Morgunblaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 B 21
Útboð
Hafskipabryggja, stálþil
Langaneshafnir óska eftir tilboðum í ofangreint
verk við höfnina á Þórshöfn.
Helstu magntölur:
Fylling og grjótvörn um 16.500 m³
Reka niður 125 tvöfaldar stálþilsplötur og koma
fyrir festingum.
Steypa um 170 m langan kant með pollum,
stigum og þybbum.
Steypa ljósamasturshús og undirstöðu
ljósastaurs.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. desember
2008.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Siglinga-
stofnunar, Vesturvör 2, Kópavogi og á skrifstofu
Langanesbyggðar, Fjarðarvegi 3, Þórshöfn, frá
miðvikudeginum 4. júní 2008, gegn 5.000 kr.
greiðslu.
Tilboð verða opnuð á sömu stöðum fimmtu-
daginn 19. júní 2008 kl. 11:00.
Langaneshafnir.
ÚTBOÐ
Hveragerðisbær auglýsir hér með
útboðið Gatnagerð Hveragerði 2008.
Verkið felst í endurbyggingu á götunni
Þórsmörk, sem er eldri gata í miðbæ Hvera-
gerðis. Einnig að lengja götuna Þelamörk til
austurs.
Jarðvegsskipta skal götustæði og stíga, og
fylla í með burðarlagi þar sem þess er þörf.
Leggja skal frárennslisstofna í götu, leggja
heimæðar inn á lóðir, gera niðurföll og leggja
að þeim regnvatnslagnir. Leggja skal hitaveitu,
OR-gagnaveitulagnir, símalagnir og aðstoða
við lagningu rafmagns. Hæðarsetja akbrautir
og malbika. Steypa kantsteina og malbika
gangstétt.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 4856 m³
Fleygun/sprengingar 300 m³
Fyllingar 4593 m³
Fráveitulagnir 626 m
Vatnslagnir 471 m
Hitaveitulagnir 419 m
Malbikun 3361 m²
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi á
heimasíðu Verkfræðistofu Suðurlands.
Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu
hafa samband við Nönnu í síma 482 3900, eða
með tölvupósti til nanna@verksud.is og gefa
upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í
kjölfarið úthlutað aðgangi að FTP svæði
Verkfræðistofunnar þar sem gögnin eru vistuð.
Verklok eru áætluð 1. janúar 2009. Opnun til-
boða fer fram mánudaginn 16. júní 2008,
kl. 11.00 á skrifstofum Hveragerðisbæjar að
Sunnumörk 2.
ÚTBOÐ
BLIKASTAÐANES
STÍGAGERÐ
Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í gerð
malbikaðs göngustígs á Blikastaðanesi.
Um er að ræða jarðvinnu, landmótun og
yfirborðsfrágang.
Helstu magntölur:
Gröftur: 2.750 m3
Fyllingar: 4.300 m3
Malbik: 5.400 m2
Áætluð verklok 15. ágúst 2008. Prentuð útboðs-
gögn verða afhent í Þjónustveri Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 1. hæð, frá og með þriðjudeginum
3.júní 2008. Hægt verður að fá útboðsgögn á
geisladiski. Tilboðum skal skilað á sama stað
fyrir kl. 14:00 föstudaginn 20. júni n.k. þar sem
þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda
sem þess óska.
Tækni- og umhverfissvið Mosfellsbæjar
14535 - Alþingisreitur -
Fornleifagröftur - Endurútboð
Framkvæmdasýsla ríkisins fyrir hönd Alþingis,
óskar eftir tilboðum í verkið:
Alþingisreitur - Fornleifagröftur - Endurútboð.
Um er að ræða fornleifagröft á Alþingisreit við
Austurvöll, á því svæði sem ekki er þegar búið að
kanna vegna bygginga. Nú síðast vegna byggingu
Þjónustuskála Alþingis, ásamt bílakjallara, sem
nær til vesturs til móts við miðja langhlið Kirkju-
strætis 8 (Skjaldbreiðar).
Svæðið afmarkast að austan af bílakjallaranum, að
sunnan af Vonarstræti, að vestan af Tjarnargötu og
að norðan af Kirkjustræti. Megin hluti svæðisins er
nú bílastæði.
Mannvistar- og mannvirkjalagið sem þarf að rann-
saka er um 1,2-1,5 m undir núverandi yfirborði og
er áætlað um 1,0 m þykkt. Búið er að spilla því að
hluta en heildarstærð svæðisins er um 2000 fer-
metrar.
Helstu verkþættir og magntölur eru:
Upptekt og brottakstur hellulagnar 840 fermetrar
Uppgröftur og brottakstur malbiks 980 fermetrar
Uppgröftur og brottakstur snjóbræðslukerfis
1.940 fermetrar
Fornleifagröftur 1.400 rúmmetrar
Fornleifagreftri skal að fullu lokið á norð-vestur
hluta reitsins 31. október 2008, á öllu svæðinu 31.
október 2009 og skil lokaskýrslu og frumgagna
skulu fara fram fyrir 31. júlí 2010.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 3.500, hjá
Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík frá og
með mánudeginum 2. júní 2008.
Tilboð verða opnuð hjá Ríkiskaupum, mánu-
daginn, 16. júní 2008 kl. 11.00, að viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska.
ÚTBOÐ
Orkuveita Reykjavíkur • Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
Sími 516 6000 • Fax 516 6308
www.or.is/udtbod
Óskað er eftir tilboðum í verkið:
Nesbúð - til sölu
og brottflutnings
Nesbúð - Nesjavöllum
Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í Nesbúð,
gisti- og veitingahús á Nesjavöllum. Húsin þarf að flytja
af staðnum og ganga frá lóðinni snyrtilegri og tyrfðri.
Húsin eru einingahús sem standa á steinsteyptum
sökklum með skriðkjöllurum. Húsin voru byggð árið
1988 og eru 1649,9 m2 að stærð skv. fasteignamati.
Húsin eru í þokkalegu ásigkomulagi en þarfnast
viðhalds.
Byggingarnar samanstanda af eftirfarandi rýmum:
• Aðstaða starfsfólks (um 90 m2)
• Matsalur, eldhús, búr og skrifstofa (um 230 m2).
Þar undir er einnig kjallari.
• Anddyri, fundarsalur, setustofur, salerni, þvottahús
og geymsla. (um 300 m2)
• Svefnskálar (um 900 m2)
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu á vefsíðu
Orkuveitunnar www.or.is - Um OR útboð/auglýst
útboð, frá og með þriðjudeginum 11. Mars 2008. Frá
sama tíma er einnig unnt að kaupa þau hjá
þjónustufulltrúum á 1. hæð í húsi Orkuveitu
Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1,110 Reykjavík.
Verð er kr 3.000.
Tilboð verða opnuð á sama stað í fundarsal á
3. hæð, vesturhúsi,þriðjudaginn 24. júní 2008
kl. 14:00.
OR/08/014
*Nýtt í auglýsingu
14537 Bláargerði 9 - 11, Egilsstöðum -
Sambýlishús. Framkvæmdasýsla
ríkisins, f.h. félags- og trygginga-
málaráðuneytisins, óskar eftir tilboðum í
framkvæmdir við nýbyggingu
sambýlishúss við Bláargerði 9 – 11 á
Egilsstöðum. Útboðsgögn eru til sýnis og
sölu á kr. 3.500 hjá Ríkiskaupum. Opnun
tilboða er 10. júní 2008 kl. 15.00.
14504 Upplýsingatækni - Búnaður og
þjónusta - Rammasamningsútboð.
Ríkiskaup, fyrir hönd áskrifenda að
rammasamningakerfi Ríkiskaupa standa
fyrir þessu útboði á heildarlausnum á
sviði upplýsingatækni. Sú vara sem leitað
er tilboða í, er m.a. í eftirfarandi vöru-
flokkum:
Einmenningstölvur, fartölvur, skjáir,
netþjónar og netbúnaður, prentarar,
skjávarpar, rekstrarvörur, gagnageymslur,
rekstur og hýsing.
Nánari upplýsingar er að finna í útboðs-
gögnum sem eru aðgengileg á vef
Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is. Opnun til-
boða er 8. júlí 2008 kl. 11.00.
14446 Skólaakstur í Hvalfjarðarsveit.
Ríkiskaup fyrir hönd Hvalfjarðarsveitar
óska eftir tilboðum í skólaakstur fyrir
nemendur við Heiðarskóla í Hvalfjarðar-
sveit Borgarfjarðarsýslu. Um eru að ræða
5 aksturleiðir og er áætlaður akstur á dag
um 383 km. Heimilt er að bjóða í einstak-
ar akstursleiðir. Nánari upplýsingar eru
að finna í útboðsgögnum sem eru
aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikis-
kaup.is. Opnun tilboða er 10. júlí 2008
kl. 11.00.
*14451 Blóðflokkunarvélar fyrir Blóðbanka,
Landspítala. Ríkiskaup, fyrir hönd
Landspítalans, óska eftir tilboðum í
blóðflokkunarvélar ásamt rekstrarvörum
til fjögurra ára. Einnig er óskað eftir
verðum í þjónustusamning og varahluti.
Nánari upplýsingar má finna í
útboðsgögnum, sem eru rafræn og verða
aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikis-
kaup.is, eigi síðar en miðvikudaginn
4. júní nk. Opnun tilboða er 28. ágúst
2008 kl. 11.00.