Morgunblaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 B 11
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar
endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu
Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11 færð þú allar upplýs-
ingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsemenn sem þú þarft að ná í.
Laus er til umsóknar staða iðjuþjálfa hjá
Þjónustumiðstöð Vesturbæjar.
Helstu áherslur í starfi eru einstaklingsmiðuð þjónusta,
þverfaglegt samstarf og aðstoð inn á heimilum í Vestur-
bæ. Lögð er áhersla á hugmyndafræði valdeflingar og
þátttöku íbúa.
Helstu verkefni:
• Efla og viðhalda færni einstaklingsins.
• Að stuðla að jafnvægi í daglegu lífi, þannig að
einstaklingurinn geti lifað sjálfstæðu og innihaldsríku
lífi og verið ábyrgur og virkur í þjóðfélaginu.
• Tengja einstaklinginn umhverfi sínu.
• Almenn ráðgjöf til einstaklinga og samvinna við
fjölskyldur.
• Þátttaka í skapandi forvarnarstarfi í hverfinu.
• Endurmat um heimaþjónustu.
• Ráðgjöf og handleiðsla til samstarfsmanna.
• Þróunarvinna í stuðnings- og heimaþjónustu
(Ráðgjöfin heim t.d.).
• Þverfaglegt starf á Þjónustumiðstöð Vesturbæjar.
Hæfniskröfur:
• Iðjuþjálfamenntun áskilin.
• Þekking og reynsla í vinnslu með einstaklinga
æskileg.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
• Skipulagshæfileikar.
• Áhugi á þróun þverfaglegs starfs innan
þjónustumiðstöðvarinnar.
• Sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
• Almenn tölvukunnátta og hæfni til að tjá sig í
ræðu og riti.
Þjónustumiðstöð Vesturbæjar býður upp á:
• Þverfaglega samvinnu með metnaðarfullu
starfsfólki.
• Handleiðslu.
• Sveigjanlegan vinnutíma.
Um er að ræða 100% stöðu.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem
fyrst.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Reykjavíkurborgar og Iðjuþjálfafélags Íslands.
Nánari upplýsingar veitir Óskar Dýrmundur
Ólafsson, framkvæmdastjóri á Þjónustumiðstöð
Vesturbæjar í síma 411 1700, netfang:
oskar.dyrmundur.olafsson@reykjavik.is og
Sigþrúður E. Arnardóttir, deildarstjóri Vesturgarðs
hjá Þjónustumiðstöð Vesturbæjar í síma
411 1700, netfang:
sigthrudur.erla.arnardottir@reykjavik.is
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja
um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar
www.reykjavik.is/storf fyrir 14. júní nk.
Velferðarsvið
Iðjuþjálfi
Sölumaður
Bender ehf leitar að sjálfstæðum og skipu-
lögðum sölumanni í fjölbreytt og krefjandi
sölustarf.
Hæfniskröfur og starfssvið:
Reynsla af sölustarfi
Frumkvæði, þjónustulund og góð mannleg
samskipti
Góð tungumálakunnátta
Góð tölvukunnátta
Samskipti og eftirfylgni við viðskiptavini
Umsókn ásamt ferilskrá og meðmælum
sendist á: box@mbl.is merktar: ,,Bender ehf -
sölumaður” fyrir 6. júní.
Háskóli Íslands leitar eftir
lektorum við rafmagns-
og tölvuverkfræðideild
Starf lektors á sviði rafeindatækni
Við rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands er laust til umsóknar starf lektors á sviði
rafeindatækni. Starfið felur í sér kennslu og rannsóknir á fagsviðinu. Það krefst frumkvæðis í
áframhaldandi uppbyggingu meistara- og doktorsnáms í tengslum við rannsóknir, sem stenst
samanburð við það besta sem völ er á.
Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi í rafmagns- og/eða tölvuverkfræði. Æskilegt er að
umsækjandi hafi stundað rannsóknir og hönnun á rafeindarásum. Auk þess er krafist góðrar
samstarfshæfni.
Starf lektors á sviði merkjafræði
Við rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands er laust til umsóknar starf lektors á sviði
hagnýtrar merkjafræði með áherslu á lífverkfræði. Starfið felur í sér kennslu og rannsóknir á
fagsviðinu. Það krefst frumkvæðis í áframhaldandi uppbyggingu meistara- og doktorsnáms í
tengslum við rannsóknir, sem stenst samanburð við það besta sem völ er á.
Krafist er doktorsprófs í rafmagns- og/eða tölvuverkfræði. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu
af rannsóknum á sviði hagnýtrar merkjafræði með áherslu á lífverkfræði.
Auk þess er krafist góðrar samstarfshæfni.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga
um Háskóla Íslands nr. 41/1999 og reglna um Háskóla Íslands nr. 458/2000.
Umsóknarfrestur er til 11. ágúst nk.
Sjá nánar á www.hi.is/page/storf og www.starfatorg.is/
Fræðslustjóri
Laus er til umsóknar staða fræðslustjóra í
Skagafirði til eins árs vegna námsleyfis.
Tilvalið starf fyrir aðila sem hefur sérfræði-
þekkingu á þessu sviði og langar til að prófa
að búa og starfa utan stórhöfuðborgarsvæð-
isins án þess að binda sig í langan tíma.
Í Skagafirði býr gott fólk og hér er mikil
gróska um þessar mundir. Okkur vantar
fleira gott fólk til að taka þátt í uppbygging-
unni með okkur. Mikil áhersla er m.a. lögð á
eflingu fræðslustarfs.
Helstu verkefni og ábyrgð
fræðslustjóra:
Fræðslustjóri er einn af yfirstjórnendum
Fjölskylduþjónustu Skagfirðinga og situr í
stjórnunarteymi hennar.
Fræðslustjóri situr fundi fræðslunefndar
og sér um að ákvarðanir nefndarinnar
komist til framkvæmda.
Fræðslustjóri kemur að undirbúningi
stefnumótunar og almennrar áætlana-
gerðar í fræðslumálum.
Fræðslustjóri hefur með höndum daglega
stjórnun þeirra verkefna sem undir hans
starfssvið heyra.
Fræðslustjóri hefur eftirlit með að fram-
fylgt sé lögum sem gilda um grunnskóla,
leikskóla og tónlistarskóla.
Fræðslustjóri vinnur að gerð fjárhags-
áætlana fyrir sviðið í samráði við
fjármálastjóra og skólastjórnendur.
Fræðslustjóri hefur eftirlit með rekstri
grunnskóla, leikskóla og tónlistarskóla og
stofnunum þeim tengdum.
Fræðslustjóri mun, auk ofangreindra verk-
efna, verða tengiliður sveitarfélagsins við
alla fræðslustarfsemi á starfsvæðinu og
sinna, í umboði fræðslunefndar, aðkomu
sveitarfélagsins að þróun og uppbygg-
ingu í þeim málaflokki á öllum
skólastigum.
Menntun og hæfniskröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Nám/viðbótarnám á sviði stjórnunar
æskilegt.
Skipulags- og stjórnunarhæfileikar.
Stjórnunarreynsla æskileg.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Lipurð í mannlegum samskiptum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Guðmundur Guðlaugsson sveitarstjóri í
síma 455-6000.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Launanefndar sveitarfélaga og Kennarasam-
bands Íslands. Umsóknarfrestur er til 10. júní.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Sveitar-
félagsins Skagafjarðar í Ráðhúsinu,
550 Sauðárkróki.