í hættu með gersamlega óþörfum vegaframkvæmdum við Þingvalla- vatn. Ég hef í blaðagreinum lýst því hvernig hægt er að stytta leiðina milli Reykjavíkur og uppsveita Árnessýslu á fleiri en einn veg sunnan vatnsins. En sagt er að greiða verði leið skóla- barna yfir til Laugarvatns með nýj- um vegi. Þessum skólabörnum fer fækkandi og eru þó vart teljandi nema á fingrum annarrar handar. Hægt væri með smávægilegum lag- færingum á núverandi Gjábakkavegi og notkun fjallajeppa að leysa málið fyrir skólabörnin eða þá með því að láta þau fara í skóla í Mosfellsbæ, um 20 mínútna akstursleið. Svo virðist sem hér á landi þurfi ekki annað en að nefna möguleika til notkunar á jarðýtum til að í gang fari atburða- rás sem tryggir að þessar vélaherdeildir í hernaðinum gegn land- inu fari af stað, hvernig sem allt veltist. Þær eiga að vaða um Gjá- stykki næsta sumar í skjóli rannsóknarleyfis, þær eiga að sækja inn á Ölkelduháls í skjóli þess að búið er að lofa útlendingum miklu meiri orku frá svæðinu en hægt verð- ur að standa við, umbylta farvegi Þjórsár, ryðja raflínum og guf- leiðslum leið um gervallan Reykja- nesskagann og sækja fram við Selt- ún, Krýsuvík og Trölladyngju. Þegar Al Gore kemur verður honum sagt að orkuföflun okkar byggist á endurnýj- anlegri orku þótt mestur hluti henn- ar, 600 megavött sem nýta á á Heng- ils-Hellisheiðarsvæðinu,verði uppurin og svæðið orðið kalt á 40 ár- um. Í sjálfhverfri skammtímagræðgi okkar skeytum við ekkert um hags- muni komandi kynslóða sem munu þurfa að finna 600 megavött einhvers staðar annars staðar eftir 40 ár, hvað þá um það við eigum ekki þetta land heldur höfum það að láni frá afkom- endum okkar til varðveislu fyrir þá og mannkyn allt. Ég sýni fólki um þess- ar mundir gjarnan nýja bók sem fær- ir sérfræðingar hafa gert um 100 mestu undur veraldar. Eitt af sjö náttúruundrum Evrópu er hinn eld- virki hluti Íslands og athygli vekur að frægasti þjóðgarður heims, Yellow- stone, kemst ekki á blað. Þar lifir fólk á náttúruverndarnýtingu og lætur gríðarlega jarðvarmaorku og vatns- orku garðsins ósnerta fyrir afkom- endurna. Hér á landi steðja jarðýtur af stað til að umturna mun meiri nátt- úruverðmætum til að hjálpa Banda- ríkjamönnum um orku svo að þeir geti varðveitt mun minni nátt- úruverðmæti. Skítt með gæðastimpla heimsminjaskrár, skítt með mestu verðmæti landsins okkar. Áfram bruna vélaherdeildir hernaðarins gegn landinu, knúnar af skamm- tímagræðginni sem yfirskyggir allt og alla á Íslandi! Hinar óstöðvandi vélaherdeildir Ómar Ragnarsson skrifar um umhverfismál Ómar Ragnarsson » Skítt með UNESCO gæðastimpla. Skítt með mestu verðmæti landsins okkar. Áfram, jarðýtur, og skamm- tímagræðgin sem yf- irskyggir allt og alla á Íslandi! Höfundur er formaður Íslands- hreyfingarinnar - lifandi lands. ENN hvessir á eyjunni köldu. Nú hefur ráðherra svarað umboðs- manni Alþingis vegna skipunar Þorsteins Davíðssonar í embætti héraðsdómara fyrir norðan. Ráð- herra finnst umboðsmaður op- inbera afstöðu í spurningum og lýs- ir furðu á orðavali. Auðvitað varð allt vitlaust og ráðherra skamm- aður blóðugum skömmum. Spurn- ingar umba eru sérkennilegar, hlut- drægar og dæmandi. Embættið setur niður fyrir vikið. Í þessu máli er flest á haus og rest á röngunni. Sannleikurinn er sá að dómnefnd setti Þorstein Dav- íðsson ómaklega skör lægra en koll- egana sem sóttu um. Það hefur smám saman komið í ljós eftir því sem málsatvik hafa opinberast. Dómnefnd varð sér til skammar. Í gangi er grímulaust einelti. Hvern- ig mátti það gerast að Þorsteinn Davíðsson var dæmdur lakari um- sækjandi en tveir kollegar sem út- skrifuðust ári síðar; annar prakt- íserað í skamman tíma og einkum lesið þjóðarrétt. Það er talið taka fram átta ára starfi hjá embætti lögreglustjóra, saksóknara auk að- stoðarmanns dómsmálaráðherra. Þetta er auðvitað grátbroslegt. Satt best að segja ætti Þorsteinn að kæra einelti dómnefndar til um- boðsmanns. Raunar ætti umboðs- maður að taka frumkvæði í málinu og krefja dómnefnd skýringa í stað þess að taka þátt í einelti fagmanna. Hallur Hallsson Af einelti fagmanna Höfundur er framkvæmdastjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.