Morgunblaðið - 02.04.2008, Page 44

Morgunblaðið - 02.04.2008, Page 44
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 93. DAGUR ÁRSINS 2008 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Austurland kólnar  ÍAV hefur ákveðið að bjóða ekki í fleiri verk á Austurlandi. Ástæðan er kólnun á íbúðamarkaði og minnk- andi umsvif í verklegum fram- kvæmdum í fjórðungnum. Aðflutn- ingur nýrra íbúa til Austurlands hefur ekki orðið eins mikill og talið var að yrði. »Forsíða Nektardans í boði  Enn er stundaður nektardans á veitingahúsum í Reykjavík þrátt fyrir að bann við slíkum dansi hafi verið lögfest á síðasta ári. Ástæðan mun vera að lögin bjóða upp á undanþágu hvað þetta varðar og hafa þrír staðir sótt um slíka undanþágu. »2 Lánshæfi til athugunar  Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur breytt horfum fyrir lánshæf- ismat íslenska ríkisins úr stöðugum í neikvæðar. Þá hefur matsfyrirtækið Standard & Poor’s tekið lánshæfis- einkunn ríkisins til athugunar. »14 Jarðfræðin vel þekkt  Gerð Sundaganga eiga ekki að fylgja nein stórkostleg vandræði vegna jarðlaga á fyrirhugaðri ganga- leið, að mati framkvæmdastjóra þró- unarsviðs Vegagerðarinnar. Segir hann bergið á svæðinu vel þekkt og engin stórhætta sé á miklum leka. »8 SKOÐANIR» Staksteinar: Mont eða heimska Forystugreinar: Rödd skynseminn- ar | Þjóðfélag án jarðefnaeldsneytis? Ljósvaki: Heimavinnandi húsfeður UMRÆÐAN» Tökum á efnahagsvandanum Aðkallandi vegagerð Hinar óstöðvandi vélaherdeildir Ekki gleyma öryrkjum og öldruðum 3  3 3  3 3 3  3 3 3 4 # $5% . +$ 6    1   3 3  3 3  3 3 - 7)1 %   3 3 3  3  3  3 89::;<= %>?<:=@6%AB@8 7;@;8;89::;<= 8C@%77<D@; @9<%77<D@; %E@%77<D@; %2=%%@F<;@7= G;A;@%7>G?@ %8< ?2<; 6?@6=%2+%=>;:; Heitast 7 °C | Kaldast 0 °C  NA og A 8-13 m/s og víða léttskýjað en dálítil él na-lands. Hvessir og þykknar upp s-lands síðdegis, fer að rigna. » 10 Íslenskur lagasmið- ur samdi lagið „Beautiful“ sem sit- ur nú í efsta sæti Billboard-listans bandaríska. »36 TÓNLIST» Efstur á Billboard TÓNLIST» Ragnar Sólberg er á hringferðalagi. »43 Fyrstu árin sem fjöl- miðlar göbbuðu landsmenn hlupu margir 1. apríl. Nú eru menn varari um sig. »5 FJÖLMIÐLAR» Bestu aprílgöbbin FÓLK» Rígur um athyglina á rauða dreglinum. »37 KVIKMYNDIR» Stones-mynd Scorsese frumsýnd. » 40 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. … nýjar kvikmyndir á mbl.is 2. Varstu gabbaður í dag? 3. Margra kílómetra bílaröð 4. Vildi gera Ísland gjaldþrota  Íslenska krónan veiktist um 0,9% Eftir Hlyn Inga Grétarsson og Helgu Mattínu Björnsdóttur RUSSELL Trocano brá heldur bet- ur í brún í gærmorgun þegar hann áttaði sig á að hann var staddur á flugvellinum á Þórshöfn á Langanesi en hann hafði á hinn bóginn talið sig vera á leið til Þórshafnar í Fær- eyjum. Kunningi Russells hafði bókað fyr- ir hann ferðina á netinu en Russell flaug frá Bandaríkjunum og stóð til að hann færi frá Íslandi til Færeyja. Í gærmorgun fór hann með flugi frá Reykjavík til Akureyrar og taldi sig vera að fara þaðan til Færeyja með viðkomu á Vopnafirði. Töldu uppákomuna aprílgabb Þegar mistökin urðu ljós vakti það nokkra kátínu á flugvellinum og gerðu menn því skóna að um væri að ræða aprílgabb hjá félaganum sem bókaði ferðina. Russell fór með vélinni til baka til Akureyrar og hyggst sleppa Fær- eyjaferðinni og dvelja á Akureyri í nokkra daga áður en hann fer aftur til Bandaríkjanna. Aðspurður sagði Russell að sér hefði ekki dottið annað í hug en hann væri á leið til Færeyja miðað við hvað flugið kostaði. Hann taldi að ekki gæti verið um að ræða svo dýrt far innanlands en farið frá Reykjavík til Þórshafnar kostaði hann 24.000 krónur. Honum leist þó ekki á blikuna þeg- ar hann steig upp í Twin Otter-vél Flugfélags Íslands sem hann hélt að ætti að flytja sig til Færeyja en sagði eftir ferðina að flugið hefði verið býsna skemmtilegt þrátt fyrir nokkra ókyrrð. Russell sem er Bandaríkjamaður starfar sem lögfræðingur og hefur komið nokkrum sinnum til Íslands í tengslum við lögfræðistörf fyrir ís- lenska kunningja sína. Í þetta skiptið hugðist hann þó einungis millilenda hér á leið sinni til Færeyja. Að sögn starfsmanna á flugvell- inum á Akureyri hafa tilfelli sem þessi komið upp áður þó það sé ekki algengt. Lenti á rangri Þórshöfn Hyggst sleppa Færeyjaferðinni Ljósmynd/Hlynur Ingi Grétarsson Aprílgabb? Mistökin vöktu nokkra kátínu á flugvellinum á Akureyri. Flugferð Bandaríkjamanns til Færeyja í gegnum Ísland tók óvænta stefnu DAGINN áður en Bob Dylan stígur á svið í Laugardals- höll verður fyrr- verandi eiginkona hans, Carol Denn- is-Dylan með tón- leika í Fíladelfíu- kirkjunni. Eftir því sem best er vitað mun það vera til- viljun að þau spila hér á sama tíma. Á tónleikunum í Fíladelfíu 25. maí kemur Dennis-Dylan fram ásamt þekktum bandarískum gospelsöngv- ara, Andraé Crouch, og Gospelkórum Reykjavíkur og Fíladelfíu. „Hún er svakaleg söngkona, alveg æðisleg,“ segir Óskar Einarsson, stjórnandi Gospelkórs Reykjavíkur. Carol Dennis og Bob Dylan eign- uðust dóttur árið 1986 og giftu sig síð- ar sama ár. Þau slitu samvistum árið 1992. Dennis- Dylan til Íslands Var gift Bob Dylan Carol Dennis- Dylan Í GÆR var í fyrsta skipti úthlutað styrkjum úr Kraumi, nýjum styrkt- arsjóði fyrir íslenskt tónlistarlíf. Bakhjarlar Kraums, hjónin Ingi- björg Kristjánsdóttir landslags- arkitekt og Ólafur Ólafsson stjórn- arformaður Samskipa afhentu Mugison hæsta styrkinn, fjórar milljónir króna. | 39 Kraumur styrkir tónlistarlífið Morgunblaðið/RAX ÞEGAR misskilningurinn um ferðaáætlun Russells Trocano varð ljós bauð starfsfólk Flugfélags Íslands honum í sárabætur að fljúga norður fyrir heimskautsbaug, til Grímseyjar, sem hann þáði með þökkum. Ferð til Grímseyjar sem sárabót

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.