Morgunblaðið - 02.04.2008, Síða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Til sölu
Bækur til sölu
Íslensk myndlist 1-2, Textabók Megasar, Sveitir og jarðir í
Múlaþingi 1-4, Kjalnesingar, Nokkrar Árnesingaættir, Ættir
Austur-Húnvetninga 1-4, Ættir Síðupresta, Deildartunguætt 1-2,
Ættarskrá Bjarna Þorsteinssonar, Svarfdælingar 1-2, Byggðir
og bú ‘63, Sléttuhreppur, Búnaðarritið Freyr 1-73 árg. ib.
Upplýsingar í síma 898 9475.
Tilboð/Útboð
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
Reykjavíkurborg
Innkaupaskrifstofa
Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnargötu 11,
101 Reykjavík
Sími 411 1042/411 1043
Bréfsími 411 1048
Netfang: utbod@reykjavik.is
ÚTBOÐ
F.h. Framkvæmda-og eignasviðs
Reykjavíkurborgar:
Eldhústæki fyrir Höfðatorg
Úboðsgögn fást afhent á geisladiski í síma- og upp-
lýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur. Opnun tilboða:
14. apríl 2008 kl 14:00, í Ráðhúsi Reykjavíkur.
12121
Tilkynningar
BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090
Auglýsing um nýtt deili-
skipulag og breytingar á
deiliskipulagsáætlunum
í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér
með auglýstar tillögur að nýju deiliskipulagi og
breytingum á deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík.
Úlfarsárdalur, útivistarsvæði
Tillaga að deiliskipulagi fyrir almennt útivistarsvæði í
Úlfarsárdal.
Almennu útivistarsvæðin eru beggja vegna árinnar
og mynda skil á milli verndarsvæða og aðliggjandi
byggingarsvæðaídalnum.Ásvæðunumergertráðfyrir
fjölbreyttri aðstöðu til útivistar s.s. hverfisleikvöllum,
boltavöllum, skíða- og sleðabrekkum, skólagörðum
o.fl. Á svæðunum eru skógræktarsvæði og settjarnir
og um þau liggja stofn- og tengistígar og mannvirki
sem tengjast útivist á svæðinu. Á íþróttasvæði fyrir
miðjum dalnum er gert ráð fyrir uppbyggingu með
innanhús æfingaaðstöðu, keppnis- og æfingavöllum,
knatthúsi og tilheyrandi bílastæðum.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Fossvogur, breyting á skilmálum
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir raðhús
í Fossvogshverfi, skipulag sem samþykkt var í
borgarráði Reykjavíkur 6. febrúar 1968.
Í skilmálum sem eru í deiliskipulagi er ekki heimilt
að gera glugga á göflum raðhúsa en með breytingu
þessari verður það heimilt þar sem aðstæður leyfa
og mun byggingarfulltrúi meta hverja umsókn fyrir
sig. Nánari útskýringar á breytingu má sjá í texta
kynningargagna.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Höfðatorg, breyting á deiliskipulagi
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Höfðatorgs þar
sem heimilað verður að koma fyrir fyrirlestrar – og
kvikmyndasölum neðanjarðar.
Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á texta í
greinargerð. Í kaflanum “Almennt” komi textinn
“Ráðgerð er íbúðabyggð með allt að 250 íbúðum
auk skrifstofu- verslunar- og þjónustubyggðar á
lóðinni þ.m.t. kvikmyndahús, ráðstefnusalir og
fleira”. Kafli “Bílastæði/bílageymslur” fái heitið
“Bílastæði, bílgeymslur og starfsemi neðanjarðar”
og í lokamálsgrein kafla komi “Byggingareitur
fyrir bílakjallara, kvikmyndahús og aðra starfsemi
neðanjarðar samsvarar lóðarmörkum Höfðatorgs og
heildarstærð lóðar.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags-
og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að Borgartúni
3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 2. apríl 2007
til og með 14. maí 2008. Einnig má sjá tillögurnar á
heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem
telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna
sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum
við tillögurnar skal skila skriflega eða á netfangið
skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs
eigi síðar en 14. maí 2008. Vinsamlegast notið
uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir
með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir
innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 28. mars 2008
Skipulagsstjóri Reykjavíkurur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Byr sparisjóður, kt: 610269-2229, hefur gefið út 2
flokka af peningamarkaðsvíxlum. Heildarnafnverð
útgefinna flokka ræðst af markaðsaðstæðum.
Stærð flokkanna verður að hámarki 2.000.000.000
kr að nafnvirði og verða víxlarnir seldir í 5.000.000
kr einingum.
Byr sparisjóður hefur birt lýsingar vegna töku
eftirfarandi 2 flokka til viðskipta: BYR 08 0806 og
BYR 08 0903. Þær verða aðgengilegar almenningi
frá og með 2. apríl 2008.
Eftirfarandi víxlaflokkar eru teknir til viðskipta hjá OMX
Nordic Exchange Iceland hf. þann 2. apríl 2008:
BYR 08 0806
Þann 6. febrúar síðastliðinn var gefinn út víxlaflokkurinn
BYR 08 0806. Heiti flokksins vísar til auðkenni hans í OMX
Nordic Exchange Iceland hf. Hámark fjárhæðar flokksins er
2.000.000.000 kr og hafa 1.500.000.000 kr þegar verið
gefnar út.Víxlarnir eru vaxtalaus eingreiðslubréf og er gjald-
dagi þeirra 6. ágúst 2008.
BYR 08 0903
Þann 3. mars síðastliðinn var gefinn út víxlaflokkurinn BYR
08 0903. Heiti flokksins vísar til auðkenni hans í OMX
Nordic Exchange Iceland hf. Hámark fjárhæðar flokksins er
2.000.000.000 kr og hafa 1.500.000.000 kr þegar verið
gefnar út.Víxlarnir eru vaxtalaus eingreiðslubréf og er gjald-
dagi þeirra 3. september 2008.
Lýsingar og önnur gögn varðandi ofangreinda peninga-
markaðsvíxla liggja frammi hjá Byr sparisjóði, Borgartúni
18, 105 Reykjavík, sími: 575-4000, myndsendir: 575-4011
eða á heimasíðu Byrs sparisjóðs www.byr.is. Lýsingar fyrir
hvern flokk verða aðgengilegar til gjalddaga flokkanna, þ.e.
6. ágúst og 3. september 2008.
Reykjavík 2. apríl 2008
Tillaga að deiliskipulagi
fyrir menningar- og þjónustustarfsemi í
landi Skriðuklausturs, Valþjófsstaðar 1
og Hamborgar, í Fljótsdalshreppi.
Sveitarstjórn Fljótsdalshrepps auglýsir hér
með tillögu að deiliskipulagi fyrir menningar-
og þjónustustarfsemi í landi Skriðuklausturs,
Valþjófsstaðar 1 og Hamborgar skv. 25. gr. laga
nr.73/1997 m.s.br. Deiliskipulagið er afmarkað á
uppdrætti og nær yfir svæði frá Bessastaðaá
að innri lóðamörkum Félagsheimilisins
Végarðs, um 3 km að lengd.
Markmið þessa deiliskipulags er að afmarka
nokkrar lóðir á svæðinu vegna væntanlegrar
uppbyggingar s.s. lóð fyrir þjóðgarðsmiðstöð
fyrir Vatnajökulsþjóðgarð á Skriðuklaustri auk
íbúðahúsalóða, ennfremur að marka þeirri
starfsemi sem fyrir er á svæðinu ákveðinn
ramma.
Aðkomuvegi að Gunnarshúsi verður breytt og
verður sameiginleg aðkeyrsla með þjóðgarðs-
miðstöð. Afmarkaðar eru 2 nýjar íbúðahúsa-
lóðir við Skriðu og íbúðar- og fjárhúsalóð fyrir
ábúanda við norðurmörk svæðisins.
Menningar- og þjónustustarfsemi á Skriðu-
klaustri er markaður rammi. Skilgreind er lóð
fyrir Melarétt og þjónustuhús í landi Hamborg-
ar og skilgreind er starfsemi á lóð Félags-
heimilisins Végarðs í landi Valþjófsstaðar 1, þar
sem gert er ráð fyrir fullbúnu tjaldsvæði ásamt
smáhýsabyggð.
Allt annað land innan skipulagssvæðisins sem
ekki hefur sérstaka skilgreiningu er landbúnað-
arsvæði sbr. aðalskipulag sveitarfélagsins.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Fljótsdals-
hrepps í Végarði, frá 3. apríl 2008 til 2. maí
2008. Þeim sem eiga hagsmuna að gæta er
gefinn kostur á að gera athugasemdir við
tillöguna til og með föstudeginum 16. maí
2008. Skila skal skriflegum athugasemdum til
oddvita á skrifstofu Fljótsdalshrepps í Végarði.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna
teljast henni samþykkir.
Oddviti Fljótsdalshrepps,
Gunnþórunn Ingólfsdóttir.
Menntaskólinn
við Hamrahlíð
Opið hús fyrir
grunnskólanemendur
og forráðamenn þeirra verður í dag,
miðvikudaginn 2. apríl frá kl. 18:00-21:00.
Kynnt verður námsframboð, inntökuskilyrði
og félagslíf nemenda.
Kl. 19:00 syngur Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð nokkur lög.
Allir velkomnir.
Rektor.
Uppboð
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Ketilhúsahagi 3, fnr. 219-5947, Rangárþing ytra, þingl. eig. Hildur
Ólafsdóttir og Pétur Gestsson, gerðarbeiðandi Kaupþing banki hf.,
þriðjudaginn 8. apríl 2008 kl. 11:00.
Laufskálar 5, fnr. 228-2835, Rangárþing ytra, þingl. eig. Bjarki Steinn
Jónsson, gerðarbeiðendur Kaupþing banki hf., Rangárþing ytra og
Vörður tryggingar hf., þriðjudaginn 8. apríl 2008 kl. 13:00.
Stóragerði 10, fnr. 219-5072, Rangárþing eystra, þingl. eig. Magnea
Þórey Hilmarsdóttir, gerðarbeiðendur Glitnir banki hf., Húsasmiðjan
hf., Ingvar Helgason ehf., Íbúðalánasjóður, Rangárþing eystra og
Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 8. apríl 2008 kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli,
1. apríl 2008.
Kjartan Þorkelsson.
Félagslíf
I.O.O.F. 9 18840281/2 XX
I.O.O.F. 7. 18840271/2
I.O.O.F. 18 188328 Gk.
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
GLITNIR 6008040219 III
Raðauglýsingar 569 1100
Raðauglýsingar
sími 569 1100