Morgunblaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 10
10 B SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
DEILDARSTJÓRI SÝNINGADEILDAR
Laus er til umsóknar staða deildarstjóra sýningadeildar Listasafns Íslands. Um er að ræða fullt stöðugildi og eru launakjör skv.
launakerfi opinberra starfsmanna.
Sýningadeild ber ábyrgð á framkvæmd allra sýninga á vegum safnsins, innan þess sem utan. Deildarstjóri sýningadeildar annast
stjórn verkefna og hefur umsjón með verkferlum er lúta að sýningum, þ.á.m. kostnaðaráætlun.
Starf deildarstjóra kallar á frumkvæði, sjálfstæði í starfi og stjórnunarhæfileika, lipurð í mannlegum samskiptum auk kunnáttu til að
skipuleggja og skapa stórar og smáar sýningar.
Umsækjendur skulu hafa háskólapróf í listfræði og reynslu af skipulagningu og uppsetningu sýninga.
Skriflegar umsóknir, ásamt lýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast Listasafni Íslands til og með
20. júní 2008, merktar Deildarstjóri sýningadeildar.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf frá og með 1. sept. næstkomandi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri í síma 515 9600 eða halldorbjorn@listasafn.is.
Blönduósbær
Grunnskólakennarar
Kennara vantar til starfa við
Grunnskólann á Blönduósi næsta
haust.
Um er að ræða u.þ.b. 50% stöður bæði í
heimilisfræði og tónmennt.
Undanfarin ár hefur verið lögð áhersla á að
þróa samkennslu ólíkra aldurshópa í list- og
verkgreinum.
Umsækjendur þurfa að hafa réttindi til að
kenna í grunnskóla. Æskilegt er að
viðkomandi hafi reynslu af starfi í skóla
með einstaklingsmiðaðar áherslur.
Góðir skipulags-, samskipta- og samvinnu-
hæfileikar eru skilyrði.
Frekari upplýsingar má finna á vef skólans
http://www.blonduskoli.is og hjá
Þórhöllu Guðbjartsdóttur skólastjóra
thorhalla@blonduskoli.is eða
Sigríði Bjarney Aadnegard aðstoðarskóla-
stjóri, sigridurb@blonduskoli.is, í síma
452 4147.
Umsóknarfrestur er til 16. júní nk.
og skal umsóknum skilað með ferilskrá
til skólastjóra.
Nánari upplýsingar eru á www.norden.org
Umsóknarfrestur er til 9. júní 2008
Skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar
auglýsir eftir
launafulltrúa
í starfsmanna-, fjármála-, upplýsinga- og
þjónustudeild
Store Strandstræde 18,
DK-1255 København K
sími:+ 45 33 96 02 49
Auglýsingastjórn/
vefumsjón
Læknablaðið óskar eftir aðila í 50% starf og
þarf viðkomandi að geta hafið störf 15. júní.
Vinnan felst í auglýsingaöflun, vefumsjón og
almennum verkefnum ritara.
Vinsamlegast sendið umsóknir um starfið til
blaðsins ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf fyrir 5. júní nk. vedis@lis.is
Læknablaðið, v/ starfsumsóknar,
Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi.
www.kaffitar.is
Kaffitár hefur með frumkvæði og forystu lagt sitt af mörkum
til fjölbreytileikans í kaffilífi þjóðarinnar. Megin áhersla
Kaffitárs er að gera vel við bændur sem og viðskiptavini
sína – og gera alltaf betur. Grundvöllur þess er vitanlega
ástríða okkar að finna og framleiða hið allra besta úrvalskaffi
og leyfa öðrum að njóta þess.
Verslunarstjóri:
Óskum eftir að ráða til starfa verslunarstjóra á kaffihús
okkar í Þjóðminjasafni Íslands.
Starfið felst í ábyrgð og umsjón með daglegum rekstri.
Sölu og framreiðslu á kaffidrykkjum og meðlæti. Sölu á
úrvalskaffi, kaffivörum og öðru vöruframboði. Innkaup
á vörum fyrir staðinn og umsjón með starfsmannahaldi.
Hæfniskröfur:
Við leitum að áreiðanlegum, skipulögðum og jákvæðum
einstakling sem getur unnið sjálfstætt. Metnaður, áhugi
og þjónustulund eru skilyrði.
Umsóknum má skila með tölvupósti á marta@kaffitar.is.
Frekari upplýsingar í síma 696-8832.
-leggur heiminn að vörum þér